Morgunblaðið - 05.12.2002, Síða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss og Goðafoss koma
og fara í dag. Mánafoss
kemur í dag. Ottó N.
Þorláksson fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Haukur fór í gær. Brú-
arfoss fór frá Straums-
vík í gær.
Fréttir
Bókatíðindi 2002. Núm-
er dagsins í dag er
75816.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa,
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataúthlutun
og fatamóttaka opin ann-
an og fjórða hvern miðvi-
kud. í mánuði kl. 14–17,
s. 552 5277
Mannamót
Aflagrandi 40. Línudans
er á þriðjudögum kl. 11.
Bingó fellur niður á
morgun vegna jólagleð-
innar sem hefst kl. 17.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa, kl. 13
spilað.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–10.30 Bún-
aðarbankinn, kl.
13–16.30 spiladagur,
brids/vist, kl. 13–16 gler-
list. Dansað í kringum
jólatréð föstudaginn 13.
desember kl. 14. Jóla-
sveinninn kemur í heim-
sókn. Ragnar Leví leikur
fyrir dansi, mætið með
afa- og ömmubörnin
Skráning í síma 568 5052
fyrir föstudaginn 13. des.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs
eldri borgara í Damos.
Laugard.: kl. 10–12 bók-
band, línudans kl. 11.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð
við böðun, kl. 10–10.45
leikfimi, kl. 14.30–15
bankaþjónusta, kl. 14.40
ferð í Bónus, hár-
greiðslustofan opin kl. 9–
16.45 nema mánudaga.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9 silki-
málun, kl. 13–16 körfu-
gerð, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13.30 banka-
þjónusta Búnaðarbanka.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Aðventu-
skemmtunin er í kvöld
kl. 20. Allir velkomnir.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, mosaik,
gifs og íslenskir steinar
og postulínsmálun, hár-
greiðslustofan opin 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9.30 hjúkrunarfræðingur
á staðnum, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 13 föndur
og handavinna, kl. 13.30
enska, byrjendur.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára 9
opin í dag kl 16.30–18.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréskurð-
ur kl. 9, myndlist kl. 10–
16, línudans kl. 11, gler-
skurður kl 13, pílukast
kl. 13.30
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13. Morg-
unkaffi, blöðin og matur í
hádegi. Fimmtudagur:
Brids kl. 13, framsögn kl.
16.15. Brids fyrir byrj-
endur kl. 19.30. Skrif-
stofa félagsins er í Faxa-
feni 12, sími 588 2111.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum, Selið,
Vallarbraut 4, Njarðvík.
Félagsvist alla miðviku-
daga kl. 14.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi vinnustofur og
spilasalur opinn, á morg-
un dansleikur, opnað kl.
19.30, allir velkomnir.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 9.30
boccia, kl. 10.45 hæg
leikfimi, kl. 13 félagsvist,
kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 17 bobb.
Handverksmarkaður í
dag frá kl. 13–16. Þar
verða til sölu ýmsar jóla-
og gjafavörur. Laufa-
brauðsdagur verður í
Gjábakka laugardaginn
7. desember kl. 13.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 9.05 leikfimi,
kl. 9.55 stólaleikfimi, kl.
13 keramikmálun.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, bútasaum-
ur, útskurður, hár-
greiðsla og fótaaðgerð,
kl. 13 brids, harðangur
og klaustur.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, föndur og jóga,
kl. 10 jóga, kl. 13 dans-
kennsla, framhalds-
hópur, kl. 14 línudans, kl.
15 frjáls dans og teiknun
og málun. Fótaaðgerðir
og hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10–
11 samverustund, kl. 9–
16 fótaaðgerðir, kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16 fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10.30–11.30 jóga, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt og
spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður. Jólafagnaður-
inn er í dag, húsið opnað
kl. 17. Ragnar Páll Ein-
arsson leikur á hljóm-
borð. Jólahlaðborð, kaffi
og eftirréttur. Barnakór
frá leikskólanum
Rjúpnahæð. Fiðluhópur
frá Allegro Susuki-
tónlistarskólanum. Jóla-
saga. Hera Björk Þór-
hallsdóttir syngur
einsöng. Fjöldasöngur.
Hugvekja, séra Jakob
Ágúst Hjálmarsson.
Hljómsveit Hjördísar
Geirs leikur fyrir dansi.
