Morgunblaðið - 18.07.2002, Side 20

Morgunblaðið - 18.07.2002, Side 20
NEYTENDUR 20 FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Gasol® Heimsendingarþjónusta ÍSAGA nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins. Heimsendingargjald er kr. 500,- Afgreiðslan Breiðhöfða 11 er opin virka daga frá kl. 8 til 17. 800 5555 Hluti af Linde Gas Group ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11 Sími 577 3000 • Fax 577 3001 www.aga.is IS A -2 43 .1 – ÍD E A Þrýstimælar Við mælum með Fiskislóð 26 · Sími: 551 4680 · Fax: 552 6331 www.sturlaugur.is i i l í i l i iskislóð 26 Sími: 551 4 80 www.sturlaugur.is BÓNUS Gildir frá 18.–24. júlí nú kr. áður kr. mælie. Frosið súpukj. II. og III. fl. ................ 199 nýtt 199 kg Danskar úrb. skinnl. kjúklingabringur 1.299 nýtt 1.299 kg Bónus brauð 1 kg ........................... 89 111 89 kg Gold kaffi 500 g ............................. 159 179 358 kg Ariel þvottaefni 4,95 kg................... 1.299 nýtt 262 kg Gold saltstangir 250 g .................... 59 79 236 kg GK eldhúsrúllur 4 st ........................ 99 149 25 st. Edet nature salernispappír 8 st. ....... 139 189 17 st. Best yet túnfiskur í vatni/olíu 170 g.. 59 79 347 kg ESSÓ-stöðvarnar Gildir til 31. júlí nú kr. áður kr. mælie. Prins póló XXL, 56 g ........................ 79 95 1.410 kg Prins póló XXL mjólkurs., 56 g.......... 79 95 1.410 kg Caramel bar (Tunnocks), 34 g.......... 49 70 1.440 kg Emmess djæf ís.............................. 139 165 1.726 ltr Gott og blandað hlauppoki, 160 g ... 149 169 931 kg Pringles Original, 200 g................... 219 270 1.095 kg Pringles Sour cream, 200 g ............. 219 270 1.095 kg Bahlsen saltkringlur, 200g............... 129 149 645 kg Bahlsen saltstangir, 150 g............... 85 75 567 kg Maryland kex rauður, 150 g ............. 129 145 860 kg Maryland kex coconut, 150 g........... 129 145 860 kg 11-11-búðirnar Gildir 18.–24. júlí nú kr. áður kr. mælie. Bratwurst pylsur ............................. 747 934 747 kg Ostapylsur ..................................... 831 1039 831 kg Ostur Kastali 125 g......................... 199 249 1.590 kg Papriku smurostur 250 g................. 199 239 750 kg Sunquick appels.safi 840 ml........... 389 469 460 ltr Oetker pizza spec./salami/Hawaii 330 g ............................................ 389 485 1.170 kg HAGKAUP Gildir 18.–21. júlí nú kr. áður kr. mælie. Kjarnafæði rauðvínslegið lambalæri ... 949 1389 949 kg Fanta Wildberry 2 ltr ......................... 169 216 84,5 ltr Pringles BBQ/Cheese/Original 200 g. 189 219 945 kg Kjörís Mjúkís vanil./súk./mokka 1 ltr.. 319 419 319 ltr KRÓNAN Gildir 18.–24. júlí nú kr. áður kr. mælie. KEA þurrkryddað lambalæri............... 1.042 1.389 1.042 kg KEA þurrkr. grísakótilettur .................. 1.046 1.395 1.046 kg Ömmu flatkökur ............................... 59 71 360 kg Crawford kremkex súkk./vanill. 500 g. 199 237 390 kg Mr. Propre hreinsiklútar..................... 369 419 369 pk. Mr. Propre Green Apple 1 ltr .............. 269 nýtt 269 ltr NÓATÚNSVERSLANIR Gildir 17.–21. júlí nú kr. áður kr. mælie. Kinda innralæri............................... 1.198 1.598 1.198 kg Gourmet frampartssneiðar............... 1.053 1.316 1.053 kg Gourmet lærissneiðar...................... 1.379 1.724 1.379 kg Grand Crue ofnsteik ........................ 