Morgunblaðið - 28.09.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGARGREINUM í Morg-
unblaðinu hefur fjölgað verulega á
undanförnum árum. Til að öllu efni
Morgunblaðsins verði haganlega
fyrir komið reynist nauðsynlegt að
setja minningargreinum, sem og
öðru efni, ákveðin lengdarmörk.
Því hefur verið ákveðið að fyrir ut-
an aðalgrein verði aðrar greinar
1.500 slög (með bilum), sem eru um
50 línur í blaðinu (17 dálksenti-
metrar) og í kringum 300 orð.
Hinsta kveðja – nýtt form
Ætlast er til að þær greinar, sem
skilað er inn eftir þessa helgi, verði
innan þeirra lengdarmarka sem að
framan er lýst.
Jafnhliða þessu verður tekin upp
nýjung sem kölluð er HINSTA
KVEÐJA þar sem hægt verður að
senda örstutta kveðju (5–15 línur),
þegar það á við. Þetta form á við
þegar votta á virðingu án þess þó
að það sé gert með langri grein (sjá
sýnishorn). Blaðið vonast til að
þessum breytingum verði vel tekið
af lesendum og að eftir þeim verði
farið í hvívetna.
Ritstj.
Breyttar reglur um
minningargreinar
Hæfileg lengd. Til þess að sjá
lengd minningargreinar í t.d.
Word-ritvinnslu, þá er valið
Tools-valblaðið og síðan Word
Count. Þá opnast þessi upplýs-
ingagluggi og sýnir orðafjöldann
(Words); slagafjölda án orðabila
(Characters (no spaces)); slaga-
fjölda með orðabilum (Characters
(with spaces)): 1.500.
g
fa
g
n
ar
n
k,
a
ð-
m
g
m
n-
r
r
ð
r-
i.
m
r-
n-
í
ar
l-
u
í
ð
ð-
ð
gg g
Sú hugsun að svo kynni að fara var
manni þó oftast fjarri, svo mikill var
lífsþróttur hennar, hugurinn vökull
og atorkan óbilandi.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj.
lkasdjf laksjf laks jdf.
Laksdjælaskdjfæalskjfaæls
kdjfaæl sk djfalæs kd.
Jón Jónsson og
Jónína Jónsdóttir
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs
kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh
dfgh dfgh dfh fdgh.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Jón Jónsson
HINSTA KVEÐJA
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÓ́líkur leikstíll hjá
Fram og Fylki/B4
Valsmenn einir ósigraðir
í handboltanum/B2
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r28.
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablað frá Flug-
leiðahótelum. Blaðinu er
dreift um allt land.
NÝR þjónustuskáli Alþingis, Skál-
inn, var vígður við hátíðlega at-
höfn í gær að viðstöddum forseta
Íslands, ráðherrum, alþingis-
mönnum og fjölda gesta.
Sr. Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprestur og fyrrverandi al-
þingismaður blessaði húsið.
Nýbyggingin ásamt bílakjallara
er 2460 fermetrar. Þar verður
margháttuð þjónusta fyrir alþing-
ismenn, starfsmenn þingsins og
gesti. Bæði Skálinn og Alþingis-
húsið verða opin almenningi í dag
milli 10 og 16. Skálinn er fyrsta
húsið sem Alþingi byggir frá
árinu 1908.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þjónustu-
skáli
vígður
Skáli/14
KAUPÞING banki hf. hefur tekið að
sér að tryggja sölu á hlutabréfum
Jim Schafer, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Bonus Stores, Inc.,
dótturfyrirtækis Baugs Group hf. í
Bandaríkjunum, í fyrirtækinu og
nemur söluverð þeirra tveimur millj-
ónum Bandaríkjadala eða um 175
milljónum króna. Var samkomulag
um þetta undirritað í Bandaríkjun-
um fyrir nokkrum dögum sam-
kvæmt heimildum, sem Morgun-
blaðið telur áreiðanlegar.
Baugur Group hf. hefur átt tvö
fyrirtæki í Bandaríkjunum, Bonus
Stores, Florida og Bonus Stores,
Delaware, en síðarnefnda fyrirtækið
keypti þrotabú Bill’s Dollar Stores.
