Morgunblaðið - 13.09.2002, Síða 27
SPÆNSK kvikmyndahátíð var sett í
Regnboganum í gær og stendur til
22. september. Morgunblaðið kynn-
ir hér fimm af myndunum sextán
sem sýndar eru á hátíðinni.
Gifstu mér loksins
Gifstu mér loksins (El Hijo de la
novia) er eftir Juan José Camp-
anella og var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna sem besta erlenda
myndin 2002.
Rafael Belvedere er ekki ánægð-
ur með líf sitt. Hann er ófær um að
tengjast umhverfi sínu og sam-
ferðafólki. Hann þjáist af streitu og
finnst hann alltaf uppiskroppa með
tíma. Eina huggun hans í lífinu er að
horfa á gamla þætti úr sjónvarps-
röðinni Zorro. Hann er 42 ára en lík-
ist í engu hetju sinni Don Diego de
la Vega. Fantasíuheimur bernsku-
áranna var liðinn og raunveruleik-
inn of flókinn. Rafael er fráskilinn
og skiptir sér lítið af uppeldi dóttur
sinnar. Í staðinn gefur hann sig í
einu og öllu starfi sínu sem er að
reka veitingastað sem faðir hans
stofnaði. Hann á enga vini og er
ófær um að gefa unnustu sinni
ákveðin loforð fyrir framtíðina.
Þegar hér er komið sögu gerast
óvæntir atburðir sem rífa Rafael
upp úr sinnuleysi sínu; hann fer að
íhuga möguleika á að selja veitinga-
staðinn og hittir gamlan æskuvin
Juan Carlos, sem þrátt fyrir þá per-
sónulega harmleiki sem hann hefur
orðið fyrir hjálpar Rafael að takast
á við fortíð og framtíð. Um leið öðl-
ast Rafael þann styrk sem þarf til að
hjálpa föður sínum að uppfylla
gamlan draum móður sinnar; að
giftast í kirkju.
Aðalleikarar eru Ricardo Darin,
Hector Alterio, Norma Aleandro.
Sýnd: 13.9., 15.9., 19.9., 21.9., 22.9.
Síðasta ferð Roberts Rylands
Gracia Querejeta leikstýrir Síðustu
ferð Roberts Rylands (Último Viaje
de Robert Ryland).
Robert Ryland, prófessor og forn-
leifafræðingur sem ekkert hefur
spurst til í 10 ár, síðan hann hvarf á
leyndardómsfullan hátt, snýr aftur
til Oxford til að horfast í augu við
fortíðina og dauða vinar. Atburða-
rásin upplýsir hið nána samband
milli mannanna tveggja.
Aðalleikarar: Ben Cross, William
Franklyn.
Sýnd: 16.9., 18.9., 19.9., 21.9.
Það rignir í skóna mína
Það rignir í skóna mína (Lluvia en
los Zapatos) er eftir María Ripoll.
Ungur og aðlaðandi leikari dettur
í lukkupottinn. Hann fær tækifæri
til að endurheimta fortíðina og leið-
rétta stærstu mistök ævinnar, þ.e.
þegar hann yfirgaf stóru ást lífsins
fyrir aðra konu.
Honum öðlast nú tækifæri til að
skapa framtíðina upp á nýtt og hef-
ur baráttu við örlögin til að halda í
ástina sína og líf þeirra saman.
Þrátt fyrir allt gerir hann sér smám
saman grein fyrir að hann getur
ekki stjórnað öllu og framtíðin virð-
ist fyrirfram ákveðin.
Aðalleikarar: Douglas Henshall,
Lina Headey, Penelope Cruz.
Sýnd: 14.9., 16.9., 18.9., 19.9., 22.9.
Þegar þú kemur aftur til mín
Þegar þú kemur aftur til mín
(Cuando vuelvas a mi lado) nefnist
mynd eftir Gracia Querejeta.
Eftir langan aðskilnað hittast
þrjár systur vegna dauðsfalls móður
sinnar. Þær uppgötva að móðirin,
Adela, vildi að ösku sinni yrði skipt í
þrjá hluta og fær hver systir um sig
það hlutverk að fara með sinn hluta
á ákveðinn áfangastað. Því ferða-
lagi lýkur við ströndina þar sem
systurnar þrjár, Gloria, einhleyp,
Ana vændiskona hinna ríku, og
Lidia, ófrísk í fyrsta sinn, uppgötva
lykilinn að leyndarmálum fortíð-
arinnar.
Aðalleikarar: Mercedes Sam-
pietro, Julieta Serrano, Adriana
Ozores, Jorge Perugorria.
Sýnd: 14.9., 19.9., 20.9., 22.9.
Einar
Einar (Solas) er í leikstjórn Benito
Zambrano sem jafnframt skrifaði
handritið.
