Morgunblaðið - 18.07.2002, Qupperneq 48
UMRÆÐAN
48 FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HVERNIG liði þér
ef þú hefðir staðið fyrir
framan byssuhlaup
herja stórþjóða og
hryðjuverkamanna í 70
ár sem hafa það eitt að
markmiði að útrýma
þér og fjölskyldu
þinni? Þetta er það líf
sem blasað hefur við
Gyðinga-fjölskyldum í
tugi eða hundruð ára.
Það mátti ekki
styggja sósíalistann
Hitler á sínum tíma og
var öll áhersla lögð á
að halda friðinn við
hann jafnvel þó það
kostaði líf nokkurra
milljóna Gyðinga. Íslendingar voru
og eru langt frá því að vera saklaus-
ir í þeim efnum, frekar en aðrar
„siðmenntaðar“ Evrópuþjóðir.
Þegar Ísraelsríki fékk sjálfstæði
1948 hvöttu öll Arabaríkin Arabana
í Ísrael til að yfirgefa landið á með-
an þeir væru að valta yfir Ísrael og
slátra Gyðingunum. Slík staða var
og er ekki neitt nýtt vandamál fyrir
Gyðinga.
Arabaríkin mættu óvæntri mót-
spyrnu, þ.v.s. mótstöðu fólks sem að
stórum hluta kom úr sláturhúsum
hinna „siðmenntuðu“ Vestur-Evr-
ópubúa. Þeir vissu að það hafði alls
engu að tapa. Þeir vissu einnig að ef
þeir töpuðu stríðinu við Arabana
biði þeirra ekkert ann-
að en sjórinn eða nýtt
Auswitch í Arabaheim-
inum. Af biturri
reynslu í aldaraðir
höfðu Gyðingarnir lært
að enginn hafði áhuga
á örlögum þeirra. og
þeir vissu þá, eins og
nú, að þeir höfðu enga
ástæðu til að treysta
öðrum en sjálfum sér
fyrir eigin frelsi og lífi.
Sameinuðu þjóðirn-
ar „gleymdu“ eða „yf-
irsást“ sú augljósa
skylda sín að þeim
bæri að ábyrgjast ör-
yggi þess ríkis, sem
var stofnað til í þeirra nafni og á
þeirra ábyrgð, hversu umdeilanleg
sú ákvörðun annars var og er.
Ef hægt er að afsaka hryðjuverk
og sjálfsmorðsárásir Palestínu-
manna gagnvart Gyðingum eiga þá
ekki Gyðingar siðferðilegan rétt á
að reka hryðjuverk í Vestur Evr-
opðu til að ná fram markmiðum sín-
um, án þess að eiga það á hættu að
Ísrael sem slíkt verði kallað til
ábyrgðar.
Hið svokallaða siðprúða vinalega
og saklausa fólk eins og talað er um
Palestínufókið í mörgum fjölmiðlun-
um í dag er einmitt það siðprúða
fólk sem hefur valið sér egypskan
herforingja, Arafat, sem leiðtoga
sem sendir börn þeirra og unglinga
í sjálfsmorðárásir á Ísrael og rekur
skóla fyrir hryðjuverkamenn aðal-
lega skipaða börnum sem eru heila-
þvegin og alin upp á hatri á Ísrael
og síðar notuð til hryðjuverkaárása
og sjálfsmorðsárása.
Palestínskir hryðjuverkamenn
kunna orðið á, hvernig á að ná eyr-
um vestræns almennings, þó að það
sé ekki ásetningur þeirra að koma á
lýðræði eða jafnvel frumstæðustum
mannréttindum Ég man ekki að
hafa nokkurn tíma lesið að þetta sið-
prúða fólk hafi farið í sjálfsmorðs-
árásir sjálft heldur fórnar það börn-
um sínum eins og skepnum og lofar
þeim eilífri sælu í himnaríki að laun-
um. Þetta sama fólk virðist ekki
vera jafn ákaft sjálft að stytta sér
leið til himnaríkis eins og það er
tilbúið til að varða veginn fyrir
börnin sín út í opinn dauðann, í
þeim eina tilgangi að drepa Gyð-
inga. Það getur vel verið að siðgæð-
ið hafi breyst í heiminum, en ég
mundi seint telja mig eiga rétt á að
senda mín börn til slíkra verka.
Þetta saklausa siðprúða fólk hef-
ur líklega drepið fleirri ungar Pal-
estínskar konur en Ísraelar hafa
nokkru sinni náð að gera, þar á ég
við hin svokölluðu „heiðursmorð“.
