Morgunblaðið - 05.12.2002, Page 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 45
Það má ekki minna
vera en ég minnist
hennar Fríðu með
nokkrum kveðju- og
þakkarorðum.
Hún var orðin löng samleið okkar í
Hólminum. Síðustu ár hennar á
Dvalarheimilinu vorum við borð-
félagar. Þau voru ófá brosin frá
henni við það borðið. Létt lund ein-
kenndi Fríðu og ávallt skapaðist góð
stemmning í kringum hana. Hún hélt
sínu unglega fasi þótt hún væri kom-
in á tíunda tuginn í æviárum talið.
Allir mega hlýða kallinu þegar það
kemur og það veit ég að hún Fríða
var tilbúin. Orð hennar allt til þess
seinasta voru að „gefast aldrei upp“.
Fríða var með í sönghópi eldri
borgara í Stykkishólmi undir stjórn
HÓLMFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
✝ HólmfríðurMagnúsdóttir
fæddist á Hofi í
Kirkjubólsdal við
Dýrafjörð 30. októ-
ber 1910. Hún lést á
sjúkrahúsi Stykkis-
hólms 12. nóvember
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Stykkishólms-
kirkju 17. nóvember.
hennar Jóhönnu okkar.
Hún mætti á æfingar af
miklum áhuga og hafði
einlæga gleði af söngn-
um.
Ég þakka fyrir að
hafa átt samleið með
Fríðu. Hún hafði það til
að bera á allan hátt að
vera bjartsýn og dug-
leg. Öllum sem kynnt-
ust Fríðu þótti vænt
um hana og mátu henn-
ar góða skap.
Guð blessi hana og
„hafðu þökk fyrir
gömlu góðu dagana“.
Árni Helgason, Stykkishólmi.
✝ Guðjón Björns-son fæddist á
Álftavatni í Staðar-
sveit 21. ágúst 1906.
Hann lést á Hjúkrun-
arheimilinu Grund
26. nóvember síðast-
liðinn Foreldrar hans
voru hjónin Rannveig
Arndís Magnúsdótt-
ir, f. 23. desember
1879, d. 8.ágúst 1963,
og Björn Jónsson, f.
25. júlí 1879, d. 7.
febrúar 1966, sem
hófu búskap á Álfta-
vatni skömmu eftir
aldamótin. Systkini Guðjóns voru
Guðbjartur, f. 22. júlí 1903, Mar-
grét, f. 16. júlí 1908, og Svanhvít,
f. 12. maí 1913. Þau eru öll látin.
Eftirlifandi eiginkona Guðjóns
er Jónína Kristín Sigmundsdóttir,
f. 8. ágúst 1919. Þau giftu sig árið
1952. Dóttir þeirra er Björg,
starfsmaður hjá Félagsþjónustu
Akureyrarbæjar, f. 19. febrúar
1953. Börn hennar eru Birna Ás-
geirsdóttir, f. 17. nóvember 1974,
og Roar Björn Ottemo, nemi í Nor-
egi, f. 21. nóvember 1984. Maður
Birnu er Örn Heimir Björnsson, f.
14. janúar 1972, og eru þau búsett
í Noregi. Börn þeirra eru Guðný
Lára, f. 25.10. 1992,
Dagný Birta, f. 29.4.
1998, Ásgeir Björn,
f. 10.11. 1999, og
Guðjón Páll, f. 14.11.
2002. Dóttir Jónínu
og stjúpdóttir Guð-
jóns er Ragnheiður
Pálsdóttir, f.
2.11.1948, maki Hall-
dór Magnússon, syn-
ir þeirra eru eru Al-
mar, f. 18.4. 1973,
dóttir hans er Elísa
Marín, f. 10. 7. 1997,
og Ármann, f. 4.3.
1981.
Guðjón starfaði við bústörf hjá
foreldrum sínum á Álftavatni
framan af ævinni, einnig var hann
til sjóróðra og við húsbyggingar.
Eftir að hann kvæntist var hann
bóndi að Álftavatni. Hann var
lengi formaður Sóknarnefndar
Staðarstaðarsóknar og safnaðar-
fulltrúi um skeið. Hann flutti
ásamt fjölskyldu sinni til Reykja-
víkur árið 1966 og hefur búið þar
síðan. Þar starfaði hann hjá
Rammagerðinni eftir því sem
heilsa hans leyfði, en síðan hóf
hann að starfa við myndskurð.
