Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 53
MARGRÉT Jónsdóttir, lektor í
spænsku við Háskóla Íslands, heldur
fyrirlestur í Odda 101, mánudaginn
14. október kl. 12.
Efni fyrirlestrarins er: Miðalda-
hetjan „El Cid“ í hugmyndafræði
fasisma á Spáni. Í fyrirlestrinum
fjallar Margrét um efni doktorsrit-
gerðar sinnar: Úr vandræðum okk-
ar, ó Cid, muntu leiða okkur! Þróun
hugmynda um el Cid frá 1779 fram á
tíma frankisma.
Miðaldahetjan Cid átti stóran þátt
í að móta nýja þjóðarímynd Spán-
verja eftir að þeir misstu síðustu ný-
lendurnar 1898, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ræðir hug-
myndafræði
fasisma á Spáni
ÞRIÐJUDAGINN 15. október flyt-
ur Snjólfur Ólafsson, prófessor í Há-
skóla Íslands, erindi um það sem á
ensku kallast Balanced Scorecard en
stefnumiðað á árangursmat á ís-
lensku. Fundurinn verður í stofu 106
í Odda við Sturlugötu og stendur frá
kl. 16.15 til kl. 17.45.
„Vorið 2002 varð til í MBA-námi
við Háskóla Íslands námskeiðið
„Mat á árangri“ sem snerist í frum-
hönnun fyrst og fremst um aðgerð-
arrannsónir en fullhannað fjallaði
það fyrst og fremst um stefnumiðað
árangursmat. Meginástæðan var
mikill áhugi á efninu hjá atvinnulíf-
inu. Helmingur fyrirtækja á Fortune
1000-listanum hefur innleitt stefnu-
miðað árangursmat og fjölmörg ís-
lensk fyrirtæki eru komin af stað í
innleiðingu eða eru að velta innleið-
ingu fyrir sér,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Í erindinu verður gerð grein fyrir
stefnumiðuðu árangursmati og það
skoðað í ljósi aðgerðarrannsókna.
Fjallað verður um þróun aðferðar-
innar svo og spáð í framtíðina. Allir
eru velkomnir.
Erindi um
árangursmat
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá Hannesi S. Péturssyni flug-
stjóra og Guðlaugi Birni Ásgeirssyni
flugmanni, báðum hjá Íslandsflugi.
„Að gefnu tilefni viljum við und-
irritaðir, Hannes S. Pétursson og
Guðlaugur Birnir Ásgeirsson, flug-
menn Dornier-flugvélar Íslands-
flugs hf., flugs ICB-753, hinn 7.8.
2000, koma eftirfarandi á framfæri:
Hvorugur okkar hefur nokkurn
tíma lýst því yfir, hvorki formlega
né óformlega, að eftir lendingu
ICB-753 hafi flugvélinni verið snúið
við á flugbrautinni og ekið eftir
henni til baka. Þessu er ranglega
haldið fram í skýrslu breskra rann-
sóknarmanna vegna flugslyssins í
Skerjafirði 7. ágúst árið 2000. Þessir
bresku rannsóknarmenn hafa aldrei
talað við okkur flugmenn ICB-753
og þessa tilbúnu sögu hafa þeir því
frá einhverjum þriðja aðila.
Vegna umræðna um þessa atburði
viljum við taka fram að aðflug, lend-
ing og lendingarbrun ICB-753 þetta
kvöld voru með fullkomlega eðlileg-
um hætti. Eftir að hægt hafði verið
nægilega á flugvélinni var beygt út
af flugbrautinni til vinstri til móts
við gamla flugturninn að beiðni flug-
umferðarstjóra. Þessu eru vitni til
staðfestingar. Tíminn sem fór í að
rýma brautina eftir lendingu var því
alls ekki óeðlilega langur nema síður
sé.
Að halda því fram í skýrslunni að
ICB-753 hafi ekki rýmt flugbrautina
til vinstri strax eftir lendingarbrun-
ið heldur snúið við á brautinni og ek-
ið eftir henni til baka eru alvarlegar
ásakanir, hrein ósannindi og í raun
atvinnurógur. Að halda því þar að
auki fram að undirritaður flugstjóri
hafi sjálfur staðhæft þetta er algjör
uppspuni og ekki síður alvarlegt.
Það er furðulegt að mennirnir skuli
segja þetta í skýrslu sinni því eins
og áður sagði höfðu þeir aldrei sam-
band við okkur við skýrslugerðina.
Í skýrslu Bretanna eru nefndar
tímasetningar varðandi aðflug og
lendingu ICB-753. Einnig þar er
farið með ósannindi og eru radar-
gögn, sem varla er hægt að vé-
fengja, því til staðfestingar.“
Yfirlýsing flugmanna
ICB-753 vegna flug-
slyssins í Skerjafirði
HINN 1. júlí tók Alþjóðlegi saka-
máladómstóllinn til starfa. Dóm-
stólnum er ætlað að rannsaka og
ákæra einstaklinga, sem taldir
eru hafa gerst sekir um glæpi
gegn mannkyninu, þjóðarmorð
og stríðsglæpi. 139 ríki hafa
skrifað undir sáttmála um stofn-
un Alþjóðlega sakamáladómstóls-
ins, og 79 ríki hafa staðfest þann
samning, þar á meðal Ísland.
