Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 47
!
!
"
!
"
## $
%%
&
MIKIÐ verður um dýrðir í Landa-
kirkju á æskulýðsdegi þjóðkirkj-
unnar.
Kl. 11 verður sunnudagaskól-
inn á sínum hefðbundna tíma.
Þar munu Litlir lærisveinar
syngja. Kirkjuprakkarar leggja
af mörkum skreytingar og mynd-
ir úr ljósmyndamaraþoni níu til
tólf ára krakka verða til sýnis.
Æskulýðsfélag fatlaðra mun
syngja. Barnafræðarar og sr.
Þorvaldur Víðisson leiða stund-
ina.
Kl. 14 verður poppmessa ung-
linganna. Æskulýðsfélag Landa-
kirkju og KFUM&K mun sjá um
guðsþjónustuna ásamt leiðtogum,
æskulýðsfulltrúum og presti.
Hljómsveit úr félaginu mun spila,
unglingar lesa ritningarlestra,
biðja bænir og lofgjörð. Eftir
guðsþjónustuna verður mjólk og
kaka í safnarheimilinu. Æsku-
lýðsfélagið er á leið til Danmerk-
ur í sumar á æskulýðsmót. Ein af
fjáröflunum vetrarins er gerð
lengstu Betty Crocker-köku sem
gerð hefur verið á Íslandi. Ung-
lingarnir hafa safnað áheitum
fyrir hvern bakaðan metra. Tak-
markið er að gera 15 metra
langa köku. Kirkjugestum verður
síðan boðið upp á kökuna eftir
poppmessuna. Öflugt starf í öfl-
ugri kirkju. Allir velkomnir.
Æskulýðsdagur þjóð-
kirkjunnar í Vík
GUÐSÞJÓNUSTA ætluð öllum
aldurshópum verður í Vík-
urkirkju í Mýrdal sunnudaginn 2.
mars 2003 kl. 14 á æskulýðsdegi
þjóðkirkjunnar.
Kristín Waage leikur á orgel
og stjórnar kór Víkurkirkju.
Henni til aðstoðar við undirleik
er Guðni Páll Pálsson, nemendi í
Tónskóla Mýrdælinga. Þá mun
Anna Björnsdóttir kennari leika á
gítar og stjórna söng þeirra
barna sem mæta til kirkju.
Að sjálfsögðu verður miðað við
efnið sem við höfum notað í
Kirkjuskólanum í vetur og mynd
til að líma inn í bækurnar ykkar
afhent í lok messunnar. Umfjöll-
unarefni dagsins er: Jesús mettar
fimm þúsundir.
Vinsamlega athugið að kirkju-
skólasamveran, sem vera á 1.
mars, fellur niður og í stað henn-
ar kemur guðsþjónustan, daginn
eftir.
Sóknarprestur og starfsfólk
Kirkjuskólans í Mýrdal.
Æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar
í Landakirkju
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag
kl. 13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi,
undir stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa,
kaffi og spjall. Allir velkomnir.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu
í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomn-
ir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun
fyrir börn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Breiðholtskirkja. Mömmumorgnar kl.
10–12.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10
ára drengi á laugardögum kl. 11. Starf
fyrir 11–12 ára drengi á laugardögum
kl. 12.30.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 LLL –
KFUM&K í safnaðarheimilinu, Uppsölum
3.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 13
Litlir lærisveinar, eldri hópur. Kórstjóri
Guðrún Helga Bjarnadóttir. Á morgun,
laugardag, kl. 15. Félagar úr æskulýðs-
félagi Landakirkju og KFUM&K búa til
stærstu Betty Crocker köku sem gerð
hefur verið á Íslandi. Boðið verður upp á
hana eftir æskulýðsmessuna á sunnu-
dag. Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11–
12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun
og biblíufræðsla. Barna- og unglinga-
deildir á laugardögum. Létt hressing eft-
ir samkomuna. Allir velkomnir. Biblíu-
fræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22
á FM 105,5.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamark-
aður frá kl. 10–18 í dag.
Hveragerðiskirkja. Kl. 20.30 kvöldvaka
með fermingarbörnum og foreldrum.
Safnaðarstarf
reyndari Nissan Patrol-jeppar en
rúmlega hálf öld er liðin frá því
hann kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Upphaflega var Nissan Patrol fram-
leiddur fyrir japanska herinn en
með árunum hefur hann þróast yfir í
alhliða torfæru- og borgarbíl. Sýn-
ingin stendur kl. 12–17 báða dagana
og er aðgangur ókeypis.
sniði. Allnokkrar breytingar hafa
verið gerðar á ytra útliti, m.a. á
grilli, ljósum og stuðurum og innan-
dyra hefur enn verið aukið á þæg-
indin,“ segir í fréttatilkynningu.
