Morgunblaðið - 18.07.2002, Page 1

Morgunblaðið - 18.07.2002, Page 1
166. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 18. JÚLÍ 2002 AÐ MINNSTA kosti fimm féllu og þrjátíu særðust í tveimur sjálfs- morðsárásum í Tel Aviv í Ísrael seint í gærkvöldi, en árásarmennirnir tveir eru þar með taldir. Þetta er önnur árásin á ísraelska borgara á jafnmörgum dögum og fyrsta sjálfs- morðsárásin í tæpan mánuð. Hryðjuverkasamtökin Íslamska ji- had lýstu árásinni á hendur sér en sprengjurnar tvær sprungu með nokkurra sekúndna millibili, að sögn vitna, og var einn hinna látnu erlend- ur verkamaður. Talsmaður Ariels Sharons, for- sætisráðherra Ísraels, kenndi palestínsku heimastjórninni um til- ræðið. „Heimastjórnin hefur ekkert gert til þess að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásirnar sem skipu- lagðar eru á landsvæði hennar,“ sagði hann. Sakaði hann hryðju- verkasamtök Palestínumanna um að vilja spilla fyrir viðræðum, sem nú fara fram í New York milli forystu- manna Sameinuðu þjóðanna, Evr- ópusambandsins, Bandaríkjanna og Rússlands um ástandið í Ísrael, og sagði að heimastjórnin hvetti sam- tökin áfram. Skrifstofa Yassers Arafats, for- seta heimastjórnarinnar, fordæmdi árásina og sagði hana ekki hjálpa palestínsku þjóðinni. Yngsta fórnarlamb átakanna Þá létust tveir Palestínumenn og sjö særðust þegar sprengja sprakk í flóttamannabúðunum í Ramallah á Vesturbakkanum. Talsmenn palest- ínskra öryggissveita sögðust í gær ekki vita hver orsök sprengingarinn- ar var en ísraelski herinn segir lík- legast að um „vinnuslys“ hafi verið að ræða. Sprengjuna hafi átt að nota gegn ísraelskum borgurum en hún hafi sprungið í höndunum á þeim sem bjuggu hana til. Á þriðjudag sátu þrír eða fjórir Palestínumenn, dulbúnir sem ísr- aelskir hermenn, fyrir strætisvagni við landnemabyggðina Emmanuel, nærri Nablus á Vesturbakkanum. Þeir hófu skothríð á vagninn og köst- uðu að honum handsprengjum. Átta manns létust í árásinni og sextán særðust. Meðal hinna særðu var 22 ára gömul ófrísk kona sem komin var átta mánuði á leið og var sonur henn- ar tekinn með keisaraskurði en hann lést skömmu síðar. Hann er talinn yngsta fórnarlamb átakanna sem staðið hafa á svæðinu undanfarinn 21 mánuð. Þrjár palestínskar hreyfing- ar hafa lýst árásinni á hendur sér en þær eru Hamas, Lýðræðishreyfing- in til frelsunar Palestínu og Al-Aqsa- píslarvottahreyfingin. Þrír falla í skotbardögum Víðtæk leit var gerð að árásar- mönnunum í gær og voru notaðar til þess herþyrlur vopnaðar vélbyssum og eldflaugum og voru nokkrir Pal- estínumenn teknir höndum en ekki er ljóst hvort handtökurnar tengjast árásinni á þriðjudag. Einn ísraelskur hermaður féll í gær og þrír særðust í skotbardaga við nokkra Palestínu- menn sem grunaðir eru um að hafa staðið að fyrirsátinni. Einn Palest- ínumaður féll í áðurnefndum skot- bardaga og einn féll og tveir særðust þegar þeir hlupu að varðstöð ísr- aelska hersins nærri Emmanuel í gærkvöldi. Í gærkvöldi var gerð loftárás á málmverksmiðju á Gaza-svæðinu sem ísraelski herinn segir að hafi verið notuð til þess að framleiða vopn fyrir Hamas-hreyfinguna. Enginn særðist í árásinni, sem gerð var með F-16-orrustuþotum ísra- elska flughersins, en töluverðar skemmdir urðu á verksmiðjunni. Ísraelsmenn kenna heimastjórn Palestínumanna um nýja öldu ofbeldis Fimm láta lífið í sjálfs- morðsárásum í Tel Aviv AP Ísraelskir lögreglumenn loka af svæðinu þar sem sprengjurnar sprungu í gær í Tel Aviv. Jerúsalem. AP, AFP. UTANRÍKISRÁÐHERRA Mar- okkó, Mohammed Benaissa, líkti í gær töku Spánverja á skerinu Pere- jil við innrás og sagði lítið vanta á að þeir hefðu lýst yfir styrjöld. Mar- okkómenn sendu í gær Sameinuðu þjóðunum hörð mótmæli vegna að- gerðarinnar og Arababandalagið hvatti Spánverja til að flytja lið sitt burt. Amr Moussa, framkvæmda- stjóri bandalagsins, harmaði að beitt hefði verið valdi í málinu. Atlantshafsbandalagið, NATO, hefur lýst stuðningi við Spánverja í deilunni um eignarhaldið á eyjunni en fagnaði því í gær að enginn hefði særst. Evrópusambandið styður einnig Spán í deilunni en hefur