Morgunblaðið - 12.07.2002, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393.
Sýnd kl. 3, 4, 5, 6, 7 og 8. Vit 398Sýnd kl. 5.30, 8, 9.30 og 10.30. B.i. 16 ára Vit 400
1/2
Kvikmyndir.is
Freddie Prinze Jr, Sarah Michelle Gellar, Mathew Lillardog,
Rowan Atkinson (MrBean) lenda í spennandi ævintýrum ásamt
sætustu og skemmtilegustu hetju sumarsins Scooby-Doo.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýn
d á
klu
kku
tím
afr
est
iFRUMSÝNING
Sandra Bullock í
spennumynd sem tekur
þig heljartaki!
Þeir búa til leik sem
hún þarf að leysa..
takmarkið er hinn
fullkomni glæpur.
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
SÍMI 588-0800 KRINGLA www.sambioin.is
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Strik.is
Ástin stingur.
HL Mbl
HL Mbl
Frábær gamanmynd
fyrir bæði kynin.
Hugh Grant hefur
aldrei verið betri.
S
ag
a
u
m
s
tr
ák
1/2
SV Mbl
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
SG DV
Sýnd kl. 6.
Íslenskt tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
18 þúsund áhorfendur
1/2
Kvikmyndir.is
www.sambioin.is
Sýnd kl. 6.
DV
Kvikmyndir.is Mbl Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8. B. i. 16.
V
Kvik yndir.is
bl
Kvik yndir.co
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Með hinum frábæra
Frankie Muniz úr
„Malcolm in the Middle“
i
i i
l l i i l
Nú fær Hollywood fyrir ferðina.
Frábær og hressileg gamanmynd fyrir alla.
Sýnd kl. 8 og 10.20. Bi. 14.
FRUMSÝNING
CAFÉ AMSTERDAM Tríóið Úlrik.
CAFÉ CATALÍNA Trúbadorinn Váfn-
ir Sigurðarson.
CHAMPIONS CAFÉ Diskótek Sig-
valda Búa. Frítt inn.
FÉLAGSHEIMILIÐ, Patreksfirði
Írafár. 16 ára aldurstakmark.
FJÖRUKRÁIN Hljómsveitin KOS.
GAUKUR Á STÖNG Sóldögg.
GULLÖLDIN Svensen og Hallfunkel.
HVERFISBARINN Kiddi Bigfoot.
KRINGLUKRÁIN Hljómsveit Rúnars
Júlíussonar.
O’BRIENS Mogadons.
ODD-VITINN, Akureyri Hljóm-
sveitin Bahoja.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi Kántrý-
diskóbandið Buff.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi
BSG.
SPORTKAFFI
Sveitaball á
mölinni með Í
svörtum fötum.
VALASKJÁLF,
Egilsstöðum
Guðmund-
arvaka kl. 21.
Hollenski pí-
anóleikarinn
Hans Kwaak-
ernaat ásamt
Tríói Björns
Thoroddsen.
VIÐ POLL-
INN, Akureyri
Pétur Kristjánsson og hljómsveit.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Þeir verða vafalítið
sveittir í svörtu fötun-
um á Sportkaffi, Jónsi
og félagar hans.
GÖTULEIKHÚSIÐ hefur í áranna
rás sett skemmtilegan svip á miðbæ
Rekjavíkur og er árið 2002 engin
undantekning þar á. Í sumar starfa
15 krakkar á aldrinum 17 til 24 ára
í Götuleikhúsinu undir öruggri
stjórn Víkings Kristjánssonar leik-
ara. Í samtali við Víking og götu-
leikarana Melkorku, Rönku,Vigdísi
og Viktor fékk blaðamaður að
fræðast um götuleik og Evrópu-
meistaramótið í „Flümi“.
„Yfirlýsti tilgangurinn með
Götuleikhúsinu er að hressa upp á
bæjarlífið í miðbænum en annars
erum við bara að hrekkja fólk um
allan bæ,“ byrjar Viktor.
