Morgunblaðið - 28.09.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 9
EIGANDI verslunarinnar Rómeó
og Júlíu var í gær dæmdur til að
greiða 400.000 krónur í sekt fyrir að
hafa klámmyndbönd til sölu í versl-
uninni. Þá verður hann að sjá á eftir
1.788 slíkum myndum sem Héraðs-
dómur Reykjavíkur gerði upptækar.
Lögregla lagði hald á myndbönd-
in við húsleit „vegna gruns um að
þar væri til sölu klámfengið efni á
myndböndum“, eins og segir í
dómnum.
Lagt var hald á 1.876 myndbönd
en dómurinn féllst á að hluti þeirra
væri í einkaeign og ekki ætlaður til
sölu.
Í dómnum segir að hugtakið klám
sé ekki skilgreint í lögum. Vitnað er
til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur
14. júlí 2000, sem staðfestur var í
Hæstarétti 19. desember sama ár,
þar sem vísað er til skilgreiningar
sérfræðinganefndar Menningar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna á
klámi sem hafi gert greinarmunur á
hugtökunum klámi (pornografia) og
kynþokkalist (erotika), þannig, að
klám var skilgreint sem ögrandi
framsetning á kynlífi í auðgunartil-
gangi, án ástar, blíðu eða ábyrgðar,
en kynþokkalist sem bókmenntaleg
eða listræn tjáning ástar. Þá segir
að þau myndbönd sem ákært hafi
verið fyrir í málinu í dag teljist ótví-
rætt innihalda klám í skilningi 2.
mgr. 210. gr. almennra hegningar-
laga eins og Hæstiréttur hefur túlk-
að þá grein með stuðningi við áð-
urnefnda skilgreiningu Menningar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Klám á myndbandaleigum
og í söluturnum
Sér til varnar vísaði maðurinn til
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar
og lagði ennfremur fram nokkur
myndbönd sem aðgengileg eru í al-
mennum myndbandaleigum svo og
eintök af tímaritum sem seld eru í
bókabúðum og söluturnum og inni-
halda kynlífsmyndir og greinar um
kynlíf. Dómurinn taldi að með réttu
mætti halda því fram að efnið inni-
héldi að meginhluta klám. Ekki
stoði þó fyrir manninn að bera fyrir
sig jafnræðisreglu 65. gr. stjórnar-
skrárinnar enda réttlæti það ekki
verknað hans þó að aðrir hefðu ekki
verið ákærðir fyrir samsvarandi
brot.
Þá segir í dómnum að maðurinn
hafi verið samvinnufús og á mynd-
böndum sem voru skoðuðu hafi ekki
verið að að finna klám af grófara
tagi, s.s barna- eða dýraklám eða
klám tengt grófu ofbeldi. Einnig er
það metið ákærða til tekna að
áhersla hafi verið á það lögð af hálfu
ákærða að heimila ekki aðgang að
versluninni fólki yngra en 18 ára.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Sigríður J. Frið-
jónsdóttir saksóknari sótt málið f.h.
ríkissaksóknara en Guðmundur Óli
Björgvinsson hdl. var til varnar.
400.000 króna sekt fyr-
ir að selja klámmyndir
Dugir ekki
að vísa til jafn-
ræðisreglu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Norður-
ljósum samskiptafélagi hf.:
„Vegna frétta Ríkissjónvarpsins í
gær um að vaktmaður hjá Búnaðar-
banka Íslands hf., sem bankinn lét
handtaka í gær, sé tengdur einum af
yfirmönnum Norðurljósa samskipta-
félags hf., skal tekið fram að engum
af yfirmönnum félagsins er kunnugt
um að foreldrar þeirra eða annað
venslafólk vinni sem vaktmenn hjá
Búnaðarbanka Íslands hf.
Norðurljós samskiptafélag hf.
fagna því hins vegar að Búnaðar-
banki Íslands hf. og Lögreglan í
Reykjavík skuli eiga gott samstarf
um rannsókn meintra afbrota og
vonar félagið að það samstarf haldi
áfram svo upplýst verði hið fyrsta
hver eða hverjir af starfsmönnum
Búnaðarbanka Íslands hf. láku trún-
aðarupplýsingum um Norðurljós
samskiptafélag hf. til samkeppnis-
aðila þess með það fyrir augum að
knýja Norðurljós samskiptafélag hf.
í gjaldþrot.“
Reykjavík, 27. september 2002.
Fyrir hönd Norðurljósa sam-
skiptafélags hf.,
Sigurður G. Guðjónsson
forstjóri.
