Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 38

Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 38
UMRÆÐAN 38 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EKKI er langt síðan kjósendur í Reykjavík gengu til kosninga og kusu fulltrúa sína í borgarstjórn. Í kosningabaráttunni voru ýmis mál rædd og frambjóðendur gáfu fyrir- heit um hvernig staðið yrði að mál- um. Nú nákvæmlega 20 vikum eftir að Reykvíkingar kváðu upp sinn dóm er athyglisvert að skoða stöð- una og bera saman orð og efndir þeirra sem hlutu það traust að fara áfram með forystu í borginni. Börnin í borginni Skólamál voru stórmál í kosninga- baráttunni og bæði framboðin sögðu það algjört forgangsmál að tryggja börnunum í borginni bestu aðstæður til náms. Það er því í litlu samræmi við loforðin að við upphaf skólaárs í haust gátu margir reykvískir grunn- skólar ekki hafið störf vegna vand- ræða með skólahúsnæði, aðbúnað og fleira. Verst var ástandið í Klébergs- skóla þar sem skólahald var í algjörri upplausn. Mikil umræða hefur verið í fræðsluráði vegna þessarar stöðu og hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins, kennara og foreldra ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna hennar. Fulltrúar R-listans hafa m.a. svarað því til að það hljóti að „verða mark- mið að skólar verði tilbúnir og hæfir til kennslu þegar starf hefst að hausti.“ Slíkur „metnaður“ getur ekki talist í samræmi við fyrri yf- irlýsingar R-listans, enda hljóta nemendur og foreldrar að geta gert þá lágmarkskröfu til borgaryfir- valda að skólastarf hefjist á tilsettum tíma. Samráð um skipulagsmál Fyrir kosningar sögðu fulltrúar R-listans ítrekað að borgarbúar þyrftu ekkert að óttast í skipulags- málum. Hvorki á Geldinganesi, Landssímalóðinni í Grafarvogi né á landfyllingum við Eiðsgranda yrði hafist handa við framkvæmdir án samráðs við borgarbúa. „Þannig vill Reykjavíkurlistinn vinna“ sagði m.a. í kosningaplaggi hans. Á þeim 20 vik- um sem liðnar eru frá kosningum hefur R-listinn fengið óvenju mörg tækifæri til að sýna vilja sinn í verki. Þau tækifæri hefur hann hins vegar jafn oft látið ónýtt. Fyrirhugaðar framkvæmdir í Norðlingaholti, á Landssímalóðinni, í Suðurhlíðum og Stakkahlíð eru allt dæmi sem færa borgarbúum því miður heim sanninn um að lítið hefur verið gert með fyrr- greind fyrirheit. Í öllum þessum málum hefur meirihlutinn kosið að ganga gegn vilja íbúanna og hefja verkin án raunverulegs samráðs við þá. Þetta horfir þó vonandi til betri vegar, þar sem nú í vikunni var sam- þykkt í skipulags- og byggingar- nefnd tillaga okkar sjálfstæðis- manna um að skipa starfshóp til að gera tillögur um verklag við kynn- ingu á aðal- og deiliskipulagsáætlun- um og breytingum á þeim. Hagur eldri borgara Í kosningabaráttunni voru allir sammála um nauðsyn þess að bæta kjör eldri borgara og allir hétu því þá að ganga fljótt og örugglega til þeirra verka við upphaf nýs kjör- tímabils. Í samræmi við það fluttu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins tillögu á fyrsta fundi borgarstjórnar nú í haust um að lækka fasteigna- skatta á eldri borgara og öryrkja. Samþykkt þeirrar tillögu hefði ekki kostað borgarsjóð mikið en hún hefði haft mikil áhrif á hag þessa hóps. Þessa tillögu felldi R-listinn og sýndi þannig vilja sinn í verki gagnvart eldri borgurum og öryrkjum. Reyndar þarf það ekki að koma á óvart að fulltrúar R-listans greiði ekki atkvæði með skattalækkunum. Meirihlutinn í Reykjavík er þekktur fyrir flest annað en lækkun skatta, þótt einhverjir hafi sjálfsagt vonað að fulltrúar hans breyttu út af van- anum og styddu skattalækkun í þágu þess hóps sem allir viðurkenna að þarf mest á því að halda. Áhætturekstur Reykjavíkurborgar Málefni Línu.Nets voru mikið til umræðu í kosningabaráttunni. Fulltrúar R-listans héldu því