Morgunblaðið - 31.08.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 9
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið mán. - fös. kl. 10-18
laugardag kl. 10-14
Franskar, dragtir og skyrtum Nýjar vörur
Stakir jakkar, flauelspils
og „tweed“-pils
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Nýtt — Nýtt
Mokkajakkar, skinnjakkar, úlpur
Stór PAS sending
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá, sem eiga við streitu, kvíða
og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í
lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að að slaka á og öðlast aukið frelsi
og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu
af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun
og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.
Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994.
Hefst fimmtudaginn 5. september – þri. og fim. kl. 20:00
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Í september hefst ný jógakennaraþjálfun, en þessi þjálfun hefur fest sig í sessi í
starfsemi okkar frá því sú fyrsta var haldin árið 1997. Kennari er sem fyrr
Ásmundur Gunnlaugsson, þekktur fyrir námskeiðið ,,Jóga gegn kvíða”. Þjálfunin
er yfirgripsmikil og fyllilega sambærileg við það besta sem í boði er
erlendis. Þetta er tækifæri til að nema af kennara með mikla reynslu og þekk-
ingu á íslenskum starfsvettvangi. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja verða
jógakennarar, heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún
hentar t.d. öllum sem eru í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða
hópa og/eða þeim, sem vilja gera breytingar á lífsháttum sínum.
Ekki er krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægastur er áhugi og
jákvætt hugarfar. Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg.
Þjálfun er alls 6 helgar (auk mætingar í jógatíma):
20. – 22. september, 8. – 10. nóvember, 29. nóv – 1. des.,
10. – 12. janúar, 14. – 16. febrúar og 14. – 16. mars.
Kennt er föstud. kl. 20-22, laugard. og sunnud. kl. 9-15.
Ásmundur heldur kynningarfund fyrir áhugasama laugardaginn 14. september
kl. 17:00. Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er
miðvikudagurinn 18. september.
Haustönn opinna jógatíma hefst 2. september
sjá stundaskrá á www.yogastudio.is
Byrjendatímar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 20:00
Vilt þú verða jógakennari
eða dýpka jógaástundun þína?
Námskeið til 30 rúmlesta
skipstjórnarréttinda
hefst miðvikudaginn 4. september.
Kennsla Austurbugt 3 kl. 19-23 mánudaga og
miðvikudaga.
Ekki missa af þessu námskeiði.
Innritun í síma 898 0599 og
588 3092
bha@centrum.is
www.centrum.is/siglingaskolinn
Siglingaskólinn
Meðlimur í
Alþjóðasambandi
siglingaskóla
VANTAR ÞIG EKKI
SKIPSTJÓRNARRÉTTINDI?
Verslun fyrir konur
Mjódd
Haustdagar í Mjódd
Fullt af fallegum haustvörum
á góðu verði
Ýmis tilboð í gangi
Verið velkomnar!
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
TILBOÐIÐ STENDUR
29. ágúst - 14. sept.
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
35% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum í 2 vikur
ja vikna tilboð2
NÚ ER LAG!35%
Eldhús Bað Fataskápar Þvottahús
OPNUNARTÍMI:
G l æ s i l e g a r d a n s k a r i n n r é t t i n g a r
mánudaga–föstudaga kl . 9–18
laugardag 31. ágúst kl . 10–16
sunnudag 1. sept. k l . 13-16
Opi› í dag frá 10-16
Útsölulok
20% auka afsláttur
EIGENDUR fjölveiðiskipsins Guð-
rúnar Gísladóttur KE-15, sem
strandaði við strendur N-Noregs
hinn 19. júní síðastliðinn, hafa sent
Mengunarvörnum norska ríkisins
(SFT) formleg mótmæli við þeirri
ákvörðun stofnunarinnar að flakinu
skuli lyft upp af hafsbotni og flutt til
hafnar, eigi síðar en 15. október
næstkomandi.
Segir Sigmar Björnsson útgerðar-
maður að í úttekt sem norskt fyr-
irtæki gerði fyrir íslensku útgerðina
að kröfu SFT sé talin hverfandi
hætta á því að mengun berist frá
skipinu þó flakið fái að liggja áfram á
hafsbotni. Fyrirtækið hafi þó lagt til
að bróðurpartur olíunnar yrði fjar-
lægður og hafði útgerðin boðist til að
fjarlægja um 90% hennar. Talið sé
að mikið af olíunni sé nú þegar farið,
olían sé eðlisléttari en sjór og hún
hafi líklega sloppið út um öndunar-
rör á gasolíutönkunum og síðan guf-
að upp út í andrúmsloftið.
„Nú gera þeir kröfu um að skipið
verði fjarlægt og við erum búnir að
biðja um rökstuðning á því hvers
vegna það er nauðsynlegt. Svo verð-
um við bara að sjá til hvort við förum
til Noregs til að taka skipið upp af
hafsbotni,“ segir Sigmar. Um borð í
skipinu voru um 300 tonn af olíu og
tæplega 900 tonn af frystri síld.
Eitt tilboð hefur borist
Tryggingamiðstöðin, sem tryggði
skipið, hefur ákveðið að selja flakið
til hæstbjóðanda þar sem það liggur
á hafsbotni, eins og komið hefur
fram í Morgunblaðinu. Segir Gunnar
Felixson, forstjóri fyrirtækisins, að
aðeins eitt tilboð hafi borist í flakið
til þessa sem ekki hafi verið tekin af-
staða til. Segist hann orðinn von-
daufur um að fleiri tilboð eigi eftir að
berast.
Vilja rök-
stuðning
fyrir flutn-
ingi flaks
18 ÁRA stúlka má sjá á eftir
40.000 krónum vegna þess að hún
var ekki með ökuskírteini með-
ferðis þegar lögregla hafði afskipti
af akstri hennar í mars sl.
Sekt við því að hafa ekki öku-
skírteini meðferðis við akstur er
5.000 krónur en þar sem stúlkan
neitaði að hafa ekið bílnum um-
rætt sinn fór málið fyrir héraðs-
dóm og þarf hún að greiða verj-
anda sínum 35.000 krónur í
málsvarnarlaun.
Í dómnum sem Pétur Guðgeirs-
son, héraðsdómari, kvað upp, segir
að sannað sé að hún hafi ekið bíln-
um enda hafi lögreglumennirnir
tveir sem ræddu við hana þekkt
hana aftur sem og farþegi sem var
með henni í bílnum. Stúlkan hélt
hins vegar við framburð sinn og
sagðist hafa legið heima í veik-
indum og einhver annar hefði gefið
upp nafn hennar.
Brotið varðaði
ekki punktakerfið
Lögreglustjórinn krafðist þess
jafnframt að hún yrði svipt öku-
réttindum þar sem hún væri kom-
in með átta umferðarpunkta. Átt-
unda punktinn hlaut hún í júlí
2001 og segir í dómnum að þá
hefði lögregla átt að fara fram á
sviptingu ökuréttar. Brotið sem nú
væri dæmt fyrir varðaði hins veg-
ar ekki punktum. Var ríkissjóði
gert að greiða verjanda stúlkunnar
20.000 krónur í málsvarnarlaun.
Jóhann Hauksson sótti málið f.h.
lögreglustjórans í Reykjavík en
Lúðvík Kaaber hdl. var til varnar.
Lögfræði-
kostnaður sjö
sinnum hærri
en sektin
♦ ♦ ♦