Morgunblaðið - 12.07.2002, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 12.07.2002, Qupperneq 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ R íkisvaldið er með all- ar klær úti að ná sér í aura, það þekkja menn mætavel. Oft- ast lætur það sér nægja að sækja fé þangað sem féð er fyrir, en nú er það af klókindum farið að hvetja fólk til að breyta hegðun sinni svo það greiði hærri skatta. Þetta er án vafa þáttur í nútímavæðingu í ríkisrekstri og til þess gert að mýkja yfirbragð rík- isins. Í stað þess að hækka álögur á almenning er ríkið nú orðið svo útsmogið að það auglýsir grimmt í fjölmiðlum þar sem það hvetur fólk – óbeint að vísu – til að greiða hærri skatta. Í stað þess að senda önuga skattheimtumenn á lands- lýð eru hressir og skemmti- legir auglýs- ingamenn fengnir til að afla tekn- anna. Þetta er auðvitað svo snjallt að taka verður ofan fyrir þeim sem dettur slíkt í hug. En hvert er þá klækjabragðið sem um ræðir? Jú, það er vitaskuld herferðin Ísland – sækjum það heim. Þessi auglýsingaherferð fyrir auknum skatttekjum er vel dulbú- in, það vantar ekki. Auglýst er að ánægjulegt sé að aka um landið þvert og endilangt og því lengra og meira sem ekið er, þeim mun meiri sé ánægjan. Herferðin er farin undir því yfirskyni að efla ferðaþjónustu og auka viðskipti á landsbyggðinni, en þegar grannt er gáð er ljóst hver hagnast mest á öllu saman, það er ríkið sjálft. Og hvernig má það vera að ríkið hagnist mest allra á því að fólk þeytist um landið? Jú, það er ein- falt reikningsdæmi. Þegar þeyst er um landið eru viðkomustaðirnir bensínstöðvarnar og það með reglulegu millibili. Fyllt er á bílinn fyrir nokkur þúsund krónur í hvert sinn, og í hvert sinn fær ríkið meira en helming þess sem bens- ínið kostar sækjum-það-heim- ferðamanninn. Ef sá ágæti maður hefði farið út fyrir landsteinana, til dæmis á hefðbundna sólbrennda strönd, þá hefði íslenska ríkið harla lítið haft upp úr honum og hann hefði getað flatmagað þar án samskipta við langa fingur þess. En nú er hann reglulega staddur á bensínstöðvum á landsbyggðinni þar sem ríkið nær af honum þús- undum króna við hverja áfyllingu. Einhverjir kunna að halda því fram að ekki sé nema sanngjarnt að sá sem notar þjóðvegi landsins greiði fyrir þá í stað þess að sól- brenndir Íslendingar á sólar- ströndum standi undir kostn- aðinum. Og vissulega er eðlilegra að þeir sem nota þjónustuna greiði fyrir hana en hinir sem nota hana ekki. Þess vegna væri í sjálfu sér eðlilegast að allir vegir væru eins og Hvalfjarðargöngin og menn greiddu fyrir afnot af þeim. Skatt- heimta ríkisins af bílum, sem stundum er sögð eiga að koma í staðinn fyrir beina greiðslu af því tagi, er hins vegar í besta falli afar ófullkomin leið til að láta menn greiða fyrir það sem þeir nota. Annars vegar er það vegna þess að það nota ekki allir sömu vegi jafn mikið. Sumir fara aldrei til Reykjavíkur og aðrir aldrei á Langanes, svo dæmi séu tekin. Hins vegar er það vegna þess að þær álögur sem lagðar eru á bíl- eigendur fara alls ekki í að bæta samgöngur. Þær eru að stærstum hluta ekkert annað en almenn skattheimta, og þess vegna er það sem Ísland – sækjum það heim er svo snjallt tekjuöflunarbragð. Á