þá fram að gagnrýni Sjálfstæðisflokks- ins á stofnun og rekstur fyrirtæk- isins ætti ekki við nokkur rök að styðjast. Atburðir síðustu daga sýna annað og nú er öllum ljóst að sú áhætta sem meirihlutinn tók, fyrir hönd skattgreiðenda í Reykjavík, var með öllu óeðlileg og í raun óaf- sakanleg. Ávinningur borgarbúa er enginn, enda hefur þessi ævintýra- mennska stjórnarformanns Orku- veitunnar og Línu.Nets, Alfreðs Þorsteinssonar, verið afar kostnað- arsöm fyrir Reykvíkinga og því síst þjónað þeirra hagsmunum. Reykvíkingar eiga betra skilið Þetta stutta yfirlit um aðgerðir R- listans frá því kosið var í Reykjavík sýna að lítið samhengi er á milli orða þeirra og efnda. Aðalatriði málsins er þó ekki hvort fulltrúar R-listans eru traustsins verðir heldur miklu frekar það að Reykvíkingar eiga betra skilið og Reykjavík á að vera borg þar sem íbúar geta treyst því að á málum sé betur haldið en gert hef- ur verið undanfarnar 20 vikur. 20 vikum síðar Eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Aðgerðir R- listans frá því kosið var í Reykjavík sýna að lítið samhengi er á milli orða þeirra og efnda.“ ÞESSI furðulega spurning heyr- ist oft þegar er verið að leggja á ráðin um verklegar framkvæmdir. Það er eins og fuglar séu aðalsstétt hérna á landinu. Umræðan um nýt- ingu landsins hefur sem sagt oft beinst annað en ætla mátti, en hér verður stiklað á því sem telja má að skipti mestu máli. A. Íbúar landsins eru nú tæp þrjú hundruð þúsund. Eftir fjörutíu ár verða þeir sex hundruð þúsund og milljón eftir sjö- tíu ár. B. Nú stendur yfir hlýviðrisskeið og allt leikur í lyndi. En ef við rifj- um upp, að hér um var næstsíðustu aldamót harðindatíð sem náði yfir áratugi. Svo hlýnaði aftur en fyrir um fjórum áratugum kólnaði aftur svo nærri lá við að lofthitinn lækk- aði í það sem á kuldatímanum var. Þá stóð ekki á því að hafísinn kæmi að landinu og svo langt náði hann að sjá mátti hann jafnvel í fjöru syðra við Breiðamerkurlónið en jökulísinn handan við. C. Ef við minnumst á veiðar. Áð- ur fyrr voru bestu síldveiðiárin þeg- ar síldargöngurnar komu að landinu norðvestanverðu. Síðar komu þær úr norðaustri og stundum var talað um svartan sjó af síld. Og þá var kátt í höllinni. En svo komu önnur ár þegar heita mátti að hún léti ekki sjá sig og þá voru mikil vandræði á ferðum. Um þorskveiðarnar má segja það, að veiðarnar núna síðustu árin eru að magni til aðeins helm- ingur þess sem mest var fyrir sex áratugum. Það sem hefur bjargað útveginum er að veiðin hefur beinst að öðrum sjávartegundum, stærri og afkastameiri skip hafa verið tek- in í notkun sem geta sótt á fjarlæg- ari mið en áður. Allt þetta eru dæmi um hversu við erum háðir þeirri duttlungafullu náttúru sem ríkir í hafinu umhverfis okkur. D. Okkur hefur verið kennt að heitur Golfstraumurinn eigi upptök sín við Mið-Ameríku og síðan held- ur hann rennsli sínu allt norður í Ís- hafið. Lítil álma hans kemur við hjá okkur eins og kunnugt er og gerir landið byggilegra. Reyndar er þetta nokkur einföldun því sá hafsjór á rætur sínar að rekja allt til vest- urstranda Afríku, ef ekki mikið lengra. Þetta er afar löng leið sem sjórinn flýtur og getur margt skeð á þeirri leið sem getur breytt flæði þeirrar lænu sem berst til landsins. Má þar nefna til dæmis að veðr- áttan getur haft sín áhrif, búskapur sólarinnar er ekki allatíð jafn (óregluleg sólgos), breyting á legu segulpólsins o.s.frv. E. Ef við hugsum um til dæmis fjörutíu ár fram í tímann, hvaða at- vinnugreinar geta framfleytt okkur í landinu aðrar en sjávarútvegur og landbúnaður sem eru báðar háðar veðráttunni eins og framan greinir. Þá er fyrst að telja iðnað, hugsmíð- ar og ferðamennsku. Um hugsmíð- arnar má segja að ekki er hægt að spá fyrir hvernig þær dafna, en enn sem komið eru tekjurnar fyrir land- ið varla