Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 44
MINNINGAR 44 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ GuðmundurÁrnason fæddist í Teigi í Grindavík 16. janúar 1920. Hann lést á heimili sínu á Selfossi 1. október síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Árni Guðmundsson út- vegsbóndi í Teigi og Ingveldur Þorkels- dóttir frá Lambhaga í Garðahreppi. Systk- ini Guðmundar voru í aldursröð: Margrét, Vilborg, Dagmar, næstur var Guðmund- ur, þá Laufey, Þorkell, Jón, Ingi Ármann, Unnur, Vilberg Magnús og Ármann. Tvö systkinanna eru á lífi, þau Þorkell og Unnur. Guðmundur kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni, Auði Thor- oddsen, 24. ágúst 1946, þau eign- uðst tvo syni, þeir eru: 1) Árni, f. 1946, kona Sigurbjörg Hermunds- dóttir. Börn þeirra: Sigríður, f. 1968, maður Gísli Felix Bjarnason, börn þeirra: Árni Felix, f. 1993, og Sig- urbjörg Agla f. 1998; og Guðmundur, f. 1971, kona Ragna Gunnarsdóttir, synir þeirra: Árni, f. 1996, og Gunnar Birgir, f. 1999. 2) Ólafur, f. 1952, d. 1993, kona Henný Matthíasdótt- ir. Börn þeirra: Matt- hías, f. 1977, Auður, f. 1979, maður Jón Halldór Harðarson, og Helgi, f. 1984. Guðmundur fluttist á Selfoss 1943 og var bílstjóri hjá Kaup- félagi Árnesinga til ársins 1965, þá varð hann verkstjóri yfir flutn- ingadeild KÁ og vöruskemmunni. Hann var þar til starfsloka 1995. Útför Guðmundar verður gerð frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Bognar aldrei, brotnar í bylnum stóra seinast. (Steph. G. Steph.) Þessi orð skáldsins voru það fyrsta sem kom í huga minn eftir að Auður systir mín sagði mér lát manns síns. Þótt Guðmundur væri búinn að ganga í gegnum mikil og alvarleg veikindi og orðinn 82 ára gamall kom andlát hans mér mjög á óvart. Ég og Halldóra dóttir mín vorum nýbúnar að heimsækja þau hjón í Ártún 4, en þar voru þau búin að búa í eigin húsi yfir hálfa öld. Eins og venjulega var gott að koma til þeirra, en þar réð gestrisnin ávallt ríkjum ásamt elsku- legu viðmóti þeirra beggja, en það var ríkur þáttur í fari þeirra alla tíð. Guðmundur var glaður og reifur eins og venjulega og við kvöddumst með kærleikum og grunlaus um að þetta væri okkar síðasti fundur. Guðmundur var búinn að ganga í gegnum miklar sjúkdómsþrautir en fyrir um átta árum veiktist hann af æðaþrengslum í fótum og eftir miklar þrengingar og sjúkrahúsvistir missti hann báða fætur fyrir neðan hné og gekk eftir það á gervifótum og við tvær hækjur. Enginn sem hitti Guð- mund hefði getað látið sér til hugar koma að þar færi svo fatlaður maður, svo mikil var andleg og líkamleg reisn hans. Hann kvartaði aldrei og hélt skapstyrk sínum til hinstu stund- ar. Bíl sínum ók hann daglega og tók þátt í starfi aldraðra og spilaði minnst einu sinni í viku. Stundum vann hann líka á söðlaverkstæði son- arsonar síns og nafna, Guðmundar Árnasonar, fléttaði þar tauma og sinnti fleiru er til féll. Guðmundur var Grindvíkingur að ætt og uppruna, sonur Árna Guð- mundssonar, útvegsbónda í Teigi í Grindavík, og Ingveldar Þorkelsdótt- ur konu hans. Þar lifði hann sín bernsku- og ung- dómsár en kom að Selfossi um tví- tugsaldur og hóf störf við Kaupfélag Árnesinga, í fyrstu sem bifreiðastjóri en síðar tók hann við lagerstjórn í vöruskemmu kaupfélagsins og starf- aði þar fram yfir sjötugt. Mér er vel kunnugt um að hann var vel virtur yf- irmaður þar og raunar í hverju starfi sem hann tók sér fyrir hendur. Árið 1946 kvæntist hann systur minni Auði og stóð heimili þeirra, eins og áður sagði, í Ártúni 4 meðan hann lifði. Sjálfur byggði hann hús þeirra af miklum dugnaði þótt hann væri í fullu starfi við kaupfélagið. Húsbyggingin var helgar- og kvöldvinna meðan á henni stóð. Þeim Auði og Guðmundi varð tveggja sona auðið; Árna