Morgunblaðið - 06.10.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 6. OKTÓBER 2002
234. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Sunnudagur
6. október 2002
Morgunblaðið/Kristi
„Við leituðum í dópi, stigum djöfladans.
Ó, ég man ekki hversu mörg ár,“ söng
Bubbi Morthens með Egó á plötunni Í
mynd og Magnús Stefánsson barði
trommurnar. Pétur Blöndal var bara poll
og raulaði lagatextann á uppáhalds-
plötunni sinni án þess að gruna hvaða
veruleiki byggi að baki. „Ó, ég man
ekki hversu mörg ár.“ Um þessar
mundir fara Bubbi og Magnús í
skóla og miðla nemendum
af reynslu sinni úr
heimi vímunnar./2
Bræður í þjáningunni
ferðalögHeimsókn til parmesanbónda bílarAudi A6börnBenedikt búálfurbíó John Wo
Landið sem hverfur
Sauðá og Sauðárdalur
Gilið og flúð-
irnar bjóða upp
á síbreytilegt
sjónarspil.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
B
Ævintýramaður
kemur úr kafi
10
Þjónusta sem
skiptir sköpum
20
Allir íslenskir
forngripir í
vörslu Dana
komi til
Íslands
12
HANS Blix, yfirmaður vopnaeftir-
litsnefndar Sameinuðu þjóðanna,
styður tillögu Bandaríkjastjórnar
um nýja og harðorða tillögu um
Írak. Segir hann ljóst, að beita
þurfi Íraksstjórn enn meiri þrýst-
ingi svo hún reyni ekki að beita
blekkingum.
Blix lýsti þessu yfir eftir fund
með Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og
Mohammed El-Baradel, yfirmanni
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar. Fagnaði Powell þessum um-
mælum og sagði, að ættu vopnaeft-
irlitsmennirnir að geta snúið aftur
til Íraks yrðu þeir að hafa fullt
frelsi til að skoða það, sem þeir
vildu. Kvaðst Powell einnig vera
bjartsýnn á, að það tækist að jafna
ágreininginn við Rússa, Frakka og
aðra um nýja ályktun.
„Við erum sammála um, að
markmiðið sé alger afvopnun í
Írak,“ sagði El-Baradel.
Blix hefur með yfirlýsingu sinni
fallist á, að beðið verði með að
senda vopnaeftirlitsmennina til
Íraks, og Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, féllst líka á það á föstudag.
Rússar eru enn andvígir nýrri
ályktun um Írak og Frakkar hafa
ekki horfið frá þeirri skoðun sinni,
að ályktanirnar verði tvær og að-
eins kveðið á um refsiaðgerðir í
þeirri síðari. Hvorttveggja ríkið og
Kína geta beitt neitunarvaldi gegn
ályktun Breta og Bandaríkja-
manna og þar að auki er meirihluti
annarra ríkja í öryggisráðinu á
móti nýrri ályktun. Það þykja því
vaxandi líkur á, að sæst verði á til-
lögu Frakka um tvær ályktanir.
Í nýrri skýrslu CIA, bandarísku
leyniþjónustunnar, segir að síðan
vopnaeftirliti var hætt í Írak 1998
hafi Írakar stóreflt framleiðslu
efnavopna og eldflauga og fjárfest
mikið í lífefnavopnum. Þá hafi þeir
reynt að kaupa ýmsan búnað, sem
þarf til framleiðslu kjarnorku-
vopna, þótt ólíklegt sé að þeir ráði
enn yfir þeim. Það gæti þó gerst á
næstu árum.
Varnarmálaráðherrar Evrópu-
sambandsins hvöttu í gær til, að
fundin yrði lausn á ágreiningnum í
öryggisráðinu, en Javier Solana,
sem fer með utanríkismál í sam-
bandinu, lagði áherslu á, að mark-
mið þeirra væri ekki stjórnarskipti
í landinu.
Stjórnvöld í Írak hafa hafið
mikla áróðursherferð í arabaríkj-
unum og hvatt þau til að sameinast
gegn hugsanlegri árás Bandaríkja-
manna á landið.
Blix styður nýja ályktun
um vopnaeftirlit í Írak
Colin Powell bjartsýnn á að
samkomulag náist í öryggisráðinu
Washington. AP, AFP.
Löglegt að
lesa póst
starfs-
manna?
SÖLUSTJÓRA í fyrirtæki í
Noregi var fyrir skömmu vikið
úr starfi vegna tölvupósts, sem
hann hafði sent frá sér og vinnu-
veitandi hans hafði lesið. Hefur
norskur dómstóll nú kveðið upp
þann úrskurð, að vinnuveitand-
inn hafi verið í fullum rétti.
Sölustjórinn höfðaði málið og
krafðist þess, að brottrekstur-
inn yrði ógiltur þar sem um
hefði verið að ræða einkapóst,
sem vinnuveitandinn hefði lesið
án hans vitundar. Fór hann að
auki fram á 10 milljónir ísl. kr. í
bætur. Kom þetta fram í Aften-
posten í gær.
Rétturinn komst hins vegar
að þeirri niðurstöðu, að vinnu-
veitandinn hefði verið í rétti er
hann las póstinn. Í fyrsta lagi
hefði sölustjórinn verið á upp-
sagnarfresti og auk þess hefði
vinnuveitandinn sannanlega
fengið vísbendingar um, að hann
ætti í viðræðum við annað fyr-
irtæki á sama markaði. Um það
hefði tölvupóstsendingin snúist
og flokkaðist því ekki undir
einkamál.
Morgunblaðið/Golli
Skokkað í rigningunni
Lula lík-
lega næsti
forseti
Sao Paulo. AP, AFP.
EKKI þótti útilokað í gær, að Luiz
Inacio Lula Da Silva, frambjóðandi
vinstrimanna í forsetakosningunum í
Brasilíu, næði kjöri strax í fyrri um-
ferðinni í dag. Samkvæmt skoðana-
könnunum vantaði hann aðeins eitt
prósentustig upp á helming atkvæða.
Nokkur uggur er í fjárfestum
vegna væntanlegs sigurs Lula en al-
menningur í Brasilíu er orðinn
þreyttur á upplausninni í efnahags-
málunum og mikilli kaupmáttarrýrn-
un. Kennir hann ríkisstjórn Fernan-
dos Henriques Cardosos forseta um
ástandið, sem lýsir sér best í því, að
verði ekki gripið til róttækra ráðstaf-
ana mun ríkið neyðast til að hætta að
greiða af erlendum skuldum.
Lula var á árum áður mjög róttæk-
ur en er nú orðinn miklu hófsamari.
Segir hann, að þjóðin verði að standa í
skilum, virða gerða samninga og
sætta sig við mikið aðhald. Það veltur
því mikið á því hverja hann velur sér
til ráðuneytis í efnahagsmálunum.
Fréttaskýrendur segja, að Lula,
verði hann kjörinn, muni hvort eð er
ekki hafa mikið svigrúm eigi hann að
forða landinu frá fjármálalegu hruni.
Komi til annarrar umferðar verður
kosið 27. þessa mánaðar.
Tímamóta vænzt/22
Kosið í Brasilíu