Morgunblaðið - 12.07.2002, Qupperneq 52
DAGBÓK
52 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Astor,
Langenes og Albatros.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Luda vænt-
anlegt.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 14 bingó.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
13–16.30 opin smíða-
stofan. Bingó fellur nið-
ur í júlí. Púttvöllurinn
er opinn kl. 10–16 alla
daga. Allar upplýsingar
í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–17
fótaaðgerðir, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 11.15 hádegismatur,
kl. 15 kaffiveitingar.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
opið hús, spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fótaaðgerða-
stofa, tímapantanir eftir
samkomulagi s.
899 4223
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3.
Í dag, föstudag, verður
púttað á Hrafnistuvelli
kl. 14–16. Á morgun,
laugardag, morg-
ungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Rúta frá
Firðinum kl. 19.50. Fé-
lagsheimilið Hraunsel
verður lokað vegna
sumarleyfis starfsfólks
til 11. ágúst.
Upplýsingar um orlofs-
ferðir að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19.–23. ágúst
og að Höfðabrekku 10.–
13. sept. eru gefnar í
síma 555 1703, 555 2484
og 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí 2002
með Álftagerð-
isbræðrum, Diddú. Örn
Árna og Karl Ágúst slá
á létta strengi. Lagt af
stað kl. 15 frá Glæsibæ.
Nánari upplýsingar á
skrifstofunni. Athugið,
sækið miðana í dag á
skrifstofu félagsins.
Dagsferð 15. júlí. Flúðir
– Tungufellsdalur (veg-
ur liggur upp í gegnum
dalinn sem er með skógi
á báðar hendur) – Gull-
foss – Geysir – Hauka-
dalur – Laugarvatn –
Þingvellir. Kaffihlað-
borð í Brattholti. Leið-
sögn Sigurður Krist-
insson. Athugið sækið
miðana í dag.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals og Tyrk-
lands í haust, fyrir fé-
lagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin,
takmarkaður fjöldi.
Nánari upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10til
12 f.h. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sími
588 2111. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, m.a.
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa frá mánudegi 1.
júlí. Opnað aftur þriðju-
daginn 13. ágúst. Á veg-
um Íþrótta- og tóm-
stundaráðs eru sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.30 mánu-
daga, miðvikudaga og
föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsheimilið Gull-
smára 13 verður lokað
til 6. ágúst.
Fótaaðgerðastofan
verður opin, sími
564 5298, hársnyrtistof-
an verður opin, sími
564 5299.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9–17
fótaaðgerðir, kl. 12 há-
degismatur, kl. 13–14
pútt.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 fótaað-
gerðastofa, kl. 9. 30
morgunstund, kl. 13.30
bingó. Smiðjan og bók-
band í sumarleyfi til 6.
ágúst.
Hvassaleiti 56–58.
Fótaaðgerðir, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Hárgreiðsla kl. 9.
Ganga kl. 10.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum
(u.þ.b. 16–25 ára) að
mæta með börnin sín á
laugard. kl. 15–17 á
Geysi, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Gjábakki. Lagt verður
af stað í ferðalag um
Vestfirði mánudaginn
15. júlí kl. 8.15 frá Gull-
smára og kl. 8.30 frá
Gjábakka. Munið að
taka með sæng, kodda
og lak eða svefnpoka.
Afgreiðsla Gjábakka
verður lokuð 15.–19.
júlí. Matarþjónusta,
kaffistofa, handa-
vinnustofa og annar
daglegur rekstur verð-
ur eins og venjulega.
Hárstofa Ragnheiðar í
Gjábakka verður lokuð
frá 15. júlí til 6. ágúst.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 10 kántrídans,
kl. 11 stepp, kl. 14.30
kaffi og dansað í aðalsal.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugardögum.
Keflavíkurkirkja. Hið
árlega kirkjumót verður
haldið á púttvellinum
nk. sunnudag. Mótið
hefst kl. 13 með helgi-
stund. Að henni lokinni
verður keppt í öllum
aldursflokkum. Boðið
verður upp á kaffiveit-
ingar í Kirkjulundi að
móti loknu.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
daga og fimmtudaga.
Minningarkort
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í síma
588 9220 (gíró) Holts-
apóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafnarfjarð-
arapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í
síma 552 4440 frá kl.
13–17. Eftir kl. 17 s.
698 4426 Jón, 552 2862
Óskar eða 563 5304
Nína.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfsími
562 5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma
551 7868 á skrifstofu-
tíma og í öllum helstu
apótekum. Gíró- og
kreditkortagreiðslur.