meiri en tilkostnaðurinn. En þá má það heldur ekki gleymast að hér eftir verður mannvitið ekki látið í askana nema með orku. Nú er talið að ferðamennskan muni þre- faldast á hverjum næstu tveim ára- tugum. F. Þá er iðnaðurinn eftir og hann þarfnast mikillar og ódýrrar orku. Til að gera þetta mál ekki of langt er rétt að snúa sér beint að því máli sem mestar umræður hefur vakið, sem er virkjun við Kárahnjúka. Þar eru nú tveir valkostir taldir vera, annarsvegar að hrófla við sem minnstu eða þá að skapa gríðarlegt orkuver til hagsbóta fyrir fjórðung- inn. Eins og kunnugt er, er landið norðan Vatnajökuls mjög gróður- snautt og víða eru kolsvört hraun þakin að nokkru með foksandi. Hafa ofurjepparnir leikið sér um svæðið og sporað það eins og púströra- hraunið er gott dæmi um. Með auknu álagi á það sem vænta má af umferð á ókomnum árum verður að vernda svæðið sem best. Helst að leggja malbikaða vegi um það og banna alla umferð utan vega, því villugjarnt er þarna á þessu stóra landsvæði. Til mótvægis hefur verið slegið fram að gera þjóðgarð norðan jökulsins, en ekki er minnst ná- kvæmlega á hvað vernda ber. Ekki hafa heldur verið lagðar fram nein- ar ákveðnar tillögur um stærð hans en hún getur numið allt frá nokkr- um ferkílómetrum upp í tíunda hluta af flatarmáli landsins. G. Verði af virkjun við Kára- hnjúka mun þar rísa hrikalegt mannvirki sem mun vekja athygli þeirra sem ferðast um landið. Frá stíflunni verður lón sem mun ná síð- ari hluta sumars alla leið inn að Vatnajökli og verður þá hægt að sigla á hraðbátum eftir því allt inn að jöklinum. Við stífluna verða mannabústaðir sem geta komið að notum við varðgæslu svæðisins og sem afdrep fyrir björgunarsveitir til að leita að kokhraustum ferðagörp- um í vanda. Ef við reynum að skyggnast inn í framtíðina, þá verð- ur áreiðanlega gerður malbikaður þjóðvegur yfir Sprengisand og þar á eftir vegur þvert á hann frá stíflu- mannvirkinu. Við það skapast margar nýjar og spennandi leiðir fyrir ferðafólk. H. Þegar horft fram á við varð- andi fjölgun landsmanna og ferða- manna má með góðum rökum halda því fram, að skársta ráðið til að hafa stjórn á svæðinu norðan Vatnajök- uls og vernda það, sé einmitt það að reisa orkuverið við Kárahnjúka. I. Því má ekki heldur gleyma, að til þess að til verði störf fyrir allan þann fjölda sem nefndur hefir verið hér að framan er, að við nýtum þær auðlindir sem til boða eru. Og þar er orkuöflunin vænlegasta leiðin, en endurnýjanleg og ódýr orka er und- irstaða líflegs mannlífs í framtíðinni. Hvað segir fuglinn? Eftir Ólaf Pálsson „Endurnýj- anleg og ódýr orka er undirstaða líflegs mannlífs í framtíðinni.“ Höfundur er verkfræðingur EKKI hef ég hugmynd um og langar í raun ekki til að vita, hvort Guðmundur Oddur botnar nokkuð í myndlist. Að fornu og nýju á öll myndlist sér sameiginlegan kjarna, stilla mætti hlið við hlið Gveníku Picass- ós, fleka eftir Karl Kvaran, Upp- gjöf Breda eftir Velasgues eða bara gömlu íslensku brekáni og sameiginlegur kjarni yrði vel sýni- legur: Lína – litur – form – mynd- bygging. Myndbrotastefnur eins og sú, sem nú veður uppi eiga sér ekki slíkan kjarna. Þær koma og fara og skilja eftir sig sviðna jörð, sem grær raunar aftur. Ekki nenni ég að deila við mann um menn sem hafa verið teknir í guða tölu í trú- félögum konseptista, þá Dieter Roth og Herman Nitsch. Hvers vegna opinberaði Guð- mundur ekki snilli Hermans þessa, sem í lok einhvers, sem var kallað konsert og átti sér stað í Hollandi og sem grand finale þeytti hann mannaskít yfir þingheim, sem mátti vart vatni halda yfir þvílíkri snilld. Hvað um önnina í nýlistadeild þegar hann hélt nemendum á fyll- iríi allt til loka og fór við svo búið með allan skarann í konsert- og konseptferðalag til meginlandsins, þar puðruðu nemendur í lúðra sem þeir höfðu