boð- ist til að reyna að miðla málum. „Konungsríkið Marokkó er í við- bragðsstöðu … og er staðráðið í að verja land sitt, fullveldi og rétt,“ sagði Benaissa. Ráðherrann sagði stjórnina myndu reyna að fá ríki heims til að þrýsta á Spánverja um að þeir hyrfu frá skerinu. Nokkrir marokkóskir hermenn voru sendir til Perejil (Steinselju), sem Marokkómenn kalla Leila (Nótt) og telja sína eign, í liðinni viku. Sögðu stjórnvöld í höfuðborg Marokkó það nauðsynlegt til að stemma stigu við ferðum hryðju- verkamanna og ólöglegum innflutn- ingi fólks til Spánar. Enginn særðist er 28 spænskir hermenn tóku eyjuna með aðstoð þyrlna og herskipa snemma í gærmorgun. Hermennirn- ir á eyjunni voru teknir höndum og haldið í nokkrar klukkustundir í spænsku borginni Ceuta, sem er á Afríkuströnd, en síðan afhentir mar- okkóskum yfirvöldum. Klettaeyjan Perejil er í Gíbraltar- sundi, um 200 metra undan strönd Marokkó, gróðurlítil og ekki byggð mönnum. Hún er um hálfur ferkíló- metri að stærð og var til forna talin önnur af súlum Herkúlesar, hin var Gíbraltar-kletturinn. Spænsk blöð segja að tvær marokkóskar fjöl- skyldur lifi þar við illan aðbúnað. Marokkómenn mót- mæla töku Perejil AP Spænskir hermenn við þjóðfán- ann sem þeir reistu á klettaeyj- unni Perejil í gærmorgun. Rabat, Madrid, Brussel. AFP, AP. BRESKT lyfjafyrirtæki vill hefja tilraunir með lyf gegn timb- urmönnum sem unnið er úr eld- fjallaösku, að því er kemur fram á fréttavef BBC. Talsmaður fyr- irtækisins, sem ber heitið Global Health Products (GHP), segir lyf- ið draga til sín eiturefni, sem myndast við niðurbrot vínanda í líkamanum, „eins og franskur rennilás“, en virka efnið úr ösk- unni hefur áður verið notað til að hreinsa vatn og matvæli. Óttast aukna áfengisneyslu Vínandi eykur vökvatap í mannslíkamanum og veldur það, ásamt áðurnefndum eiturefnum, höfuðverkjum og ógleði sem í daglegu máli nefnist timburmenn eða þynnka. Er lyfið sagt vinna á öllum þessum einkennum og hafa breskir læknar lýst yfir áhuga sínum á því. Þó hafa sumir þeirra af því áhyggjur að drykkja muni færast í aukana þurfi fólk ekki lengur að ganga í gegnum óþæg- indin sem venjulega fylgja gleðinni morguninn eftir. Robert Patton, sem vinnur að rann- sóknum á sviði læknisfræði, segir áfengisneyslu valda skaða á hjarta, lifur og öðrum líffærum. „Lyfið mun ekki koma í veg fyrir þessar afleiðingar,“ segir hann. „Það kemur aðeins í veg fyrir timburmennina morguninn eftir.“ Eldfjalla- aska gegn timbur- mönnum VIÐBRÖGÐ Norður-Íra við yf- irlýsingu Írska lýðveldishersins (IRA), þar sem hann baðst í fyrsta sinn afsökunar á drápum á óbreyttum borgurum, voru mjög blendin í gær. Sumir fögnuðu henni sem skrefi í rétta átt en fórnarlömb árása IRA sögðu af- sökunarbeiðnina ófullnægjandi. Margir hermenn myrtir heima hjá sér „Yfirlýsingin er lítils virði, þrjátíu árum síðar,“ sagði Norð- ur-Íri sem særðist í einu af 27 sprengjutilræðum IRA í miðborg Belfast á „föstudeginum blóð- uga“ 21. júlí 1972. Sjö óbreyttir borgarar og tveir hermenn biðu bana í tilræðunum og 130 særð- ust. Annar Norður-Íri, sem missti systur sína, sjö barna móður, á föstudeginum blóðuga fagnaði hins vegar afsökunarbeiðninni. „Ég er mjög hissa, enginn bjóst við þessu,“ sagði hann. „Þeir eru á réttri braut.“ David Trimble, leiðtogi mót- mælenda og forsætisráðherra í norður-írsku heimastjórninni, sagði að yfirlýsing lýðveldishers- ins nægði ekki og sakaði hann um að hafa ekki virt friðarsamn- inginn frá 1998. „Í yfirlýsingunni er ekkert sagt um ofbeldið, sem lýðveldisherinn hefur tekið þátt í nýlega, eða hvernig hann ætli að hegða sér í framtíðinni.“ Nokkrir stjórnmálamenn, jafnt kaþólikkar sem mótmælendur, gagnrýndu IRA fyrir að biðjast aðeins afsökunar á drápum á um 650 óbreyttum borgurum en ekki rúmlega þúsund hermönnum, lögreglumönnum og félögum í vopnuðum hreyfingum mótmæl- enda. Á meðal hermannanna voru yfir 200 Norður-Írar, sem voru nær allir myrtir þegar þeir voru í fríi, meðal annars á heim- ilum sínum. Blendin viðbrögð við yfirlýsingu IRA Belfast. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.