Landssamtökin
Þroskahjálp. Minning-
arsjóður Jóhanns Guð-
mundssonar læknis.
Tekið á móti minning-
argjöfum í síma
588 9390.
Í dag er föstudagur 12. júlí, 193.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Því að þeir dagar munu koma yfir
þig, að óvinir þínir munu gjöra virki
um þig, setjast um þig og þröngva
þér á alla vegu.
(Lúk. 19,43.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 forfrömun, 4 innantóm-
ur, 7 gælunafn, 8 tölum
um, 9 tangi, 11 ró, 13
snagi, 14 sápulögur, 15
raspur, 17 syrgi, 20
girnd, 22 tröllkona, 23
stubbum, 24 ær, 25 rækt-
uðu löndin.
LÓÐRÉTT:
1 heimsk, 2 aflýsing, 3
dugleg, 4 ástand, 5 fim, 6
auka rúm, 10 ólyfjan, 12
reið, 13 sarg, 15 hlýðinn,
16 krók, 18 kvistótt, 19
auðan, 20 vinna að fram-
förum, 21 aukaskammt-
ur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 hnökrótta, 8 gátur, 9 Ingvi, 10 ann, 11 asann,
13 nautn, 15 snaga, 18 önugt, 21 pól, 22 eldur, 23 draum,
24 ballarhaf.
Lóðrétt: - 2 netla, 3 kæran, 4 óminn, 5 tuggu, 6 ugga, 7
vinn, 12 nag, 14 agn, 15 sver, 16 aldna, 17 apríl, 18 öldur,
19 uxana, 20 tíma.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
HÉR á síðunni hefur verið deiltum gagnsemi þess fyrirkomu-
lags hjá Bónusi í Kringlunni að við-
skiptavinur verður að láta hundrað
krónur í pant fyrir innkaupakörfu.
Víkverji benti á það fyrir skemmstu
að þetta gæti verið bagalegt, þar sem
margir þátttakendur í plastkortahag-
kerfinu væru sjaldnast með smámynt
á sér. Snorri Rúnar Pálmason svar-
aði þessum skrifum í Velvakanda á
miðvikudag og benti á kosti þessa
fyrirkomulags, s.s. að kerrurnar
væru alltaf í básum sínum en ekki
fjúkandi um bílastæðið og ekki söfn-
uðust þær heldur upp við kassana í
búðinni.
x x x
VÍKVERJA hefur nú verið bent álausn á deilunni. Forsenda
lausnarinnar er að lásarnir á inn-
kaupakerrunum, sem peningnum er
stungið í, eru ekki mjög nákvæmir.
Lausnin felst þess vegna í því að vera
með í veskinu t.d. útlenda smámynt,
sem er á stærð og þykkt við íslenzkan
hundraðkall, eða bara einhverja
málmskífu sem þjónar sama tilgangi.
Víkverja hefur t.d. verið tjáð að skíf-
ur, sem notaðar eru í skápana í Laug-
ardalslauginni, geti hentað ágætlega
og sjálfsagt liggja margir með hent-
uga útlenda smámynt úr síðasta sum-
arfríi. Peningur af þessu tagi hefur
ekkert verðgildi í almennum við-
skiptum og þess vegna freistast fólk
ekki til að láta hann frá sér með því að
kaupa eitthvað með honum, heldur
leyfir honum að liggja í veskinu. Það
verður líka að passa upp á hann og
skila kerrunni til að fá peninginn (eða
skápaskífuna) til baka og geta þannig
notað hann aftur til að ná sér í inn-
kaupakerru næst þegar verzlað er í
Bónusi í Kringlunni. Þannig geta allir
verið sáttir; viðskiptavinurinn þarf
ekki að eiga hundraðkall og kerrun-
um verður skilað eftir sem áður.
x x x
SÍÐASTA bíóhúsið með stíl ogsjarma er hætt starfsemi. Vík-
verja finnst eftirsjá að Austurbæjar-
bíói (sem sumir þekkja sem Bíóborg-
ina eða Sambíó við Snorrabraut), þar
sem síðustu kvikmyndasýningarnar
fóru fram í gær. Einu sinni voru þrjú
gömul bíóhús í Reykjavík, sem gam-
an var að fara í til að horfa á eitthvað
fleira en hvíta tjaldið. Þetta var í
fyrsta lagi Gamla bíó, sem enn þjónar
göfugu hlutverki sem óperuhús og er
sannkallað augnayndi. Svo var það
Nýja bíó, sem státaði af einu jug-
endstil-innréttingunni í Reykjavík.