síðustu árum hefur ríkið varið 29–44% af þeim tekjum sem það hefur af bíleigendum til að laga vegi landsins eða leggja nýja. Þetta þýðir með öðrum orðum að 56–71% af álögum á bíleigendur hafa farið í eitthvað allt annað en vegagerð, sem sýnir að bíleig- endur eru með sköttum sínum að stærstum hluta að greiða eitthvað allt annað en kostnað vegna bílanna. Þeir eru látnir borga meira en aðrir menn fyrir almenna eyðslu ríkisins, og þeim mun meira sem þeir aka meira eða leyfa sér að eiga dýrari bíl. Hvaða rök eru fyrir því að bíl- eigendur skuli greiða meira í svo kallaða sameiginlega sjóði lands- manna en aðrir? Ekki er víst að góð rök séu til, en skýringarnar eru líklega tvær. Önnur er að bílar eru afar þægileg leið til tekjuöfl- unar fyrir ríkið, en það verður seint til að réttlæta það að bíleig- endur séu skattpíndir umfram aðra. Hin er að sumum mönnum er ákaflega mikið í nöp við bíleig- endur og vilja svigrúm þeirra sem minnst. Í hugum þessara manna eru bílar hvarvetna til trafala og þeim mun meira sem bílarnir verða stærri, þægilegri og örugg- ari. Nema að vísu ef bílarnir eru gulir og heita strætó, en heiti þeir jeppar, ja, þá mega eigendur þeirra fara að vara sig. Þegar skattheimta á bíleig- endur er hugsuð til að þröngva mönnum til að aka um á öðrum bíl- um en þeir vilja, þá er hún eig- inlega orðin enn síður til fyr- irmyndar en þegar aðeins á að hafa bíleigendur að féþúfu. Það getur ekki verið í eðlilegum verka- hring ríkisins að segja mönnum fyrir um hvaða bílum þeir aki eða hvernig þeir hagi sér að öðru leyti. Skattheimta er nógu slæm þó henni sé ekki beitt í annarlegum tilgangi eins og oft vill verða nú orðið, þ.e. til að þvinga fólk til ákveðinnar hegðunar. Svona er þetta nú að vissu leyti öfugsnúið allt saman. Hluti af skýringunni á háum sköttum á bíla er að sumum er illa við bíla en þetta verður til þess að ríkið notar tækifærið og hvetur til aukinnar notkunar þessara sömu bíla. En það er svo sem ekki víst að fólki þyki neitt sérkennilegt að ríkið reyni að koma í veg fyrir bílaeign og hvetji um leið til aukins akst- urs, enda margt undarlegt sem frá ríkinu kemur. En ef ríkið heldur áfram á þessari braut verða þó einhverjir hissa þegar þeir sjá næstu tekjuöflunarherferð rík- isins. Já, þegar væntanleg auglýs- ing Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, Flaskan – taktu hana með í fríið, verður spiluð í beinu fram- haldi af auglýsingunni Ísland – sækjum það heim, þá mun ein- hverjum bregða. Flöskuna með í fríið! „Þær álögur sem lagðar eru á bíleig- endur fara alls ekki í að bæta sam- göngur. Þær eru að stærstum hluta ekk- ert annað en almenn skattheimta, og þess vegna er Ísland – sækjum það heim svo snjallt tekjuöflunarbragð.“ VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj@mbl.is ✝ Árni Ólafssonskrifstofustjóri fæddist á Ísafirði 4. nóvember 1919. Hann lést á Landspít- ala, Fossvogi, 4. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Ólafur Pálsson, framkvstj. Ísafirði, síðar lögg. endursk. í Reykjavík, f. 29. jan. 1884, d. 12. des. 1971, og k.h. Ásthildur Sigurðar- dóttir, f. 21. des. 1888, d. 25. nóv. 1919. Systkin Árna voru: Guðbjörg Sigurrós, Páll, efnaverkfræðingur, Ólafur, sýslu- fulltrúi, lengst á Ísafirði, Arndís, Sigurður, fyrrum bæjarritari í Kópavogi, Theódór, vélsmiður. Árni er þeirra yngstur, en yngri er Ásthildur, dóttir Ólafs og s. k. h. Helgu Björnsdóttur. Faðir Ólafs var Páll Ólafsson, pr. og próf. í Vatnsfirði í Djúpi, áður próf. og alþm. á Prestsbakka, Strand. og k.h. Arndís Pétursdótt- ir Eggerz kaupstjóra á Borðeyri og bónda í Akureyjum, Friðriks- sonar Eggerz, pr. í Akureyjum og k.h. Jakobínu Jóhönnu Sigríðar Pálsdóttur Melsteð, sjá Thoraren- sensætt. Faðir Páls í Vatnsfirði var Ólafur Pálsson, dómkirkjupr. í Reykjavík síðar próf. á Melstað og k.h. Guðrún Ólafsdóttir Steph- ensens, secretera og jústisráðs í Viðey, Magnússonar Stephensens dómstj. og konferensráðs í Viðey (Stefánungar), Ólafssonar stift- amtmanns í Viðey; Ólafssonar pr. í Ásum síðar Holtaþingum 1788– 1823 og k.h Kristínar Þorvalds- dóttur, pr. í Holti Böðvarssonar, sjá Niðjatal Þorvalds Böðvarsson- ar pr. á Holti undir Eyjafjöllum og Björns Jónssonar pr. í Bólsstað- arhlíð; Pálssonar pr. í Ásum síðar Eyvindarhólum 1763–1839, Jóns- sonar klausturhaldara á Kirkju- bæjarklaustri, síðar Gufunesi og Elliðavatni og k.h. Helgu Jóns- dóttur Steingrímssonar eld- klerks, sjá Ættir Síðupresta. Árni kvæntist 23. nóvember 1940 eftirlifandi konu sinni Ragn- hildi (Huldu) Ólafsdóttur frá Látr- um í Aðalvík, f. 3. október 1918. Foreldrar hennar voru Ólafur Helgi Hjálmarsson, útvegsbóndi þar, síðar vélsmiður í Reykjavík, f. 14. nóv. 1895, d. 16. júní 1974 og k.h. Sigríður Jóna Þorbergsdótt- ir, f. 2. des. 1899, d. 20. mars 1983. Börn Árna og Huldu eru: 1) Ást- hildur, skrifststj., f. 2. sept 1938, e.m. Margeir Ásgeirsson frá Hnífsdal, d. 20. okt. 1993. Þeirra börn: a) Árni, látinn, e.k. Anna Ingólfsdóttir, eiga þrjár dætur. b) Ragnhildur, e.m. Hafsteinn Hafsteins- son, hún átti einn son er lést í bernsku, þau eiga þrjú börn. c) Ásgeir, e.k. Svein- björg Einarsdóttir, eiga þrjá syni. d) Veigar, hljómlist- arm., Los Angeles, Kaliforníu, Banda- ríkjunum, e.k. Sig- ríður Ragna Jónasdóttir, eiga eina dóttur, önnur dóttir lést í frumbernsku. 2) Árni Ragnar, alþm. f. 4. ágúst 1941, e.k. Guð- laug P. Eiríksdóttir. Þeirra börn: a) Guðrún, e.m. Brynjar Harðar- son, hún á einn son, þau eiga tvö börn. b) Hildur, e.m. Ragnar Þ. Guðgeirsson, eiga tvö börn. c) Björn, samb-k. Kristbjörg Kari Sólmundardóttir, eiga einn son. d) Árni, samb-k. Kolbrún Hrönn Pét- ursdóttir, eiga einn son. 3) Sigríð- ur Jóna, deildarstj., e.m. John Myer. Hennar börn: a) Carl C. Schaefer, e.k. Rhonda. b) Hilda Kay Noll, e.m. Dennis Noll, eiga tvö börn. c) Eric Árni Schefer, lést í frumbernsku. d) Steven R. Schaefer. 4) Ragnhildur, bóka- safnsfr., e.m. Hörður Falsson. Þeirra börn: a) Helga, e.m. Jón Viðar Matthíasson, eiga fjögur börn. b) Hulda, e.m. Ólafur Bald- ursson, eiga tvö börn. c) Falur, e.k. Margrét Sturlaugsdóttir, eiga tvær dætur. Árni lauk barnaskóla á Ísafirði og jók síðar menntun sína með ýmsum námskeiðum, kvöldskóla og bréfaskóla. Hann var verka- maður, sjómaður á Djúpbátnum og togurum, og fiskmatsmaður á Ísafirði. Hann réðst til Hraðfrysti- hússins Jökuls hf. í Keflavík og flutti þangað með fjölskyldu sína í ágúst 