og Ólafs. Ólafur lést um aldur fram aðeins 42 ára að aldri og var það mikið högg fyrir foreldra hans. Stórfjölskyldan er orðin mannmörg en allir þessir af- komendur eru manndómsfólk og til mikillar gleði þeim Auði og Guð- mundi. Ég veit að harmur er kveðinn að öllu þessu fólki við andlát maka, föður, afa og langafa og ekki síst að systur minni, en hún er ekki kona þeirrar gerðar að bera tilfinningar sínar á torg en hefur staðið að baki manni sínum í veikindum hans eins og bjargfastur klettur, líkt og raunar í allri þeirra sambúð. Persónulega kveð ég Guðmund mág minn með þakklæti fyrir yfir hálfrar aldar samleið og með söknuði, það munu og fleiri gera. Hjá honum fann maður hið sanna Íslendingseðli, hann var þrautseigur á raunastund en glaður á góðvinafundum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Magdalena Thoroddsen. Elsku afi minn. Mig langar til að kveðja þig og þakka þér fyrir allt. Það er ómetan- legur auður að hafa fengið að alast upp með ykkur ömmu, og dýrmætt veganesti út í lífið fyrir börnin mín að hafa átt ykkur að. Alltaf hægt að leita til ykkar með allt, alveg sama hvað það var, barnapössun, góð ráð, bíll að láni eða bara stund til að spjalla. Þú varst ótrúlegur maður, það vita þeir sem kynntust þér og sannaðist það best þegar þú misstir báða fæt- urna við hné með árs millibili á ár- unum 1999 og 2000. En það var ekki þinn stíll að gefast upp, enda komst þú á fætur og fórst allra þinna ferða á gerfifótunum með hækjurnar og keyrðir bílinn eins og ekkert væri. Þetta gerðir þú með ákveðni, léttu lundinni og lífskraftinum. Þú varst alltaf svo fínn og sætur með bindi, ný- rakaður og með góða lykt. Það er alltaf erfitt og sárt að kveðja þá sem manni þykir eins vænt um og mér þótti um þig, en ég á 34 ára sjóð af minningum til að leita í og miðla til barnanna minna í framtíð- inni. Elsku amma mín. Við Gísli Felix, Árni Felix og Sigurbjörg Agla biðj- um guð að styrkja þig og styðja, bæði núna og um alla framtíð, því að þinn missir er mikill. Hafðu þökk fyrir allt og allt elsku afi, þín Sigríður. Það heyrðist á hækjunum hvort eitthvað var framundan eða ekki. Ef þú vissir að eitthvað var að gera komstu inn á fullri ferð. Maður átti að koma með stólinn eins og skot, verk- færin í fangið, þú máttir engan tíma missa. Því það sem er hægt að gera í dag á að gera í dag og það strax. Frá því að þú hættir að vinna í pakkhús- inu hefurðu komið nánast daglega og stundum oft á dag til að hjálpa til og líta eftir því sem ég hef verið að gera. Fyrst við húsbygginguna og síðan á verkstæðið. Allt sem þú ert búinn að hjálpa mér er algjörlega ómetanlegt. Mikilvægast hefur samt verið fyrir mig og alla að fá að kynnast þér, dugnaðurinn, krafturinn og lífsviljinn var alveg ótrúlegur enda hafði fólk gaman af að umgangast þig. Þó svo áföll dyndu yfir var viljinn svo sterk- ur að ekkert fékk þig bugað. Búinn að missa báða fætur og samt keyrðir þú um allt, sem kennir okkur að viljinn er oft allt sem þarf. En elsku afi, ég á óteljandi minn- ingar um þig og það er dýrmætt. Þú skilur eftir stórt skarð í okkar fjöl- skyldu. Takk fyrir allt og hafðu það gott. Elsku amma og aðrir sem sakna, minning hans lifir. Guðmundur Árnason. Elsku afi ég kveð þig með miklum söknuði, þú og amma hafið verið mér stoð og stytta alla tíð, ekki síst eftir að pabbi dó. Það var mikill missir fyr- ir þig en ég veit að núna eruð þið sam- einaðir á ný eftir níu ára aðskilnað. Ávallt þegar ég kom austur á Sel- foss tókuð þið amma á móti mér með mikilli hlýju og ástúð, þangað var alltaf svo gott að koma. Það eru mikil forréttindi að hafa átt þig sem afa, þú hafðir alltaf svo mikinn skilning á hlutunum og það var svo gott að tala við þig. Mér leið alltaf vel þegar ég keyrði af stað heim