Siður sem þegar er byrjað að fram-
fylgja meðal Araba á Norðurlönd-
um. Þetta siðprúða saklausa fólk
drepur og limlestir lík þeirra manna
úti á götu sem það þykjast eiga sök-
ótt við og hengir síðan lík þeirra
upp í ljósastaura. Hvað er slíkt rétt-
arfar kallað á Vesturlöndum? Er
slík framkoma Ísraelum að kenna,
eða hefur þetta ávallt verið þannig?
Hvað eigum við sameiginlegt með
slíku fólki og aðferðum þess til að
ná markmiðum sínum?
Það er óþekkt meðal þessa sið-
prúða fólks að konur fái að velja sér
maka sjálfar og ef stúlkurnar setja
sig upp á móti foreldrum í þeim efn-
um eða í öðrum málum er þeim ein-
faldlega slátrað, í orðsins fyllstu
merkingu. Eru það ekki konur hér á
landi sem lýst hafa mestri samstöðu
með hryðjuverkamönnum Palest-
ínu? Þrátt fyrir að palestínskar
mæður hafi krafist af Arafat að
hann hætti að smala börnum þeirra
saman til að mynda skildi um
hryðjuverkamennina í átökum
þeirra við Ísraela. En það er ekki
hlustað á vilja íslamskra kvenna og
mannréttindi mæðra í heimi íslam
eru engin. Og síðan lýsum við stuðn-
ingi við ráðamenn þessara ríkja sem
fótum troða öll hugsanleg mannrétt-
indi og kennum svo lýðræðisríkinu
Ísrael um hvernig komið er fyrir
þeim. Þetta hljómar eitthvað mót-
sagnakennt.
Það furðulega er að engin Araba-
þjóð hafi tekið upp hanskann til
varnar Palestínuaröbum í dag. Er
það einfaldlega ekki vegna þess að
þeir vita hvað gjörspilltir Arafat og
liðsmenn hans eru? Það er að koma
betur í ljós í fréttum hvað þjóð-
arleiðtogar heims eða sendiboðar
þeirra hafa verið að ræða um við
Arafat á undan kossunum og faðm-
lögunum. Honum hefur verið ein-
faldlega verið bent á að ef hann
uppræti ekki spillingu meðal sinna
eigin manna og stöðvi ekki hryðju-
verkaárásir á Ísrael og komi ekki á
einhvers konar lýðræði mun hann
ekki mega vænta stuðnings vest-
rænna ríkja. Hvað er þetta svo sem
frábrugðið því sem Gyðingarnir eru
að fara fram á, áður en þeir telja að
hægt verði að tala um frið við Pal-
estínumenn?
Mest af styrkjum þeim sem veitt-
ir hafa verið Palestínumönnum í
gegnum árin er á einkareikningum
leiðtoganna í Sviss. Talið er að að-
eins 2% hafi komist alla leið til
fólksins.
Einn daginn er samið við Arafat
um einhvers konar friðarferli og
hann er krýndur Nóbelsverðlaun-
um, næsta dag skipar hann hryðju-
verkamönnunum að gera sjálfs-
morðsárásir á Ísrael til að
eyðileggja friðarferlið. Hefur það
farið framhjá mönnum hvað Annan
framkvæmdastjóri Sameinu þjóð-
anna hefur að segja um friðarvilja
og friðarferli Palestínumanna? Falla
slíkar yfirlýsingar ekki í kramið hjá
fréttamönnum Vesturlandabúa og
almennings í dag þar sem gamla
gyðingahatrið sem sósíalistinn Hit-
ler bjó til er að festa rætur aftur.
Vestrænir stjórnmálamenn þykjast
best hafa vit á utanríkispólitík eins
og t.d. síðustu tvær heimstyrjaldir
bera vitni um og þar sem Banda-
ríkjamenn voru ákallaðir til bjargar
siðmenningunni í Evrópu eða rétt-
ara sagt í heiminum öllum.
Til varnar gyðingum
Kristófer
Magnússon
Hryðjuverk
Palestínskir hryðju-
verkamenn kunna nú-
orðið að ná eyrum vest-
ræns almennings, segir
Kristófer Magnússon,
þó að það sé ekki ásetn-
ingur þeirra að koma á
lýðræði eða jafnvel
frumstæðustu
mannréttindum.
Höfundur er tæknifræðingur.