1956 og gerðist þar verk- stjóri og framleiðslustjóri, yfir- fiskimatsm., lögg. vigtarmaður á Hafnarvoginni og skrifstofustjóri, síðast um 20 ár skrifstofustjóri hjá Keflavík hf. og Miðnesi hf. Árni söng í Karlakór Ísafjarðar og síðar Karlakór Keflavíkur samfellt í liðlega 3 áratugi. Hann tók þátt í undirbúningi og í stofn- un Styrktarfélags aldraðra í Keflavík og starfaði sem gjaldkeri í stjórn þess í liðlega tvo áratugi. Árni verður jarðsettur frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Látinn er mætur maður, Árni Ólafsson frá Ísafirði, mágur minn og kær vinur til margra ára. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að liðin séu 65 ár síðan Hulda systir kom heim með ungan mann og kynnti fyrir fjölskyldunni. Síðan þá hefur hann verið einn af okkur. Þau settu saman bú á Ísafirði, bæði mjög ung. Þar sem þetta var „kaupstaðurinn okkar“ áttum við oft leið þangað og þar var alltaf opið hús fyrir okkur, alla þessa unglinga, sem vorum yngri systkini Huldu. Yngsta systir okkar er meira að segja fædd á heimili þeirra árið 1940. Það sem mér er sérstaklega minnisstætt er hve Árni var okkur góður, ekkert var of mikil fyrirhöfn, þegar við áttum í hlut. Þau eignuðust fljótt fyrsta barnið og þau urðu fjögur, allt mannvæn- legt og elskulegt fólk. Foreldrar okkar fluttu suður og við systkinin settumst flest að á suðvesturhorn- inu. Þá þótti okkur stundum langt til Huldu og Árna, en þau fluttu ekki suður fyrr en 1956 og hafa búið í Keflavík síðan. Árni vann sem fisk- matsmaður og verkstjóri í mörg ár og síðast sem skrifstofustjóri. Þau hafa verið umkringd afkomendum sínum, sem eru orðin mörg og öll efnisfólk. Þau hafa alltaf verið afar gestrisin og rausnarleg og við hin í fjölskyldunni notið góðs af. Árni og Hulda hafa ekki safnað veraldlegum auði en átt þeim mun meira af þeim auði, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Erfiðleikar fóru ekki hjá garði hjá þeim hjónum, það var sárt að sjá á eftir langafabarni, elsta tengdasyn- inum og elsta barnabarninu, nafna hans. En Árni tók öllu mótlæti með stillingu sem og gleðistundum, sem voru margar í svona stórri fjöl- skyldu. Að síðustu langar mig til að þakka fyrir veitta hjálp, þegar þau hjón tóku yngsta barnið mitt og höfðu í marga mánuði, þegar mér lá á. Það hefur verið erfitt að horfa upp á vanlíðan Árna síðustu árin og er gott til þess að hugsa að því er nú lokið og ef einhver á góðrar heim- komu von þá er það öðlingsmaður eins og Árni Ólafsson. Systur minni óska ég Guðs blessunar á þessum tímamótum. Ásta Ólafsdóttir. Árið 1937 kom systir mín, Ragn- hildur, heim með ungan mann í kynnisför, eins og sjálfsagt er þegar alvara lífsins er að taka við hjá ungu fólki. Þetta var fyrsta tengdabarn foreldra minna. Þessi ungi myndarlegi maður, Árni Ólafsson, féll vel inn í fjöl- skylduna, enda sjáum við að tengsl- in hafa enst, því nú erum við að kveðja hann eftir 65 ár. Það er lang- ur tími á lífsins braut þó okkur, sem horfum til baka, finnist það ekki. Ég minnist þessara ára með þakklæti, að vita af þessum prúða og hægláta manni í nálægð þegar á þurfti að halda, var gott. Systur minni, börnum hennar og fjölskyldum vottum við samúð og virðingu. Ágústa og Kjartan T. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur hið sama, en orðstír deyr aldregi þeim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Það er skrítin tilhugsun að litli drengurinn minn, yngsta langafa- barnið hans afa geti ekki notið sam- vista við langafa sinn og nafna. Þó ekki hefði ég vænst meira af þeim samvistum en að sjá brosið laumast fram á litlu og saklausu andlitinu við gælur afa, „gúlli gúllí gú“ með vísifingri beint að nefi eða undir kinn. Þessar gælur eru það sem fyrst kemur upp í hugann þegar ég minnist Árna afa míns og nafna. Þó ég muni ekki þessar gælur hans við mig þá veit ég í hjarta mér að ég naut þeirra, eins og reyndar við öll afa- og langafabörnin höfum fengið að njóta þeirra og aðeins eitt eða tvö af fleiri en fjörutíu grétu við fyrstu gælunni hans, „gúllí gúllí gú“. Mér finnst alltaf að ég hafi fengið að kynnast afa mínum á annan hátt en mörg önnur afabörnin hans og mér þykir mjög vænt um það. Ég var svolítið lengur heima við hjá for- eldrum mínum en sum okkar og gat þá oft heimsótt þau afa og ömmu, það varð svo til þess að ég hélt áfram að líta við hjá þeim. Svo vann ég á hans vegum, eins og reyndar mörg önnur barnabörnin, fyrst í humarvinnslunni í Keflavík hf, eða HF eins og það var alltaf kallað og síðar í frystihúsi Miðness hf í Sand- gerði. Fannst þar mörgum skrítið að kallinn á skrifstofunni væri afi minn. Seinna fór ég á sjóinn og þá var það afi sem útvegaði mér fyrsta fasta plássið, loðnuvertíð á Keflvík- ing. Aðeins gat ég gert eitt til að þakka afa greiðann: staðið mig. Vona ég svo sannarlega að ég hafi gert það og verið afa mínum til sóma. Á skipum Miðness hf fékk ég oft að heyra sögur af samskiptum sjómanna á skipum fyrirtækisins við afa, eða Árna á skrifstofunni eins og þeir kölluðu hann. Allar báru þær afa mínum góðan vitnisburð um sanngjarnan mann sem stóð við þær reglur sem unnið var eftir en reyndi um leið ævinlega að hjálpa öllum sem þess þurftu. Fáeinir urðu argir við afa þá sjaldan hann gat ekki hjálpað en allir viðurkenndu þeir að hann Árni á skrifstofunni var sann- gjarn maður sem stóð við sín orð. Með þessum orðum vil ég minn- ast afa míns og nafna. Nafn hans lif- ir með mér, pabba, syni mínum og vonandi mörgum fleirum um ókomna tíð. Vona ég að móttökurn- ar verði góðar hjá Guði á himnum þar sem Árni frændi tekur á móti afa okkar. Árni „litli“. Elsku afi minn. Fallegur og sól- ríkur þjóðhátíðardagur var að renna upp í Kaliforníu þegar við vorum vakin með þeim fréttum að þú værir fallinn frá. Við vorum harmi slegin, við sem hlökkuðum til að koma heim í sumar og hitta ykkur ömmu á nýja staðnum ykkar. Ég man allar heimsóknirnar með mömmu og pabba til ykkar ömmu á Hringbrautina og Birkiteiginn, og svo þegar þið amma komuð til okkar á Hólabrautina og þú gleymdir allt- af hattinum þínum í forstofunni. Þegar ég lít til baka geri ég mér grein fyrir hversu lánsamur ég var að hafa átt ykkur ömmu að – og það í næsta nágrenni. Þessu velti ég mikið fyrir mér í dag, sérstaklega þar sem við fjölskyldan tókum þá ákvörðun að setjast að í annarri heimsálfu og ala dóttur okkar upp ÁRNI ÓLAFSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.