Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 64
S.O.S. – hálendið kallar var yfir-
skrift hálendisgöngu og mótmæla
gegn Kárahnjúkavirkjun sem fram
fóru í miðborginni í gær. Að sögn
skipuleggjenda tóku á milli 1.300
og 1.400 manns þátt í mótmæl-
unum.
Elísabet Jökulsdóttir, talsmaður
skipuleggjenda, segir ýmsa gras-
rótarhópa hafa staðið fyrir mót-
mælunum. Gengið var með mót-
mælaspjöld niður Laugaveginn og
safnaðist hópurinn svo saman á
Austurvelli framan við Alþing-
ishúsið. Þar frömdu leiklist-
arnemar gjörning þar sem fjall-
konan var kefluð og vafin inn í ál,
leikin var tónlist og ávörp flutt.
Að því loknu mynduðu mótmæl-
endur hring utan um Alþing-
ishúsið og kölluðu upp slagorð á
borð við „Það er ekki of seint“ og
„Svei þér, Siv.“ Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra fylgdist hins
vegar með út um glugga.
Þá afhentu mótmælendur þing-
mönnum stóra ljósmynd af Kára-
hnjúkum með þeim orðum að þeir
óskuðu þess að sú mynd héldist.
Athöfninni lauk svo með bæna-
stund.
„Þetta er alveg ótrúlegur fjöldi
og maður er alltaf að sjá hérna
nýtt fólk,“ sagði Elísabet.
Lögreglan segir á milli 500 og
1.000 manns hafa tekið þátt í mót-
mælunum en að hennar sögn var
talning erfið. Mótmælin hafi farið
friðsamlega fram fyrir utan að
einhverjir hafi hent banönum að
Alþingishúsinu. Ákveðið hafi verið
að láta bananakastið óátalið. Morgunblaðið/RAX
Gengið gegn
virkjunaráformum
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SIGURÐUR Þórðarson ríkisendurskoðandi tek-
ur undir gagnrýni Stefáns Svavarssonar dósents,
sem sagði sig úr reikningsskilaráði, og segir
reikningsskil í landinu vera í uppnámi. Við aðlög-
un að alþjóðlegum kröfum hafi komið í ljós að ís-
lensk löggjöf leyfi ekki suma þá hluti sem verið sé
að framkvæma í reikningsskilum fyrirtækja. Rík-
isendurskoðandi tekur ennfremur undir gagnrýni
Stefáns á seinagang stjórnvalda í þessum efnum.
Afsögn Stefáns sem formanns reikningsskila-
ráðs er hörmuð af endurskoðendum, ríkisend-
urskoðanda, forseta viðskipta- og hagfræðideild-
ar og fjármálaráðherra. Segja þeir að erfitt verði
að fylla hans skarð í nefndinni.
Geir H. Haarde telur þá gagnrýni Stefáns ekki
vera maklega að athugasemdir reikningsskila-
ráðs hafi verið hunsaðar í fjármálaráðuneytinu.
Bendir ráðherra á að fyrir Alþingi liggi frumvarp
um aðlögun ársreikningalaga að tilskipunum
ESB, sem verði afgreitt frá þinginu á næstu dög-
um. Hins vegar hafi stjórnvöld legið undir ámæli
og þrýstingi frá Eftirlitsstofnun EFTA um að
innleiða þessar reglur.
Ráðherra segir næsta skref að taka upp
staðla Alþjóðareikningsskilaráðsins
„Okkur ber samkvæmt skuldbindingum okkar
innan EES að innleiða staðla ESB, þó að fyrr
hefði verið, og næsta skref er þá að taka upp
staðla Alþjóða reikningsskilaráðsins. Ég tel mik-
ilvægt að gera það með trúverðugum hætti og við
munum að sjálfsögðu leita til færustu manna um
að gera það eins vel og hægt er,“ segir Geir.
Eitt af því sem Stefán bendir á og gagnrýnir er
reikningsskilaaðferð Kaupþings þar sem beitt
hafi verið svonefndri samlegðaraðferð í ársreikn-
ingi vegna söluhagnaðar af kaupum á Frjálsa
fjárfestingarbankanum. Á meðan verið sé að lög-
leiða þá aðferð hér á landi sé verið að afnema
hana hjá öðrum þjóðum. Hreiðar Már Sigurðs-
son, aðstoðarforstjóri Kaupþings, segir það
ósanngjarnt að benda eingöngu á Kaupþing í
þessu sambandi. Hugsanlega sé samlegðarað-
ferðin að einhverju leyti úrelt en hún sé í sam-
ræmi við íslensk lög og fleiri fyrirtæki beiti
henni.
Ríkisendurskoðandi tekur undir gagnrýni Stefáns Svavarssonar dósents
Reikningsskil í uppnámi
Fjármálaráðherra/6
EINAR Sturluson, einn kunnasti
söngvari og söngkennari landsins
um árabil, hefur nýlega gefið út
tvöfaldan geisladisk með söng sín-
um frá fyrri árum. Einar er tæp-
lega 86 ára, en segir að þótt hann
beri ekki æskuna utan á sér, sé hún
öll þarna innvortis.