975 1.199 975 kg Fersk jarðarber askja 200 g ............. 159 229 790 kg Fersk bláber 320 g ......................... 269 349 840 kg Nektarínur 1 kg .............................. 199 398 199 kg SPARVERSLUN, Bæjarlind Gildir til 22. júlí nú kr. áður mælie. Svínakótilettur úr kjötborði............... 799 1.298 799 kg Hunts tómatsósa 680 g .................. 129 154 189 kg Salernispappír ferskjulitaður 12 st.... 659 869 55 st. Góu hraunbitar 200 g ..................... 172 208 860 kg Góu æðibitar 200 g ........................ 172 208 860 kg Pik Nik kartöflustrá 113 g................ 169 199 1.495 kg Pik Nik kartöflustrá 255 g................ 339 399 1.329 kg UPPGRIP – Verslanir OLÍS Júlítilboð nú kr. áður kr. mælie. Kit Kat 3 í pakka............................. 189 249 Prins Póló XXL blátt ......................... 69 95 Strumpa ópal allar gerðir................. 49 70 Fanta 0,5 ltr plast ........................... 109 140 218 ltr Fanta Wildb. 0,5 ltr pl. .................... 109 140 218 ltr ÞÍN VERSLUN Gildir 18.–24. júlí nú kr. áður kr. mælie. 4 hamborgarar, brauð og ostur ........ 390 459 390 st. Chicago Town pizzur 340 g .............. 399 468 1.157 kg Del Monte blandaðir ávextir 420 g ... 129 168 296 kg Stjörnu íspinnar 8 st. ...................... 269 369 33 st. Heimaís vanillu 1 ltr ........................ 299 339 299 ltr Homeblest, 200 g .......................... 129 145 774 kg Lion Bar, 4 st.................................. 259 322 64 st. Bassetts lakkrískonfekt ................... 629 662 629 kg Helgartilboð Verðupplýsingar sendar frá verslunum Danskar kjúklingabringur og gosdrykkir á tilboðsverði SÍFELLT færist í vöxt hér á landi að fólk sem leiti til læknis hafi þegar leitað upplýsinga um vanda sinn á Netinu og jafnvel sjúkdómsgreint sjálft sig, að sögn Sigurðar Guð- mundssonar landlæknis. „Aukinn aðgangur að heilsutengdu efni getur þannig verið jákvæður. Fólk veltir fyrir sér skýringum á eigin vanda- málum sem færir umræður sjúklings og læknis eða hjúkrunarfræðings ef til vill á annað stig.“ Hann segir auk- inn aðgang að heilsutengdum upp- lýsingum samt sem áður hafa það í för með sér að meiri kröfur séu lagð- ar á almenning sem þurfi að vera vakandi fyrir því hvort hægt sé að treysta þeim. „Á Netinu er eins og menn vita gríðarlega mikið upplýs- ingastreymi um ýmiss konar heilsu- farstengd málefni og gera má ráð fyrir því að um 90% af því standist ekki vísindalegar kröfur. Vandinn er að miklu af þessu efni er ekki rit- stýrt. Því er staðreynd að meiri kröf- ur eru lagðar á almenning að greina á milli hvað er gott og hvað slæmt.“ Konur leita heilsuupplýsinga frek- ar á Netinu en karlar en samkvæmt könnun Gallup um heilsu og lífsstíl sem gerð var í febrúar, höfðu tæp- lega 40% kvenna og um 30% karla heimsótt netsíðuna doktor.is sem er ein af íslensku síðunum um heilsu og heilsutengt efni á Netinu. Talsvert um hræðsluáróður á Netinu Nokkuð hefur borið á því sem mætti kalla nútímaþjóðsögur um heilsu og sjúkdóma sem dreift er á netinu, þar sem annaðhvort er í gangi hræðsluáróður eða settar eru fram einhvers konar töfralausnir sem fullyrt er að geti læknað jafnvel alvarlega sjúkdóma. Breska neyt- endablaðið Health Which? ákvað að rannsaka slík skilaboð og komst að því að þau eru bæði send með tölvu- pósti og birtast á ýmsum vefsíðum, að því er fram kemur hjá London Press Service. Svitalyktareyðir