NÚ stendur yfir um-
ræðan um hvort Ísland
eigi að ganga í Evr-
ópuambandið og sýnist
sitt hverjum. Er það
vel að fram komi sem
flest sjónarhorn á
þessu mikilvæga máli.
Þá vaknar sú spurning
hvernig okkur hefur
vegnað í samskiptum
við aðrar þjóðir allt frá
upphafi kristni á Ís-
landi. Hvað getur sag-
an sagt okkur, getum
við dregið lærdóm af
því í nútímanum, þeg-
ar horft er til helstu
atriða sem hafa valdið
vatnaskilum í þjóðlífi okkar?
Kristnitakan árið 1000 færði okkur
vissulega evrópska menningu og
siði, sem blandaðist þeim lífsháttum
sem fyrir voru í landinu.
Þó er hæpið að hugsa sér að Ólaf-
ur konungur Tryggvason hafi ein-
göngu verið með það í huga að
kristna Íslendinga þegar hann hélt
höðingjasonunum íslensku í gíslingu
forðum í upphafi kristnitöku. Það
kom enn betur í ljós síðar þegar eft-
irmaður hans Ólafur digri (helgi) fór
fram á hersetu í Grímsey og ving-
aðist við Guðmund ríka á Möðru-
völlum til að á ná fram markmiði
sínu Það vildi svo vel til að við átt-
um þá framsýnan mann, Einar Eyj-
ólfsson Þveræing(bróður Gumundar
ríka á Möðruvöllum); sem skildi að
við yrðum að hafa til hnífs og skeið-
ar til að lifa af og móta okkar eigin
meningu og framfarir. Sneri hann
þingheimi gegn konungserindi þar
sem hann benti norð-
lenskum bændum á að
það gæti orðið þröngt
fyrir dyrum ef her
sæti í Grímsey.
Má ljóst vera eftir
þeirra tíma siðgæði og
háttum, að þá hefðu
hermenn konungs talið
sjálfsagt að taka sér
nauðþurftir hjá bænd-
um í landi eftir þörf-
um. Þessi frásögn er í
Íslandssögu Björns
Þorsteinssonar, bls 58,
þar segir: Ekki er sag-
an öll frumsmíði
Snorra (Sturlusonar),
því hann styðst við
eldri vísu, sem eignuð er Einari
Þveræingi, þar sem hann kveðst
vera trauður að láta Grímsey af
hendi, þótt leitt sé að reita konung
til reiði, heldur skulu menn halda
eynni fyrir hinum siglingafúsa her-
konungi.
Það er ekki úr vegi að velta því
fyrir sér hvort Snorri Sturluson
hefði haft efni og aðstæður til að
skrifa fræði sín á kálfskinn ef þróast
hefði erlend herseta á Íslandi – þá
hefði sagnaritun okkar orðið snaut-
legri. – Gæti ekki verið að Norð-
lendingum og þjóðinni allri fyndist
þröngt fyrir dyrum ef veiðiheimildir
okkar yrðu ákveðnar af skrifræðinu
úti í Brussel. –
Ekki er rúm til að fjalla um
kirkjugoðaveldi, kirkjustríð eða
ósættir þeirra Sturlunga, um það
geta menn lesið í Íslandsögunni og
Kristni á Íslandi sem kom út árið
2000. Þó má nefna að hjaðningavíg
Sturlunga voru ekki eingöngu
vegna innbyrðis deilna þeirra í milli,
þar blandaðist inn í áhrif erlends
valds sem vildi hrifsa völdin í skjóli
sundrungar valdamikilla manna;
það er ný og gömul saga sem sífellt
endurtekur sig á öllum tímum.
Skálholtsstóll var mikilvægasta
miðstöð Íslendinga á öllum sviðum
frá upphafi kristnitöku og var Hóla-
stóll stofnsettur skömmu síðar.
Byggðu þeir efnislega tilveru sína á
innlendum aðföngum í formi skatta
(tolla), stærstum hluta á landbún-
aðarafurðum en einnig á sjávar-
fangi. Kristnisaga II hefti (bls. 149)
greinir frá því að lítið sé vitað um
útgerð biskupsstólanna á miðöldum
en þó hafi einkum Skálholtsbiskups-
stóll haft tekjur sínar af sjávarfangi,
orðrétt segir: Af viðbótartekjum
Skálholtsbiskups má nefna þriðjung
fisktíundar úr Vestmannaeyjum, en
prestarnir fengu tvo þriðju. Álíta
má samt sem áður að sjávarfang
hafi snemma komið til þó að við
værum eingöngu bændasamfélag á
þessum tímum. Ekki er óraunhæft
að hugsa sér að eitthvað af sjáv-
arfangi hafi borist til Hólastaðar í
formi tolla frá Vestfjörðum.