Allir velkomnir, skrán-
ing í s. 562 7077.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerðir, morg-
unstund, bókband og
bútasaumur, kl. 12.30
verslunarferð, kl. 13
handmennt og kóræfing,
kl. 13.30 bókband.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Kl. 11 sam-
vera, fyrirbænastund og
stutt messa í kirkjunni,
allir velkomnir, súpa í
Setrinu kl. 12, brids kl.
13.
Kvenfélagið Aldan.
Jólafundurinn er í kvöld
kl. 20. í Borgartúni 18, 3.
hæð. Munið jólapakk-
ana.
Sjögrens-áhugahóp-
urinn. Kaffispjall í kvöld
kl. 20 á Kaffi Mílanó,
Faxafeni.
Lífeyrisþegadeild SFR.
Árlegur jólafundur
deildarinnar verður
haldinn laugardaginn 7.
des. kl. 14. í fé-
lagsmiðstöðinni Grett-
isgötu 89, 4. hæð. Þátt-
taka tilkynnist skrifstofu
SFR, sími 525 8340.
Parkinsonsamtökin.
Jólafagnaður verður í
Kiwanishúsinu, Engja-
teigi 11, laugardaginn 7.
desember kl. 12. Séra Ír-
is Kristjánsdóttir prest-
ur í Hjallakirkju les jóla-
sögu og stjórnar
fjöldasöng, séra Jón
Bjarman flytur jóla-
hugvekju, Stefán H.
Stefánsson tenór syngur
einsöng og kvartett úr
kór Hjallakirkju syngur
undir stjórn Jóns Ólafs
Sigurðssonar organista.
Þríréttuð máltíð, miða-
happdrætti. Tilkynna
þarf þátttöku fyrir
föstud. 6. des. í s.
698 3267.
Slysavarnakonur í
Reykjavík. Jólafund-
urinn er í kvöld kl. 20 í
Höllubúð. Matur, happ-
drætti og fl. Jóla-
hugvekja, séra Yrsa
Þórðardóttir. Munið
jólapakkana.
Í dag er miðvikudagur 5. desem-
ber, 339. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Í kærleika sínum ákvað
hann fyrirfram að veita oss son-
arrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji
hans og náð, sem hann lét oss í té
í sínum elskaða syni.
(Ef. 1, 5.-7.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skapillur, 8 gulllitað, 9
bleyða, 10 muldur, 11
hreinir, 13 deila, 15 hæg-
fara, 18 eldstæðið, 21
stefna, 22 borgi, 23 treg,
24 sannleikurinn.
LÓÐRÉTT:
2 styrkir, 3 blautur, 4
tölustafs, 5 snúin, 6 gá-
leysi, 7 kunna ekki, 12
starfsgrein, 1
4 bókstafur, 15 hamingja,
16 svelginn, 17 nákom-
inn, 18 eyktamörkin, 19
var á hreyfingu, 20 ró
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 meiða, 4 getur, 7 tukta, 8 monts, 9 lús, 11 akra,
13 grín, 14 ráfar, 15 fant,
17 álar, 20 aða, 22 rokan, 23 putti, 24 týnir, 25 ranga.
Lóðrétt: 1 motta, 2 iðkar, 3 aðal, 4 gums, 5 tínir, 6 rósin,
10 úlfúð, 12 art, 13 grá,
15 fyrst, 16 nakin, 18 lotan, 19 reisa, 20 anar, 21 apar.
Víkverji skrifar...
Í LIÐINNI viku færðust Íslend-ingar nær því takmarki að hrifsa
heimsmeistaratitil af Norðmönnum.
Ekki í stórsvigi, handbolta, fjöl-
þraut eða annarri íþróttagrein held-
ur í áfengisgjaldi á sterkt áfengi.
