Morgunblaðið - 05.10.2002, Qupperneq 28
NEYTENDUR
28 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.sagamedica.com
eykur orku, þrek og
vellíðan
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
6
1
3
4
/s
ia
.i
s
Angelica
Angelica fæst í apótekum,
heilsuvörubúðum
og heilsuhornum matvöruverslana.
Steingrímur Hermannsson,
Garðabæ:
Undanfarna mánuði hef ég daglega
tekið teskeið af Angelicu. Fyrsta
mánuðinn fann ég lítil áhrif, en síðan
hafa mér þótt áhrifin veruleg og
vaxandi bæði á heilsu og þrótt. Pestir
eða kvilla hef ég enga fengið og þróttur
og úthald hefur aukist, ekki síst í
vetrargolfinu.
LISTIR
HÚÐKREM sem borið er á líkam-
ann gæti aukið líkurnar á skaða
af völdum butylparaben, efnis
sem talið er trufla horm-
ónastarfsemi. Þetta kemur fram í
nýjasta hefti danska neyt-
endablaðsins tænk+test, þar sem
vitnað er í athugun umhverfis- og
upplýsingastofnunarinnar Grøn
Information á 17 gerðum af húð-
kremi á boðstólum í dönskum
verslunum. Ellefu tegundir af 17
eru sagðar innihalda efni sem
valda skaða á umhverfinu og sjö
af 11 sagðar bæði innihalda efni
sem skaðleg þykja umhverfinu og
efnasambönd sem talin eru trufla
hormónastarfsemi líkamans. All-
ar sjö innihalda umrætt butyl-
paraben, samkvæmt blaðinu.
Meðal þeirra kremtegunda sem
bæði innihalda efni talin skaðleg
fyrir umhverfið og butylparaben
er Hydra Principe líkamskrem
frá Lancôme, sem inniheldur
cyclomethicone og triclosan. Hið
fyrrnefnda er talið hættulegt um-
hverfinu og hið síðara er á lista
umhverfisstofnana yfir efni með
umtalsverð umhverfisáhrif, sam-
kvæmt niðurstöðum. Locobase
Lotion inniheldur butyl hydroxy-
toluen, auk butylparabens, sem
meðal annars veldur eitrunar-
áhrifum á vatnalífverur og við
inntöku og getur framkallað of-
næmi, segir ennfremur. Biotherm
Anti-drying Body Milk inniheldur
hexyl nicotinate, sem og butyl-
paraben. Þá innihalda Natusan
pH 5,5 Body Lotion, normal hud,
og Nivea Lotion bæði butyl-
paraben, að því er fram kemur í
tænk+test.
Sex kremtegundir af 17 eru
hvorki taldar skaðlegar líkam-
anum né umhverfinu og er um að
ræða Weleda Malven Pflegemilch,
mini RISK Body Lotion, Dr.
Hauschka Rosen Balsam, Plaisir
Liposome Body Lotion, Urtekram
Chamomile Body Lotion og Cosm-
ea Hudlotion, segir ennfremur.
„Áhrif butylparabens á horm-
ónastarfsemi líkamans minna á
áhrif þalata [phthalates á ensku].
Samkvæmt nýrri japanskri rann-
sókn á músum hafa smáir
skammtar af [butylparaben] slæm
áhrif á karlkyns æxlunarfæri og
þar sem allar líkur eru á að það
geymist í líkamanum er hætta á
uppsöfnun í allnokkru magni með
tímanum. Það gæti verið alvar-
legt fyrir konur á barneign-
araldri þar sem hætta er á áhrif-
um á karlkyns fóstur.“
Blaðið hefur eftir Elsebeth
Gerner Nielsen, „róttækum tals-
manni umhverfissinna“ að
„óhugnanlegt sé til þess að vita að
skaðleg áhrif þessara efna geti
bitnað á fjölda kynslóða“.
„Það veldur miklum áhyggjum
að ekki sé hægt að nota fleiri
kremtegundir en raun ber vitni
áhyggjulaust. Dönsk stjórnvöld,
sem gegna formennsku í fram-
kvæmdastjórn ESB, ættu að nýta
tækifærið og banna algerlega
notkun efna sem trufla horm-
ónastarfsemi í Evrópu,“ er haft
eftir Gerner Nielsen.
Fram kemur að Grøn Inform-
ation hafi ekki lagt mat á hversu
mikið magn butylparabens sé að
finna í kremtegundunum sjö sem
fyrr er getið, en áhrif af notkun
efna sem trufla hormóna-
starfsemi séu ófyrirséð. Rann-
sóknir hafi ekki útilokað að lítið
magn af efninu sé skaðlegt lík-
amanum og ýmislegt fleira komi
til.
„Húðkrem er ekki eina snyrti-
vörutegundin sem við notum dags
daglega. Áhrifin af hormónatrufl-
andi efnum hellast yfir okkur af
fleiri orsökum og safnast fyrir í
líkamanum,“ er haft eftir Jannie
Dagstrup hjá Grøn Information.