var algengt umfjöllunarefni í slíkum skilaboðum, fólk var varað við notk- un hans, hann sagður valda því að eiturefni lokuðust inni í líkamanum og valda brjóstakrabbameini. Hér á landi bárust á milli manna skilaboð í tölvupósti fyrir um ári síðan með svokallaðri nútímaþjóðsögu en þar var sagt frá stúlku á ferðalagi í París sem átti að hafa smitast af alnæm- isveirunni eftir að hafa sest á nál í sæti í kvikmyndahúsi. Við nálina átti síðan að hafa verið festur bréfmiði þar sem henni var tilkynnt að nú hefði hún smitast af alnæmisveir- unni. Í póstinum var fólki ráðlagt að vara sig þar sem svona tilvik væru algeng. Í Health Which? segir að skila- boðin séu gjarnan orðuð á vísinda- legan hátt til að þau séu sem trú- verðugust. Þau geti skapað ótta hjá fullkomlega heilbrigðu fólki en einn- ig gefið fólki með alvarlega sjúk- dóma falskar vonir um skjótan bata. Margar netsíður sem fólk getur treyst Sigurður tekur undir að framboð á slíku efni hafi aukist en að hér á landi hafi ekki borið á ótta hjá almenningi vegna slíkra skilaboða. „Oft er um að ræða fullyrðingar um tengsl á milli hegðunar og sjúkdóma sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum, en einnig er oft boðið upp á ýmiss konar skyndilausnir við sjúkdómum, lækn- ingar sem ekki standast og eru sett- ar fram af fólki sem ekki endilega veit hvað það er að gera.“ Hann segir að ef fólk fái skrítinn tölvupóst með þess háttar upplýsingum skuli ein- faldlega beita heilbrigðri skynsemi, vega og meta hvað virðist sennilegt og hvað ekki. „Þá eru talsvert marg- ar síður sem fólk getur treyst á að innihaldi vísindalega sannaðar upp- lýsingar, eins og miðlar frá opinber- um stofnunum og háskólum hérlend- is og erlendis.“ Dæmi um traustar íslenskar vef- síður sem veita upplýsingar um heilsu og sjúkdóma eru doktor.is – persóna.is – landlaeknir.is og heima- síður Krabbameinsfélagsins, Hjarta- verndar, Landspítala – háskóla- sjúkrahúss og Vísindavefur Háskóla Íslands. Æ fleiri Íslendingar leita upplýsinga um heilsu á Netinu Talið að 90% upplýsinga stand- ist ekki vísindalegar kröfur Morgunblaðið/Billi Upplýsingar um heilsu sem finna má á Netinu eru misáreiðanlegar og þarf fólk að vera meira vakandi fyrir því hverju má treysta en áður. ’ Konur leita frekar heilsuupplýsinga á Netinu en karlar ‘ MARKAÐSRÁÐ kindakjöts stendur að nýjum vef, lamba- kjot.is, þar sem markmiðið er að veita „gagnlegar upplýsingar um lambakjöt, bestu mat- reiðsluaðferðirnar og freistandi uppskriftir fyrir sumar, vetur, vor og haust,“ eins og þar segir. Á síðunni eru flipar þar sem hægt er að fá upplýsingar um grillun, hollustu, matreiðslu, meðhöndlun, „ódýrt og gott“ og lesa fréttir tengdar lambakjöti. Helsti ráðgjafi Markaðsráðs um efni á vefinn er Nanna Rögn- valdardóttir sem gefið hefur út bækurnar Matarást og Mat- reiðslubók Nönnu. Nýjasta fréttin á síðunni er um frjósemi karla, lambalæri og sínk og einnig er að finna upp- skrift að kæfu úr afgöngum undir liðnum „ódýrt og gott“. Nýjustu uppskriftirnar á vefnum eru skyrmarinerað lambalæri, arabískt lambalæri með græn- meti, grískt lambalæri og ind- verskar lambagrillsneiðar, svo dæmi séu tekin. Á síðunni er listi yfir upp- skriftir með lambakjöti sem og tenging inn á vin.is þar sem hægt er að fá upplýsingar um vín vikunnar með lambakjötinu. Skyrmarin- erað læri og frjósemi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.