Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 26
AKUREYRI 26 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.islandia.is/~heilsuhorn SALMON OIL Gegn stirðleika í liðamótum PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Sími 693 0997 Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 12-17 Skómarkaður Vorum að opna brjálaðan skómarkað í Sætúni 8 (við hliðina á Heimilistækjum) Önnur eins tilboð hafa aldrei sést Baldvin Z og John Cariglia kvik- myndagerðarmenn með meiru er gestir á laugardagsfundi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði á Akureyri á morgun, 1. mars. Þeir segja frá kvikmyndagerð, menningu ungmenna og framtíð- armöguleikum á þessum fundi. Hann hefst kl. 11 og er í kosninga- miðstöðinni í Hafnarstræti 94. Á MORGUN Björn Steinar Sóbergsson org- anisti heldur hádegistónleika í Ak- ureyrarkirkju á morgun, laugardag- inn 1. mars kl. 12. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Pál Ís- ólfsson. Lesari á tónleikunum er sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Aðgangur er ókeypis og eru allir vel- komnir. AKUREYRARBÆR mun sjá um alla heilsugæslu og öldrunarþjón- ustu í Akureyrarumdæmi til ársloka 2006 en samning þessa efnis undir- rituðu þeir Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra og Kristján Þór Júl- íusson, bæjarstjóri á Akureyri, í gær. Bærinn hefur hin síðari ár sem reynslusveitarfélag séð um heilsu- gæslu og rekstur hjúkrunar- og dval- arheimila samkvæmt samkomulagi við ríkið, en með samningi þeim sem undirritaður var í gær er gengið skrefi lengra og samið um öll helstu atriði varðandi heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Heilbrigðisráðherra sagði að góð reynsla væri af samstarfi við Akureyrarbæ og því hefði kapp verið lagt á að ná nýjum og víðtækari samningi sem vissulega hefði tekið langan tíma. „Þetta er stór samning- ur og tekur á flóknum málum og því ekki óeðlilegt að tíma hafi tekið að ganga frá honum,“ sagði Jón. Markmiðið með samningnum er m.a. að bæta þjónustu við íbúana, nýta fjármuni hins opinbera betur, efla stjórn sveitarfélagsins á mála- flokknum og laga stjórnsýslu að staðbundnum aðstæðum. Bærinn mun áfram sjá samkvæmt samningum um heilsugæslu- og öldr- unarþjónustu, stjórna rekstri hjúkr- unar- og dvalarheimila í Hlíð, Kjarnalundi og Bakkahlíð, sjá um rekstur heimaþjónustu og dagvistar aldraðra sem og allan rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akur- eyri. Ríkið mun tryggja bænum ár- lega tæpan milljarð, eða 972 millj- ónir króna til að sinna þessum verkefnum. Þar af fara 306 milljónir í rekstur heilsugæslunnar, 487 í rekst- ur hjúkrunarrýma, 140 í rekstur þjónusturýma, 20 milljónir renna til dagvistunar og svipuð upphæð á ári vegna húsnæðisgjalda. Hjúkrunarrýmum fjölgað um 60 Auk þessa var einnig skrifað undir samning um verulega fjölgun hjúkr- unarrýma á Akureyri á næstu miss- erum með sérstökum rammasamn- ingi um viðbyggingu við Dvalar- heimilið Hlíð. Jakob Björnsson, formaður bæjarráðs, sagði að meiri- hlutaflokkarnir í bæjarstjórn hefðu sett úrbætur í öldrunarmálum í önd- vegi og þær yrðu nú senn að veru- leika. Ekki væri deilt um að þörfin væri brýn en nú yrði hafist handa. Alls mun hjúkrunarrýmum fjölga um 60 til ársins 2006. Stefnt er að því að taka fyrri áfanga nýrrar viðbygg- ingar við Hlíð í notkun í lok næsta árs og bætast þá við 30 rými, en ljúka á við bygginguna í ársbyrjun 