Morgunblaðið - 09.04.2003, Page 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ var létt yfir bílstjórunum á
BSO sem í gær fögnuðu ásamt
gestum sínum 50 ára afmæli
stöðvarinnar, þeir buðu upp á
kaffi og fínasta bakkelsi og brostu
breitt í tilefni dagsins.
„Ég byrjaði 7. júlí ’55, það var á
föstudegi fyrir hádegi,“ segir
Sveinbjörn Egilsson, en ekki
fylgdi sögunni hvernig viðraði
þennan fyrsta dags Sveinbjörns í
leigubílstjórahlutverkinu en hann
á að baki einna lengstan starfs-
feril á BSO. „Ég byrjaði í maí
’55,“ segir Gústaf Oddsson eftir að
hafa sporðrennt rjómatertunni og
náði þar með örlitlu forskoti á
Sveinbjörn, en Ellert Kárason
kveðst hafa keyrt leigubíl á Ak-
ureyri samfleytt í 48 ár, „síðan í
maí og þetta er alltaf jafn-
skemmtilegt,“ segir hann.
„Þetta hefur verið mjög gaman,
ég hef greinilega ekki getað slitið
félagsskapinn við þessa kalla,“
segir Sveinbjörn og bætir við létt-
ur í bragði að hann eigi 21 ár eft-
ir. Við nánari rannsókn kemur í
ljós að hann má keyra í 18 mánuði
í viðbót, og ætlar sér að gera það.
Fyrir röskri hálfri öld voru
reknar þrjár stöðvar á Akureyri
og gerðu þær út samtals 62 bíla.
Þetta voru Litli bíll, BSA og BSO,
sem sameinuðust svo í eina fyrir
50 árum. Sveinbjörn keyrði á BSA
„og var líklega síðasti bílstjórinn
sem Kristján bílakóngur réð til
starfa á fólksbíl“. Bílunum hefur
fækkað jafnt og þétt en nú eru 22
atvinnuleyfi á BSO.
„Það er nú frekar rólegt yfir
því,“ segir Smári Ólafsson einn af
yngri mönnunum á stöðinni. Hann
segir að vegna snjóleysis hafi lítið
verið um framhaldsskólanema í
skíðaferðum í vetur, en þeir hafi
jafnan notað tækifærið og litið á
næturlífið í leiðinni. „Þessir
krakkar hafa ekki sést í vetur,“
segir hann. Þá tekur hann upp
gemsann sinn og segir: „Þetta er
versti óvinurinn.“ Næturhrafn-
arnir taki upp símann eftir
djammið og snapi sér far hjá þeim
sem eru á ferðinni.
Gömlu jaxlarnir rifja upp þær
miklu breytingar sem orðið hafa á
50 árum, það eru ekki bara veg-
irnir og bílarnir sem hafa batnað,
„heldur var enga vinnu að hafa
hérna um helgar,“ segir Elli Kára.
Þá byggðist allt upp á að keyra
fólk á sveitaböll, því ekkert var
um að vera í bænum. Það var ekið
í félagsheimilin í Eyjafirð og jafn-
vel í Húnaver og Skúlagarð. Þá
fór allt kvöldið og nóttin í einn
túr. „Svo var vinsælt að skella sér
í Brúarlund í Vaglaskógi yfir sum-
arið, það var alltaf hörkustuð
þar,“ segir Sveinbjörn. Þá var gott
að gera á síldarárunum og ekki
óalgengt að sjómenn lyftu sér upp
fyrir vertíðir og skelltu sér suður
til Reykjavíkur á leigubíl og voru
jafnvel í viku. „Þetta gat bara ver-
ið skemmtilegt,“ segir Elli.
Morgunblaðið/Kristján
Leigubílstjórarnir á BSO voru í hátíðarskapi í gær og buðu gestum og gangandi til kaffisamsætis í tilefni afmælisins.
Bílstjórar á BSO fagna 50 ára afmæli
Alltaf jafnskemmtilegt
MENNINGARMÁLANEFND
hefur ákveðið að beita nýrri að-
ferð við val á bæjarlistamanni
Akureyrar sem hlýtur starfs-
laun menningarsjóðs. Í stað
þess að nefndin velji listamann-
inn eftir ábendingum verður
auglýst eftir umsóknum. Raun-
ar mun þessi aðferð hafa verið
viðhöfð þegar starfslaunum var
úthlutað í fyrsta sinn en ekki
síðan þá.
Tímabilið sem um ræðir að
þessu sinni er 1. júní 2003 til 31.
maí 2004 og verður starfslaun-
um úthlutað til tveggja lista-
manna til 9 mánaða annars veg-
ar og 3 mánaða hins vegar.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Akureyrarbæjar. Ætlast er til
þess að viðkomandi listamaður
helgi sig list sinni eða einstökum
verkefnum á vettvangi hennar á
starfslaunatímanum. Umsækj-
endur þurfa að skila, ásamt um-
sókn, ítarlegum upplýsingum
um listferil sinn og greinargóð-
um upplýsingum um hvernig
starfslaunatíminn skuli notaður.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl
nk.