suður eftir heim- sókn hjá ykkur ömmu. Það á eftir að verða tómlegt að koma í Ártúnið þar sem þú ert ekki lengur þar til að taka á móti mér með útbreiddan faðminn. En allar góðu minningarnar um þig mun ég geyma í hjarta mínu. Takk fyrir samfylgdina afi minn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín sonardóttir Auður. Undanfarandi ár hafa nokkrir eldri borgarar á Selfossi spilað lom- ber alla mánudaga og fimmtudaga árið um kring, svo var einnig mánu- daginn þrítugasta september sl. Við sátum kringum borðið, tókum saman dósir með spilapeningum, þá varð fé- laga okkar Guðmundi Árnasyni að orði að ekki væri sjáanlegur munur á dósunum, en bætir svo við „Það er allt jafnt þegar upp er staðið.“ Eng- um okkar datt þá í hug að þetta væri í síðasta sinn sem við tækjum saman spilin, en svo varð þó, rúmum sólar- hring síðar lést hann á heimili sínu. Þá fyrst kom mér þessi setning í hug. Tap var aldrei en allir græddu á ánægjulegum samverustundum sem voru jafnan aðalatriðið. Við dáðumst oft að andlegu þreki Guðmundar eftir að hann fatlaðist, það var mikið frávik frá fyrri tíð þeg- ar hann hljóp um öllum fótfrárri. Ég hafði einhverju sinni orð á því við hann hversu hress hann væri, hann svaraði mér eitthvað á þá leið að nóg væri lagt á konuna sína þótt hann væri ekki sífellt að barma sér. Ég held að þessi setning lýsi Guðmundi betur en mörg orð, ég hef þar engu við að bæta. Nú kveðjum við góðan félaga með þökk og virðingu, eftir tap og gróða lífsins. Þetta er leiðin okkar allra í lokin, einn í dag, annar á morgun, undan því kemst enginn. Moldin býður alla velkomna að síðustu. Spilafélagar Guðmundar senda ástvinum hans samúðarkveðjur. Sigursteinn Ólafsson. GUÐMUNDUR ÁRNASON Árið 1961 flutti ég og fjölskylda mín að Laugarbökkum í Ölfusi. Á fyrsta ári búsetu minnar hóf- ust kynni okkar Guðmundar Árnasonar. Það sem tengdi okkur saman var fyrst og fremst áhugi á sauðfé. Í öll þessi ár hefur aldrei fallið skuggi á vináttu mína við þau hjón Guðmund og Auði. Vil ég nú þakka það um leið og ég óska vini mínum fararheilla og góðrar heimkomu þar sem við næst höf- um dvöl. Ekki yrði ég undrandi þó hann verði mættur við mína heim- komu og við tækjum aftur upp spjall um okkar mörgu sameig- inlegu áhugamál. Hvíl þú friði kæri vinur. Guðmundur Þorvaldsson. HINSTA KVEÐJA Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, frá Tungugröf í Strandasýslu, til heimilis á Sandbakkavegi 2, Höfn, lést þriðjudaginn 1. október. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, A. MARGRÉT RAGNARSDÓTTIR, andaðist á líknardeild Landspítalans fimmtu- daginn 10. október. Fyrir hönd aðstandenda, Eðvarð Sigurjónsson, Ragnar Eðvarðsson, Sigurjón Eðvarðsson, Guðrún Stefánsdóttir, Ólöf Eðvarðsdóttir, Sigurður Svansson, Rannver Eðvarðsson, Gunnhildur Gunnarsdóttir. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar tengdaföður, afa og langafa, JÓNS GÍSLASONAR bónda á Innri-Skeljabrekku, Borgarfirði. Gísli Jónsson, Oddbjörg Leifsdóttir, Pétur Jónsson, Svava Kristjánsdóttir, Þorvaldur Jónsson, Dagný Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, RAGNAR SVERRIR RAGNARS, Hólabergi 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 10. október. Margrét M. Ragnars, Anna Þóra Ragnars, Ásgrímur Ragnars, Árni Magnús Ragnars, Einar Franz Ragnars, Sigríður Huld Ragnars, Friðþjófur Ottó Ragnars. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og sonur, ÞORLEIFUR BJÖRNSSON yfirflugumferðarstjóri, Granaskjóli 66, Reykjavík, varð bráðkvaddur í Skotlandi mánudaginn 7. október. Aðalbjörg Hlín Brynjólfsdóttir, Ragna Hlín Þorleifsdóttir, Guðmundur Haukur Jörgensen, Kári Björn Þorleifsson, Ragna Þorleifsdóttir, Björn Hermannsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.