Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Hf. Eimskipafélags
Íslands og dótturfélaga varð 4.456
milljónir króna eftir skatta á árinu
2002. Rekstrarhagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði (EBITDA)
var 2.573 milljónir króna og veltufé
frá rekstri var 2.273 milljónir króna.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
jákvæð afkoma skýrist einkum af
gengishagnaði lána í erlendri mynt
vegna styrkingar íslensku krónunn-
ar og af óinnleystum gengishagnaði
hlutabréfa í eigu samstæðunnar,
vegna hækkunar á gengi hluta-
bréfa.
Ánægður með niðurstöðuna
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Eimskips, segist ekki geta
verið annað en ánægður með heild-
arafkomu ársins. „Innleystur hagn-
aður er um 2,3 milljarðar, á móti
tæplega 900 milljóna tapi á árinu
áður, sem þýðir að um er að ræða
viðsnúning upp á um 3,2 milljarða.“
Ingimundur segir að hagnaðurinn
hafi fyrst og fremst myndast í fjár-
magnsliðum, „en rekstrarafkoma
samstæðunnar fyrir afskriftir og
fjármagnsliði er jákvæð um 2,6
milljarða. Að teknu tilliti til af-
skrifta er afkoman neikvæð um 100
milljónir. Í því sambandi er nauð-
synlegt að hafa í huga að sérstök
ákvörðun var tekin um að færa nið-
ur viðskiptakröfur á erlendum
starfsstöðvum í flutningastarfsem-
inni vegna óvissu um innheimtu. Því
til viðbótar var ákveðið að auka af-
skriftir á viðskiptavild, til samræm-
is við þróun alþjóðlegra reiknings-
skilareglna, þótt þær reglur hafi
ekki tekið gildi hér. Þær afskriftir
nema 125 milljónum króna.“
Þá segir Ingimundur að í sjáv-
arútvegshluta samstæðunnar sé um
að ræða töluverðar niðurfærslur.
„Fyrst og fremst vegna þess að
ákvörðun var tekin um að færa
aukalega niður verðmæti fasteigna,
um 320 milljónir, auk stórrar af-
skriftar vegna kvótaeignar upp á
330 milljónir.“
Tap á flutningum á
fjórða ársfjórðungi
Tap varð á flutningastarfsemi á
fjórða fjórðungi ársins, sem nemur
89 milljónum króna, en hagnaður af
þeim þætti rekstrarins allt árið nam
1.251 milljón króna.
Í tilkynningunni segir að afkoma
á síðasta ársfjórðungi hafi verið
undir væntingum og skýrist það að
langmestu leyti af sértækum af-
skriftum og þróun gengis. Ákveðið
var að færa bókfært verðmæti eigna
aukalega niður um 350 milljónir
króna. Þá hafði þróun gengis nei-
kvæð áhrif á sjávarútvegstekjur á
fjórða ársfjórðungi og flutninga-
tekjur voru töluvert undir vænting-
um í desember. Þessir þættir hafa
veruleg áhrif til hins verra á afkomu
fyrir fjármagnsliði.
Rekstrartekjur samstæðunnar
voru samtals 24.243 milljónir króna.
Flutningatekjur námu 17.104 millj-
ónum króna og sjávarútvegstekjur
6.965 milljónum. Rekstrargjöld án
afskrifta voru samtals 21.670 millj-
ónir króna og vergur hagnaður
(EBITDA) því 2.573 milljónir. Af-
skriftir námu samtals 2.669 millj-
ónum króna og rekstrarafkoma fyr-
ir fjármagnsliði og skatta var því
neikvæð um 96 milljónir króna
(EBIT), en var jákvæð um 387
milljónir fyrstu níu mánuði ársins.
Skýrist þetta að stórum hluta af
fyrrnefndum aukaafskriftum á síð-
asta fjórðungi ársins en þær námu
um 350 milljónum króna.
Gengishagnaður
2,5 milljarðar
Fjármagnsliðir samstæðunnar
voru jákvæðir um 2.936 milljónir
króna. Helsta skýringin er sú að
gengishagnaður samstæðunnar var
2.475 milljónir króna. Tekjur vegna
verðlagsbreytinga innan tímabilsins
voru reiknaðar 247 milljónir króna,
vaxtatekjur voru 455 milljónir og
vaxtagjöld samstæðunnar 1.294
milljónir króna. Arður af eignar-
hlutum var 227 milljónir króna og
hagnaður af sölu eignarhluta nam
826 milljónum.
Óinnleystar tekjur samstæðunn-
ar voru 2.124 milljónir króna eftir
reiknaðar skattskuldbindingar og
er þar um að ræða hækkun á mark-
7,7 milljarða af-
komubati Eimskips
*
+
*)
*
+
),
*
./0
)1
+
+**+
% %$
%$$2
''2
(3$
2$'
4%!3
5
-
(22(
'!22
$$&($
(22(
* 5
1
*
)1
)1
6 *+ * )1
6 *+ *,
-
3$
"'7
%$7
!823
!$"
"&$2
"& 2%
"%("
"(("
#"(("
(&
$"%"$
2&!&
"'!(
$"%"$
"!2&
437
$"7
!82$
""%(
!"#$#%
$""
&'
(
Fjármagnsliðir
jákvæðir um
þrjá milljarða