„Vandinn við butylparaben
liggur ekki bara í trufl-
unum á hormónastarfsemi
því efnið er skaðlegt um-
hverfinu líka. Það hefur eit-
uráhrif á vatnalífverur og
safnast upp í náttúrunni.
Því mælir Grøn Information
með því að fólk sniðgangi
krem sem inniheldur
butylparaben,“ segir enn-
fremur.
Í greininni segir jafn-
framt að triclosan, sem mun
vera í kreminu frá Lan-
côme, brotni hægt niður í
náttúrunni, safnist þar fyrir
og grandi vatnalífverum.
Þar að auki leiki grunur á
að triclosan auki ónæmi
baktería fyrir sýklalyfjum.
„En það eru ljósir punktar,
Grøn Information mælir með sex
tegundum húðkrems sem ekki
innihalda efni skaðleg náttúrunni
og þrjár þeirra eru aukinheldur
án ilmefna. Þess vegna er manni
áfram kleift að „auka mýkt og
raka húðarinnar“, líkt og lof-
söngur auglýsinganna hljómar
aftur og aftur, án þess að skaða
umhverfi og heilsu,“ segir loks í
tænk+test.
Rotvarnarefni sem mikið
eru notuð í snyrtivörur
Níels Breiðfjörð Jónsson, sér-
fræðingur á eiturefnasviði Holl-
ustuverndar ríkisins, segir að
stofnunin reyni að hafi eftirlit
með efnum í snyrtivörum eftir
fremsta megni og taki reglur
Evrópusambandsins upp jafn-
óðum, þar að lútandi. „Til eru
slæm dæmi úr fortíðinni um efni
sem ekki voru upphaflega talin
skaðleg heilsu manna, en reynd-
ust síðan hafa kynhormónaáhrif.
Eitt dæmi er sápuefnið non-
ylfenoletoxylat sem hefur tekið
langan tíma að takmarka notkun
á, því það var orðið það útbreitt.“
Níels segir paraben-sambönd,
sem eru rotvarnarefni, og butyl-
paraben tilheyrir mikið notuð í
snyrtivörur.
„Butylparaben hefur sjálfsagt
reynst vel í upphafi og ekki verið
talið hættulegt og notkun þess því
orðið útbreidd. Upplýsingar á
borð við þessar koma sífellt fram
og má segja að þeim sé safnað í
sarpinn þótt ekki komi strax til
aðgerða, enda þarf að sannreyna
rannsóknir sem sýna fram á hugs-
anleg skaðleg áhrif. Nýlegt dæmi
um umræðu af þessu tagi tengist
sólvarnarefnum sem einnig safn-
ast upp í umhverfinu og hafa
mælst í brjóstamjólk og holdi
fiskjar í vötnum þar sem fólk bað-
ar sig. Mín persónulega skoðun er
sú að menn eigi að hafa miklar
gætur á efnum sem brotna hægt
niður og eru þar af leiðandi lengi
í umhverfinu,“ segir Níels Breið-
fjörð Jónsson, sérfræðingur á eit-
urefnasviði, Hollustuverndar rík-
isins að endingu.
Efni sem talið er hafa áhrif
á kynhormóna í húðkremi
Engar athugasemdir voru gerðar við sex krem af 17 í athugun Grøn
Informationen á efnainnihaldi húðkrema í dönskum verslunum.
Myndir úr tænk+test
Krem sem sögð eru bæði innihalda efni sem valda spjöllum á umhverfi og efni sem hafa áhrif á kynhormóna.
Að minnsta kosti fimm af sjö kremum
sem Grøn Information gerði mestar
athugasemdir við eru á íslenskum
markaði. Fjögur þeirra fundust við
skyndikönnun í einni verslun.
Morgunblaðið/Júlíus
Í LISTASAFNI Sig-
urjóns Ólafssonar
verður opnuð í dag,
laugardag, vetrarsýn-
ing sem ber heitið
Andlitsmyndir og af-
straksjónir Á sýning-
unni eru mörg helstu
lykilverk Sigurjóns
allt frá 1934 fram til
síðustu æviára lista-
mannsins, en hann lést
fyrir réttum 20 árum, í
desember 1982.
Allt frá fyrstu til-
raunum Sigurjóns í
höggmyndalistinni
lagði hann rækt við
mannamyndir eða
portrett, og hélt hann
því áfram við Listaháskólann í
Höfn. Eftir fárra ára nám þar ytra
fóru menn að panta andlitsmyndir
hjá Sigurjóni, og ber þar hæst
portrett hans af Jóni Krabbe sendi-
ráðsfulltrúa frá 1934 sem hann vann
fyrir ríkisstjórn Dana. Mynd Sig-
urjóns af móður sinni, sem hann
gerði á einum degi árið 1938, er
þegar orðin klassískt
verk og með því var
Sigurjóni skipaður sess
meðal helstu portrett-
listamanna samtímans.
Þegar á árunum
1934–35, áður en Sig-
urjón útskrifaðist frá
Listaháskólanum í
Höfn, hóf hann óhlut-
bundnar formtilraunir
í stórum verkum úr
leir, tré og steini og í
þeim gætti helstu list-
strauma og nýjabrums
samtímans.