Útför Guðjóns var gerð frá Nes-
kirkju í Reykjavík 2. desember.
Mörg eru orðin sporin á svo langri
ævi. Árið 1966 urðu umskipti í lífi
Guðjóns er hann varð að bregða búi á
Álftavatni vegna heilsubrests og var
það honum ekki sársaukalaust að
kveðja öll sín spor í sveitinni.
Eftir að hann flutti til Reykjavíkur
ásamt fjölskyldu sinni starfaði hann
hjá Rammagerðinni eftir því sem
heilsa hans leyfði, en síðan hóf hann
að vinna við myndskurð en hann
hafði alltaf verið ákaflega laginn við
smíðar, allt lék í höndum hans. Þótt
heilsa hans hafi háð honum oft var
hans hugsun ætíð að þetta myndi
lagast og hafði alltaf óbilandi trú á því
betra eða eins og hann sagði ætíð
„Okkar eigin hugsun er besti lækn-
ingamátturinn“.
Nú þegar ég horfi á öll þessi
öruggu samferðaspor okkar, elsku
pabbi minn, og allt það gull sem þú
gafst mér í hugsun sem veganesti í líf
mitt, þá kveð ég þig með hjartans
þökk fyrir allt.
Horfinn er kvíði og kvalafullt bál,
hverfur til himna þín göfuga sál.
Eilífðartími upp runninn.
Svo vaknarðu frískur á friðsælli strönd,
friðarins alvaldur réttir þér hönd.
Til sigurs er sjúkdómur unninn.
Ég þakka svo vinur öll vináttuhót
þú veittir að gleði kærleikans rót.
Margs er frá liðnu að minnast.
Nú starfar ei lengur þín hjálpandi hönd
hér eru slitin þau jarðnesku bönd
en göfgandi er góðum að kynnast.
Svo kveð ég þig hljóð við kveðjum þig öll,
það kveðja þig dalir, hlíðar og fjöll.
Frá æskunnar átthaga slóðum.
Lífið er eilíft þó lokið sé hér
lausnara alheimsins treystum vér.
Og felum þig guðunum góðum.
(J.S.)
Ég veit að almættið hefur tekið á
móti þinni góðu sál og ég bið almætt-
ið að styðja og styrkja barnabörn,
barnabarnabörn og allt ættfólk þitt í
sorg sinni.
Elsku pabbi minn, ég kveð þig
hinstu kveðju
Björg Guðjónsdóttir.
Það er harmur að okkur kveðinn
þegar ég fylgi móðurbróður mínum
til hinstu hvíldar í dag 2. desember
2002. En fyrir rúmum 96 árum fædd-
ist hann vestur á Snæfellsnesi, sonur
Björns og Rannveigar á Álftavatni,
þar sem Snæfellsjökullinn blasir við í
vestri í allri sinni mynd. Svo er allur
fjallagarðurinn frá Þorgeirsfells-
hyrnu og austur að Lágafellshyrnu.
Á stilltu sumarkvöldi þegar logn var
á vatninu spegluðu fjöllin sig í vatn-
inu en á þessum stað ólst Guðjón upp
og á sínum yngri árum stundaði hann
ýmsa vinnu eins og siður var á þeim
tíma.
Á langri ævi Guðjóns hefur hann
upplifað tímana tvenna og þeim
breytingum sem þar hafa átt sér stað
fá orð ekki lýst.
Þegar Guðjón tók við búi foreldra
sinna hóf hann ræktunarstarf og
uppbyggingu útihúsa ásamt konu
sinni Jónínu sem kom vestur ásamt
dóttur sinni Ragnheiði sem reyndist
honum mikil stoð við búskapinn þeg-
ar heilsa Guðjóns fór að gefa sig.
Guðjón og Jónína áttu svo dótt-
urina Björgu sem nú er búsett á Ak-
ureyri.
Þar kom að þau fluttu til Reykja-
víkur þar sem Guðjón vann í Ramma-
gerðinni í mörg ár. Guðjón var mjög
handlaginn maður og skar og renndi
út marga fallega hluti sem hann gaf
ættingjum og vinum.
En nú síðustu mánuði dvaldi hann
á Elliheimilinu Grund þar sem ég
heimsótti hann og þó að aldurinn
væri orðinn hár fylgdist hann ávallt
með öllu og var ætíð forvitinn að
frétta af sínu fólki og eins af æsku-
slóðum sínum og undraðist ég hversu
skýr hugsun og minni hans var fram
á síðustu stundu.
