Morgunblaðið - 09.04.2003, Síða 19

Morgunblaðið - 09.04.2003, Síða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 19                                                    !                 "            #  $%        &   '     (    )   * (  !+  + + ,    * "   -      ./*0                          1   ) ! " # $  23)42567)42  "  "                !  " # ÞÓRÓLFUR Árnason, borgarstjóri, segir að tímasetning fyrirtækjanna Smáratorgs (Rúmfatalagersins), Smáragarðs (Byko) og Mötu sé mjög góð, en fyrirtækin hafa nú fengið fyr- irheit frá Reykjavíkurborg um út- hlutun leigulóðar við Vesturlandsveg og byggingarrétt. Þórólfur segir mikla uppbyggingu alls staðar í kringum svæðið þar sem lóðin er, t.d. í Blikastaða- og Hamrahlíðarlöndum, í Grafarvogi, Grafarholti og Norð- lingaholti. „Þetta er stórkostleg tímasetning og það eru engin tök á því að bíða. Þegar fyrirspurnir koma frá atvinnufyrirtækjum í borginni er reynt að leysa úr slíku hratt og örugglega.“ Björn Bjarnason, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, segir ákvörðunina svo stóra að eðlilegt sé að fá umsagnir nefnda borgarinnar áður en fyrirheit er gefið. Var tillaga þess efnis felld á fundi borgarráðs í gær. „Það er engum greiði gerður með því að vanda ekki forsendur fyr- ir ákvörðun um mikilvæg mál,“ segir Björn. „Reynslan sýnir að upp geta komið ýmis álitaefni sem erfitt er að bregðast við ef byrjað er á öfugum enda. Ef menn vilja laða fyrirtæki til Reykjavíkur á að vanda sig við allt ferlið.“ Hann segir skipulagsferlið ekki þurfa að taka langan tíma. „Við sitjum í borgarstjórn með flokkum sem lagt hafa áherslu á samræðu- stjórnmál og lýðræðislega starfs- hætti. Lýðræðið er tímafrekt en það á ekki að standa í vegi fyrir því að menn beiti lýðræðislegum vinnu- brögðum á stjórnmálavettvangi.“ Lóðin tekin frá fyrir kirkjugarð á skipulagi Þórólfur segir það segja sig sjálft að borgin eigi ekki tilbúna svo stóra lóð sem um ræðir sem bíði eftir fjár- festum. „Það þarf því að búa til svona lóð. Ég þekki það af því að sitja hin- um megin við borðið hvað það getur verið erfitt fyrir atvinnulífið að fá seint svarað sínum fyrirspurnum og ég ætla ekki að láta það líðast.“ Björn segir að Kirkjugarðar Reykjavíkur eigi fyrsta rétt að lóðinni samkvæmt skipulagi sem er í gildi. „Fram hefur komið, að þessi fyrirtæki hafi verið að banka á dyr Reykjavíkurborgar síð- an árið 1999. Síðan hefur nýtt aðal- skipulag verið unnið og samþykkt. Nú er allt í einu kúvent og þá má ekki gefa sér tíma til að fjalla um málið á faglegum og lýðræðislegum forsend- um. Ég skil ekki þörfina á þessu óða- goti og hef ekki fengið neina skýr- ingu í umræðum í borgarráði eða borgarstjórn.“ Þórólfur segir að verið sé að ræða við Kirkjugarða Reykjavíkur og að borgarverkfræðingur telji sig hafa betri lausn að framtíðarlandi fyrir kirkjugarð en á lóðinni. Þá er einnig verið að leita lausna fyrir Golfklúbb Reykjavíkur svo hægt sé að stækka golfvöllinn. „Það er ekkert annað en ákvarðanatökufælni að biðja um að fresta þessu, því þá þyrfti að bíða í að minnsta kosti 3–4 mánuði með að svara fyrirtækjunum. Viðskiptalífið er þannig að það bíður ekkert svona lengi.“ Þórólfur segir að í fyrirheitinu sé mjög skýrt kveðið á um hvernig gróðurumhverfi og öðrum frágangi á lóðinni skuli háttað og að í skipulags- skilmálum verði ákvæði um útlit og hönnun á mannvirkinu. Hann segir að vinnu við deiliskipu- lag og breytingar á aðalskipulagi eigi að vera lokið í síðasta lagi eftir 12 mánuði. Hann segir sölu byggingar- réttar á lóðinni koma til með að skila borginni 400–500 milljónum króna. Fyrirtæki fá fyrirheit um úthlutun atvinnulóðar við Vesturlandsveg Stórkostleg tímasetning að mati borgarstjóra Vanda verður forsendur segja D- og F-listi                                                 Vesturlandsvegur GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur hef- ur hug á að stækka Korpúlfsstaða- völl um níu holur í átt að Vestur- landsvegi þannig að úr verði 27 holu völlur. Til þess að svo megi verða þarf klúbburinn að fá hluta þess svæðis við Vesturlandsveg sem áður var áformað að færi und- ir kirkjugarð en fyrirætlanir nú ganga út á að fari undir stórvöru- verslunarmiðstöð þar sem BYKO, Rúmfatalagerinn og Mata yrðu til húsa. Á fundi borgarráðs í gær var áð- urnefndum fyrirtækjum veitt vil- yrði fyrir 10 hektara lóð á svoköll- uðu Stekkjarbrekkusvæði í Úlfarsárdal. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að þau áform valdi óvissu um hvar framtíðarsvæði nýs kirkjugarðs í Reykjavík verði. Sagði Sigurjón Jónasson, rekstr- arstjóri Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma, að Kirkjugarð- arnir hefðu verið búnir að fá vilyrði fyrir lóðinni í tengslum við að svæði Gufuneskirkjugarðs var minnkað. Nú er hins vegar til at- hugunar að kirkjugarðurinn fari undir hlíðar Úlfarsfells en óvissa er um það svæði, m.a. vegna eign- arhalds Mosfellsbæjar á hluta þess. Fer ekki saman við kirkjugarð Umrætt svæði í Stekkjarbrekk- um varðar þó fleiri því Golfklúbbur Reykjavíkur hefur leitað eftir því að fá leyfi til að stækka Korpúlfs- staðavöllinn í átt að Vesturlands- veginum. Að sögn Gests Jónssonar, formanns klúbbsins, gerir aðal- skipulag borgarinnar einmitt ráð fyrir því að svæðið verði nýtt til íþrótta og útivistar. „Samkvæmt drögum að skipu- lagi, sem okkur var kynnt fyrir nokkrum mánuðum, stendur til að nota hluta af því svæði sem við höf- um verið að ræða um undir at- vinnustarfsemi og jafnframt var okkur sagt að það gæti komið til álita að við fengjum annan hluta af svæðinu,“ segir hann. „Sá hluti nægir hins vegar ekki fyrir stækk- unina nema það séu gerðar ráð- stafanir til viðbótar sem við höfum verið að ræða um við borgina.“ Hann segist því vonast til að ákvörðun um úthlutun svæðisins undir verslunarmiðstöð geti farið saman við stækkun vallarins. Hins vegar hefðu hugmyndir um að svæðið fari undir kirkjugarð ekki farið saman við fyrirætlanir um stækkun golfvallarins. Gestur segir orðið nokkuð brýnt að stækka golfvöllinn. „Við höfum stundum sagt að biðlistinn hjá Golfklúbbi Reykjavíkur sé að verða einn af stærstu golfklúbbum lands- ins – við erum með um 2000 félags- menn og um síðustu áramót voru um 380 manns á biðlista.“ Til að mæta vaxandi eftirspurn hefur Golfklúbbur Reykjavíkur gert samninga við félög á lands- byggðinni. Þannig hafa félagar Golfklúbbsins getað nýtt sér golf- völlinn á Hellu í á fjórða ár og fyrir nokkrum vikum var gerður annar slíkur samningur við golfklúbbinn Leyni á Akranesi. Gestur segir að notkunin á vell- inum á Hellu hafi vaxið mikið und- anfarið en enn sé ekki komin reynsla á Akranes þar sem golf- tímabilið sé ekki hafið. „Það er hins vegar óhætt að segja að menn eru mjög sáttir við að hafa þessa kosti enda eru þetta tveir afburða vellir sem þarna bjóðast,“ segir hann. Vilja stækka Korpúlfsstaðavöll Úlfarsárdalur Morgunblaðið/Þorkell MATA ehf. hyggst opna smá- söluverslun í verslunarmiðstöð undir Úlfarsfelli en borgarráð sam- þykkti í gær að veita fyrirtækinu ásamt tveimur öðrum fyrirheit um úthlutun á atvinnulóð við Vest- urlandsveg. Mata er fjölskyldufyr- irtæki sem hingað til hefur ekki verið með smásölu en hefur ára- tuga reynslu af innflutningi á ávöxtum og grænmeti auk annarra nýlenduvara. Segir úthlutunina bera vott um mikla framsýni borgarinnar Eggert Á. Gíslason, fram- kvæmdastjóri Mötu, segir smá- söluverslun nýja vídd í rekstri fyr- irtækisins. „Við höfum um nokkurn tíma falast eftir lóð hjá Reykjavíkurborg undir stór- vörumarkað þar sem neytendum gefst tækifæri á að kaupa á einum stað mikið úrval af vörum í stórum einingum á hagkvæmu verði,“ seg- ir Eggert. „Þannig munum við með beinum hætti nýta áratuga reynslu og þekkingu á innflutningi neytendum til hagsbóta. Við teljum þetta vera mikið framfaraspor fyrir íslenska verslun og komi til með að stuðla að lækkun á matvöruverði í land- inu.“ Eggert segist fagna ákvörðun Borgarráðs að veita vilyrði til út- hlutunarinnar. „Úthlutunin ber vott um mikla framsýni hjá Reykja- víkurborg við að gefa atvinnufyr- irtækjum tækifæri á að þróa nýja tegund verslunarmiðstöðvar með áherslu á stórvöruverslanir.“ Mata hyggst opna smásölu- verslun undir Úlfarsfelli Perlunni. Opið alla daga kl. 10 -18 FASTEIGNIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.