Auk Patrolsins verða Terrano, X-
Trail og Double Cab-pallbílar til sýn-
is, allt fjórhjóladrifsbílar frá Nissan.
Einnig verða til sýnis eldri og
EFNT verður til 4x4-jeppasýningar í
húsakynnum Ingvars Helgasonar hf.
við Sævarhöfða 2 í Reykjavík á
morgun, laugardaginn 1. mars, og
sunnudaginn 2. mars. Ný og breytt
útgáfa af Nissan Patrol GR-
jeppanum verður frumsýnd en á
honum hafa verið gerðar ýmsar
breytingar innan og utan dyra.
Þar verða og til sýnis aðrir Niss-
an-jeppar, breyttir og óbreyttir.
Einnig verður efnt til tískusýningar
á útivistarfatnaði, þjónustuaðilar í
bílgreinum kynna sínar vörur o.fl.
„Nissan Patrol-jeppinn verður í
aðalhlutverki en hann er nú kynntur
hér á landi með nokkuð breyttu
Jeppasýning
hjá Ingvari
Helgasyni
Stjórnendaskóli Háskólans í
Reykjavík stendur fyrir námskeið-
inu „Rekstrarnám fyrir stjórnendur
og sérfræðinga“ og er haldið í alls 10
skipti kl. 16-19 og hefst 5. mars og
lýkur 7. apríl.“ Námskeiðið er
rekstrarnám fyrir stjórnendur, sér-
fræðinga og rekstraraðila sem vilja
styrkja rekstrarkunnáttu sína.
Einnig verður haldið námskeið „Set-
ið í stjórnum fyrirtækja“ og fer fram
miðvikudaginn 5. mars kl. 8.30-
12.30. Námskeiðið er ætlað þeim
sem vilja öðlast betri skilning á hlut-
verki og skyldum þeirra sem taka
sæti í stjórnum fyrirtækja í sí-
breytilegu rekstrarumhverfi. Bæði
námskeiðin verða í Háskólanum í
Reykjavík, 3. hæð, og er skráning í
síma eða á vefsetri Stjórnendaskóla
HR, www.stjornendaskoli.is.
Á NÆSTUNNI
Vorsýning Hundaræktarfélags Ís-
lands verður haldin í reiðhöll Gusts í
Kópavogi helgina 1. og 2. mars. Sýnd-
ir verða um 350 hundar af 54 teg-
undum. M.a. verða sýndir hundar
sem ekki hafa sést hér á landi í ára-
raðir, samoyed, airdaile terrier o.fl.
Dómarar verða m.a. Karl-Erik Joh-
anson frá Svíþjóð og Terry Thorn frá
Englandi. 34 ungmenni keppa um tit-
ilinn „besti ungi sýnandinn,“ í þeirri
keppni reynir á samskipti barns og
hunds. Dómari í þeirri keppni verður
Berglind Sigursteinsdóttir. Sýning
hefst kl. 9.30 báða dagana og lýkur
um kl. 17. Nákvæm dagskrá er á
heimasíðu Hundaræktarfélags Ís-
lands, www. hrfi.is
Málstofa um grænlenskt mál verð-
ur haldin í dag, laugardaginn 1. mars,
kl. 10-13 í Odda, stofu 101, Háskóla
Íslands. Frederikke Blytmann
Trondhjem, sendilektor við Institut
for Eskimologi, Hafnarháskóla, held-
ur fyrirlestur um grænlenskt mál. Í
málstofunni fjallar Frederikke um
eskimo-aleut málfjölskylduna með
sérstakri áherslu á grænlenskt mál.
Umræðan fer að mestu leyti fram á
dönsku og eru allir velkomnir.
Heilsa og hamingja á efri árum Fé-
lag eldri borgara í Reykjavík og ná-
grenni (FEB) heldur fræðslufund-
fyrir eldri borgara undir yfir-
skriftinni: Lífsorka og létt lund.
Erindi halda Þórir S. Guðbergsson
félagsráðgjafi og Karl Ágúst Úlfsson.
Stjórnandi er Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir. Söngfélag FEB syngur.
Fræðslufundurinn verður haldinn á
morgun, laugardaginn 1. mars, kl.
13.30 í Ásgarði Glæsibæ. Allir vel-
komnir. Aðgangseyrir er kr. 300.
Á MORGUN
Málþing Félags heyrnarlausra
verður haldið í dag, föstudaginn 28.
febrúar, kl. 13 í Salnum, Tónlistar-
húsi Kópavogs. Málþingið ber yf-
irskriftina Réttindi – menntun – lífs-
gæði. Á þinginu mun m.a. Ástráður
Haraldsson hrl. birta lögfræðiálit
um réttarstöðu heyrnarlausra.
