Morgunblaðið - 18.07.2002, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 27
DISTILL er hópur sjö listamanna
sem koma frá fjórum heimsálfum og
eiga sér enn fjölþættari rætur. Síð-
ast sýndi hópurinn saman í Chicago
árið 2000. Verk þeirra eru sprottin af
þeirri sundrungu og endursamruna
sem kviknaði á sjöunda áratugnum
og leiddi til upphafningar hefðbund-
innar flokkunar lista í skýrt afmark-
aðar greinar.
Þannig má sjá í Talningu, sýningu
Distill-hópsins í Sverrissal, veikan
enduróm margra þeirra tilrauna
með efni og aðferðir sem gerðar voru
eftir hnignun formalismans. Upp í
hugann koma nöfn á borð við Evu
Hesse, Lucas Samaras og Richard
Tuttle, sem ekki aðeins tömdu sér
nýja afstöðu til efniviðar og úrlausna
heldur gengu á svig við hefðbundinn
aðskilnað listar og listiðnaðar. Þann-
ig má greina í flestum verkum Dist-
ill-manna ákveðin tengsl við veflist
eða leirlist án þess að þær greinar
nái að lita sýninguna.
Bandaríska listakonan Amy Bar-
illo gengur til dæmis út frá barna-
legu snifsi sem hún festir með prjón-
um á vegginn svo úr verður einhvers
konar spil, meðan samlanda hennar
Ann Chuchvara býr til lauslegt lím-
bandsteppi með þurrkuðum blómum
og hólka úr sokkefni. Viðkvæmt efn-
ið má varla við miklu enda virðist það
miklu fremur vera föndrið en útkom-
an sem helgar niðurstöðuna.
Hrafnhildur Sigurðardóttir má
segja að gangi enn lengra með
stórum súkkulaði- og vanillubátum
sínum, hlöðnum kynferðislegum
skírskotunum og vænum skammti af
háði, sem hún undirstrikar enn frek-
ar með stórum konfektkökum. Eld-
hússpuðið og afrakstur þess er í senn
vottur húsmóðurlegrar undirgefni
og tryggðarpantur matarástar, kær-
leikans sem eftir stendur þótt annað
fari ef til vill forgörðum.
Eþíópísku listakonunni Tsehai
Johnson svipar hugmyndalega mjög
til Hrafnhildar þótt hún kjósi að gera
salernið, fremur en eldhúsið, að við-
fangsefni sínu. Umbreyttir klósett-
burstar hennar og ummótuð plastílát
eru í einfaldleik sínum engu ómerk-
ari tilvísanir í hvatalíf kynjanna. Um
leið sneiða þessi sérkennilegu hrein-
lætisáhöld ísmeygilega að hámenn-
ingarlegum tepruskap.
Í verkum equadorsku listakon-
unnar Maríu Patriciu Tinajero-Bak-
er og Bandaríkjamannanna Julie
Poitras Santos og Jeaha Yoo gætir
sterkra óformrænna áhrifa.
Skemmst er að minnast hinnar yf-
irgripsmiklu og athyglisverðu sýn-
ingar um formlausa list sem aðstand-
endur tímaritsins October, í New
York, höfðu veg og vanda af. Þre-
menningarnir hefðu hæglega getað
tekið þátt í þeirri veislu með léttum
og bráðsnjöllum lausnum sínum á
framsetningu efnis, búta og afganga.
Hvert með sínum hætti ganga þau
Yoo, Poitras Santos og
Tinajero-Baker gegn allri form-
rænni þvingun og sýna svo ekki
verður um villst að drasl, afgangar,
sneplar og hnat eru fullt eins verð-
ugur efniviður og sá sem talinn var
eðalborinn og einn koma til greina til
listsköpunar.
Talning Distill-hópsins er vissu-
lega athyglisverð sýning, einkum
fyrir þá sem hafa nægilega breiðan
áhuga til að gera ekki upp á milli
óháðrar myndlistar, listiðnaðar og
hönnunar.
Eiming, ein, tvær…
MYNDLIST
Hafnarborg
Til 22. júlí. Opið miðvikudaga til mánu-
daga frá kl. 11-17.
BLÖNDUÐ TÆKNI
AMY BARILLARO, ANN CHUCHVARA,
HRAFNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR,
JAEHA YOO, JULIE POITRAS SANTOS,
MARIA PATRICIA TINAJERO-BAKER,
TSEHAI JOHNSON
Áhöld Tsehai Johnson, frá Eþíópíu, bera vott um ferska og frjálslega efnismeðferð listamanna í Distill-hópnum.
Halldór Björn Runólfsson
OG fiðlan syngur ... er yfirskrift há-
degistónleika í Norræna húsinu sem
verða á morgun, föstudag, kl. 12.30.
Þar kemur fram hópur norskra
tólistarmanna sem nefna sig Bø juni-
orspelemannslag og er aðgangur að
tónleikunum ókeypis. Hópurinn
samanstendur af átta listamönnum á
aldrinum 14 til 21 árs og hafa þau til-
einkað sér norskar tónlistarhefðir á
virkan hátt. Tónleikagestum verður
boðið uppá einleik, hljómsveit og
samleik á harðangursfiðlu auk
kvæðasöngs og þjóðdansa úr heima-
sveitinni.
Félagar í tónlistarhópnum hafa
getið sér gott orð í Noregi og einn
þeirra, Per Anders Buen Garnås, gaf
nýlega út geisladisk með harðang-
ursfiðluleik sínum.
Bø juniorspelemannslag kemur
við á Íslandi í tengslum við hljóm-
leikaferðalag til Bandaríkjanna.
Hópurinn heldur einnig tónleika í
Norska húsinu í Stykkishólmi á laug-
ardag kl. 14.
Samleikur
á harðang-
ursfiðlu
Í ENERGIU í Smáralind stendur nú
yfir myndlistarsýning á verkum
Auðar Þórhallsdóttur. Hún sýnir
ljósmyndir unnar með blandaðri
tækni þar sem sterkir litir og lýsing
spila saman í verkunum. Auður hef-
ur haldið nokkrar sýningar á Spáni
en þetta er hennar fyrsta einkasýn-
ing hér á landi.
Sýningin, sem er sölusýning,
stendur til 14. ágúst og er opin alla
daga.
Ljósmyndir í
Energiu
♦ ♦ ♦