– Ég get séð fyrir mér Odd Gott-
skálksson berja sér þorskhausa
þegar hann sat í leyni og sneri Nýja
testamentinu á íslensku í fjósinu
forðum. – Væntanlega með hliðsjón
af útgáfu Jóns Arasonar af guð-
spjöllunum sem nú er glötuð, segir
Björn Þorsteinsson orðrétt í Ís-
landsögu sinni bls 181. –
Ásókn erlends valds hélt áfram
hér á landi, verslunin var einokuð
og einveldi Danakonungs komst á
1662 eins og kunnugt er. Jafnframt
hnignaði veldi biskupsstólanna. Í
mínum huga er Guðbrandur Þor-
láksson á Hólum síðasti biskupinn,
sem með bókaútgáfu sinni hafði bol-
magn til að halda merki íslenskrar
menningar hátt á lofti. Má álíta að
með því hafi hann eflt verulega ís-
lenska sjálfsvitund. – Hlutur Skál-
holtsstaðar varð ekki réttur aftur
fyrr en að frumkvæði Sigubjörns
Einarssonar, biskups á síðustu öld.
Leyfi ég mér að álíta það mikið
framfaraspor til að gleyma ekki
hver sjálfsmynd okkar er sem þjóð
bæði í trúarlegu og samfélagslegu
tilliti. –
Stórstígar framfarir urðu ekki
hér á landi og var hér einsleitt
bændasamfélag fram á 20. öld.
Fólksfjölgun var háð veðurfari og
skepnuhöldum. Seinni hluta 19. ald-
ar var fólksfjöldi hér á landi í há-
marki og gat bændasamfélagið ekki
framfleytt þeim fjölda. Fólk flykkt-
ist til Ameríku frekar en að deyja úr
hungri. Það vantaði framtak og efni
til að hefja sjávarútveg, verkmenn-
ing hafði ekki þróast innan frá. Með
sjálfstæðisbaráttunni og upplýsingu
komu nýir straumar sem var und-
anfari velgengni okkar á 20. öld.
Borgarsamfélag myndaðist, útgerð
og handverk hófu innreið sína, skól-
ar risu og menntun efldist. Þessa
velmegun eigum við að stærstum
hluta fiskveiðum að þakka sem er
undirstaða okkar nú og einnig í
framtíðinni. Þessi velsæld var síðan
tryggð með útfærslu landhelginnar.
Í dag býr í þessu landi velmennt-
uð þjóð til munns og handa, vísindi,
fræði og tækni eru sambærileg við
það sem gerist erlendis. Bænda-
samfélagið er ekki lengur til staðar
og „borgríki“ hefur risið við
Faxaflóann, sem kemur til með að
móta og ákveða framtíð þessa lands.
Þá er mikilvægt að gleyma ekki
uppruna sínum og hvað er undir-
staða velsældar, menningar og
tækniframfara, það að hafa til hnífs
og skeiðar. Auðlindir okkar, fiski-
miðin, landið og vatnsföllin ber að
umgangast með aðgát og virðingu
til framfæris bæði okkur og kom-
andi kynslóðum.
Ég hef með þessari grein reynt
að sýna fram á mikilvægi þess að
eiga til hnífs og skeiðar sem þjóð í
landinu. Þá verða framfarir í vís-
indum, tækni og menning byggð á
réttum grundvelli innan frá og við
höldum áfram að vera til í samfélagi
þjóðanna.
Þrátt fyrir hnattvæðingu erum
við landfræðilega langt frá Evrópu
og höldum best reisn okkar með
viðskiptum við sem flestar þjóðir
heimsins. Miklar röklegar umræður
verða að eiga sér stað áður en við
leggjumst svo lágt að biðja um inn-
göngu í Evrópusambandið og inn-
leiða á ný bein erlend yfirráð í land-
inu.
Evrópubanda-
lagið í ljósi sögunnar
Sigríður Laufey
Einarsdóttir
Evrópumál
Þá er mikilvægt að
gleyma ekki uppruna
sínum, segir Sigríður
Laufey Einarsdóttir, og
hvað er undirstaða vel-
sældar, menningar og
tækniframfara, það að
hafa til hnífs og skeiðar.
Höfundur er
BA-guðfræðingur.