Í óvistlegri íbúð í fátækrahverfi í
stórri borg neyðast tvær konur,
móðir og dóttir, til að búa saman um
tíma. Móðurinni finnst að tíminn sé
floginn frá sér. Dóttirin, María, er
skilin eftir ólétt af náunga sem vill
ekkert með hana hafa og hún
skrimtir af starfi sínu sem skúr-
ingakona.
Nágranninn fyrir ofan þær hefur
búið svo lengi einn ásamt hundinum
Aquiles að hann er orðinn nöldrandi
gamalmenni.
Staðfastlega notar móðirin blíðu
sína til að brjóta niður hörku Maríu
og einsemd nágrannans, þar til hún
kemur þeim í skilning um að ástin
er það eina sem getur hjálpað þeim í
gegnum langa ævi.
Aðalleikarar: Ana Fernandez,
Maria Galiana, Carlos Alvarez-
Novoa.
Sýnd: 14.9., 16.9., 21.9., 22.9.
Spænsk kvikmyndahátíð í Regnboganum
Streita, hvarf
og endur-
heimt fortíð
Úr kvikmyndinni Gifstu mér loksins.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2002 27
ÓPERUVEFURINN var opnaður í
gær við athöfn í Íslensku óperunni.
Óperan og Origo ehf., dótturfyrir-
tæki Tölvumynda hf., gerðu síðast-
liðinn vetur samstarfssamning um
hönnun og smíði á Óperuvefnum.
Vefstjóri er Margrét Sveinbjörns-
dóttir, kynningarstjóri Íslensku óp-
erunnar. Hún segir að fyrsta verk-
efnið hafi verið að setja sig í spor
notandans og gera sér grein fyrir því
hverjum vefurinn ætti að þjóna.
Upplýsingunum á vefnum er skipt í
sex efnisflokka.
„Grunnspurningarnar hljóta að
vera: Hvað er á dagskrá? og Hvar
fæ ég miða?, og þessar upplýsingar
verða það fyrsta sem fólk sér þegar
það opnar vefinn. Þar verða líka
upplýsingar um önnur verkefni
starfsársins og sætaskipan í húsinu.
Næsti efnisflokkur ber yfirskriftina
Óperan, og þar getur fólk lesið sér
til um stefnu og markmið óperunn-
ar, stjórn, starfsmenn, kór og hljóm-
sveit. Þar er einnig stiklað á sögu
Óperunnar og Gamla bíós og þar
verða líka tenglar yfir á óperuhús
um víða veröld. Í þriðja efnisflokkn-
um eru fréttir, þar sem við segjum
frá því sem er efst á baugi bæði hér í
Óperunni og annars staðar í kring-
um okkur. Ég ætla að skora á ís-
lenska óperusöngvara að láta okkur
vita þegar þeir eru að debútera á
Metropolitan eða annars staðar, svo
að Óperuvefurinn geti orðið
fyrstur með fréttirnar! Vinafélagi
Íslensku óperunnar eru gerð skil í
fjórða efnisflokknum, og þar eru
helstu upplýsingar um félagið,
stjórn þess og starfsemi, útgáfu,
námskeiðahald og fleira. Vinafélagið
sér um útgáfu Óperublaðsins, og
þegar fram líða stundir er ætlunin
að birta valdar greinar úr því á vefn-
um. Atvinnulífið á sinn efnisflokk á
vefnum, en þar má sjá lista yfir öll
samstarfs- og styrktarfyrirtæki Óp-
erunnar, en þau eru um 30 talsins.
Síðast en ekki síst verðum við með
söngvaravef, heljarmikinn gagna-
grunn um íslenska óperusöngvara.
Við sendum íslenskum óperusöngv-
urum um víðan völl bréf í vetur og
buðum þeim að senda inn efni um
sjálfa sig, til birtingar á vefnum. Við
erum komin með á fjórða tug greina,
og þeim á eftir að fjölga á næstunni.“
Tækifæri til að koma á
tengslum við viðskiptavini
Að sögn Margrétar var það hug-
búnaðarfyrirtækið Origo sem átti
frumkvæði að samstarfinu um Óp-
eruvefinn. Framkvæmdastjóri Origo
er Einar Gunnar Þórisson. Aðspurð-
ur hvað hefði vakað fyrir einkafyr-
irtæki að leggja ríkisstyrktri menn-
ingarstofnun lið með þessum hætti,
segir Einar Gunnar að það hafi fyrst
og fremst verið það að láta gott af
sér leiða. „Við tókum eftir því að
Óperan hefur ekki verið með vef.
Með vef skapast kjörið tækifæri fyr-
ir menningarstofnun eins og Óp-
eruna að koma sér á framfæri,
markaðssetja sig og koma á
tengslum við viðskiptavini og vel-
unnara. Við litum því á það sem gott
mál að styrkja Óperuna í þessu.
