Morgunblaðið - 12.10.2002, Side 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 19
VEITINGAHÚS BÝÐUR UPP Á ÍSLENSKT JÓLAHLAÐBORÐ 2002
Hveragerði
Selfoss
IngólfsfjallINGÓLFSSKÁLI
1
374
Upplýsingar og borðapantanir
Básinn / Ingólfsskáli veitingahús
Efstalandi Ölfusi • Sími: 483-4160 & 483-4666 • Fax: 483-4099 • E-mail: basinn@islandia.is • Heimasíða: www.basinn.is
Í glæsilegum sal Ingólfsskála munu langborðin svigna
undan ljúffengum mat og drykk á komandi aðventu.
Komið og upplifið sanna íslenska jólastemmingu,
aðeins 40 mín. akstur frá Reykjavík
Ljúf lifandi tónlist.
Tökum vel á móti öllum, starfmannafélögum,
klúbbum, hópum og einstaklingum.
„MÉR blöskrar þessi mikli kostnað-
ur sem fólk lendir í við þessar að-
stæður, þegar það fer úr félagslega
kerfinu yfir á frjálsan markað,“ segir
Árni Valdimarsson, fasteignasali á
Selfossi. Fyrirtæki hans annaðist
kaup og sölu fasteigna fyrir konu í
Reykjavík en hún seldi félagslega
eignaríbúð og keypti aðra á frjálsum
markaði. Árni gagnrýnir það að
greiða þurfi upp áhvílandi lán á fé-
lagslegum íbúðum.
„Það má stofna nýjan flokk um fé-
lagslegu lánin og hafa skilmála
þeirra til samræmis við aðra lána-
flokka í kerfinu svo fólk þurfi ekki að
greiða lánin upp við sölu íbúðanna.
Með þessu má forða fólki frá óheyri-
legum kostnaði eins og dæmið um
konuna sannar,“ segir Árni.
„Konan átti 3ja herbergja fé-
lagslega íbúð sem hún seldi fyrir 9
milljónir og á henni hvíldi 7,5 millj-
óna króna lán úr félagslega kerfinu.
Hún keypti íbúð fyrir 9 milljónir í
fjölbýlishúsi úti á landi. Kaupandi fé-
lagslegu íbúðarinnar greiddi fyrir
hana með 7,5 milljónum í húsbréfum.
Þá blasti það við að konan þurfti að
greiða upp félagslega lánið á íbúð-
inni. Hún leitaði til banka síns sem
bauð henni yfirdrátt á reikningi
hennar fram til þess tíma að hún
fengi húsbréfin afhent. Til viðbótar
við yfirdráttarvextina þurfti konan
að greiða bankanum 18 þúsund í um-
sýslugjald. Þegar þetta er afstaðið
og búið að fá kvaðalaust afsal frá
húsnæðisnefnd Reykjavíkur þá
stendur konan með húsbréfin sín í
höndunum og þarf að selja þau hjá
viðskiptavökum. Þá voru afföllin
10% af bréfunum sem voru upp á 7,5
milljónir. Þarna fóru 750 þúsund af
bréfunum en þau notaði hún til að
greiða yfirdráttarlánið, 7,5 milljónir,
sem hún tók í bankanum en vegna
affallanna dugðu bréfin ekki til en
auk þess bættist við 50 þúsund króna
kostnaður vegna yfirdráttarins.
Síðan kom til frekari kostnaður
hjá konunni vegna nýju íbúðarinnar,
lántökugjald sem var um 200 þús-
und, af láni sem hún tók. Svo tók
konan ný húsbréf vegna nýju íbúðar-
innar samtals 7,5 milljónir og þar
fóru einnig 10% í afföll, 750 þúsund
krónur. Auk þess greiddi konan fast-
eignasalanum 200 þúsund.
