Morgunblaðið - 12.07.2002, Page 44
MINNINGAR
44 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurður Gunn-arsson fæddist í
Reykjavík 14. febr-
úar 1929. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
fimmudagskvöldið 4.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Gunnar Kristjáns-
son, vélsmiður í
Reykjavík, f. 8. apríl
1898 á Efra-Vaðli í
Barðastrandar-
hreppi á V-Barða-
strönd, d. 15. apríl
1980, og kona hans
Elín Pálsdóttir, f. 9. nóvember
1900, á Eyrarbakka, d. 24. októ-
ber 1983. Systkini Sigurðar eru
Kristján, f. 1. september 1932,
maki Eygló Jónasdóttir, og Unn-
ur, f. 15. maí 1937, maki Helgi
Björgvinsson, d. 24. október
1988.
Hinn 2. ágúst 1958 kvæntist
Sigurður eftirlifandi eiginkonu
sinni Eddu Garðarsdóttur, f. 17.
maí 1934 á Patreksfirði. Foreldr-
ar Eddu voru Garðar Jóhannes-
son, framkvæmdastjóri og út-
gerðarmaður á Patreksfirði, f.
27. október 1900, d. 14. janúar
1970, og Laura Hildur Proppé, f.
27. júní 1905 á Þingeyri, d. 12.
júlí 1992. Börn Sigurðar og Eddu
eru: 1) Ragnar, f. 18. júní 1959,
kvæntur Önnu B. Jóhannesdótt-
ur, f. 7. október 1958. Börn
þeirra eru Friðrik
Þór, f. 30. desember
1980, og Selma
Dögg, f. 13. júní
1983. 2) Snorri, f. 4.
febrúar 1962, maki
Aðalheiður Leifs-
dóttur, f. 21. októ-
ber 1967. Þeirra
barn er Þórey Arna,
f. 26. apríl 1993. 3)
Hilmar, f. 22. októ-
ber 1963, kvæntur
Hrafnhildi Brynju
Stefánsdóttur, f. 26.
maí 1969, og eiga
þau soninn Hinrik
Aron, f. 8. nóvember 1999. 4)
Drífa, f. 13. júlí 1966, unnusti Ste-
ven Paul Worthington, f. 7. mars
1965, búsettur í Kaupmannahöfn.
Sigurður ólst upp í Vesturbæn-
um í Reykjavík og hóf búskap í
húsi foreldra sinna á Mýrargöt-
unni. Hann lauk vélstjóraprófi
frá Vélskólanum í Reykjavík
1954 eftir að hafa lokið vélvirkja-
námi hjá föður sínum í Vélsmiðj-
unni Geysi í Reykjavík. Sigurður
var vélstjóri á skipum Skipaút-
gerðar ríkisins 1954–1963 og hjá
Reykjavíkurhöfn frá 1963–1982
þegar hann varð að hætta störf-
um sökum heilsubrests. Sigurður
átti sæti í stjórn Vélstjórafélags-
ins 1975–1977.
Útför Sigurðar fer fram frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku afi minn og tengdapabbi.
Þegar við fengum símhringingu í
sumarbústaðinn um að þú værir
sennilega á leið frá okkur kom sár
stingur í hjartað og tárin streymdu
niður. Ég minntist síðustu heim-
sóknar okkar til ykkar þar sem þú
varst hressari en oft áður, sólin
skein og Hinrik byrjaði eins og
alltaf á að leita að þér til að heilsa
þér en þú varst ekki rúmliggjandi
eins og oft áður heldur á fótum og
sennilega á leið út úr húsi sem ekki
hafði gerst oft í seinni tíð. Það er
gott að geta minnst þín þannig og
allra góðu samverustundanna þar
sem þú naust þín best í faðmi fjöl-
skyldunnar með stríðnisglampa í
augum og ekki hræddur við að
segja skoðanir þínar á mönnum og
málefnum og sérstaklega þegar
kom að því að ræða pólitík. Þú
varst alltaf tilbúinn að gera vel við
Hinrik og ég minnist þess, þegar
þeir feðgar bjuggu hjá ykkur þegar
ég var að klára námið í Kaup-
mannahöfn, heyrði ég sögu af því
þar sem þú gafst Hinrik sultu beint
úr krukkunni, þetta hefur honum
fundist gott og þú haft gaman af.
Þú hafðir mikla ánægju af tónlist
og sérstaklega gömlu meisturum
jazztónlistarinnar. Já, það er
margs að minnast og það verður
erfitt að venjast tilhugsuninni um
að þú sért ekki lengur hjá okkur.
En þangað til næst, hafðu það sem
allra best, við vitum að þú fylgist
með okkur.
Ástarkveðjur og þökk fyrir allt,
elsku afi Siggi og tengdapabbi.
Hinrik Aron og Hrafnhildur.
Einn ágætasti æskufélagi minn
er fallinn frá. Ótal minningar
streyma fram, allar hugljúfar.
Betri dreng man ég vart frá æsku,
þó ýmsir úr gamla Vesturbænum
séu mér mjög minnisstæðir. Þegar
horft er yfir farinn veg rifjast
margt upp. Ferðir að kvöldi yfir
Landakotstúnið niður á Mýrargötu
í vinalega húsið vestan við Slippinn,
en það er nú horfið. Þar var ætíð
tekið vel á móti öllum.