Ég votta konu hans og öllum
þeirra afkomendum samúð mína.
Gunnar Jóhannesson.
Afi, ég kveð þig. Veit samt að þú
ert ekki farinn og ferð aldrei. Fyr-
irmynd þín verður mér alltaf styrkur
og dyggðir mínar mæli ég við þig. Þú
hefur sýnt mér merkingu þeirra svo
oft og svo innilega. Aldrei heyrði ég
vanhugsað orð, aldrei feilnótu slegna
í boðskap þínum. Þú einhvern veginn
skildir allt og vissir af innsæi. Það var
ávallt ró nærri þér, ólýsanlegur frið-
ur og sátt sem nærði mig. Ég mun
sakna þess. Réttsýni og umburðar-
lyndi þitt varð heilagt í þeirri hóg-
værð sem þú barst með þér. Lífið á
sér aðeins nokkur sönn lögmál og þau
þekktir þú ekki aðeins með sál þinni
heldur geisluðu þau af þér. Þú hefur
kennt mér að virða þau með hjart-
anu. Ég á þig þar. Guð blessi þig.
Almar.
GUÐJÓN
BJÖRNSSON
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Einstakir legsteinar
Úrval af útistyttum
á leiði
Englasteinar
Legs
teinar og englastyttur
Helluhrauni 10 - 220 Hf. - Sími 565 2566
frá kr. 29.000
Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur minn,
VALTÝR ÞÓR VALTÝSSON,
Búhamri 42,
Vestmannaeyjum,
sem lést sunnudaginn 1. desember sl., verður
jarðsettur frá Landakirkju laugardaginn
7. desember kl. 14.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á að láta líknarfélög njóta þess.
Ingunn Lísa Jóhannesdóttir,
Valur, Erna og Aron Valtýsbörn,
Erla Gísladóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞÓRÐUR GESTSSON,
Kálfhóli,
Skeiðum,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn
1. desember.
Eyrún Guðmundsdóttir,
Guðrún Elsa Aðalsteinsdóttir, Ingvar Árnason,
Guðmundur Þórðarson, Guðlaug Gísladóttir,
Gestur Þórðarson, Margrét J. Ólafsdóttir,
Valgeir Þórðarson, Kristín Hjálmarsdóttir,
Hrafnkell Baldur Þórðarson, Siril Iren Sagstad,
Elín Þórðardóttir, Sigurður Guðmundsson,
Gunnar Már Þórðarson, Kolbrún Björnsdóttir
og barnabörn.
Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn,
ÖSP VIÐARSDÓTTIR,
Flókagötu 63,
Reykjavík,
lést á barnadeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 3. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Anna Karen Kristjánsdóttir, Valdimar Viðar Tómasson,
Steinar Viðarsson,
Tómas Hrói Viðarsson,
Olga Guðnadóttir, Kristján Halldórsson,
Ragnheiður K. Pétursdóttir, Tómas Sveinbjörnsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur minn, bróðir og mágur,
BJARNI ÓLAFSSON,
Danmörku,
lést á sjúkrahúsi í Danmörku þriðjudaginn 3. desember.
Dagmar Kristjánsdóttir,
Rebekka Sif Bjarnadóttir,
Aðalheiður Dröfn Bjarnadóttir,
Berglind Bjarnadóttir,
Birta Kjartansdóttir,
Hjördís Antonsdóttir,
Jóhannes Ólafsson, Svanhildur Guðlaugsdóttir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGRÍÐUR GYÐA SIGURÐARDÓTTIR
myndlistarkona,
Miðbraut 29,
Seltjarnarnesi,
sem andaðist á Landspítala háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut að kvöldi föstudagsins 29. nóv-
ember, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 10. des-
ember kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hennar, er sérstaklega bent á Hjálparstarf kirkjunnar, sími 562 4400
vegna verkefnisins „Vatn fyrir lífstíð“.
Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð.
Sigurgeir Sigurðsson,
Margrét Sigurgeirsdóttir, Héðinn Valdimarsson,
Sigurður Ingi Sigurgeirsson, Lóa S. Hjaltested,
Þór Sigurgeirsson, María Björk Óskarsdóttir
og barnabörn.