Morgunblaðið - 09.04.2003, Qupperneq 15
Laugavegi 87
Sími 511 2004
www.dunogfidur.is
CHANEL dagar í
fimmtudag, föstudag og laugardag
Gréta Boða
• kynnir Chance, nýja ilminn frá Chanel
• veitir faglega ráðgjöf í kremum og litum
• óvæntur glaðningur fylgir kaupum.
BANDARÍSKUR herforingi í
Bagdad sagði í gær að mikið mann-
fall hefði orðið í liði Íraka eftir að
þeir hófu mikla gagnsókn, sendu
vopnaðar sveitir yfir Tígris-fljót til
að ráðast á bandaríska hermenn
sem hafa náð mikilvægum gatna-
mótum á sitt vald. Þrír fréttamenn
biðu bana og fjórir aðrir særðust í
gær þegar þeir urðu fyrir árásum
bandarískra hermanna í Bagdad.
Fréttamennirnir voru frá frétta-
stofunni Reuters, arabíska gervi-
hnattasjónvarpinu Al-Jazeera og
spænsku sjónvarpsstöðinni Tele-
cinco.
Hörð átök geisuðu milli banda-
rískra hermanna og vopnaðra sveita
Íraka í höfuðborginni. Bandarísku
hersveitirnar reyndu að ná á sitt
vald herflugvelli, Rashid, sem er á
hernaðarlega mikilvægu svæði milli
Tígris og Diala-árinnar í suðaust-
urhluta borgarinnar. Íraskir skrið-
drekar og brynvagnar voru eyði-
lagðir við flugvöllinn. Nái
innrásarliðið honum á sitt vald
verður auðveldara fyrir það að her-
taka fleiri svæði í Bagdad og hindra
að leiðtogar Íraka komist undan.
Bandarískir herforingjar sögðu
að um 500 Írakar hefðu tekið þátt í
gagnsókn í gærmorgun að gatna-
mótum nálægt brú yfir Tígris. Írak-
arnir beittu rifflum, sprengjum og
flugskeytum á bandarísku skrið-
drekana. Flugvélar bandamanna
gerðu árásir á Írakana og um
klukkustund eftir að átökin hófust
náðu bandarísku hersveitirnar
gatnamótunum á sitt vald aftur.
Til átaka kom einnig norðan við
Bagdad og bandarískar hersveitir
réðust á átta hæða byggingu í vest-
urhluta borgarinnar þar sem Lýð-
veldisvörðurinn, úrvalssveitir
Írakshers, var með höfuðstöðvar.
Bandarísk flugvél skaut einnig á
höll Saddams, Lýðveldishöllina, í
miðborginni. Apache-árásarþyrlum
var beitt í fyrsta sinn yfir Bagdad
og þær réðust á skotmörk í sunn-
anverðri borginni.
Alþjóðaráð Rauða krossins sagði
að vatnshreinsunarstöð í norðan-
verðri borginni hefði orðið fyrir
flugskeyti og hætta væri á vatns-
skorti í fátækrahverfinu Saddam
City en þar búa einkum shía-músl-
ímar.
Árásir á fréttamenn
fordæmdar
Myndatökumaður Reuters, Taras
Protsyuk, 35 ára Úkraínumaður,
beið bana þegar bandarískur skrið-
dreki skaut sprengikúlu inn í her-
bergi hans á 15. hæð Palestínuhót-
elsins í miðborg Bagdad. Flestir
erlendu fréttamannanna í borginni
dvelja í hótelinu.
Myndatökumaður Telecinco, Jose
Couso, 37 ára Spánverji, dó eftir að
hann var skorinn upp vegna sára
sem hann fékk í árásinni á hótelið.
Bandarískir herforingjar sögðu
að árásin hefði beinst að leyniskytt-
um sem hefðu skotið sprengjum frá
Palestínuhótelinu. Fréttamenn á
staðnum sögðust ekki hafa orðið
varir við neinar árásir frá hótelinu.
Fyrr um daginn beið jórdanskur
fréttamaður Al-Jazeera, Tareq
Ayyoub, bana þegar bygging arab-
ískra fjölmiðla varð fyrir loftárás.
Annar myndatökumaður særðist í
árásinni.
Að minnsta kosti tíu erlendir
fréttamenn hafa látið lífið í árásum
innrásarliðsins eða Íraka frá því að
stríðið hófst 20. mars. Aidan White,
framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka
blaðamanna, IFJ, fordæmdi árás-
irnar og sagði að Írakar og her-
menn bandamanna kynnu að hafa
gerst sekir um stríðsglæpi með því
að skjóta á fréttamenn í Bagdad.
