Morgunblaðið - 12.07.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 51
Hjartanlegt þakklæti sendi ég fjölskyldu minni
og vinum sem glöddu mig á ógleymanlegan hátt
á 90 ára afmæli mínu 2. júlí sl.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Anna Eyþórsdóttir - Lóa,
Melabraut 10,
Seltjarnarnesi.
TAYLOR’S
TÍVOLÍ
FUNLAND
Miðbakka Reykjavík
Opið daglega frá kl. 14-23.30
Í ár erum við með
nýjustu tækin í Evrópu.
Sérstök fjölskyldukort í boði
mánudaga til fimmtudaga
SPARIÐ 1.000 kr.
með hverju korti sem inniheldur
50 miða.
Munið! Lokadagur
TAYLOR´S TÍVOLÍ FUNLAND
er 22. júlí.
Sjáumst á Miðbakka!
HINN 8. júní sl. héldu frímerkja-
safnarar hið árlega landsþing sitt
hér í Reykjavík, en því miður var
það heldur þunnskipað. Engir
fulltrúar komu t.d. á þingið frá fé-
lögum úti á landi. Þau eru að vísu fá
og hafa reyndar verið það, svo langt
aftur sem ég man. Hér verður því
ekki unnt að segja nokkuð frá starf-
semi þessara félaga.
Ég sat þetta þing og get því
greint frá því helzta, sem þar gerð-
ist, en hins vegar hefur þættinum
ekki borizt fundargerð þess, eins og
æskilegt hefði verið. Engu að síður
verður getið hins helzta, sem þar
bar á góma, svo að lesendur þátt-
arins fái einhverja hugmynd um
það, sem gerist meðal frímerkja-
safnara.
Þingið sátu fimm stjórnarmenn
og fimm aðalfulltrúar og þrír vara-
fulltrúar frá FF eða alls þrettán
þingfulltrúar.
Formaður LÍF, Gunnar R. Ein-
arsson, flutti skýrslu stjórnar og
kom víða við. Verður hér stiklað á
því, sem ætla má, að frímerkjasöfn-
urum þyki áhugavert að hafa
spurnir af. Starf stjórnar á liðnu ári
var í svipuðum skorðum og verið
hefur undanfarin ár. Reglulegir
stjórnarfundir voru haldnir mánað-
arlega. Voru fundargerðir sendar
stjórnum allra aðildarfélaga, svo að
þær gætu fylgzt með því, sem var á
dagskrá hverju sinni. Eins bárust
þær þessum þætti, og það ber að
þakka.
Í marzmánuði var haldinn full-
trúaráðsfundur LÍFs í samræmi við
nýlega lagabreytingu. Þann fund
sóttu einungis fulltrúar frá báðum
Reykjavíkur-félögunum, og gerðu
þeir lauslega grein fyrir störfum fé-
laga sinna.
Þá vék formaður að því, að Ís-
landspóstur hf. sæi sér ekki lengur
fært að geyma sýningarramma þá,
sem nýttir hafa verið til frímerkja-
sýninga hér á landi um langt skeið.
Jafnframt afhenti Pósturinn LÍF
rammana til eignar og umráða.
Þessi ákvörðun hafði verulegan
geymslukostnað í för með sér fyrir
LÍF á liðnu starfsári. Nú hefur rof-
að til í þessu máli og horfur á, að
geymslurými fáist án mikils kostn-
aðar fyrir samtök okkar á næstu
mánuðum. Hljóta safnarar að fagna
þeirri þróun, því að engin sýning
verður haldin án sýningarramma.
Eins og áður hefur komið fram í
frímerkjaþætti, verður samnorræn
frímerkjasýning, NORDIA 03,
haldin hér í Reykjavík 16.-19. októ-
ber á næsta ári. Formaður upplýsti
að í undirbúningsnefnd sætu for-
maður og varaformaður LÍF, en að
auki Vilhjálmur Sigurðsson af hálfu
Íslandspósts hf. Aðalumboðsmaður
sýningarinnar og jafnframt um-
boðsmaður á Íslandi verður Sigurð-
ur H. Þorsteinsson. Kynningar-
bæklingur er væntanlegur á
næstunni. Í ritnefnd sitja Þór Þor-
steins og Hrafn Hallgrímsson úr
stjórn LÍF ásamt Fanneyju Krist-
bjarnardóttur.
Sýningin verður fimm hundruð
ramma sýning, og er það heldur
minni sýning en verið hefur áður.
Hér er sjálfsagt að koma því á
framfæri við frímerkjasafnara, að
formaður LÍF biður þá sem flesta
að vera viðbúna til starfa fyrir sýn-
inguna og liggja ekki á liði sínu, ef
til þeirra verður leitað. Sú hefur því
miður á stundum orðið raunin, að
undirbúningsstörf undir sýningar
lenda á of fáum mönnum og þá
venjulega hinum sömu, meðan
þeirra nýtur við. Þess vegna nefni
ég þessa ósk formannsins og hvet
félagana til dáða.
