Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Sýnd kl. 9. B. i. 16
SV MBL
HK DV
HJ MBL
SG Rás 2
Radio X
Kvikmyndir.com
ÓHT RÁS 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 14.
3Besti leikari íaðalhlutverkiAdrien Brody BestileikstjóriRomanPolanski Bestahandrit
ÓSKARSVERÐLAUN
Sýnd kl. 5.50 og 8. Sýnd kl. 10.10.
HL MBL
Gæti
hinn
rangi
verið
hinn
rétti?
Óskarsverðlaun:
Besti leikari í
aukahlutverki
Chris Cooper
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV
RadíóX
1/2 Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.05.
SG DV
Yndislega svört kómedía
frá meistara Kaurismaki.
Einstök kvikmynd sem
hefur heillað áhorfendur
jafnt sem gagnrýnendur,
um heim allan, og sópað
til sín verðlaunum.
i l rt í
fr i t r ri i.
i t i
f r ill rf r
j f t r r,
i ll ,
til í r l .
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 16.
Kvikmyndir.is
1/2
sv mbl
Kvikmyndir.isi ir.i
FRÁ LEIKSTJÓRA “ROMEO MUST DIE” OG “EXIT WOUNDS”
INNIHELDUR FRÁBÆRA TÓNLIST MEÐ DMX, EMINEM OG 50 CENT
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10. B. I. 16.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
SV MBL
Radíó X
SG DV
SG DV
ÞÆR eru einungis þrjár myndirnar
sem út koma á leigumyndbandi þessa
vikuna en allar eru þær þó stórmerki-
legar, hver á sinn hátt.
Fyrsta skal nefna Skyndimyndir,
margrómaðan spennutrylli, með Rob-
in Williams á býsna óvenjulegum
slóðum í hlutverki geðtruflaðs starfs-
manns í ljósmyndaframköllun í stór-
markaði. Hann tekur ástfóstri við
fjölskyldu eina sem reglulega lætur
framkalla myndir hjá honum, fer al-
gjörlega yfir strikið og tekur að of-
sækja þau, vitanlega með skelfilegum
afleiðingum. Eftir vægast sagt brokk-
geng ár, þar sem hann gekk næstum
af bíógestum dauðum í yfirgengilega
vemmilegum rullum á borð við Patch
Adams, Jack og Bicentennial Man,
lappaði Williams hressilega uppá fer-
ilinn með frammistöðu sinni í mynd-
um síðasta árs Svefnvana (Insomnia)
en þó sérstaklega þessari, þar sem
hann býr til hreint óhugnanlega per-
sónu.
Einu sinni var í Miðlöndum kemur
út sama dag og Skyndimyndir eða á
fimmtudag, en þar fer ein af þessum
óborganlegu bresku gamanmyndum,
sem segja sögu af alvöru fólki sem
glímir við alvöru vandamál. Í mynd-
inni leika aðalhlutverk Robert Car-
lyle, Rhys Ifans og Shirley Hender-
son en þau eru meðal fremstu leikara
Breta um þessar mundir.
Síðast en ekki síst kemur út á
fimmtudaginn danska myndin Veröld
Monu (Monas Verden). Þetta er róm-
antísk gamanmynd sem sver sig svo-
lítið í ætt við Hinn eina sanna (Den
eneste ene) og aðrar danskar gam-
anmyndir, um alvöru fólk sem glímir
við alvöru vandamál ... nástaða?
Af leigumyndböndunum sem kom-
in eru út ber sérstaklega að geta þess
að íslenska myndin Maður eins og ég
er komin á leigurnar og hefur skipað
sér meðal eftirsóttustu mynda, sem
kemur lítið á óvart því myndin er fín.
Enginn venju-
legur Williams
! "#
! "#
$
! "#
$
! "#
! "#
! "#
! "#
! "#
! "#
$
! "#
! "#
! "# %
%
%
&
&
%
%
%
%
&
&
%
&
&
&
%
%
&
&
%
!!!
"
#
$
%
&
'(
)
*+,
0
' .-*1 0
$ )
*+,
)
*+,
*.-4
56''
Ekki alveg með öllum mjalla: Robin
Williams í Skyndimyndum.
skarpi@mbl.is
Tilraunin/Das Experiment
Kraftmikil og áhugaverð þýsk kvik-
mynd sem gerist á hálfum mánuði í
fangelsi. Fínir leikarar skapa trú-
verðugar persónur en hegðan þeirra
varpar fram krefjandi spurningum
um dýrseðlið í manninum. (H.L.)
Tákn/Signs
Væntingar til leikstjórans M. Night
Shyamalan eru miklar, en hér fatast
honum flugið. Umgjörðin er vönduð
en fyrirsjáanleiki og ósamræmi
setja mark sitt á sálfræðina í sög-
unni. (H.J.)
Lilo og Stitch
Skemmtileg Disney-mynd þar sem
kveður við nýjan tón úr smiðju
þeirri; hvað varðar teikningu, lita-
notkun og efnistök. (H.L.)
Leiðin til Perdition/The Road to
Perdition
Sláandi glæpasaga frá kreppuár-
unum, jafnframt einstætt augna-
konfekt. Óskarsverðlaunatilnefn-
ingar á færibandi en útlitið ber
innihaldið ofurliði. (S.V.)
Maður eins og ég
Róbert Douglas nálgast raunveru-
leikann (miðað við Drauminn) í
gráglettinni mynd um brösulegt
ástalíf ráðvillts svartsýnismanns.
Dálítið gloppótt en góð afþreying
með Þorstein Guðmundsson fremst-
an í fínum leikhópi. (S.V.)