Þessi tvö fyrirtæki hafa nú verið
sameinuð í eitt, Bonus Stores Inc.
Jim Schafer hefur átt helmings-
hlut í Bonus Stores, Florida. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var Bonus Stores, Delaware metið á
45 milljónir dollara vegna samein-
ingarinnar en Bonus Stores, Florida
á 15 milljónir dollara. Verðmatið
mun samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa verið framkvæmt af
litlu bandarísku verðbréfafyrirtæki.
Schafer samdi við Kaupþing
banka hf. um söluna
Gerðir höfðu verið samningar við
Jim Schafer um, að hann eignaðist
7½% hlut í hinu sameinaða fyrirtæki
og væntanlegur hlutur hans í því
metinn á 4,5 milljónir dollara.
Kaupþing banki hf. hefur gert
samkomulag við Schafer um að
kaupa þennan hlut á tvær milljónir
dollara.
Hlutabréf í Bonus Stores Inc. í Bandaríkjunum
Kaupþing tryggir sölu
á bréfum Jim Schafer
RÚMLEGA tvítugur karlmaður var
í gær dæmdur í fimm mánaða skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir hylmingu en hann
notaði stolna tölvu til að greiða fyrir
bifreið. Tölvunni hafði verið stolið úr
skipi sem lá við bryggju í Kópavogi.
Maðurinn játaði þetta brot sem og að
hafa ekið bifreið sviptur ökurétti um
bifreiðastæði í Kópavogi. Með brot-
um sínum rauf hann skilorð eldri
dóms upp á þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi. Sá dómur var nú
tekinn upp og dæmt í einu lagi fyrir
afbrotin.
Finnbogi H. Alexandersson, hér-
aðsdómari, kvað upp dóminn. Sigríð-
ur Elsa Kjartansdóttir flutti málið
f.h. sýslumannsins í Kópavogi. Örn
Clausen hrl. var skipaður verjandi
mannsins.
Stolin tölva
notuð í
bifreiðavið-
skiptum
SLÖKKVILIÐ Húsavíkur var kall-
að út á níunda tímanum í gærkvöldi
vegna elds í íbúðarhúsi við Garð-
arsbraut 47 á Húsavík. Eldurinn
kviknaði í kjallaraíbúð hússins og
urðu töluverðar skemmdir vegna
elds og reyks. Ekki urðu slys á
fólki.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
kviknaði eldurinn út frá potti á
eldavél í eldhúsi. Tvennt var í kjall-
araíbúðinni þegar eldurinn kviknaði
og náði fólkið að forða sér út í tæka
tíð. Eldurinn læsti sig í eldhúsinn-
réttingu og vegg í eldhúsinu. Þá var
talin mikil hætta á að eldurinn
kæmist í timburloft og upp í íbúðina
á efri hæð hússins, en slökkviliðinu
tókst að koma í veg fyrir það. Að
sögn lögreglu urðu töluverðar reyk-
skemmdir á íbúðinni á efri hæðinni.
Eldsvoði á
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær tvo menn á þrítugsaldri í
10 og 12 mánaða fangelsi fyrir fjöl-
mörg innbrot, þjófnað, fíkniefnalaga-
brot, skjalafals og fleiri afbrot. Tvítug
stúlka var jafnframt dæmd í sex mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir hlut
sinn í nokkrum afbrotanna.
Mennirnir eru samtals dæmdir fyr-
ir á þriðja tug innbrota í bíla, íbúðar-
hús, verslanir o.fl. Þá eru þeir fundnir
sekir um nokkur fíkniefnalagabrot,
þeir fölsuðu ávísanir og sviku út bens-
ín. Mennirnir voru fundnir sekir um
ýmis innbrot í Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Reykjavík sem framin
voru á tímabilinu frá 21. janúar til 21.
júní þegar þeir voru hnepptir í gæslu-
varðhald þar sem þeir hafa setið síð-
an. Mennirnir sóttust einkum eftir
ýmsum raftækjum, hljómflutnings-
tækjum, gsm-símum og öðrum varn-
ingi sem hefur reynst auðvelt að selja
á svörtum markaði í skiptum fyrir
fíkniefni. Ljóst er að verðmæti þýf-
isins nemur milljónum.
Dæmdir fyrir á
þriðja tug innbrota