Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 76
76 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
leonardo dicaprio tom hanks
Sýnd kl. 2.
Sýnd kl. 2, 6 og 8. B.i. 12. Stranglega bönnuð innan 16.
Sýnd kl. 10.40. Enskur texti
H.K DV
Kvikmyndir.is
H.L MBL
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10.
DV
Sýnd kl. 4. Síðustu sýningar.
ÓHT Rás 2
HK DV
2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Aukahlutverk karla: Christopher Walken
Besta tónlistin: John Williams
Náðu þeim í
bíó í dag.
Kvikmyndir.com
SV MBL
Radíó X
OHT Rás 2
Hann hafði draumastúlkuna við hlið sér...
...en áttaði sig á því þegar hún var farin
Sýnd kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 10.
Náðu þeim í bíó í dag.
Í mynd eftir Steven Spielberg
Radíó X
SV MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK AKUREYRI
2Tilnefningar til ÓskarsverðlaunaAukahlutverk karla: Christopher WalkenBesta tónlistin: John Williams
Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10.30. / Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 2, 4 og 6 Sýnd kl. 2, 4 og 6.
ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK / AKUREYRI
ÞAÐ ER strax farið að tala um
„zwannesku“ og hvernig hún varð
til. Fyrir það fyrsta eru hún runn-
in undan rifjum Billys Corgans,
fyrrum forsprakka og „alltmúlig-
mann“ í Smashing Pumpkins. Það
ætti að gefa einhverja mynd af eðli
zwanneskunnar. Hann sem sagt
ræður öllu þar, er heilinn, og hinir
lærisveinar. Kannski er nær lagi
að kalla þá skósveina en þó býsna
góðir sem slíkir, svona Lloyds.
Gamla gruggsveitin leið endan-
lega undir lok í desember 2000,
Corgan tók að daðra við gömul
átrúnaðargoð sín í New Order, lék
með þeim á tónleikum og inn á síð-
ustu plötu þeirra Get Ready. En
seint á árinu 2001 tók Corgan sig
hljóðlega til við að safna liði í sitt
eigið verkefni. Fyrstur kom til
byggða Matt Sweeney, gítarhetja
sem hefur verið á mála hjá sveit-
um á borð við Chavez og Skunk en
þeir Corgan hafa verið vinir lengi
og Sweeney átti það meira að
segja til að veita Smashing
Pumpkins liðsstyrk í allra hæstu
gítarveggjunum.
Annar er gömlum Pumpkin-bolt-
um betur kunnur, oftast af hinu
góða, en það er hundtryggur og
hrynheitur félagi Corgans til
fjölda ára, trommarinn Jimmy
Chamberlin, sá er lamdi lengst af
húðir af fádæma snilld með Sma-
shing Pumpkins en olli leiðtoga
sínum svo sárum vonbrigðum um
tíma vegna eiturlyfjafíknar sinnar.
En þar með eru trompin ekki upp
talin, síður en svo, því hinir þrír
Zwan-liðarnir hafa allir gert sínar
rósir. David Pajo er nett költgít-
arhetja enda hefur hann komið við
sögu sveita á borð við hina goð-
sagnarkenndu frumkvöðlasveit
Slint, sem og Papa M og Tortoise
síðar meir. Þá voru gítararnir
orðnir þrír og eiginlega óumflýj-
anlegt annað en að úr yrði ein-
hverskonar gítarrokk. Fyrstu op-
inberu tónleikarnir voru haldnir í
nóvember 2001, þegar sveitin lagði
upp í minniháttar tónleikaferð.
Þótti þeim er heyrðu og sáu ljóst
að aðalsmerki sveitarinnar og
helsti styrkur yrði fjölhæfni og
breidd, því aldrei lék þessi ný-
stofnaða hljómsveit sama settið,
heldur voru í hvert sinn ný lög á
dagskrá. Í apríl á síðasta ári var
zwanneskan síðan fullsköpuuð með
tilkomu bassaleikarans Paz Lenc-
hantin úr A Perfect Circle. Og á
komandi tónleikum fjölgaði lögun-
um á dagskránni þannig að þau
voru orðin ein 60 þegar loksins
kom að því að huga að útgáfu.
Eins og gefur að skilja voru lítil
vandkvæði á því að finna útgef-
anda, samið var við Reprise og nú
á mánudaginn leit dagsins ljós
fyrsta skífa Zwan, Mary Star of
the Sea.
Tónlist hinnar nýju sveitar – í
það minnsta á þessari fyrstu plötu
– er á flestan hátt bjartari og að-
gengilegri en það sem Pumpkins
hafði verið að gera undir það síð-
asta og þykir í senn vitnisburður
um tvennt, snöggtum betra and-
legt ástand fullkomnunarsinnans
og valdasjúklingsins Billys Corg-
ans og frekari ítök meðspilara en
skósveinar Pumpkins höfðu haft.
Tónlistin er í kjarnann melódískt
rokk líkt og nær allt það sem
Corgan samdi fyrir Pumpkins en
svo er hlaðið utan á og þá er farið
út í skilgreiningaratriðin, dilka-
dráttinn. Og spekúlantar hafa látið
sér detta í hug lýsingar eins og
„óhljóðapopp“, „nýprogg“,
„dramapopp“, „nýsýrurokk“ eða
bara framsækið popprokk. Ætli
þetta síðasta eigi ekki bara best
við, þótt íhaldsamt sé. Gagnrýn-
endur telja sig og merkja að sam-
vinnan með New Order hafi sett
verulegt mark á Corgan því sum
lögin á plötunni séu keimlík eldri
New Order-lögum að byggingu og
stemmningu. Hér er því ekki leit-
að, nema að litlu marki, á sömu
mið og í Pumpkins, ekkert „1979“,
ekkert „Cherub Rock“ – ef eitt-
hvað þá sé zwanneskan hvað
tengdust einhverju óræðu samspili
fyrstu plötunnar Gish og þeirrar
draumkenndustu Adore, sem um
leið er kannski vanmetnasta verk
Smashing Pumpkins.
Ný hljómsveit Billys Corgans komin á stjá
Enginn
Zwanasöngur
Samrýmd í zwanneskunni.
Þess hefur verið beðið með nokkurri eft-
irvæntingu hvað Billy Corgan myndi gera
eftir að hafa leyst upp Smashing Pumpkins.
Zwan er svarið, nýr kvintett sem Skarphéð-
inn Guðmundsson kynnti sér til hlítar.
Mary Star of The Sea kom út á
mánudag. Til er sérstök útgáfa með
aukamynddiski.