2006. Morgunblaðið/Kristján Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, skrifuðu undir samn- ingana. Við borðið situr einnig Jakob Björnsson, formaður félagsmálaráðs. Akureyrarbær sér um heilsugæslu og öldrunarþjónustu Ríkið greiðir um millj- arð vegna verkefna HJÁLPARSVEITIN Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit á 20 ára af- mæli um þessar mundir og af því tilefni bjóða félagsmenn til afmælisveislu á morgun, laugar- dag, í Bangsabúð við Steinhóla. Þar verður opið hús frá kl. 13–18 og eru allir íbúar Eyjafjarðar- sveitar og aðrir velunnarar sveitarinnar boðnir velkomnir. Um kl. 20.30 um kvöldið verður svo haldin vegleg flugeldasýn- ing við Bangsabúð. Formleg dagskrá hefst kl. 14 á morgun en þá mun stjórn Lionsklúbbsins Vitaðsgjafa færa hjálparsveitinni stóra og öfluga tölvu að gjöf. Í kjölfarið mun Bjarni Kristjánsson, sveit- arstjóri Eyjafjarðarsveitar, opna nýja heimasíðu sveitarinn- ar, dalbjorg.is. Þá gefst gestum kostur á skoða, bíla, tæki og húsnæði sveitarinnar og þiggja kaffiveitingar, sem Kvenfélagið Hjálpin og Bakaríið við brúna leggja til. Hjálparsveitin Dalbjörg var stofnuð hinn 5. mars 1983. Fé- lagsmenn eru um 70 talsins og þar af eru um 40 þeirra virkir. Hjálparsveitin Dalbjörg 20 ára Afmælis- veisla í Bangsabúð KVENNAKÓR Akureyrar heldur tónleika í Glerárkirkju á morgun, laugardaginn 1. mars kl. 16. Söngskráin verður fjölbreytt en byggist að mestu upp á léttri og skemmtilegri tónlist, segir í frétt frá kórnum. Einsöngvari verður Þórhildur Örvarsdóttir, undirleikari Arnór Vilbergsson en stjórnandi Kvennakórs Ak- ureyrar er Björn Leifsson og hefur hann gegnt því starfi frá upphafi. Kórinn var stofnaður fyrir fáum árum af áhugasömum KA-konum og hét þá KA-kór- inn. Þegar fækkaði í hópnum var ákveðið að auglýsa eftir söngglöðum konum undir merkjum Kvennakórs Akur- eyrar. Tókst svo vel til að um eða yfir 100 konur mættu á æf- ingu, en virkir kórfélagar er nú um 70 talsins. Þetta er annað starfsár Kvennakórs Akureyr- ar. Tónleikar Kvennakórsins NÝTT hótel, sem fengið hefur nafn- ið mhotel, verður opnað á Akureyri innan tíðar og við það fjölgar hót- elherbergjum um 19 á ný í bænum. Hótelið er við Hafnarstræti, þar sem Hótel Óðal var áður til húsa. Ungur Reykvíkingur, Matthías Ei- ríksson og unnusta hans, Yuko Motoyanagi frá Japan, keyptu hús- eignina af Ferðamálasjóði um síð- ustu áramót og frá þeim tíma hefur verið unnið að umfangsmiklum endurbótum innanhúss. Matthías sagði stefnt að því að opna hótelið hinn 8. mars nk. og hann er bjartsýnn á reksturinn. Matthías og Yuko kynntust við nám í hótelrekstri í Bandaríkjunum og þau ætla reka hótelið en eru þessa dagana að leita að fleira starfsfólki. Matthías sagði að þau Yuko hefðu ákveðið að reyna fyrir sér í hót- elrekstri á Íslandi að loknu námi og hefði Akureyri orðið fyrir valinu. Staðurinn væri spennandi og hefði mikla möguleika og þangað kæmi mikill fjöldi ferðamanna ár hvert. Matthías sagði herbergin, sem eru tveggja manna, þægileg og vel búin. Þau eru með baðherbergi, minibar, sjónvarpi og peningaskáp. Boðið verður upp á morgunmat á hótelinu en Matthías sagði að ekki yrði rekinn veitingastaður á hót- elinu, a.m.k. ekki fyrst um sinn. Heimasíða hótelsins verður opnuð fljótlega en netfangið er mhotel.is. Nýtt hótel tekur til starfa Morgunblaðið/Kristján Mhotel við Hafnarstræti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.