Morgunblaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. AIKIDO (æ’kí’dó) er sjálfsvarnar- íþrótt sem þróuð var í Japan á fyrri hluta 20. aldar af Morihei Ueshiba. Sá hafði mikla reynslu af her- mennsku og hvers kyns bar- dagaíþróttum en vildi þróa sjálfs- vörn sem hefði það ekki að mark- miði sínu að valda ekki örkumlum eða skaða árásar- aðila. Einnig vildi hann þróa sjálfs- varnaríþrótt sem hentaði öllum, óháð kyni eða aldri, og að andrúms- loft samvinnu frekar en samkeppni, ríkti á æfingum. Af þessum sökum er aikido ein fárra sjálfsvarnaríþrótta sem ekki er keppt í. Megininntak aikido er að nota ekki eigin orku til að verjast árás. Á bak við þetta liggja nokkrar ástæð- ur, ekki síst sú að ekki er hægt að treysta því að árásaraðili sé alltaf kraftminni en sá sem verst og því á stundum gagnslítið að verjast árás með krafti. Líkamsbeiting er því lyk- ilatriði til að verjast árás, og hring- hreyfingar, þar sem kraftur árásar er fangaður og beint í aðra átt en árásaraðilinn ætlaði, eru mikið not- aðar. Vegna þess að varnaraðilinn notar ekki sinn eigin kraft er mögu- legt fyrir lítinn að hafa stóran undir, og sé árás gerð af fullum huga er árásaraðili oftar en ekki kominn í heldur óvænta aðstöðu. Aikido byggist ekki á árásum, eins og spörkum eða höggum, heldur lás- um og köstum. Lásar eru notaðir til að halda árásaraðila föstum, yfirleitt við gólf, og köst til að koma árás- araðila frá varnaraðila. Fallæfingar eru því mikilvægar í aikido og mikið æfðar. Flestir byrjendur eru hikandi þegar kemur að fallæfingum en löng reynsla sýnir að allir geta gert fall- æfingarnar, og kemur flestum á óvart hversu auðvelt er að læra að falla án þess að meiða sig eða verða fyrir óþægindum. Þetta á bæði við um rúllur, sem eru áþekkar gömlu góðu kollhnísunum, og harðari föll. Listin við að falla rétt er einföld og snýst mest um að læra að taka skell- inn úr fallinu. Flestir sem byrja í aikido eiga erf- iðast með að venja sig á að nota ekki eigin kraft þegar þeir gera varnar- tækni. Flestir eru einfaldlega of van- ir því að nota líkamann á ákveðinn hátt, sem oftar en ekki snýst um að nota vöðvaaflið til að hafa áhrif á nánasta umhverfi. Um þetta snúast líka árásir; ef engin mótstaða er við árás verður lítið úr árásinni! Árás, eins og t.d. högg í búk, gerir ráð fyrir því að mótstaða sé fyrir hendi. (Ef ekki, þá er árásin gerð af hálfum hug, og lítið afl fylgir henni.) Sé árás gerð af fullum hug og varnartækni beitt sem gefur enga slíka mótstöðu, t.d. með því hreinlega að víkja sér undan, er árásaraðilinn þegar kom- inn í ójafnvægi og varnaðaraðili not- ar tækifærið og útfærir tækni til að hafa hann undir. Þetta er því aðeins hægt sé ekkert vöðvaafl notað í út- færslu tækninnar. Líkamsbeiting, og líkamsfærsla, eru hins vegar óspart notuð. Ekki síst vegna þess að vöðvaafl er ekki notað er mikilvægt að iðkendur aikido hafi nokkra líkamsfærni. Hins vegar eru fæstir fullorðnir einstak- lingar í nútímasamfélagi ríkir af henni. Sem betur fer er það æfingin sem skapar meistarann hér eins og annars staðar. Mörg okkar sem iðka aikido voru óttalegir klunnar þegar við stigum okkar fyrstu spor en iðk- un íþróttarinnar er einmitt mjög vel til þess fallin að auka líkamsfærni. Margar fínhreyfingar, ásamt ríkri áherslu á rétta líkamsbeitingu og mikla líkamsfærslu við útfærslu varnartækna er vel til þess fallið að stuðla að slíkri uppbyggingu. Eins og fram hefur komið er ai- kido beinlínis þróað með það fyrir augum að allir geti æft saman. Ekki er óalgengt að sjá mjög breiðan ald- urshóp saman kominn á æfingu. Hjá Aikikai Reykjavík er t.d. nýlokið æf- ingabúðum með sensei Hiroaki Kobayashi, 6. dan, upprennandi stjörnu í aikido-heiminum, þar sem saman æfðu einstaklingar af báðum kynjum, frá 12 ára og fram undir fimmtugt. Þessi aldursmunur er oft mun meiri erlendis, einfaldlega vegna þess að aikido hefur verið iðk- að lengur þar. Sú samvinna sem ríkir á æfingum, ásamt þeim anda sem skapast við iðkun sjálfsvarnarlistar undir slíkum kringumstæðum, er það sem gerir aikido einstakt. http://here.is/aikido BIRGIR KRISTMANNSSON, Grettisgötu 67, 101 Reykjavík. Aikido – sjálfs- vörn án árása Eftir Birgi Kristmannsson Birgir Kristmannsson 1 Tröllríða heiminum rottur, sem trúa stáli. Vellandi er veröldin pottur á Vítisbáli. 2 Þekkjast jafnan þrælasið þeir sem hafna friði. Önnum kafnir oftast við eru að safna liði. 3 Veldur sennu túlkun tvenn. Telgdir menn úr beini geldir, renna úr sér enn eldi og brennisteini. 3 Mig skelfir hið skítuga stríð og skothríðin banvæn og hörð, og að sjá, fyrir lemstruðum lýð, ljúkast upp helvíti á jörð. ÓLAFUR Á NEÐRABÆ. Stríð Frá Ólafi á Neðrabæ:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.