Morgunblaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝ kynslóð gervitunglamynda , sem hafa geysimikla greinihæfni, munu hafa mikil og jákvæð áhrif á náttúrurannsóknir og kortagerð á Íslandi í framtíðinni að sögn dr. Kolbeins Árnasonar, sérfræðings hjá Landmælingum. Um er að ræða svokallaðar SPOT5 myndir sem hafa greinihæfni allt að 2,5 metrum og getur hver mynd náð yfir 3.600 ferkílómetra svæði. Að sögn Kolbeins eru myndirnar mjög nákvæmar og greina þær vegi, hús, skurði, ár og læki svo eitthvað sé nefnt. Hann segir mynd- irnar afar heppilegar til þess að nota við flokkun á yfirborði lands, hvort sem það er gróið eða ógróið, þær séu fjölrása, innihaldi inn- rauðar mælirásir og greini því það sem mannsaugað fær ekki greint. Landmælingar Íslands keyptu í fyrrasumar í samvinnu við Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, Náttúrufræðistofnun, Landgræðsl- una og Suðurlandsskóga nokkrar SPOT5 myndir af ýmsum svæðum á Íslandi. Að sögn Kolbeins verða þær notaðar til að endurnýja upp- lýsingar í stafrænum kortagrunni sem verið er að vinna að. „Þar verða manngerðir hlutir, einsog vegir og önnur mannvirki, upp- færðir auk þess sem vatnafar er at- hugað en sumt er ekki rétt á gömlu kortunum og þarf að leiðrétta,“ segir Kolbeinn. Kolbeinn segir myndirnar vera á mjög hagstæðu verði miðað við gögn af þessu tagi, en myndir af öllu Íslandi kosti á bilinu 60 til 70 milljónir króna. „Við höfum áhuga á að kaupa þessar myndir í sam- vinnu við aðra. Við myndum þá vilja að allir opinberir aðilar ættu aðgang að þessum gögnum, svo sem öll sveitarfélög, skógræktir og allar stofnanir undir hvaða ráðu- neyti sem vera skal,“ segir Kol- beinn. Kolbeinn segir myndirnar geta nýst á margvíslegan hátt, bæði við kortagerð, gróðurathuganir, til þess að meta árangur af upp- græðslu og skoða jarðvegseyðingu, við mælingu á stærð jökla og breyt- ingu á jöklum, við vatnarannsóknir, í skipulagi og mati á umhverfis- áhrifum við stórframkvæmdir svo eitthvað sé nefnt. Á myndinni hér að ofan af Reykjavíkurflugvelli, sem tekin var úr 832 km. hæð, má m.a. sjá götur og hús koma vel fram sem og göngustíga í Öskjuhlíð og flugvél á suðurenda flugvallarins. Ný kynslóð gervitunglamynda RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær að veita allt að 300 milljónir króna til neyðar- og mannúðarað- stoðar og uppbyggingarstarfs í Írak. Þar af verður 100 milljónum króna varið til neyðar- og mann- úðaraðstoðar, en allt að 200 millj- ónum til uppbyggingarstarfs í kjöl- far átakanna. Neyðar- og mannúðaraðstoðinni verður skipt þannig að Alþjóðaráð Rauða krossins fær 40 milljónir, Hjálparstarf kirkjunnar fær 10 milljónir, samtökin Barnaheill fá 7 milljónir, Flóttamannastofnun Sam- einuðu þjóðanna fær 5 milljónir, Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóð- anna fær 18 milljónir og Íslenska friðargæslan fær 20 milljónir. 300 milljónir til neyðarað- stoðar í Írak UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur ákveðið að hefja þegar í stað end- urskoðun á ákvæðum laga um arn- arstofninn til að tryggja verndun hans. Þá verður eftirlit með varpi og varpstöðum þegar í stað aukið til muna, meðal annars úr lofti, til að koma í veg fyrir truflun við varpstaði í vor. Ákvörðun þess efnis er tekin í kjölfar nýgengins dóms í Hæstarétti þar sem maður var sýknaður af því að raska hreiðurstað arna í Miðhúsa- eyjum 2000 og 2001. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segir að dómur Hæstaréttar breyti engu um að örninn sé friðað- ur. Ekki megi raska varpi, eiga við hreiðrin eða valda óþarfa truflun af öðru tagi. Ráðherra hefur farið þess á leit við Bændasamtök Íslands að þau beiti áhrifum sínum til þess að tryggja vernd stofnsins og óski eftir því við umbjóðendur sína, einkum æðarræktendur, að þeir virði lög um friðun arnarins. 50 arnarpör í landinu Að sögn Kristins Hauks Skarp- héðinssonar fuglafræðings telur arn- arstofninn um 50 pör og hefur ekki verið jafnsterkur í 100 ár. Engu að síður sé stofninn töluvert minni en hann var í lok 19. aldar þegar honum fækkaði ört. „Það má segja að það hafi verið bjartir tímar framundan hjá ernin- um og almennur velvilji gagnvart arnarstofninum þannig að þessi dómur Hæstaréttar setur menn að- eins út af sporinu. Ég held að ein- dregin afstaða ráðuneytisins muni hins vegar tryggja það að örninn fái að dafna á komandi árum,“ segir Kristinn. Morgunblaðið/Jim Smart Viðbrögð umhverfisráðuneytisins við dómi Hæstaréttar voru kynnt á blaðamannafundi í gær. Frá