Samkvæmt tilkynningu frá Samtök-
um ferðaþjónustunnar skipta Ís-
lendingar og Norðmenn nú með sér
heimsmetum í áfengisgjaldi; ís-
lenska ríkið á heimsmetið í léttvíni
en norska ríkið heldur enn titlinum í
sterku áfengi og bjór. Norska ríkið
hefur víst verið að lækka sín gjöld á
liðnum árum og þar með gefið Ís-
lendingum færi á að ná tvöföldum
heimsmeistaratitli. Fregnir um að
norska ríkið hafi gefið eftir í barátt-
unni um titilinn virðast hafa ratað í
íslenska fjármálaráðuneytið því fyr-
ir viku lagði Geir Haarde fyrir Al-
þingi frumvarp um 15% hækkun á
áfengisgjaldi á sterku áfengi og
27,7% hækkun á tóbaksgjaldi fylgdi
með. Um leið var lagt fyrir Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins að lækka
álagninguna þannig að sterka vínið
hækkar um 10% og tóbakið um
12%. Er gert ráð fyrir að þessar
auknu álögur á almenning skili rík-
issjóði um 1,1 milljarði. Víkverji hef-
ur ekki kynnt sér hversu langt ís-
lenska ríkið á í land til að ná hinu
norska en takmarkið er að minnsta
kosti klárt og það færist sífellt nær.
Eins og við var að búast samþykkti
Alþingi frumvarpið óbreytt enda
margir keppnismenn í þinglandsliði
Íslands.
x x x
EINS og allir vita er málið ekkisvona einfalt og Víkverji verð-
ur auðvitað að láta þess getið að
hækkun áfengisgjaldsins var alls
ekki rökstudd með því að Íslend-
ingar gætu orðið heimsmeistarar.
Þegar frumvarpið um hækkun
áfengis- og tóbaksgjalds var lagt
fyrir Alþingi sagði fjármálaráðherra
að tilgangurinn væri tvíþættur.
Annars vegar að afla ríkissjóði
tekna vegna ýmissa útgjalda sem
fallið hefðu á hann á undanförnum
dögum, s.s. vegna samnings um
bætt kjör eldri borgara. Hins vegar
að gjaldtaka af áfengi og tóbaki yrði
nokkurn veginn að fylgja verð-
lagsþróun en álögur ríkisins á
áfengi og tóbak hefðu að mestu
staðið óbreyttar í krónum talið um
langt skeið. Ýmsir hafa gagnrýnt
þessa hækkun, m.a. Alþýðusamband
Íslands og fyrrnefnd Samtök ferða-
þjónustunnar. Víkverji hefur á hinn
bóginn heyrt lítið frá þeim sem
berjast gegn áfengis- og tóbaks-
neyslu, ef undan er skilinn Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs, sem sagði þingflokk VG
fylgjandi hækkuðum álögum á vín
og tóbak enda væri slíkt til þess
fallið að draga úr notkun „þessara
skaðlegu efna eða vímugjafa“.
x x x
VÍKVERJA finnst á hinn bóginnekki að rökstuðningur fjár-
málaráðherra sé endilega til þess
fallinn að draga úr neyslu áfengis
og tóbaks. Hækkunin var sem fyrr
segir studd þeim rökum að það væri
langt síðan gjaldið hækkaði síðast
og það vantaði peninga handa gamla
fólkinu. Og hvaða sæmilega inn-
rættur maður vill standa í vegi fyrir
bættum hag aldraðra? Ekki Vík-
verji, það er víst. Er því ekki frekar
hætta á að ofurlítið samviskubit
læðist í hugskot þeirra sem vilja
minnka drykkjuna eða reykingarn-
ar? Með því draga þeir jú úr mögu-
leikum ríkisins til að gera vel við
gamla fólkið. Víkverja finnst þetta
því frekar slappt forvarnarstarf.
Hvar eru krónurnar?
NÚ get ég ekki haldið í mér
lengur vegna þess óréttlæt-
is sem okkar guðsvolaða
ríkisstjórn beitir öryrkja og
ellilífeyrisþega og vil birta
hér eitt lítið dæmi um það.
Ég efast ekki um að margir
fleiri hafa samskonar sögu
að segja.
Ég er öryrki og maður-
inn minn ellilífeyrisþegi,
þannig að við fáum bæði
laun frá Tryggingastofnun.
Við áttum von á því að fá
einhverjar krónur aukalega
í vasann um þessi mánaða-
mót vegna þeirra bóta sem
samið var um nýlega á hög-
um þessara þjóðfélagshópa,
auk þess að persónuuppbót
greiðist 1. desember til
allra launþega.
En ekki aldeilis. Allt var
þetta tekið í skattinn og
einni krónu betur. Sú upp-
hæð sem ég fékk útborgaða
er nákvæmlega einni krónu
lægri en sú sem ég fékk 1.
nóvember sl. og þannig er
það líka í tilfelli eigin-
mannsins, hans upphæð er
einnig einni krónu lægri en
1. nóvember.