„Ja, kannski ekki beint hrekkja
heldur að minnsta kosti að reyna
að ýta aðeins við því,“ segir Vík-
ingur.
„Við erum að reyna að fá fólk til
að hugsa aðeins um ýmsa hluti.
Þetta er samt ekkert hátíðlegt og
við erum líka að gera grín,“ segir
Melkorka.
„Við erum þó reyndar búin að
vera svolítið pólitísk í sumar en þó
samt ekki að predika því fólk getur
túlkað hlutina eins og það vill,“
segir Vigdís. „Við stóðum fyrir
tískusýningu og lékum fyrirsætur,
öll í bolum sem stóð á „Erum við
svona?“ Þá var alls ekkert endilega
verið að deila á fyrirsætur heldur
frekar að fá fólk til að hugsa.“
„Svo var „Afdrepið“. Þá vorum
við með krítaðan kassa sem fólk
gat komið inn í og sýnt sinn innri
mann. Þangað kom t.d. inn rapp-
arinn sem í leyni hlustaði á klass-
íska tónlist og las Laxness og svo
framvegis,“ segir Ranka.
„Götuleikhúsið er í raun á göt-
unni til að láta fólki líða betur,“
segir Viktor og uppsker hlátur fé-
laga sinna.
Evrópumeistaramótið í
„Flümi“
Götuleikhúsið stefnir á að gerast
brautryðjandi í svonefndu „Flümi“
og aðdragandinn hljómar eitthvað
á þessa leið:
„Það kom til okkar fólk sem heit-
ir Jón Steinn og Halla og þau höfðu
kynnst „Flüminu“ í Búdapest. Við
ákváðum að hjálpa þeim að kynna
keppnina en hingað til lands eru
komnir 13 keppendur frá hinum
ýmsu löndum til að keppa. Flüm er
mikil tilfinningaútrás sem er að
nokkru leyti skyld breikdansinum,“
útskýrir Víkingur.
„„Flümið“ kom samt langt á
undan breikinu. Breikið eiginlega
traðkaði á „Flüminu“ svo allir
gleymdu því þar til núna,“ segir
Ranka.
„ En „Flümið“ er lífsstíll,“ segir
Melkorka og viðstaddir samþykkja
það af heilum hug.
„Já, þeir sem byrja í „Flüminu“
hætta því aldrei,“ segir Vigdís.
„Mótið fer fram um helgina en í
dag ætlum við einfaldlega að
„Flüma“. Fólk getur fylgst með
keppendunum „Flüma“ víðs vegar
um miðbæinn í allan dag,“ segir
Víkingur.
Víkingur segir Götuleikhúsið
eiga eftir að gera fullt af skemmti-
legum hlutum að „Flüm“-keppninni
lokinni. Í næstu viku verður eig-
inlegt lokahóf þar sem leikhúsið
býður til veislu í miðbænum. Götu-
leikhúsið mun svo taka þátt í upp-
færslu á leikritinu Titus auk þess
að skemmta borgarbúum á Menn-
ingarnóttinni í ágúst.
Krakkarnir eru allir sammála
um að vinnan í Götuleikhúsinu sé
mjög gefandi og skemmtileg.
„Það eru auðvitað mikil forrétt-
indi að fá að vera með,“ segir Vig-
dís.
„Já, við gerum okkur öll grein
fyrir því hvað við erum heppin að
fá að vinna við þetta,“ segir Mel-
korka.
„Götuleikhúsið er best í heimi,“
segir Ranka að lokum áður en hóp-
urinn slær botninn í viðtalið með
orðinu: „Flüm-spect!“
Á götunni til að
láta fólki líða betur
Morgunblaðið/Jim Smart
Keppendur í Evrópumeistaramótinu í Flümi ásamt Höllu og Jóni Steini.
Sumarið er tími Götuleikhússins
birta@mbl.is