Frumkvæði okkar var strax vel tek-
ið, samstarfið við þetta fólk hefur
verið mjög skemmtilegt og skapandi
og við vonumst til þess að byggja
þetta áfram upp með þeim. Við telj-
um að fyrirtæki eigi að skilja eitt-
hvað eftir sig í menningunni og okk-
ur finnst það ákveðin skylda
fyrirtækja að taka þátt í slíkri upp-
byggingu.“
Óperuvefnum verður viðhaldið í
vefumsjónarkerfinu WebMaster
sem er þróað af Origo. Origo sér-
hæfir sig í hönnun og þróun vef-
svæða, þróun sérhæfðra tölvukerfa
og samþættingu kerfa með áherslu á
notkun Netsins með það að mark-
miði að einfalda vinnslu og bæta að-
gengi starfsmanna og viðskiptavina
að upplýsingum og þjónustu. Vef-
fang óperuvefsins er www.opera.is.
Óperuvefurinn, samstarfsverkefni Origo og Íslensku óperunnar
„Fyrirtæki eiga
að skilja eitt-
hvað eftir sig í
menningunni“
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Kjartan Sigurðarson söngvari opnar Óperuvefinn að vefstjór-
anum, Margréti Sveinbjörnsdóttur, viðstöddum.
Meira en mynd og
grunur nefnist ný
ljóðabók eftir Þor-
stein frá Hamri og
hefur að geyma
41 ljóða skálds-
ins.
„Þorsteinn frá
Hamri hefur fyrir
löngu tryggt sér
sess meðal fremstu ljóðskálda sem
ort hafa á íslenska tungu á síðustu
áratugum. Þorsteinn hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir
skáldskap sinn, meðal annars Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin árið
1992 fyrir ljóðabókina Sæfarinn sof-
andi,“ segir í kynningu.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 56 bls., prentuð í Odda. Kápu
gerði Magnús Kjartansson. Verð:
3.490 kr.
Ljóð
LARS Huldén, prófessor emeritus,
flytur opinberan fyrirlestur um
þýðingar og þýðingavanda í Nor-
ræna húsinu, á
morgun, laugar-
dag, kl 17, á fæð-
ingardegi dr.
Sigurðar Nor-
dals.
Fyrirlesturinn
nefnist „Tiden
och språket – ett
översättarpro-
blem, belyst med
exempel från Kalevala och Sagan
om Ringen.“
Huldén er þekkt ljóð- og leik-
ritaskáld og einn helsti þýðandi
fagurbókmennta á sænsku í Finn-
landi. Hann hefur m.a. þýtt Kale-
vala og Hringadróttins sögu. Hann
var um árabil prófessor í norræn-
um málum við Helsinkiháskóla og
forstöðumaður stofnunar nor-
rænna mála við skólann. Hann er
heiðursdoktor við Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn er í boði Stofn-
unar Sigurðar Nordals og verður
fluttur á sænsku.
Lars Huldén
fjallar um
þýðingavanda
Lars Huldén
TVÆR sýningar fara á nýjan leik á
fjalir Borgarleikhússins eftir sum-
arhlé um helgina. Það er Gesturinn
eftir franska skáldið og heimspek-
inginn Eric-Emmanuel Schmitt og
ástarsaga Lauru Esquivel, Krydd-
legin hjörtu.
Gesturinn segir frá ímyndaðri nótt
í lífi Sigmunds Freuds. Nasistar eru
í þann veginn að leggja Austurríki
undir sig, Anna, dóttir Freud, hefur
verið færð á brott og skyndilega birt-
ist ókunnur gestur í vinnustofu
Freuds. Leikarar eru Gunnar Eyj-
ólfsson, Ingvar Sigurðsson, Kristján
Franklín Magnús og Jóna Guðrún
Jónsdóttir. Örfáar sýningar verða á
verkinu í haust en sú fyrsta verður í
kvöld, föstudagskvöld.
Leikritið Kryddlegin hjörtu verð-
ur sýnt annaðkvöld. Þar segir m.a.
frá eldamennsku Titu, systrunum
Gerturid sem logar af ástríðu og
Rosauru sem blæs út eða skreppur
saman eftir því hver réttur dagsins
er og máginum Pedro sem fær ríku-
lega næringu fyrir þá ást sem hann
ber til Titu.
Með aðalhlutverkin fara Nína
Dögg Filippusdóttir, Gísli Örn Garð-
arsson, Edda Heiðrún Backman,
Edda Björg Eyjólfsdóttir, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir o.fl.
Gesturinn
og Krydd-
legin hjörtu
á fjalirnar
eftir hlé
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