Sem betur fer erum við
hjón svo lánsöm að fá smá-
vegis greiðslur úr lífeyris-
sjóðum þannig að við kom-
umst af án þess að svelta,
en hvernig er með það fólk
sem hefur lítið eða ekkert
annað en tryggingabætur?
Að halda því fram að fá-
tækt sé ekki til í landinu er
náttúrlega ekki annað en
heimska, eða mér liggur við
að segja heilabilun.
Þetta er eitt skýrasta
dæmið um lygina og þvætt-
inginn sem ráðamenn þjóð-
arinnar baða þjóðina upp-
úr. Að þessar manneskjur
skuli ekki hafa nægilegt vit
til þess að skammast sín,
það er mjög sorglegt. Og
ennþá sorglegra er að
margt þetta blessað fólk
sem mest talar um hvað það
hefur það slæmt, gapir yfir
lyginni og lætur draga sig á
asnaeyrunum til þess að
kjósa þetta yfir þjóðina í
næstu kosningum.
En hvað skyldi hún hafa
fengið í laun, nefndin sem
var sett á laggirnar til að
semja um bættan hag elli-
lífeyrisþega og öryrkja?
Hvers vegna má ekki
hækka skattleysismörkin
hjá fólki sem hefur lág
laun? Og hvers vegna má
ekki leggja hærri skatta á
hátekjufólk og fyrirtæki
sem blómstra?
Er ekki löngu kominn
tími til að ríkisstjórnin gefi
skýrt og skorinort svar við
þessum spurningum í eitt
skipti fyrir öll?
Með kveðju,
Unnur Þorsteinsdóttir.
Framsóknar-
skatturinn
FÁI ellilífeyrisþegar fjár-
magnstekjur, sama hvað
lítið það er, er tekjutrygg-
ing þeirra skert um 50% af
þeirri upphæð. Auk þess
þurfa þeir að borga 10%
fjármagnstekjuskatt eins
og aðrir. Samtals gerir
þetta 60% af hverri krónu.
Ég tel að verið sé að mis-
muna skattgreiðendum
hvort þeir eru almennir
skattgreiðendur eða ellilíf-
eyrisþegar sem hafa sparað
eitthvað smávegis til elliár-
anna. Er þetta verk fé-
lagshyggjuflokksins Fram-
sóknar sem hefur farið með
stjórn heilbrigðis- og
tryggingamála síðustu 7-8
árin? Ellilífeyrisþegar,
hugsið vel um hvað þið
kjósið í næstu kosningum
til Alþingis.
Ellilífeyrisþegi.
Tapað/fundið
Poki týndist í Bónus
POKI með tveimur kerta-
stjökum og lyfjum týndist í
Bónus í Kringlunni milli kl.
15-16 sl. föstudag. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 553 8843.
Nokia sími týndist
NOKIA 5210 appelsínugul-
ur GSM-sími týndist í
leigubíl frá Glaumbar að
Digranesvegi í Kópavogi að
morgni 30. nóvember. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 897 3794.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
MIG langar að senda smá
svar, ef svar skyldi kalla,
við greininni sem birtist
um Body Shop síðasta
laugardag.
Mér finnst mjög leið-
inleg þessi reynsla sem
þessar stúlkur urðu fyrir í
versluninni í Kringlunni,
en þar sem neikvæða hlið-
in er komin upp verð ég
að koma með eitthvað já-
kvætt.
Málið er að ég er búin
að versla í Body Shop í
mörg ár og núna fyrir
rúmu ári var opnuð versl-
un í Smáralind. Sú verslun
verð ég að segja er hin
glæsilegasta. Þjónustan
þar er alveg til fyr-
irmyndar, stúlkurnar til-
búnar að gera allt fyrir
mann. Það er alltaf hægt
að treysta á það að þær
séu tilbúnar að gera það
sem hægt er svo maður fái
það sem maður biður um.
Ég er trúr viðskiptavinur
og vil ekki að fólk fái
ranga hugmynd um þess-
ar verslanir. Ég vil þakka
starfsfólki verslunarinnar
í Smáralind fyrir allt sem
það hefur gert fyrir mig.
Jóna Kristín.
Margt gott hjá Body Shop
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16