Hann fór ungur út í heim, nam
söng og starfaði við óperuhús á
Norðurlöndunum, en varð að hætta
að syngja vegna ofnæmissjúkdóms
sem hrjáði hann á þeim árum. Hann
hefur starfað á Elliheimilinu Grund
í nærri hálfa öld, bæði sem sjúkra-
þjálfari og ekki síður sem eins kon-
ar skemmtikraftur. „Ég skemmti
fólki hér með lygasögum og söng“,
segir hann og segist ekkert á því að
hætta á Grund. „Ef ég hætti verð ég
bara gamall og latur og hugmynda-
flugið hverfur.“
Morgunblaðið/Sverrir
Einar Sturluson rabbar við Krist-
björgu Einarsdóttur á Grund.
Á níræðis-
aldri og gefur
út geisladisk
Æskan er þarna öll/30
FASTEIGNAFÉLAGI Hafnar-
fjarðar hefur verið falið að hefja þeg-
ar undirbúning að hönnun og öðrum
nauðsynlegum verkþáttum svo hægt
sé að flýta útboði framkvæmda í
bæjarfélaginu. Heildarkostnaður
vegna framkvæmdanna er áætlaður
um 1.000 milljónir króna.
Meðal annars er stefnt að því að
byggja nýjan sex deilda leikskóla í
Áslandi, byggja kennslusundlaug,
einsetja Hvaleyrarskóla og stækka
Flensborgarskóla. Stefnt er að því
að framkvæmdir geti hafist á síðari
hluta þessa árs ef hagstæð tilboð fást
í þær. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
kynnti hugmyndir þess efnis á fundi
bæjarráðs í gær en afgreiðslu máls-
ins var frestað.
Flýtifram-
kvæmdir
fyrir milljarð
Munu skapa/25
♦ ♦ ♦
RÍKISSJÓÐUR mun væntanlega
fá rúma tvo milljarða króna í arð-
greiðslu vegna hlutabréfaeignar
sinnar í Landssíma Íslands hf.
Stjórn félagsins hefur samþykkt
að leggja til við aðalfund að 30%
arður greiðist til hluthafa, en það
mun leiða til þess að 2.110 millj-
ónir verði greiddar í arð. Ríkið á
um 99% hlut í félaginu. Árið áður
var greiddur 12% arður til hlut-
hafa, eða samtals 844 milljónir
króna.
Sterk staða krónunnar réð
mestu um aukinn hagnað
Aðalfundur félagsins verður
haldinn 26. mars næstkomandi.
Hagnaður Símans á síðasta ári
nam 2.161 milljón króna eftir
skatta. Árið áður var hagnaðurinn
1.038 milljónir. Arðsemi eigin fjár
var 14,6% en var 7,5% árið 2001.
Í tilkynningu frá Símanum segir
að sterk staða krónunnar hafi
mest að segja um aukinn hagnað
félagsins. Afkoman sé í samræmi
við áætlanir og ekkert bendi til
annars en að rekstur þessa árs
verði einnig í samræmi við áætl-
anir.
Hagnaður Símans tæpir 2,2 milljarðar króna
Ríkið fær rúma 2 milljarða í arð
Hagnaðurinn/20
HAGNAÐUR Kaupþings hefði
orðið 1.026 milljónum króna
minni hefði félagið farið að
sænskri reikningsskilavenju og
eignfært viðskiptavild við kaup
á Frjálsa fjárfestingarbankan-
um. Hagnaður vegna sölu fé-
lagsins á Frjálsa til Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis hefði
lækkað sem nemur 860 milljón-
um króna.
Í ársreikningi Kaupþings
banka, undir liðnum „önnur
mál“ segir: „Hefði sænskri
reikningsskilavenju verið beitt
við færslu á sölu á eignarhlut í
Frjálsa fjárfestingarbankanum
hf. hefði söluhagnaður verið
860 millj. kr. lægri þar sem
færð hefði verið viðskiptavild
að fjárhæð 905 millj. kr. við
kaup á bankanum.“
Þá segir að eigið fé í árs-
reikningi 31. desember 2002
hefði verið hærra um 1.410
milljónir króna, vegna eigna-
færslu viðskiptavildar af kaup-
um á Sofi Financial Services
Group, hefði sænskri reikn-
ingsskilavenju verið beitt við
gerð ársreikningsins. Hagnað-
ur Kaupþings á árinu 2002
hefði reiknast 2.049 milljónir
króna, í stað 3.074 milljóna,
hefði hinni sænsku venju verið
beitt við reikningsskil. Þar
hefði munað fyrrnefndum 860
milljónum og afskrift viðskipta-
vildar upp á 166 milljónir að
auki.
Kaupþing banki
Hagnaður
milljarði
lægri með
sænskri
aðferð