„Undanfarið hafa bandarísk
stjórnvöld reynt að grafa undan
starfi dómstólsins með því að
þrýsta á ríki heims að skrifa und-
ir tvíhlíða samninga við Banda-
ríkin, sem veita bandarískum
þegnum undanþágu frá framsali
til Alþjóðlega sakamáladómstóls-
ins. Á heimasíðu alþjóðaskrif-
stofu Amnesty International
gefst fólki kostur á að skrifa und-
ir stuðningsyfirlýsingu við Al-
þjóðlega sakamáladómstólinn og
áskorun til stjórnvalda um allan
heim að láta ekki undan þrýst-
ingi frá bandarískum stjórnvöld-
um.
Íslandsdeild Amnesty Inter-
national hvetur allan almenning
til að fara á eftirfarandi vefslóð:
http://web.amnesty.org/web/
icc_petition.nsf/action_english og
skrá nafn sitt og stuðla þannig að
öflugum alþjóðlegum sakamála-
dómstól,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Íslandsdeild Amnesty
International.
Hvetja til stuðnings
við Alþjóðlega saka-
máladómstólinn
ur geldfiskur, 2 til 4 punda,“ sagði
Pálmi.
Fullur af síli
Óhætt er að segja að sjóbirting-
urinn komi vel undirbúinn í árnar.
Fyrr í haust greindum við frá
þriggja punda birtingi sem veiddist í
Vatnamótunum og hrukku uppúr
honum trönusíli er hann var rotaður.
Pálmi Gunnarsson sagði okkur í gær
frá vænum birtingi sem hann veiddi
sjálfur í vatnaskilum Litluár við Jök-
ulsá. „Þegar ég tók hann uppúr ánni
runnu uppúr honum sandsílin, hann
var gersamlega á blístri og var bara
að æla þegar ég landaði honum.“
Sjaldgæft er að veiðimenn finni mat-
arleifar í löxum sem nýgengnir eru
úr sjó, en þó hefur það gerst.
ENN er prikað með stöngum í
nokkrum sjóbirtingsám, ein þeirra
er Litlaá í Kelduhverfi og sagði
Pálmi Gunnarsson, leigutaki árinn-
ar, í gærdag að nægur fiskur væri í
ánni, en stórrigningar undangeng-
inna vikna hefðu ekki komið í Keldu-
hverfið, áin væri fremur vatnslítil og
auk þess mjög heitt dag eftir dag, oft
og iðulega hásumarshitastig eins og
það gerist hæst. Það stæði veiðiskap
fyrir þrifum, en þó væru menn ekki
að kvarta og flestir væru að setja í
fiska og sjá mikið líf.
„Það eru helst stóru tröllin sem
eru erfið við þessi skilyrði. Þeir fisk-
ar fara bara af stað í kvöldmyrkrinu
og svona yfir höfuð eru menn helst
að setja í fiska snemma á morgnana
og seint á kvöldin, undir myrkur.
Það eru góð skot, tveir sem voru
hérna nýverið fengu t.d. 30 fiska
samanlagt, en mest af því var bjart-
Ánægður veiðimaður með fal-
legan sjóbirting úr Litluá fyrr á
vertíðinni.
Erfitt en
togast í
Litluá
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
PRJÓNABLAÐIÐ Ýr heldur þrjár
tískusýningar í tilefni þess að haust-
blaðið er komið út.
Fyrsta sýningin er í dag, laugar-
daginn 12. október, kl. 15, á Pollin-
um, Akureyri. Næsta sýning er
mánudaginn 14. október kl. 20 í
Skútunni í Hafnarfirði og þriðjudag-
inn 15. október kl. 20 í Súlnasal Hót-
els Sögu. Allt áhugafólk um prjón og
tísku er velkomið. Aðgangur er
ókeypis. Upplýsingar um tískusýn-
ingarnar eru á vefslóðinni
www.tinna.is.
Ýr heldur þrjár
tískusýningar
GÖNGUFERÐ verður á vegum
þjóðgarðsins á Þingvöllum í dag,
laugardaginn 12. október, kl. 13 og
hefst við Flosagjá. Jóhannes Stur-
laugsson, líffræðingur á Veiðimála-
stofnun, ræðir um rannsóknir á
Þingvallaurriðanum sem hann hefur
staðið fyrir á undanförnum árum.