Bæjarlistamaður
Akureyrar
Auglýst
eftir um-
sóknum
ÍBÚAR við Goðabyggð og Ásabyggð
á Akureyri hafa kvartað yfir því til
Heilbrigðiseftirlits Norðurlands
eystra að íbúi við Goðabyggð skuli
bera æti fyrir fugla í garði sínum.
Íbúar í nágrenninu hafa orðið fyrir
miklu ónæði og þá ekki síst á nótt-
unni, þar sem bæði hrafnar og mávar
hafa sótt í ætið með tilheyrandi
gauragangi og óþrifnaði. Einnig hafa
smáfuglar sótt í ætið.
Valdimar Brynjólfsson heilbrigð-
isfulltrúi sagði að þrátt fyrir að rætt
hefði verið við íbúann og hann lofað
úrbótum hefði verið minna um efnd-
ir. Hann sagði að heilbrigðiseftirlitið
hefði því með bréfi farið fram á að
umrædd lóð yrði hreinsuð. „Þetta
ferli tekur einhvern tíma en ef ekk-
ert verður að gert verðum við trú-
lega að fara í einhverjar aðgerðir.“
Valdimar sagði í sjálfu sér ekkert
að því að gefa fuglum þegar hart
væri í ári en að ekki væri þörf á því
um þessar mundir og allra síst varg-
fugli. Hann sagði að ætið í garðinum
væri greinilega ætlað stórum fuglum
og að ástandið þarna yrði enn verra
þegar hettumávurinn kæmi, ef hann
væri ekki þegar kominn.
Morgunblaðið/Kristján
Vargfugl sækir mjög í æti á lóðinni við Goðabyggð og ekki síst á nóttunni.
Vargfuglar valda ónæði
í íbúðarbyggð
Akureyrarbær auglýsir skipulagstillögur:
Nágrenni Glerárkirkju.
Breyting á aðalskipulagi og deiliskipulag
Brekkuskóli og nágrenni.
Deiliskipulag
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga neðangreinda tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar
1998-2018, og skv. 25. gr. sömu laga neðangreindar tillögur að deili-
skipulagi.
1A Svæði norðan og austan Glerárkirkju, breyting á aðalskipulagi
Helstu atriði tillögunnar eru að svæði milli Glerárkirkju og Bjargs
breytist úr stofnanasvæði í íbúðarsvæði fyrir einnar og tveggja
hæða rað- og fjölbýlishús, við Arnarsíðu austan kirkjulóðarinnar
komi íbúðarsvæði fyrir einnar hæðar raðhús í stað opins svæðis
og lögun íbúðarsvæðis við Lindasíðu breytist.
1B Svæði norðan og austan Glerárkirkju, deiliskipulag.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæða og opinna
svæða, sbr. 1A hér að ofan. Í tillögunni er gert ráð fyrir 9 íbúðum í
einnar hæðar raðhúsum við Arnarsíðu, 34 íbúðum í 1-2 hæða
fjölbýlis- og raðhúsum við nýja götu út úr Bugðusíðu sunnan
Bjargs og 16 íbúðum í 1-2 hæða raðhúsum við enda Lindasíðu.
2 Brekkuskóli og nágrenni, deiliskipulag
Tillagan tekur til svæðis, sem afmarkast af Skólastíg, Hrafnagils-
stræti, Þórunnarstræti, Þingvallastræti, Kaupvangsstræti og Eyrar-
landsvegi. Í henni er gert ráð fyrir viðbyggingu vestan við hús
Gagnfræðaskóla, en ekki öðrum byggingum umfram þær sem fyrir
eru á svæðinu. Gerð er grein fyrir fjölda og fyrirkomulagi bíla-
stæða, gönguleiðum, opnum svæðum og lóðarmörkum innan
skipulagssvæðisins.
Tillöguuppdrættir og önnur gögn munu liggja frammi í þjónustuanddyri
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar
auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 21. maí 2003, svo að þeir, sem þess
óska, geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar
eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/
undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16:00 mið-
vikudaginn 21. maí 2003 og skal athugasemdum skilað til Umhverfis-
deildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá, sem ekki gerir
athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests, telst vera henni
samþykkur.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Samvera
eldri borgara
verður í kirkjunni nk. fimmtudag 10. apríl kl. 15.00
Gestur fundarins er Sunna Borg leikkona og
Örn Viðar Birgisson syngur nokkur lög.
Að venju verður helgistund og léttar veitingar.
Allir velkomnir.
GLERÁRKIRKJA
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Björg Þórhallsdóttir, sópran, Annamaria Chiuri, mezzósópran
Kristján Jóhannsson, tenór, Kristinn Sigmundsson, bassi
Kór Akureyrarkirkju, Kór Langholtskirkju, Kammerkór Norðurlands
Stjórnandi:
Guðmundur Óli Gunnarsson
Forsala aðgöngumiða er hafin í Pennanum, Bókval, Akureyri
og Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, Reykjavík.
Miðaverð kr. 3.000,- Aðgangur ókeypis fyrir 20 ára og yngri
í Íþróttahöllinni á Akureyri
sunnudaginn 11. maí 2003 kl. 16:00
G. VERDI: REQUIEM
Hátíðartónleikar
Á
S
P
R
E
N
T