Einnig halda erindi alþingismenn-
irnir Hjálmar Árnason og Kolbrún
Halldórsdóttir. Fjallað verður um
rétt heyrnarlausra til túlkaþjónustu,
s.s. í samskiptum við fasteignasala,
lögmenn, túlkun á húsfundum, nám-
skeiðum o.fl.
Í DAG
Handbók kom-
in út um EES
KOMIN er út handbók Stjórnar-
ráðsins um EES en hún fjallar eins
og nafnið bendir til um samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið.
Handbókinni er ætlað að vera hent-
ugt upplýsingarit fyrir þá sem starfa
að EES-málum.
Í frétt frá utanríkisráðuneytinu,
sem gefur bókina út, segir að lýst sé
verklagi við upptöku gerða Evrópu-
sambandsins í EES-samninginn og
innleiðingu þeirra „en frá því að
samningurinn öðlaðist gildi hafa
mótast ýmsar reglur, bæði lagaregl-
ur og verklagsreglur um hvernig það
skuli gert. Með handbókinni er bætt
úr brýnni þörf en upplýsingar sem
þar er að finna hafa ekki verið að-
gengilegar á einum stað áður,“ segir
þar einnig.
Bókin er seld í afgreiðslu utanrík-
isráðuneytisins og Bóksölu stúdenta
og kostar 1.500 krónur.
LEIÐRÉTT
Ljósberar í Tjarnarhólma
20 nemendur fornámsdeildar
Myndlistaskólans í Reykjavík eiga
heiðurinn af listaverkinu Ljósberar í
Tjarnarhólma ásamt Ilmi Stefáns-
dóttur, en ekki eingöngu Ilmur, eins
og ráða mátti af frétt sem birtist í
Morgunblaðinu í gær. Verkið varð í
fyrsta sæti í samkeppni um útilista-
verk í tilefni Vetrarhátíðar Reykja-
víkurborgar sem hófst í gær.
Ljósberar er gjörningur með ljós
þar sem vitnað er í söguna af ljósa-
burði Bakkabræðra forðum þar sem
þorpsbúar eru að bjarga tunglinu
upp úr tjörn sinni. Gjörningurinn
felst í því að ljósið er veitt upp úr
tjörninni og borið inn í hús sem
stendur á Tjarnarhólmanum. Eftir
gjörninginn stendur svo húsið fullt af
ljósi sem lifir út Vetrarhátíðina.
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhöppum:
Við Asparfell 8 var ekið á hægra
afturhorn bifreiðarinnar OG-604
sem er Nissan Micra-fólksbifreið,
rauð að lit. Atvikið gerðist á tíma-
bilinu frá kl. 19 þriðjudaginn 25.
febrúar til kl.10 morgunin eftir.
Tjónvaldur fór af vettvangi.
Miðvikudaginn 26. febrúar varð
árekstur á gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Laugavegar. Þar
rákust saman rauð Toyota Corolla,
TU-547, og blár bíll af sömu tegund,
OV-139. Rauðu bílnum var ekið
norður Kringlumýrarbraut og beygt
til vinstri inn á Laugaveg til vesturs.
Bláa bílnum var ekið austur Lauga-
veg og áfram yfir á Suðurlandsbraut.
Ökumenn greinir á um stöðu um-
ferðarljósanna er árekstur varð.
Vitni að þessum umferðaróhöpp-
um eru beðin um að hafa samband
við lögregluna í Reykjavík.
Nýtt námsefni
fyrir torlæsa
ÞÓRSÚTGÁFAN hefur gefið út
nýtt námsefni sem nefnist Lestækni
og er ætlað börnum sem eiga erfitt
með lestrarnám.
Tíu til fimmtán af hundraði barna
eiga erfitt með að læra að lesa, þar af
er áætlað að hjá u.þ.b. sex af hundr-
aði sé orsökin lesblinda sem af vís-
indamönnum er talin vera ættgeng
veila í þeim málstöðvum heilans sem
annast úrvinnslu smáhljóða.
Í Lestækni sem Þórsútgáfan gef-
ur nú út er reynt að mæta þörfum
barna sem eiga erfitt með lestrar-
nám. Efnið spannar allt frá námi og
samsömun bókstafa og smáhljóða til
erfiðra samhljóðasambanda. Þetta
efni er sett fram í 5 heftum með stig-
vaxandi þyngd þar sem á hverju stigi
eru fjölbreyttar aðferðir til æfinga.
Höfundurinn, Þorsteinn Sigurðs-
son, hefur menntun í kennslu barna
með námsörðugleika, í talkennslu og
cand.pæd.spec. próf í sérkennslu-
fræðum með áherslu á máltöku og
málmein barna. Hann hefur langa
reynslu af kennslu barna með lestr-
arörðugleika og er höfundur fjölda
náms- og matsgagna á þessu sviði.
KIRKJUSTARF