Morgunblaðið - 18.07.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.07.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 23 JOSEPH Luns, fyrrverandi framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins (NATO) og þar áður utanríkisráðherra Hollands, lést í Brussel í gær, níræður að aldri. Hann var framkvæmdastjóri NATO 1971–1984 og gegndi emb- ættinu lengur en nokkur ann- ar í sögu bandalagsins. Luns gegndi mikilvægu hlutverki við að reyna að sætta sjónarmiðin í landhelgisdeilum Breta og Íslendinga á áttunda áratugnum og kom nokkr- um sinnum hingað til lands. Robertson lávarður, framkvæmda- stjóri NATO, minntist Luns í gær og sagði hann hafa veitt bandalaginu trausta forystu og reynsla hans hefði átt mikinn þátt í að hindra átök í kalda stríð- inu. „Hann vann staðfast- lega að auknu samstarfi Evrópuríkja og skildi að öfl- ug Evrópa væri mikilvægur bandamaður fyrir lönd Norður-Ameríku,“ sagði Robertson. Luns var sendiherra Hol- lands hjá Sameinuðu þjóðunum 1949– 1952 er hann varð utanríkisráðherra og undirritaði hann meðal annars Rómarsáttmálann, grundvöll Evr- ópusambandsins núverandi, árið 1957. Luns var liðsmaður Kaþólska þjóðarflokksins hollenska. Joseph Luns Joseph Luns látinn Brussel. AFP. BANDARÍSKAR leyniþjónustu- og lögreglustofnanir vörðu allt of litlu fé og vinnu í að afla upplýsinga um al-Qaeda og önnur hryðjuverkasam- tök fyrir árásina á World Trade Center í New York ellefta septem- ber á síðasta ári, að því er kemur fram í skýrslu sem unnin var á veg- um fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Skýrslan sjálf mun ekki koma fyrir augu almennings en í gær var gefin út útdráttur úr henni. Höfundar skýrslunnar finna helst að slælegum samskiptum alríkislög- reglunnar FBI við aðrar stofnanir, óhagkvæmu skipulagi þjóðarörygg- isstofnunarinnar NSA og að leyni- þjónustan CIA skuli ekki enn hafa farið að skipun þingsins um að breyta starfsháttum sem þjónustan fékk eftir 11. september. Höfund- arnir taka þó fram að jafnvel þótt úrbætur þær sem lagðar eru til í skýrslunni hefðu verið fyrir hendi fyrir árásina sé ekki hægt að full- yrða að hægt hefði verið að koma í veg fyrir hana. Vilja ráða glæpa- menn í vinnu Formaður þingnefndar um innan- ríkisöryggi, Saxby Chambliss, lagði áherslu á eitt atriði sem bæta mætti: það að CIA skuli enn ekki hafa breytt starfsreglum sínum sem kveða á um að ekki megi fá menn, sem dæmdir hafa verið eða grun- aðir eru um að hafa framið glæpi eða mannréttindabrot, til að njósna fyrir Bandaríkin. Segir Chambliss að ætli leyniþjónustan að koma njósnurum inn í samtök eins og al- Qaeda sé ekki hægt að horfa framhjá hugsanlegum njósnurum einfaldlega vegna þess að þeir hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Öldungadeildarþingmaðurinn Richard Shelby sagði að ætluðu Bandaríkjamenn sér að brjóta upp hryðjuverkasamtök gæti reynst nauðsynlegt að ráða til vinnu menn sem væru litlu skárri en hryðju- verkamennirnir sjálfir. Ný skýrsla harðorð í garð leyniþjónustunnar Washington. AP, The Los Angeles Times. Baráttan við samtök hryðjuverkamanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.