Foreldrar Sigurðar, Elín og
Gunnar, hið mesta sómafólk, fögn-
uðu ætíð öllum er þar komu enda
oft gestkvæmt hjá þeim. Minnis-
stæð er mér litla vélsmiðjan í kjall-
aranum hjá Gunnari þar sem faðir
minn átti margar samverustundir
með honum. Þeir voru samrýndir,
áttu svipað skap. Gunnar var lista-
vélsmiður, allt sem hann snerti lék
í höndum hans. Laxveiðimaður var
hann ágætur og áttu þeir faðir
minn og hann margar veiðiferðir
saman. Afli hjá þeim oft ágætur,
sérlega í Laxá í Dölum og Korpu.
Eins og að framan segir eru
minningarnar ótalmargar og allar
mér kærar.
Ferðalög innanlands sem utan
með Sigurði, laxveiði, rjúpnaskyt-
terí, ógleymanleg ferð með Gul-
fossi. Einnig samverustundir í
Danmörku og Þýskalandi og fleira
og fleira.
Að lokum, Sigurður, ég þakka
allar þessar ljúfu samverustundir.
Minningin um góðan dreng er
björt og fögur.
Eiginkonu, fjölskyldu og afkom-
endum votta ég samúð mína.
Páll Vígkonarson.
Sigurður Gunnarsson vinur okk-
ar er dáinn. Hann hafði nú um
nokkurra ára skeið lifað með erf-
iðan sjúkdóm. Hans vegna varð
hann að láta af störfum fyrr en
ella. Síðustu vikur elnaði sjúkdóm-
urinn skjótt.
Kynni okkar Sigurðar hófust
haustið 1951 þegar við báðir sett-
umst í fyrsta bekk Vélskólans í
Reykjavík, ég utan af landi, bú-
andi á heimavist Sjómannaskólans
og vinafár í borginni. Þá var það
einn sunnudag að bankað var á
herbergisdyrnar mínar. Fyrir ut-
an stóðu þrír menn sem allir
reyndust vera bekkjarfélagar mín-
ir búsettir í Reykjarvík. Erindi
þeirra var að bjóða mér með í bíl-
túr. Það heyrði til undantekningar
þá að menn á þessum aldri ættu
yfir eigin bíl að ráða. En það átti
Sigurður, sem var búinn að koma
sér upp ágætis drossíu og voru
margar skemmtilegar ferðir farn-
ar í henni um bæinn og nágrenni
hans með þeim Jóhannesi Árna-
syni, sem nú er látinn, og Þor-
steini Þorsteinssyni. Lífsstarf Sig-
urðar var tengt sjónum, byrjaði á
togaranum Gylfa frá Patreksfirði
milli bekkja sumarið 1973. Að
námi loknu réðst hann til Skipaút-
gerðar ríkisins og starfaði þar og
síðar hjá Reykjavíkurhöfn þar til
hann lét af störfum vegna heilsu-
brests árið 1982.
Það var síður en svo að þar hafi
skilið með okkur vináttan þó við
færum sinn í hvora áttina að námi
loknu. Vináttan hefur haldist allar
götur síðan og skilað sér til eig-
inkvenna okkar og afkomenda og
heldur vonandi svo áfram um
ókomna tíð.
Aðalsteinn Gíslason,
Kristín Holm.
Elsku Siggi minn. Nú ert þú far-
inn og ég hitti þig ekki aftur í
Skaftahlíðinni.
Þegar þú sast við gluggann og
sást mig koma í heimsókn til ömmu
og afa þá kom nammipoki sígandi
niður til mín eða þú komst og tal-
aðir við mig. Þegar þú varst að
vinna í skúrnum gafstu þér líka
alltaf tíma til að spjalla.
Núna ertu kominn til Guðs og ég
veit að þér líður vel, það er gott því
að þú varst svo lengi veikur.
Ég sakna þín.
Þinn vinur,
Hákon Jarl.
SIGURÐUR
GUNNARSSON
!
"#$ %&$
!!"
#
$
%&
%%
'
''
"'(&)
* ' ''+'
%"(
()
''+' )&,'- ))
''.&.'') '+'"%'*""'
/012'1'12'+(..')"')3
(
(
454678
8
*+ /
' $
$ )
*
+ ,
)
-""
. '8'&" +'
- . ')
.'). '+'
"'&$)
5+(9. '+' *&'$)
8('. ')
(.434'+'
, &. ')
" ':34'+'
5#')&. ') ''434'+'
. '. '+' -)&535 ')
212'+( '(212'3
.
, /
$
,
,
,
, 546
*;
-;;8
-&,# .%"
- )( <=
$"#3
./'& )
((&
%"'1 2'+' */'- (&)
#((%
%"'1 2'+' ''- , )
%"'1 2') ''
(#((+'
%"'1 2'
%"'1 2'+' '' '(5 ')
1'12'+(1'1'1'3
0
(
(
:>74
8
'"
)
/
! 1$, $ -""
)2 $,
5 2'
(#((+'
'"3
)
454;
%? %"$@.'(
5 (2!A
'
2 ,
3
5#' 4'+'
(&..'))
4', 4') ?
#((%+'
&*&'4')
4'&'5#' ) ''$?)
- )5#' ) 4'
?+'
''*&'5#' )3
0
, >
8
(!!
" +
'
4
5
! !!"
)2 $, %
- )
'++'3
0
(
(
:546-3C;
8
-'-'.
. "
))1!<
:+ $2'
'
3
#
# $,
6" -""
4'&'.')) '4''+'
.').')+' .' )
..')+' (".,'( 1")
%"'%"(.')) ("
(.+'
'.')+'
:)&.')) 5 2'5"'")$+'
%' ).')) ,# 4'+'
5#' -".')+' ;"#(")
+(1'12'3