Morgunblaðið - 18.07.2002, Qupperneq 2
LÖGREGLUNNI í Keflavík
var tilkynnt að hundar gengju
lausir á býli skammt frá Höfn-
um um kvöldmatarleytið í gær-
kvöld. Ásamt hundaeftirlits-
manni fór lögreglan á vettvang
og færði fimm hunda í geymslu
sem sloppið höfðu út fyrir girð-
inguna á bænum. Tveir hundar
voru innan girðingar og ekki
færðir á brott.
Að sögn lögreglunnar í Kefla-
vík hefur áður verið kvartað
undan lausagöngu þessara
hunda, en þeir eru af Stóra Dan-
kyni. Óvíst er hvað verður um
hundana fimm sem teknir voru.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Fimm lausir
hundar teknir
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isValsmenn komnir á beinu
brautina í 1. deildinni/C2
Skagamönnum refsað fyrir
mistökin í Sarajevo/C3
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Coldwater UK kaupir fyrirtæki á 700 milljónir / B1
Úr skolphreinsun í skemmtiefni / B4
Lengi ljóst hvert stefndi / B6
Er hitinn að drepa hörpuskelina? / B9
Coca-Cola ákveður að gjaldfæra kauprétt / B12
EIGENDUR rúmlega þriðjungs
stofnfjár Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis (SPRON) hafa nú krafist
þess að stjórn SPRON boði til fundar
stofnfjáreigenda nú þegar. Fulltrúar
þessa hóps, þeir Ingimar Jóhannsson
og Pétur Blöndal, fóru í gær á skrif-
stofu SPRON, þar sem listi yfir
stofnfjáreigendur er geymdur, og
sannreyndu að eigendur nægilegs
fjölda hluta hefðu krafist fundar. Pét-
ur Blöndal segist ekki hafa trú á öðru
en boðað verði til fundar og það fyrr
en seinna en Jón G. Tómasson, for-
maður stjórnar SPRON, segir að
þetta breyti engu í sínum huga, rétt-
arstaðan sé enn sem fyrr óviss. Fund-
ur stofnfjárfesta muni hins vegar
verða boðaður.
Í bréfi Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar, lögmanns stofnfjáreigendanna
fimm, til Guðmundar Haukssonar
sparisjóðsstjóra er þess krafist að
fundur stofnfjáreigenda verði hald-
inn svo fljótt sem unnt er.
Furðulegar reglur
Þá segir jafnframt í bréfinu að af
ummælum Guðmundar í fjölmiðlum
virðist mega ráða að ekki verði boðað
til fundarins nú þegar: „Er raunar
svo að sjá að þér teljið yður geta svar-
að erindum fjölda stofnfjáreigenda
við stjórn sparisjóðsins upp á ein-
dæmi yðar. Virðist þér telja yður
hafa öll ráð stjórnarinnar í hendi
yðar.“
Pétur Blöndal segir að tekist hafi
að ná tilskildum fjölda stofnfjárhluta
þrátt fyrir að mjög margir sem hafi
verið hlynntir kröfunni hafi ekki vilj-
að skrifa undir af ýmsum ástæðum,
s.s. vegna vinfengis og viðskiptahags-
muna. Þetta hafi allt gengið kurteis-
lega fyrir sig hjá SPRON þótt settar
hafi verið upp furðulegar reglur, þ.e.
hann og Ingimar hafi ekki mátt skrifa
neitt niður á blað sem þeir tækju síð-
an með sér.
Pétur segir að ef reglur sem þessar
eigi að gilda verði aldrei framar boð-
að til fundar stofnfjáreigenda
SPRON. Það sé útilokað ef menn
megi ekki nálgast lista yfir stofnfjár-
eigendur með öðrum hætti en þess-
um. Það sé dapurlegt gagnvart lýð-
ræðinu í SPRON og raunar
lýðræðinu almennt.
Jón G. Tómasson, formaður stjórn-
ar SPRON, segir að reiknað hafi ver-
ið með því að stjórn SPRON myndi
funda í dag eða jafnvel á morgun, en
enginn fundur hafi þó enn verið tíma-
settur.
„Þetta breytir svo sem engu í mín-
um huga. Stjórn Sparisjóðsins er búin
að marglýsa því yfir að hún muni boða
til fundar stofnfjáreigenda, í stað
fundarins sem átti að vera 28. júní,
þegar vitað verður hver réttarstaðan
er. Sú staða er enn óviss, við höfum
ekki enn heyrt frá Fjármálaeftirlitinu.
En þegar það liggur fyrir munum við
ákveða fundardag og -stað.“
„Bréfið hefur enga þýðingu“
Spurður um bréf það sem Jón
Steinar Gunnlaugsson lögmaður hef-
ur sent sparisjóðsstjóra SPRON seg-
ir Jón að slíkt bréf hefði átt að stíla á
stjórn SPRON. Bréfið hafi hins vegar
enga þýðingu. „Það er einfaldlega lið-
ur í ófrægingarherferð sem kostuð er
af Búnaðarbanka Íslands.“
Jón segir að lögum samkvæmt og
samkvæmt samþykktum sparisjóðs-
ins beri að boða stjórnarfundi með
minnst tíu daga fyrirvara en önnur
tímamörk séu ekki sett, ekki heldur
fyrir hvaða tíma skylt sé að halda
fundinn, ólíkt því sem sé í hluta-
félagalögunum. Menn ætli sér þó alls
ekki að draga það úr hömlu að halda
fund.
Eigendur þriðjungs stofn-
fjár SPRON krefjast fundar
Morgunblaðið/Arnaldur
Pétur Blöndal og Ingimar Jóhannsson í höfuðstöðvum SPRON í gær.