Þar var hætt að sýna bíómyndir og þá
komu einhverjir smekklausir diskó-
tekarar, sem enga virðingu báru fyrir
menningarverðmætum og voru búnir
að eyðileggja flest sem hægt var áður
en húsið varð eldi að bráð. Í þriðja
lagi var það svo Austurbæjarbíó. Vík-
verji sá þar ekki bara bíómyndir,
heldur líka leiksýningar á síðkvöld-
um. Víkverja fannst ævinlega mikið
til aðalsalarins koma, en hann var
seinna skemmdur í þágu „þæginda
bíógesta“. Þá var ytra byrði hússins
spillt stórkostlega með einhverju
ósmekklegasta málningartiltæki sem
Víkverji hefur horft upp á. Samt var
eitthvað eftir af gömlum sjarma
Austurbæjarbíós. Víkverji vonar
bara að húsið komist í hendur fólks,
sem ber virðingu fyrir því og vill reka
þar áfram menningarstarfsemi. Um-
fram allt vonar hann að þetta fallega
og merkilega hús verði fremur gert
upp til upprunalegs horfs en að pen-
ingamenn láti rífa það og byggja ein-
hvern skrifstofu- eða íbúðakumbald-
ann á lóðinni.
Varist þessa plágu
ÉG er búsett í Tulsa í
Oklahoma og les Morg-
unblaðið hvern einasta
dag.
Í mínum huga er Ísland
alveg sérstakt land og Ís-
lendingar mega ekki
herma eftir því sem er að
gerast úti í heimi.
Það er martröð að
lenda í því þegar einhver
úr fjölskyldinni verður
háður nútíma eiturlyfjum.
Ég er að meina eiturlyf
sem er framleitt úr hósta-
saft og allskonar ónæm-
istöflum. Framleiðsla
þessara efna er mjög
hættuleg vegna eitraðra
efna og gufu sem kemur
frá efnunum þegar er ver-
ið að blanda þeim saman
við sterk efni. Fólk verð-
ur strax háð þessu eftir
fyrstu tilraun og þetta
veldur mikilli hrörnun á
líkama og sál. Veldur
strax geðtruflunum og
skemmir heilann. Og svo
er þetta ódýrara í fram-
leiðslu en mörg önnur eit-
urefni, en methamphet-
amine er versta tegund
sem er hægt að eiga við.
Þetta er að gerast í
heiminum í dag – og það
er hvorki rómantískt né
spennandi.
Á Íslandi ætti að vera
auðveldara að hafa stjórn
á þessu en hérna í Banda-
ríkjunum og hvet ég Ís-
lendinga til að varast
þessa plágu og því sem
henni fylgir.
Látum ekki þjóð okkar
og börn verða þessu að
bráð.
Margrét Björnsdóttir.
Frábærar
móttökur
VIÐ viljum koma á fram-
færi innilegu þakklæti til
hjónanna Njáls og Ástu
Hraunfjörð, á Kaffi
strætó í Mjóddinni, fyrir
frábærar móttökur.
Náll og Ástu eru nýtek-
in við rekstri Kaffi strætó
og þar er hægt að fá mjög
góðan mat og flott smur-
brauð og allt kapp lagt á
hlýjar móttökur gesta.
Þar er einnig lifandi tón-
list, a.m.k. um helgar.
Kærar þakkir. Við kom-
um örugglega aftur.
Ánægðir
viðskiptavinir.
Texti týndist
VEGNA tæknilegra mis-
taka varð Velvakandi fyr-
ir því að týna texta sem
tekinn var niður í gegnum
síma sl. miðvikudag. Eru
þeir sem hringdu þann
dag beðnir að hafa sam-
band aftur.
Tapað/fundið
Skartgripir týndust í
Laugardalslaug
3 HRINGAR, tveir hvíta-
gulls og einn gullhringur,
2 armbönd, annað úr silfri
og hitt úr hlekkjum með
nafni á, týndust í Laug-
ardalslauginni um síðustu
mánaðamót. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
696 1984.
Karlmannsúr
týndist
SILFURLITT karl-
mannsúr tapaðist á eða
við Miklatún að kvöldi 8.
júlí síðastliðinn. Finnandi
vinsamlegast hafi sam-
band í síma 863 9095,
fundarlaun í boði.
Svunta af
barnavagni týndist
DÖKKBLÁ svunta af
barnavagni, ásamt flugna-
neti, týndist 17. eða 18.
júní sl., líklega í Hamra-
borg eða Lundahverfi í
Kópavogi. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
820 4140.
Myndavél
í óskilum
MYNDAVÉL fannst við
Selatanga fyrir 2–3 vik-
um. Upplýsingar í síma
551 1277.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Arnaldur
Börn að leik í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.