Á þessa sýningu eru
annars vegar valdar
myndir sem lýsa ólík-
um persónuleikum og
hins vegar afstrakt verk sem
sprottin eru úr þeim jarðvegi þar
sem trúnaður við hlutföll mannslík-
amans er ríkjandi. Á sýningunni eru
13 andlitsmyndir og 13 afstrakt
verk.
Sýningin stendur til 30. mars og
verður opin um helgar milli kl. 14
og 17.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Lykilverk á vetrarsýningu
Kroppinbakur, eftir
Sigurjón Ólafsson,
frá árinu 1934.
Gallerí List, Skipholti 50d Þór-
unn Guðmundsdóttir opnar sýningu
á vatnslitamyndum og hefur hún yf-
irskriftina Litbrigði. Þórunn hefur
stundað nám í Baðstofunni í Kefla-
vík undir leiðsögn Eiríks Smith í
allmörg ár og einnig stundaði hún
nám við Myndlistarskóla Reykja-
víkur. Hún hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í mög-
um samsýningum. Þetta er önnur
sýning Þórunnar í Reykjavík.
Sýningin stendur til 19. október.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg Lista-
konurnar Jacqueline og Sophia
Rizvi veita leiðsögn um sýningu
sína í dag kl. 14–16. Enn fremur
sýnir Jacqueline vinnubrögð sín við
vatnslitamálun.
Ráðhús Reykjavíkur Félag tré-
rennismiða opnar sýninguna Skáld-
að í tré – skógarspuni kl. 14. Þetta
er í fjórða sinn sem félagið heldur
sýningu undir þessu nafni. Sýndir
verða renndir listmunir úr inn-
lendum og innfluttum viði og eiga
16 félagsmenn verk á sýningunni.
Ennfremur eiga þar verk fjórir er-
lendir gestasýnendur, sem allir eru
kunnir í heimi trérennismíða og
hvarvetna eftirsóttir kennarar og
sýnendur. Þeir hafa komið hingað
áður og haldið námskeið og sýni-
kennslu á vegum félagsins. Þetta
eru þau Chris Stott, Michael og Liz
ÓDonnell, Niels Peter Miltersen og
Stuart Mortimer.
Næsta galleríi, Næsta bar, Ing-
ólfsstræti 1a Dagur Sigurðsson
opnar sýningu kl. 17.
Sýnd verður grafíkmappa, sem
Dagur vann að á árunum 1961-3 og
samanstendur af 28 verkum, að-
allega dúkristum.
Sýningin stendur út októbermánuð.
Laugavegur 32, þar sem áður var
verslunin Kelló Opna galleríið
býður myndlistarmönnum að mæta
í húsnæðið kl. 13–14 og setja upp
verk sín eða mæta á opnunartíma ef
um gjörning er að ræða. Húsið
verður síðan opnað almenningi kl.
14–18 þar sem gestum gefst kostur
á að skoða verkin og ræða við lista-
mennina.
Í DAG
SÝNING á ljósmyndum eftir Ragnar
Axelsson ljósmyndara verður opnuð
í Slunkaríki á Ísafirði í dag kl. 16.
Ragnar er landsþekktur ljósmynd-
ari og hefur starfað við Morg-
unblaðið um árabil þar sem myndir
hans hafa vakið mikla athygli.
Myndir eftir hann unnu til Oskar
Barnack-viðurkenningarinnar á
sýningum á ljósmyndahátíðunum í
Perpignan og Arles í Suður-
Frakklandi árið 2001 og í kjölfar
þess var honum boðið að halda stóra
sýningu í Mílanó á Ítalíu.
Þar sýndi hann myndir af hverf-
andi lífsháttum á Íslandi, Grænlandi
og í Færeyjum. Myndirnar sem
sýndar verða á Ísafirði eru úr þeirri
seríu.
„Þetta er lífið í kringum okkur,“
segir Ragnar aðspurður um mynd-
efni sitt. „Við erum hætt að sjá svo
margt í kringum okkur – og það er
partur af því að skrásetja söguna að
ná þessum deyjandi lífsháttum, þeg-
ar heimurinn er að breytast svona
mikið. Lífið er meira en vídeó og
popp! “ Ragnar segist ekki gera mik-
ið upp á milli þeirra viðfangsefna
sem hann fæst við í ljósmynduninni.
„Maður verður að hafa þetta bland-
að. Hver mynd er sjálfstæð, eins og
þegar málari málar myndir. Ég get
ekki einu sinni teiknað Óla prik en
fyrir mér er hver mynd mitt mál-
verk. Svo er þetta líka spurning um
að skrásetja. Maður spyr sig til
dæmis hvort trillukarlar verði til eft-
ir tíu, tuttugu ár – lífið breytist svo
hratt. Ef þeir verða til verða þeir all-
ir komnir á plastbáta. Gömlu góðu
bátarnir fara allir á brennurnar.
Annars er það fólkið í landslaginu
sem er mitt uppáhaldsviðfangsefni.“
Morgunblaðið/RAX
Ragnar Axelsson: Heyskapur á Sandey.
Fólkið í landslaginu