Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 15
aðsverði þeirra hlutabréfa sem eru í
eigu samstæðunnar frá byrjun jan-
úar 2002.
Veltufé frá rekstri var jákvætt
um 2.273 milljónir króna á tíma-
bilinu og handbært fé frá rekstri
var 2.213 milljónir króna. Veltufé
frá rekstri hækkaði um 975 millj-
ónir króna á síðasta ársfjórðungi.
Hækkun á handbæru fé á tímabilinu
var 127 milljónir króna og var í lok
árs 1.088 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall 43,1%
Efnahagsreikningur samstæð-
unnar var 59.952 milljónir króna í
lok árs 2002. Eiginfjárhlutfall var
43,1% og veltufjárhlutfall 0,97.
Rekstrarhagnaður flutningastarf-
seminnar án afskrifta (EBITDA)
var 1.437 milljónir króna á árinu
2002, samanborið við 1.551 milljón
króna árið 2001 og versnaði um 114
milljónir króna. Afkoma fyrir fjár-
magnsliði á árinu 2002 var 122 millj-
ónir króna og hagnaður 2002 til
hækkunar á eigin fé var 1.251 millj-
ón króna og skýrist fyrst og fremst
með gengishagnaði á fjárhagsskuld-
bindingum. Veltufé frá rekstri nam
1.121 milljón króna.
Afkoma flutningastarfseminnar á
fjórða ársfjórðungi var neikvæð um
89 milljónir króna, sem er töluvert
undir væntingum. Flutningar og af-
koma í október og nóvember voru í
takt við áætlun. Skýringu á afkomu
fjórða ársfjórðungs er fyrst og
fremst að finna í mun minni flutn-
ingum í desembermánuði en ráð var
fyrir gert og vegna sértækra af-
skrifta upp á 125 m.kr. Í tilkynn-
ingu félagsins segir að óviðunandi
afkoma fjórða ársfjórðungs sé sam-
bland af minni flutningum í desem-
ber og ákvörðunum þess efnis að
færa til gjalda upphæðir í rekstr-
arreikningi út frá varfærnissjónar-
miðum.
Tap af sjávarútvegsstarf-
semi á fjórða fjórðungi
Afkoma sjávarútvegsstarfsemi
Hf. Eimskipafélags Íslands, Brims
ehf., samanstendur af afkomu Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. (ÚA),
Skagstrendings hf. og Haraldar
Böðvarssonar hf. (HB). Afkoma ÚA
er tekin inn í samstæðuna frá 1.
apríl 2002, afkoma Skagstrendings
frá 1. júní 2002 og afkoma HB frá
og með 1. nóvember. Hagnaður
þessara fyrirtækja sem tekinn var
inn í uppgjör samstæðunnar, nam
209 milljónum króna á tímabilinu,
EBITDA 1.162 milljónum og veltufé
frá rekstri nam 973 m.kr.
Sjávarútvegsstarfsemin skilar
tapi upp á 12 milljónir króna á
fjórða ársfjórðungi og er það mun
lakari afkoma en gert var ráð fyrir.
Meginástæðan er sú að afskriftir
voru mun hærri en gert var ráð fyr-
ir, þar sem ákveðið var að færa bók-
fært verðmæti eigna aukalega niður
um 324 milljónir króna. Þá var
slæm afkoma af rækjuveiðum og
-vinnslu auk lakari af-
komu í landvinnslunni.
Íslenska krónan
styrktist verulega í
desember og kemur
það fram í gengishagn-
aði af skuldum félags-
ins en bitnar um leið á
framlegð í rekstri.
Samanlagður hagn-
aður ÚA, HB og
Skagstrendings var
2.373 milljónir króna á
árinu 2002 og veltufé
frá rekstri 2.466 millj-
ónir. Þetta er mun
betri afkoma en árið
áður þegar félögin
þrjú voru samanlagt
gerð upp með um 400
milljóna króna tapi.
Afkomubatann er að
verulegu leyti að finna
í fjármagnsliðum. Þeir
voru jákvæðir um 1,7
milljarða á árinu 2002
en voru hins vegar nei-
kvæðir um 2,1 milljarð
árið áður. Rekstrar-
tekjur voru 14.466
milljónir króna og
hagnaður fyrir afskriftir 2.883 millj-
ónir eða 20% af tekjum.
Afkoma Burðaráss ehf. kemur að
langmestu leyti fram í fjármagns-
liðum og óinnleystum tekjum og
gjöldum. Hagnaður af fjárfestinga-
starfsemi á árinu 2002 var 2.996
mkr, þar af voru 563 mkr í fjár-
magnsliðum og 2.544 mkr í óinn-
leystum hagnaði sem skýrist af
hækkun á markaðsvirði eignarhluta
í öðrum félögum á árinu. Hagnaður
á fjórða ársfjórðungi var 547 mkr.
Bætt afkoma
flutninga árið 2003
Í tilkynningunni segir að gert sé
ráð fyrir aukinni hagræðingu og
bættri afkomu af flutningastarfsem-
inni á árinu 2003. „Hvað sjávarút-
vegsstarfsemina varðar er gert ráð
fyrir að vergur hagnaður og veltufé
frá rekstri verði svipuð og á nýliðnu
ári. Vert er að minna á að árið 2003
er fyrsta rekstrarár sjávarútvegs-
starfsemi félagsins og mun því ein-
kennast af samhæfingu og hagræð-
ingu á ýmsum sviðum starfsem-
innar.“
Þá segir: „Samkvæmt rekstrar-
áætlun er gert ráð fyrir hagnaði í
samstæðuuppgjöri félagsins á árinu
2003. Hagnaður fyrir skatta verður
nokkuð minni en árið 2002 vegna
minni gengishagnaðar af erlendum
lánum og minni óinnleysts hagnaðar
af hlutabréfum, en á sama tíma er
gert ráð fyrir að afkoma fyrir fjár-
magnsliði (EBIT) muni batna og fé-
lagið muni skila auknu veltufé frá
rekstri.“
Morgunblaðið/RAX