vinstri: Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Nátt- úrufræðistofnunar Íslands, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri. Aukið eftirlit með arnarvarpi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Mosfellsbæ til að greiða manni, sem sótti um stöðu skólastjóra í grunnskóla í bæjar- félaginu, 1,6 milljónir króna í bæt- ur og málskostnað. Fræðsluráð mælti með mannin- um í starfið og bæjarráð sam- þykkti tillöguna samhljóða en sú samþykkt var stuttu síðar aftur- kölluð og annar maður ráðinn í starfið. Dómaranum þótti sýnt að eftir að fræðslunefnd og bæjarráð ákváðu að mæla með manninum hafi komið til umræðu, á milli þeirra sem fjölluðu um umsóknina, sögusagnir um að hann tengdist barnaverndarmáli í skóla sem hann stýrði áður. Fyrir liggi að eftir að þessar sögusagnir komust á kreik hafi bæjarráð afturkallað ákvörðun sína um að ráða hann í starfið. Við aðalmeðferð málsins var þessu hafnað af hálfu bæjarins. Í dómnum segir að ekki hafi ver- ið sýnt fram á að nokkur fótur hafi verið fyrir þessum sögusögnum og að bæjaryfirvöld hafi ekki sýnt fram á að þau hafi kannað sann- leiksgildi þeirra. Þá hafi manninum ekki verið gefið tækifæri til að tala máli sínu áður en ákvörðun var tekin um að ráða hann ekki í starf- ið. Með þessu hafi bærinn brotið gegn stjórnsýslulögum og með ólögmætum hætti komið í veg fyrir að maðurinn fengi starfið. Þá hafi umfjöllun og meðferð bæjarins á umsókn mannsins verið til þess fallin að skerða starfsheiður hans sem skólastjóra og kennara. Skaðabætur vegna launataps voru ein milljón en miskabætur 300.000 krónur. Lögmaður mannsins var Guðni Á. Haraldsson hrl. en Viðar Lúð- víksson hdl. var til varnar fyrir Mosfellsbæ. Kristjana Jónsdóttir kvað upp dóminn. Mosfells- bær greiði bætur ÆTTINGJAR og vinir Ástþórs Skúlasonar sem slasaðist alvar- lega í bílslysi í Bjarngötudal, milli Rauðasands og Patreksfjarðar, hinn 28. febrúar sl. hafa hafið söfnun til styrktar honum. Ástþór er þrítugur og heldur bú að Melanesi á Rauðasandi ásamt foreldrum sínum. Hann er lamað- ur neðan við mitti og telja læknar að hann muni hér eftir verða bundinn við hjólastól. Í tilkynn- ingu frá þeim sem standa að söfn- uninni segir að slysið hafi gjör- breytt lífi þessa unga og hrausta manns. Hann geti ekki lengur gengið á fjöll eða sinnt búi sínu. Svona skellur kosti sitt, m.a. þurfi að gera breytingar á híbýlum. Stofnaður hefur verið reikning- ur á hans nafni í Sparisjóði Vest- firðinga á Patreksfirði. Reikn- ingsnúmerið er 1118-05-401445, kennitalan er 200773-4979. Söfnun vegna alvarlegs bílslyss KOSTNAÐUR við að koma aftur upp gagnagrunnum nokkurra fyrir- tækja eftir bilun í vefþjóni hjá Sím- anum hleypur á milljónum króna. Eins og greint var frá í byrjun mars tapaðist talsvert af gögnum fréttavefjarins InterSeafood.com þegar vefurinn lá niðri í um 10 daga vegna bilana í vefþjóni hjá Síman- um. Fleiri fyrirtæki lentu einnig í þessu, en Guðni Hreinsson, fram- kvæmdastjóri Íslensku vefstofunn- ar, sem sér um hýsingu fyrir þessi fyrirtæki, segir að svæðin séu komin upp aftur. Hins vegar liggi heild- arkostnaður vegna þessa ekki fyrir en ljóst sé að hann hlaupi á millj- ónum króna. „Nokkuð eyðilagðist al- veg en annað hefur verið fært inn aftur.“ Gögn töpuðust vegna bilana í vefþjóni Kostnaður hleypur á milljónum ♦ ♦ ♦ FIMM tilboð bárust í gerð snjóflóða- varnagarða sem reisa á ofan byggð- arinnar í Siglufirði. Lægsta tilboðið var frá Suðurverki hf. og hljóðaði það upp á rúmar 554 milljónir króna. Kostnaðaráætlun verkkaupa, sem eru Framkvæmdasýsla ríkisins og Siglufjarðarkaupstaður, var liðlega 536 milljónir. Tilboðin voru opnuð hjá Ríkis- kaupum í gær. Þau fyrirtæki sem buðu í verkið eru: Íslenskir aðalverk- takar, Ístak ehf., Norðurtak ehf., Héraðsverk ehf. og loks Suðurverk hf. Byggðir verða fimm þvergarðar og einn svokallaður leiðigarður. Þvergarðarnir verða samtals um 1.700 metra langir. Byggt verður í þremur áföngum, fyrsta áfanga skal lokið sumarið 2004 en þeim síðasta haustið 2006. Rík- iskaup munu nú fara yfir tilboðin. Snjóflóðavarnargarðar í Siglufirði Lægsta til- boð 8 millj- ónum yfir áætlun ♦ ♦ ♦ EINS og hálfs árs gamalt barn féll út um glugga á 2. hæð á íbúðarhúsi á Akureyri um klukkan ellefu í gær- morgun. Fallið var um þrír og hálfur metri og kom barnið niður á trépall. Barnið var flutt á Fjórðungs- sjúkrahúsið en að sögn lögreglu stóð til að útskrifa það í gærkvöldi eða í dag. Mildi þykir að ekki fór verr. Barn féll út um glugga á 2. hæð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.