ÍSLENSK erfðagreining greindi í
gær frá því að vísindamenn fyrir-
tækisins og samstarfsaðila hefðu
gert nýjar uppgötvanir í erfðafræði
og lyfjaerfðafræði astma og ofnæm-
is. Stefnt er að þróun nýrra grein-
ingar- og meðferðarúrræða til að
auka notagildi þeirra lyfja sem nú
eru notuð.
Vísindamennirnir hafa kortlagt
erfðavísi sem tengist astma. Vísinda-
grein um þetta mun birtast í sept-
emberhefti vísindaritsins American
Journal of Human Genetics og er að-
gengileg á vefsíðu þess, http://
www.ajhg.org.
Þeir hafa einnig staðsett tvo erfða-
vísa sem tengjast ofnæmi í öndunar-
vegum. Í tilkynningu frá ÍE segir að
þetta sé í fyrsta sinn sem vísinda-
menn hafi sýnt fram á sterk, töl-
fræðilega marktæk tengsl ákveðins
svæðis á litningi við astma.
Þróuðu aðferð til að spá fyrir
um svörun við steralyfjum
Í rannsókninni var ofnæmi skil-
greint sem aukinn styrkur mótefna
af E-flokki. Í tilkynningunni segir að
það sé mikilvægur þáttur í ofnæmi
fyrir ýmsum ofnæmisvökum í um-
hverfinu og auki hættuna á myndun
astma. Vísindamenn ÍE, dótturfyrir-
tækisins Íslenskra lyfjarannsókna
og samstarfsaðila hafa einnig þróað
aðferð til að spá fyrir um svörun
astmasjúklinga við ákveðnum stera-
lyfjum, út frá athugunum á tjáningu
erfðavísa.
„Þessar niðurstöður eru hluti af sí-
auknum rannsóknum ÍE sem stund-
aðar eru án stærri samstarfsaðila.
Ætlunin er að nýta þessar niðurstöð-
ur til áframhaldandi rannsókna, með
það að markmiði að þróa ný grein-
ingarpróf og meðferðarúrræði sem
beinast að orsökum astma og of-
næmis. Út frá lyfjaerfðafræðilegum
hluta þessara niðurstaðna hyggst Ís-
lensk erfðagreining einnig hanna
próf sem geta tryggt að þessi stera-
lyf séu aðeins notuð af þeim sjúkling-
um sem líklegt er að muni fá af þeim
bata með sem minnstum líkum á
aukaverkunum,“ segir í tilkynning-
unni.
Núverandi lyf beinast gegn
sjúkdómseinkennum
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, seg-
ir að astmi og ofnæmi séu með allra
flóknustu sjúkdómum sem við þekkj-
um. „Það að finna og kortleggja
ákveðna erfðaþætti í slíkum sjúk-
dómum sýnir hversu öflugar aðferðir
okkar eru. Þau lyf sem notuð eru
gegn þessum sjúkdómum í dag bein-
ast fyrst og fremst að sjúkdómsein-
kennum en ekki að orsökum þeirra.
Við vonumst til að geta nýtt okkur
þekkingu á erfðaþáttunum til að
þróa ný og markvissari lyf. Slíkt lyf
verður ekki komið í hillurnar á
morgun, en við erum einnig að vinna
að þróun greiningarprófa til að há-
marka hag sjúklinga af þeim lyfjum
sem eru á markaðnum í dag,“ segir
hann.
Ein stærsta tengslagreining
sem framkvæmd hefur verið
Kortlagning erfðavísisins sem
tengist astma byggðist á um 1.000
erfðamörkum hjá 600 sjúklingum og
550 ættingjum þeirra í 175 fjölskyld-
um. „Hér var því um að ræða eina
stærstu tengslagreiningu sem nokk-
urn tíma hefur verið framkvæmd.
Um það bil 600 manns tóku þátt í
rannsóknunum á erfðum ofnæmis í
öndunarvegi,“ segir í fréttatilkynn-
ingunni sem Íslensk erfðagreining
sendi frá sér í gær.
ÍE gerir uppgötvanir á sviði astma og ofnæmis
Stefnt að þróun nýrra
meðferðarúrræða
ALLMIKIÐ rigndi víða um land í
gær og er þá gott að kunna að búa
sig. Ef hettan dugar ekki til að vera
í góðu skjóli getur regnhlífin tekið
við og þá ætti nú allt að vera nokk-
uð öruggt. Þó getur verið var-
hugavert að treysta á regnhlífina
þegar vindar blása.
Þokkalegu veðri er spáð í dag,
víða verður skýjað og vætu er spáð
á Suðausturlandi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Í góðu
skjóli
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, sótti í gærkvöld skip-
verja, sem slasast hafði á hendi
við vinnu sína, um borð í Höfr-
ung III AK 250. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar fékk til-
kynningu um slysið kl. 19.55 er
Höfrungur III var staddur um
70 sjómílur vestur af Snæfells-
jökli. Skipverjinn var kominn
um borð í þyrluna kl. 21.55 og
tæpri klukkustund síðar var
hann kominn undir læknis-
hendur á slysadeild Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi. Samkvæmt upplýsingum
frá Gæslunni gekk sjúkraflugið
að óskum enda hægviðri og sjó-
lítið. Að sögn vakthafandi
læknis á slysadeild klemmdust
tveir fingur á vinstri hönd skip-
verjans illa og gekkst hann
undir aðgerð seint í gærkvöld.
Þyrluflug
eftir
sjómanni