Til sýnis verða nokkrir lifandi
risaurriðar. Gangan tekur um 2 klst.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins er
ókeypis og öllum opin. Nánari upp-
lýsingar um dagskrána veita land-
verðir í þjónustumiðstöð í síma og á
heimasíðu þjóðgarðsins www.thing-
vellir.is
Gönguferð á
Þingvöllum
UPPLÝSINGA- og baráttufundur
gegn virkjanaáformum yfirvalda á
hálendi Íslands verður haldinn í dag,
laugardag 12. október, á efri hæð
Grand Rokk, Smiðjustíg kl. 14–18. Á
fundinu munu Þorsteinn Siglaugs-
son rekstrarhagfræðingur, Hafdís
Hanna Ægisdóttir líffræðingur og
Roni Horn myndlistarkona fjalla um
ýmsa þætti er snúa að fyrirhuguðum
virkjanaframvæmdum. Sýnd verður
kvikmynd frá Þjórsárverum og mun
Kristinn Haukur Skarphéðinsson líf-
fræðingur segja frá. Einnig koma
fram rapparinn Erpur Eyvindarson,
hljómsveitin Geirfuglarnir og fleiri,
segir í fréttatilkynningu.
Baráttufundur
gegn virkjana-
áformum
GEISLI, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð heldur fund í Safnaðar-
heimili Selfosskirkju (efri hæð),
þriðjudaginn 15. október kl. 20.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson flyt-
ur erindi og svarar fyrirspurnum.
Fundurinn er öllum opinn, segir í
fréttatilkynningu.
Geisli fundar
á þriðjudag
KRISTNIBOÐSFÉLAG karla
verður með kaffisölu í Kristniboðs-
salnum Háaleitisbraut 58–60, sunnu-
daginn 13. október kl. 14.
Kristniboðsfélag karla er eitt af
stofnfélögum Kristniboðssambands-
ins og hefur stutt starfið í Kína, Eþí-
ópíu og Kenýa. Ein aðalfjáröflunar-
leið félagsins er hin árlega kaffisala.
Kristniboðs-
félag karla
með kaffisöluÍSLANDSPÓSTUR hefur tekið í
notkun fjórar nýjar vistvænar met-
anbifreiðar en áður átti fyrirtækið
eina metanbifreið sem tekin var í
notkun í fyrra. „Stefna fyrirtæk-
isins er m.a. að leggja áherslu á um-
hverfismál og vistvænna umhverfi
og er markmiðið að láta um 10%
bílaflota Íslandspósts á höfuðborg-
arsvæðinu ganga fyrir metangasi,
þar sem útkeyrsla er stór hluti af
dreifingarferlinu“, segir í frétta-
tilkynningu.
Nýju bílarnir eru tvíorkubílar frá
Citroën sem Brimborg flytur inn.
Um er að ræða sendibifreiðina
Citroën Berlingo. Með tvíorku er
átt við að bílarnir ganga fyrir
tveimur orkugjöfum. Í þessu tilfelli
ganga þeir fyrir metani og bensíni.
Citroën bílarnir eru þannig upp-
settir að bifreiðarnar nýta jafnan
metangasið, en vélin skiptir sjálf-
krafa yfir í bensín þegar gasforðinn
er tæmdur.
Með þessum bifreiðakaupum er
Íslandspóstur að leggja sitt af
mörkum til að draga verulega úr
mengun hérlendis, segir ennfremur
í fréttatilkynningu.
Íslandspóstur
notar
metanbíla
S
n
a
ig
é
:
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
Stórglæsilegir kæli- og
frystiskápar á ótrúlegu
kynningarverði!
OPIÐ: Mán.–föstud. 9–18Laugard. 10–15
Gerð Mál í cm Rými í ltr. Litur Kynningar-
HxBxD kælir + frystir verð, stgr.
C-140 85x56x60 127 hvítur 32.130,-
C-290 145x60x60 275 hvítur 40.230,-
R-130 85x56x60 81 + 17 hvítur 34.560,-
RF-270 145x60x60 170 + 61 hvítur 52.920,-
RF-310 173x60x60 192 + 92 hvítur 63.450,-
RF-310 173x60x60 192 + 92 stál 80.730,-
RF-315 173x60x60 229 + 61 hvítur 58.050,-
RF-315 173x60x60 229 + 61 metalic 61.830,-
RF-315 173x60x60 229 + 61 stál 75.330,-
RF-360 191x60x60 225 + 90 hvítur 69.930,-
F-100 85x56x60 85 hvítur 37.530,-
F-245 145x60x60 196 hvítur 49.680,-
Kælimiðill R600a - Kælivél Danfoss, Electrolux, fl.
Frystihólf - Orkuflokkur “A“
2ja ára ábyrgð.
Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Snaigé er nýr á Íslandi, kominn til að vera vegna
vandaðrar nútíma framleiðsluaðferðar, hagkvæmni í
rekstri og hagstæðs verðs.
G
æ
ð
a
g
ri
p
u
r
á
g
ó
ð
u
ve
rð
i.
..