Yfirlýsing frá
Norðurljósum
Með eitt kíló af
hassi innanklæða
ÞÝSK kona á fertugsaldri hefur ver-
ið úrskurðuð í vikulangt gæsluvarð-
hald en hún var handtekin á Kefla-
víkurflugvelli með um eitt kíló af
hassi. Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík fer með rannsókn máls-
ins.
Í fréttatilkynningu frá sýslumann-
inum á Keflavíkurflugvelli kemur
fram að konan var stöðvuð við reglu-
bundið tolleftirlit við komuna frá
Kaupmannahöfn á fimmtudag.
Hassið hafði hún falið innanklæða.
Miðað við verðkönnun SÁÁ nemur
söluverðmæti fíkniefnanna 2,5 millj-
ónum króna.
Fá útlendinga til
að sjá um smyglið
Á þessu ári hafa 60 fíkniefnamál
komið til kasta tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli og hafa aldrei
verið fleiri. Athygli vekur að í þriðj-
ungi málanna koma erlendir ríkis-
borgarar við sögu. Það sem af er
árinu hafa 11 erlendir ríkisborgarar
verið stöðvaður með fíkniefni, þar af
11 á þessu ári. Tíu Danir eru í þess-
um hópi, þrír Þjóðverjar, tveir Bret-
ar en sex frá öðrum ríkjum. Gera má
ráð fyrir að flestir þeirra séu svoköll-
uð burðardýr, hafi tekið að sér inn-
flutning fíkniefna gegn greiðslu.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, segir að
menn hljóti að draga þá ályktun af
fjölgun erlendra burðardýra, að toll-
gæsla á Keflavíkurflugvelli sé farin
að skila auknum árangri. Íslending-
ar geri sér grein fyrir að miklar líkur
séu á að þeir verði stöðvaðir reyni
þeir að smygla fíkniefnum um flug-
völlinn. Þeir fái því í auknum mæli
útlendinga til að sjá um smyglið. Út-
lendingarnir taki verkið að sér gegn
greiðslu en þeir geri sér sjálfsagt
ekki grein fyrir hversu öflugt eftirlit
sé á Keflavíkurflugvelli.
Stal fjórum
tölvum á
tveimur
dögum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær rúmlega 25 ára gamlan
karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir
tvö innbrot í B.T. tölvur í Smáralind í
Kópavogi. Innbrotin framdi hann
með tveggja daga millibili í ágúst sl.
Maðurinn stal tveimur tölvum í
hvort skipti en samtals nemur verð-
mæti þeirra rúmlega einni milljón
króna. Maðurinn var einnig ákærður
fyrir brot á vopnalögum með því að
hafa ísexi í bifreið sinni þegar hann
var handtekinn. Við þingfestingu
málsins afturkallaði sýslumaðurinn í
Kópavogi þann kafla ákærunnar eft-
ir að maðurinn upplýsti að um hefði
verið að ræða brunaexi sem hann
hefði haft í bifreið sinni vegna starfs
síns sem rafvirki.
Finnbogi H. Alexandersson, hér-
aðsdómari, kvað upp dóminn. Sigríð-
ur Elsa Kjartansdóttir, fulltrúi, sótt
málið en Hilmar Ingimundarson hrl.
var skipaður verjandi mannsins.
♦ ♦ ♦ Stuttar og síðar kápur
úr ull og kasmír
Glæsilegar úlpur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Mörkinni 6, sími 588 5518
Stórútsala
Opið virka
daga kl. 9-18.
Laugardaga
kl. 10-15
Regnkápur - Stuttkápur - Vindjakkar
- Úlpur - Hattar - Húfur
Kanínuskinn kr. 2.900
Allt á 50% afslætti
Síðustu dagar
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegn-
um miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að
slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem
m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir
þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál sem
stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfir-
gripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994.
Hefst fimmtudaginn 3. október – Þri. og fim. kl. 20:00. Örfá pláss laus.
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Símar 544 5560 og 820 5562,
www.yogastudio.is
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Spariskyrtur
Strets-flauelsbuxur
Strets-gallabuxur
St. 36-44 & 44-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—15.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið í dag laugardag kl. 10-14
Franskar dragtir með síðum og
stuttum pilsum frá stærð 34
Mikið úrval af uppgerðum borðstofustólum og
borðstofuborðum. Einnig margt fleira góðra muna.
Opið laugardaga-sunnudaga 15-18,
virka daga og á kvöldin eftir samkomulagi.
s. 566 8963 og 892 3041, Ólafur.
Laugardagstilboð
Gallabuxur kr. 2.990
Peysur kr. 3.990
Verslun fyrir konur, Mjódd og Laugavegi
Laugavegi 25,
sími 533 5500
Opið laugardag til kl.16
Full búð
af nýjum
haustvörum
olsen