Kaffivagninn/Halbe treppe/Grill
Point
Vel leikin og raunsæ þýsk mynd um
tvenn hjón sem neyðast til að endur-
skoða líf sitt þegar framhjáhald
kemur upp. Skemmtileg, áhrifarík
og kemur á óvart. (H.L.)
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn
Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
LEIKKONAN Bo
Derek, sem gerði
garðinn frægan í
myndinni 10, er
flutt inn til leik-
arans Johns Cor-
betts sem m.a.
hefur leikið í
myndinni Stóra,
gríska brúðkaupið
mitt (My Big Fat Greek Wedding) og
sjónvarpsþáttunum Beðmálum í
borginni, þar sem hann lék hinn
handlagna Aiden. Derek, sem er 46
ára, er sögð hafa flutt inn á heimili
Corbetts, sem er sex árum yngri, eft-
ir árs samband og segja nágrannar
þeirra hamingjuna geisla af þeim …
Þrjú lög á væntanlegri plötu Ma-
donnu, American Life, eru tileinkuð
ástinni í lífi hennar, eiginmanninum
Guy Ritchie. Lögin „Nothing Fails“,
„Intervention“ og „X-Static Process“
fjalla um hjónalíf poppdrottning-
arinnar og þessa breska leikstjóra.
„Sönn ást kostar vinnu og stundum
verður maður fyrir vonbrigðum. En
vonin er alltaf til staðar. Ef maður er
ástfanginn, þá þraukar maður sama
hvað. Ég get rifist við manninn minn
og verið virkilega fúl út í hann en það
leysist að lokum því ég trúi á sanna
ást og samband okkar. Lögin end-
urspegla þessar tilfinningar,“ sagði
Madonna … Britney Spears og
Justin Timberlake áttu leynilegan
ástarfund á næturklúbbnum White
Lotus í Hollywood um síðustu helgi.
„Britney og Justin komu saman á
staðinn og eyddu kvöldinu úti í horni
að kjafta. Það leit út fyrir að þau
skemmtu sér vel. Þau fóru saman um
klukkan tvö um nóttina og keyrðu í
áttina að húsi Britney,“ upplýsti gest-
ur staðarins. Framhald síðar því sag-
an af ástarmálum þeirra virðist vera
endalaus. Eru þau eða eru þau ekki
saman?
…Kvikmyndagerðarmaðurinn Mich-
ael Moore segist
hafa verið á báð-
um áttum um það
hvort hann ætti að
gera Ósk-
arsverðlaunaræðu
sína að pólitískri
yfirlýsingu. „Það
hvarflaði að mér
að það væri auð-
veldast að drekka í mig ástúðina,“
sagði Moore í ávarpi sem hann flutti í
Rochester-háskóla á miðvikudag en
ræða hans á Óskarsverðlaunahátíð-
inni hefur fengið mjög blendin við-
brögð. „Ég hefði getað riðið mínum
háa hesti út úr salnum og yfir í veislu
Vanity Fair en það var önnur rödd
sem sagði: „Nei, þú berð ábyrgð. Það
er fólk sem er að deyja og það deyr í
þínu nafni,“ sagði hann.
Moore, sem hlaut Óskarsverðlaunin
fyrir heimildarmyndina Í keilu fyrir
Columbine (Bowling for Columbine)
sem fjallar um byssueign og ofbeldi í
Bandaríkjunum, sagði m.a. í ræðu
sinni: „Við erum andvíg þessu stríði,
herra Bush. Skammastu þín, herra
Bush. Skammastu
þín.“
…Kylie Minogue
hefur látið í ljós
sterka löngun sína
til að eignast barn.
Ástralska söng-
konan sem sögð er
vera yfir sig ást-
fangin af franska
leikaranum Olivier Martinez, heyrð-
ist segja við Jade Jagger á Chateau
Marmont hótelinu í Los Angeles: „Ó,
mig langar svo að eignast barn“, um
leið og hún strauk hendinni í gegnum
hár unnustans. Segir frænka Oliviers
að hann vilji giftast Kylie …Sonur
Mick Jagger og dóttir Keith Rich-
ards eru byrjuð saman á föstu. Roll-
ing Stones afkvæmin James Jagger,
17 ára, og Alexandra Richards, 16
ára, hafa oft hist í gegnum foreldra
sína, en urðu skotin eftir að hafa
daðrað við fyrirsætustörf hjá Tommy
Hilfiger fyrr á árinu. Keith Richards
er víst ekkert of hrifinn af samband-
inu, enda veit hann hversu mikill flag-
ari Mick Jagger er og sjaldan fellur
eplið langt frá eikinni …Lögfræð-
ingur frá New York heldur því fram
að hugmyndin að gamanmyndinni
vinsælu Allt að verða vitlaust (Bring-
ing Down The House) sé stolin frá sér
og hefur höfðað mál gegn aðstand-
endum hennar. Marie Flaherty segir
að handrit sem hún skrifaði fyrir all-
mörgum árum og kallaði „Amoral
Dilemma“ sé með nánast sama sögu-
þræði og gamanmyndin með Steve
Martin og Queen Latifah, en hún
leikur fanga sem fellur fyrir lögfræð-
ingi, leikinn af Martin, eftir samræð-
ur þeirra á Netinu. Flaherty vill
meina að lögfræðingur sinn, George
N. Tobia yngri, hafi stolið hugmynd-
inni en hún lét hann fá handritið árið
1999, með það fyrir augum að hann
kæmi því á framfæri. Ári síðar selur
lögfræðingur hennar sitt eigið hand-
rit til Hollwood sem hann kallaði
„Jailbabe.com“, handrit sem síðar
varð að myndinni Bringing Down
The House. Tobia segir þetta þvætt-
ing því handrit skjólstæðings síns
hafi verið drama á meðan það sem
hann seldi sé handrit að gamanmynd.
FÓLK Ífréttum
Fermingargjafir
Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12