Með þinglýsingarkostnaði nam
aðgerðarkostnaður konunnar 2,0
milljónum króna við að skipta um
íbúð. Eignamyndun hennar í gömlu
íbúðinni, 2,0 milljónir, fór öll í kostn-
að. Þarna fór sem sagt ávinningur
konunnar í milliliðina,“ sagði Árni og
kvaðst finna til með fólki sem lenti í
þessu en þetta mætti laga.
Hann sagði og að þegar sveitar-
félögum var heimilað að hverfa frá
kauprétti á þessum íbúðum hefði átt
að gera þá breytingu hjá Íbúðalána-
sjóði að hafa þessi lán í sérstökum
flokki með skilmálum til samræmis
við aðra lánaflokka. Hefði það verið
fyrir hendi í tilfelli konunnar segir
Árni að kaupandi félagslegu íbúðar-
innar hefði getað yfirtekið lánið eins
og hvert annað áhvílandi lán á fast-
eignum og konan sloppið við afföllin
á húsbréfunum og kaupandinn við
lántökugjaldið. Árni tók fram að öll
þjónusta starfsfólks Íbúðalánasjóðs
væri til mikillar fyrirmyndar og það
væri ekki til bóta að færa starfsemi
hans inn í bankakerfið.
„Blöskrar óþarfa kostn-
aður sem fólk lendir í“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Árni Valdimarsson, fasteignasali á Selfossi.
Selfoss
Mikill kostnaður við að fara úr félagslega kerfinu
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
GRINDVÍKINGUM fjölgar stöðugt
og sést það vel á því að einsetni skól-
inn var skyndilega orðinn of lítill.
Bæjarstjórn brá á það ráð að kaupa
lausar kennslustofur þar sem bekk-
irnir eru orðnir 22, en skólinn byggð-
ur sem 20 deilda skóli.
Það var mikil tilhlökkun hjá þeim
nemendum sem fá nýju stofurnar
enda að koma úr bráðabirgðahúsnæði
sem sem hentar ekki til kennslu.
Gunnlaugur Dan Ólafsson, skólastjóri
Grunnskóla Grindavíkur, var ekki síð-
ur ánægður með nýju skólastofurnar.
„Þetta var orðið mjög brýnt að fá
viðbótarhúsrými. Ástæðan fyrst og
fremst veruleg fjölgun í skólanum, á
tveimur árum úr 20 bekkjum í 22.
Þessi mál eru leyst á þennan hátt
núna en í framtíðinni er gert ráð fyrir
því að það rísi önnur skólabygging
annars staðar í bænum. Þessi viðbót
er því hugsuð til að brúa þetta bil. Þá
hafa verið verulegar framkvæmdir
við skólalóðina þar sem leiktækjum
hefur verið fjölgað til muna.“
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Nýjum skólastofum komið fyrir við Grunnskóla Grindavíkur.
Lausar stofur settar upp við skólann
Bætt úr brýnum
húsnæðisvanda
Grindavík
ÚTBOÐ á fyrsta áfanga tvöföldunar
Reykjanesbrautarinnar verður aug-
lýst á mánudag. Tekinn verður fyrir
8,6 km kafli, frá Hvassahrauni og
upp á Strandarheiði. Vegagerðin
hefur unnið að undirbúningi breikk-
unar brautarinnar frá sveitarfélaga-
mörkum Vatnsleysustrandarhreps
og Hafnarfjarðar og til Njarðvíkur.
Fyrsti áfangi þessa verks verður
boðinn út á mánudag. Þar er um að
ræða 8,6 km kafla frá bæjarmörkum
Hafnarfjarðar í Hvassahrauni og
upp á Strandarheiði. Á þessari leið
liggur vegurinn m.a.um Kúagerði.
Byggð verða tvenn mislæg vegamót,
við Vatnsleysustrandarveg og
Hvassahraun. Vegagerðin býður
tvær útfærslur á slitlagi á Reykja-
nesbrautina, malbik eða steinsteypu.
Verktakinn á að skila verkinu full-
kláruðu 1. nóvember 2004.
Fyrsti áfangi tvö-
földunar boðinn út
Reykjanesbraut