Formaður minntist á ýmsa fundi,
sem stjórninni hafi verið boðið að
senda fulltrúa á, svo sem formanna-
fund í Finnlandi og á Evrópuþing
og jafnvel á heimsþing safnara í
Kóreu. Ekki mun hún taka þátt í
fundum þessum og þingum. Tel ég
það skynsamlegt, ekki sízt sakir fá-
mennis okkar og kostnaðar, enda
getum við haft spurnir af því, sem
þar gerist frá þeim fulltrúum, sem
önnur landssambönd á Norðurlönd-
um senda á slíka fundi. Líka hefur
það á stundum tíðkazt, ef eitthvert
sérstakt mál er á döfinni, að veita
fulltrúum einhverra Norður-
landanna umboð í okkar nafni.
Rétt er þó að geta þess, að for-
maður LÍF sótti formannafund nor-
rænu landssambandanna í október
sl., sem haldinn var í tengslum við
HAFNIU 01. Þar var m. a. rætt um
reglur fyrir svonefndan Opinn
flokk, sem hefur verið að ryðja sér
til rúms á sýningum á undanförnum
árum. Er hann í nokkru mótvægi
við hefðbundið eða klassískt efni,
sem mörgum mun þykja orðið anzi
tormelt og oft lítt „spennandi“ fyrir
venjulega safnara og þar að auki oft
dýrt. Hefur það líka komið í ljós, að
efni opna flokksins nýtur vinsælda
meðal almennings. Get ég þessa hér
sérstaklega, þar sem ákveðið hefur
verið, að opinn flokkur verði á
NORDIU 03. Auðveldar það söfn-
urum með venjulegt frímerkjaefni
að taka þátt í þeirri sýningu. Fer
vissulega vel á því, enda hlýtur það
að verða örvun fyrir íslenzka safn-
ara.
Sannleikurinn er líka orðinn sá,
að sýningarefnum héðan hefur ver-
ið að fækka á liðnum árum. Er það
ekki skemmtileg þróun og getur
orðið nokkurt vandamál fyrir
stjórnir LÍF á næstu árum. En við
erum ekki einir um þetta vandamál.
Í síðasta tölublaði finnska Lands-
sambandsins kemur fram, að sýn-
ingarsöfnum þeirra hefur fækkað
um þriðjung á fáum árum.
Í síðasta þætti var vikið að því, að
rofa muni til um framhald Frí-
merkjablaðsins með haustinu, enda
mun nægt efni vera til í næsta tölu-
blað. Hins vegar gat formaður LÍF
þess í skýrslu sinni, að enn sé eftir
að ganga formlega frá samningum
við Íslandspóst hf. og eins að finna
ritstjóra. Hann sagðist samt vonast
til, að ritnefnd blaðsins kæmi næsta
blaði út, þótt ritstjóri yrði ekki
fundinn fyrir haustið.
Þá kom fram í skýrslu formanns,
að Bolli Davíðsson, gjaldkeri LÍF,
hafi haldið námskeið fyrir félaga
FF um að leysa frímerki af pappír.
„Þótt efnið geti virzt einfalt, upp-
götvuðu ýmsir þar ný sannindi,“
eins og formaður orðaði það. Þetta
er vafalaust rétt hjá honum, því að
sannleikurinn er sá, að ekki er
sama, hvernig að þessu verki er
staðið, ekki sízt, ef um gömul frí-
merki er að ræða. Þau skyldi þó
aldrei klippa af umslögum, eins og
ég hef áður bent lesendum á. Þá er
litur sumra frímerkja mjög við-
kvæmur og þolir ekki heitt eða jafn-
vel volgt vatn eða langa legu í vatni.
Þá hélt Fanney Kristbjarnardótt-
ir, sem er mjög fær við tölvu-
vinnslu, námskeið um uppsetningu
frímerkjasafna með Pagemaker for-
riti. Þar sem ég veit vel, hversu
þægilegt er að nota þetta forrit við
uppsetningu safna, hvet ég eindreg-
ið þá frímerkjasafnara, sem eitt-
hvað kunna fyrir sér í tölvufræðum,
að nýta sér kennslu Fanneyjar, ef
hún heldur aftur námskeið fyrir
safnara.
Formaður minntist þess svo að
lokum, að nýr íslenzkur frímerkja-
verðlisti er í undirbúningi. Er það
Steingrímur Björnsson, varafor-
maður FF, sem stendur fyrir útgáf-
unni og m. a. með stuðningi LÍF.
Þegar þetta er ritað er þessi verð-
listi í burðarliðnum og verður
kannski kominn út, þegar þessi
þáttur birtist í Mbl.
Fjárhagur LÍF má heita góður,
en þar vegur hluturinn í Síðumúla
17 mest eða um 11 milljónir. Veltu-
fjármunir eru um 3 milljónir.
Stjórnin var öll endurkjörin, en
hana skipa: Gunnar Rafn Einarsson
formaður, Rúnar Þór Stefánsson
varaformaður, Bolli Davíðsson fé-
hirðir, Hrafn Hallgrímsson ritari og
Þór Þorsteins meðstjórnandi. Vara-
maður stjórnar er Eiður Árnason
frá Húsavík. Endurskoðandi er Sig-
hvatur Halldórsson, en Sigfús
Gunnarsson skoðunarmaður og
varamaður hans Benedikt Antons-
son.
Landsþing Lands-
sambands íslenzkra
frímerkjasafnara
FRÍMERKI
Reykjavík
Heldur dauflegt virðist yfir samtökum
safnara úti á landi – eða hvað?
Jón Aðalsteinn Jónsson
Brúðargjafalistar
Mörkinni 3, s: 588 0640
Opið mánudag-föstudags 11-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Hnífapör og matarstell frá