Einn fréttamanna Al-Jazeera
sagði að Bandaríkjamenn hefðu
„augljóslega“ ráðist á bygginguna
af ásettu ráði þar sem hún hefði
orðið fyrir tveimur flugskeytum,
ekki einu, og um svipað leyti hefði
verið gerð árás á skrifstofu sjón-
varpsmanna frá Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum, á vegum Abu
Dhabi TV. Markmiðið með árásun-
um hefði verið að þagga niður í fjöl-
miðlamönnum sem væru vitni að
stríðsglæpum gegn írösku þjóðinni.
Nabil Khouri, talsmaður banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins í
Katar, neitaði þessu og sagði að
árásin á skrifstofu Al-Jazeera hefði
verið gerð fyrir mistök. Bandaríska
herstjórnin sagði síðar að Írakar
hefðu notað bygginguna til árása á
innrásarliðið.
Skrifstofa Al-Jazeera er á vest-
urbakka Tígris-fljóts, á sömu götu
og upplýsingaráðuneytið og forseta-
höll Saddams. Palestínuhótelið er
hins vegar á austurbakkanum,
gegnt upplýsingaráðuneytinu og
fleiri opinberum byggingum. Samia
Nakhoul, svæðisstjóri Reuters, og
tveir aðrir starfsmenn fréttastof-
unnar særðust, breskur tæknimað-
ur og íraskur ljósmyndari.
„Þessi atburður vekur spurning-
ar um dómgreind bandarísku her-
mannanna sem hafa alltaf vitað að
hótelið er aðalbækistöð nær allra
erlendu fréttamannanna í Bagdad,“
sagði Geert Linnebank, aðalritstjóri
Reuters.
Bandaríski ofurstinn David Perk-
ins sagði að eftir árásina í gær
hefðu hermennirnir í Bagdad fengið
fyrirmæli að skjóta ekki á Palest-
ínuhótelið „jafnvel þótt skotið væri
á þá frá byggingunni“.
„Með því að gera þessi svæði að
vígvöllum stofnar Saddam lífi þessa
fólks í hættu,“ sagði bandaríski
undirhershöfðinginn Vincent Bro-
oks í stjórnstöð Bandaríkjahers í
Katar.
!!
"
#$%#%
&'
"
"
('
)
)
+'
,
-'
. * / 0'
# /
! " #$ &''( #
)
*
$ +(
-
&
0
1/
'
# +
,
-./
Mikið mannfall í gagn-
sókn Íraka í Bagdad
Þrír fréttamenn falla í árás bandamanna á hótel og skrifstofu Al-Jazeera
Bagdad. AP, AFP.
Reuters
Skipulagsráðuneytið íraska í Bagdad var meðal skotmarka Bandaríkjahers í loftárásum í gærmorgun.
BANDARÍSKAR hersveitir hafa
ekki enn fundið bönnuð eiturefni í
Írak svo óumdeilt sé. Þetta sagði
háttsettur fulltrúi Bandaríkjahers í
Washington í gær.
Í fyrradag sögðu Bandaríkjamenn
að ýmislegt benti til að efni, sem
fundust nálægt írösku borginni
Karbala, væru blanda bannaðra efna,
svo sem banvænt taugagas og eitur-
efni sem notuð hafa verið í efnavopn.
Stanley McChrystal, undirhershöfð-
ingi, sagði hins vegar í gær að rann-
sóknir hefðu ekki skorið úr um hvaða
efni væri um að ræða. Engar „harðar
sannanir“ væru fyrir því að um eitur-
efni hefði verið að ræða. Hins vegar
ættu eftir að fara fram nákvæmari
rannsóknir á efnunum.
McChrystal sagðist heldur ekki
hafa upplýsingar handbærar sem
staðfestu fregnir um að fundist hefðu
20 flugskeyti með sprengihleðslum
sem talin voru innihalda sarín og
sinnepsgas. „Ég hef ekkert séð sem
getur staðfest þetta,“ sagði hann.
Engin eiturefni fundin
Washington. AFP.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 15
STRÍÐ Í ÍRAK
„Vekur spurningar um dómgreind bandarísku hermannanna“
GEERT LINNEBANK, AÐALRITSTJÓRI REUTERS