aldrei séð og vissu ekki hvernig áttu að snúa, sem sé kons- ert. Markmið Hermans var raunar að sýna, eins og í sirkus, ósvikna villimenn norðan úr Dumbshafi og var hinn ánægðasti. Um síðir rann af öllum nema Hermani og nem- endur héldu heim hljóðari en þeir fóru. Herman þessi var vellauðug- ur. Aldrei þessu vant var ekki minnst á listasigur Íslendinga er- lendis. Þetta varð eitthvert best varðveitta leyndarmál íslenskrar listasögu. En hvað varð um Myndlista- og handíðaskóla Íslands? Látið hefur verið í veðri vaka, að hann hafi ver- ið innlimaður í Listaháskóla Ís- lands en þar finnst ekki af honum tangur né tetur. Hátt á fimmta áratug var þessi skóli þróaður af þrautreyndum sjónlistamönnum, kennurum og skólastjórum, sem flestir vorur aktívir í myndlist. Guðmundur Oddur er nógu einfald- ur til þess að halda að hann sé skólapólitískur taktiker. Til þess að gera hlut okkar Einars og Braga sem verstan, dettur honum í hug það snilldarbragð að flaðra eins og hundur upp um Hörð Ágústsson og Björn Th. Jafnvel í leiðinni að turna þeim til réttrar trúar. Svo bætir hann í slepjuna með bulli um Hörð sem gæti verið upphafið að þriðja flokks minningargrein í Mogganum, mann sem er lasinn, en mjög lifandi. Svona vin á Hörð- ur ekki skilið. Engan mann veit ég kröfuharðari, fyrst og fremst til sjálfs sín, síðan til nemenda og starfsliðs en Hörð. Vandaðir menn og sannsögulir, eru oft trúgjarnir. Mér eru ekki alveg ljós samskipti Harðar við nýlistargaukana, var afi kannski bara doblaður upp úr skónum? Ég læt mér svo sem í léttu rúmi liggja hvort Guðmundur Oddur veit eða skilur nokkurn skapaðan hlut, en þegar slíkur kjaftaskur froðufellir niður á síður Morgunblaðsins, er kominn tími til að kippa í spotta. Hann ætti þó að fá prik fyrir að geta læðupokast ískóla, ósýnilegur eins og aftur- ganga og næla sér síðan í prófess- orsnafnbót út á – ja, út á hvað? En víkjum aftur að MHÍ. Hann var tekinn af lífi og urðaður eins og af- sláttarhross, enginn hefur lýst víg- inu á hendur sér, en á dysinni reis Listaháskóli Íslands. Amen. Sperð- lingar söfnuðu liði og komu sér upp sjóræningjaskútu „fúllriggara“. Í fyllingu tímans var kúrsinn tekinn á Kirkjusand, en þá kom babb í bátinn, léttmatrósar sögðu við vakthafandi offisér Guðmund Odd, það hefur gleymst að ráða kaftein á skútuna. Ekkert mál, sagði G.O. og spýtti mórauðu, við fáum okkur bara galeonsfigúru framan á dall- inn og gerum figúruna að rektor, rektor maris! ég konseptoffisér og verðandi aðmíráll stýri ykkur niður á hafnarbakkann, rektor getur komið í sjónvarpið öðru hverju ef hann er góður. Nú skal flagga fyrir mér, konsepti, performansa, mini- mal, Roni Horn, Maximal og fullum fjárhirslum. Ég lifi, húrra! Ef maður safnar saman rusli og segir: Þetta er listaverk, hefur hann rétt fyrir sér. Það er listaverk í hans augum og kannski einhverra aðdáenda, en í hvaða átt getur rusl sem er list eða list sem er rusl þróast? Svarið skyldi þó aldrei vera – stærri ruslahaugur! Skáldið Maó mun hafa sagt: Leyfum þúsund blómum að lifa, eða eitthvað í þá veru. Kommúnistinn Maó sagði: Burt með þetta blómarusl af mínu borði, ekkert blóm skal lifa nema það rauða – það blóðrauða. Það er gott að búa á Íslandi, það er ekki eins gott að búa í menning- arkotríkinu Íslandi, það vill verða eins og hjá Maó þótt kotabúskapur sé. Það er eitthvað eitt, ein alls- herjar hugmynd, korktappi sem flýtur þangað til honum er skolað burt og nýr korktappi keyptur. Nú er blómið hans Maós, eða kopía, í kristalsvasa innst í helgidómi Listaháskólans. Það er ekki rautt, það er nábleikt. Enginn hefur lýst víginu á hendur sér Eftir Kjartan Guðjónsson „Það er gott að búa á Íslandi, það er ekki eins gott að búa í menningarkotrík- inu Íslandi … “ Höfundur er listmálari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.