Morgunblaðið - 12.07.2002, Page 47

Morgunblaðið - 12.07.2002, Page 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 47 verið rædd margvísleg málefni varðandi veiðimál eins og um end- urskoðun laga um lax- og silungs- veiði sem nú stendur yfir, skatt- lagningu hlunnindatekna og veiðieftirlit í sjó, auk ýmissa innri málefna samtakanna. Þá urðu um- ræður um hnignun stórlaxastofna undanfarna áratugi og lýstu menn áhyggjum sínum vegna þessa. Síðan segir orðrétt: „Í ályktun fundarins um endurskoðun laga um lax- og silungsveiði er lögð sérstök áhersla á að við endurskoðunina verði lagagrundvöllur veiðifélaga traustur og styrki starfsemi þeirra hér eftir sem hingað til. Landssamband veiðifélaga, sem er heildarsamtök veiðiréttareigenda hér á landi, hélt aðalfund á Húna- völlum nýverið og voru samþykktar þar harðorðar ályktanir tengdar sjókvíaeldinu austur á fjörðum. Í fréttatilkynningu frá samband- inu segir m.a. að á fundinum hafi Þá segir í ályktun um sjókvíaeldi á norskum laxi að fundurinn vari við þeirri hættu sem samfara sé slíku eldi og telur að eftirliti með því sé mjög ábótavant vegna þess að fjár- magn skorti til þess að tryggja öruggt og gott eftirlit, bæði með rekstri og búnaði öllum. Úr þessu þurfi að bæta frá hendi fjárveit- ingavaldsins. Þá mótmælir fundur- inn harðlega þeirri ákvörðun að heimila flutning til landsins á not- uðum báti til seiðaflutninga og minnir á bann við innflutningi á not- uðum eldisbúnaði samkvæmt 76. grein laxveiðilaga.“ Svo mörg voru þau orð. Morgunblaðið/Golli Sjávarfossinn í Elliðaánum. Mótmæla seiðaflutningabátnum ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? HREYFING og skemmtun fyrir fólk á öllum aldri verður í boði á útivistar- og fjölskylduhátíð Orkuveitunnar í Heiðmörk á laugardag, 13. júlí. Lögð er áhersla á að nýta kosti umhverf- isins, skógi vaxið land, hæðir og hóla, dældir og rjóður, til að bjóða upp á skemmtilega leiki og hlaup. „Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og þátttakan er ókeypis. Í ratleik er sameinað víðavangshlaup og færni í að rata eftir korti og áttavita. Einnig verður í boði einfölduð útgáfa af leikn- um sem nefnist fjársjóðsleit og hentar vel fjölskyldum með börn. Eins og undanfarin ár verður einnig keppt í 10 km hlaupi á skógarstígum og farið í 3 km skemmtiskokk. Kunnir skemmti- kraftar sjá um upphitun og tónlist. Leiktæki Skátalands eru opin börn- unum allan daginn. Magnús Scheving stjórnar upphit- un fyrir skemmtiskokkið og Bubbi Morthens skemmtir að hlaupunum loknum. Bílastæði eru í Rauðhólum og þaðan er þátttakendum ekið að Elliðavatni þar sem skráning fer fram. Með fjölskylduhátíðinni leggur Orkuveita rEykjavíkur sitt af mörk- um til að kynna Heiðmörkina sem kjörið útivistarsvæði fyrir alla fjöl- skylduna. Samstarfsaðilar að þessu sinni eru Frjálsíþróttadeild ÍR, Skátasamband Reykjavíkur og Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur. Dagskrá: Skráning frá kl. 9. Kl. 10- 12: Ratleikur og Fjársjóðsleit (unnt er að hefja leik hvenær sem er milli kl. 10 og 12). Kl. 13: 10 km hlaup með tímatöku. Aldursflokkar karla og kvenna: 17 ára og yngri, 18-39, 40-49, 50-59, 60 ára og eldri. Kl. 14: 3,5 km skemmtiskokk. Ekkert þátttöku- gjald. Allir þátttakendur fá vatnsbrúsa og stuttermabol og þeir sem fara í rat- leik eða fjársjóðsleit fá einnig lítinn áttavita,“ segir í fréttatilkynningu. Útivistar- og fjölskylduhá- tíð í Heiðmörk KRISTNIBOÐSMÓT á vegum Kristniboðssambandsins verður haldið á Löngumýri í Skagafirði dag- ana 12.–14. júlí nk. Mótið hefst í kvöld, föstudagskvöld, með sam- komu sem Sigríður Halldórsdóttir prófessor talar á. Að morgni laugardags verður biblíulestur í umsjá Hrannar Sigurð- ardóttur kristniboða og síðdegis verður kristniboðssamkoma í umsjá Ragnars Gunnarssonar og Hrannar Sigurðardóttur kristniboða en þau hafa um árabil starfað sem kristni- boðar í Kenýa. Um kvöldið verður vitnisburðarsamkoma þar sem fólk segir frá trúarreynslu sinni. Á sunnudagsmorgun verður farið að Hólum og áður en messa hefst í Hóladómkirkju kl. 11 verður bæna- ganga á Hólum sem hefst kl. 10.15. Lokasamkoma kristniboðsmóts- ins verður kl. 14. Skráning á mótið er á Löngumýri og eru allir velkomnir. Kristniboðsmót á Löngumýri ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.