Morgunblaðið - 09.04.2003, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 29
Í KOSNINGABARÁTTUNNI hefur
mikið verið talað um skattamál og
kjarabætur. Stundum mætti ætla að við
stjórnmálamenn getum ákveðið kjara-
bæturnar með einföldum hætti og sá
sem lofar mestu í skattalækkunum sé
líklegastur til að bæta kjör þjóðarinnar
mest. Þannig er því ekki farið og því
mikilvægt að átta sig á samhengi hlut-
anna og hvort framundan séu aðstæður
til að bæta kjör annaðhvort með lækkun
skatta eða hækkun launa. Vonandi ger-
ist hvorutveggja og kaupmáttur haldi
áfram að vaxa á næstu árum með sama
hætti og hann hefur aukist í landinu um
33% á aðeins átta árum. Á sama tíma
hefur kaupmáttur lægstu launatekna
hækkað um 50% og lægstu bóta um yfir
40%.
Brotist út úr kyrrstöðu
Þegar Framsóknarflokkurinn kom í
ríkisstjórn árið 1995 var atvinnuleysi
mikið eða um 5% af vinnuaflinu. Hag-
vöxtur hafði verið lítill sem enginn um
nokkurra ára skeið og það ríkti kyrs-
staða í efnahagsmálum. Við lögðum
megináherslu á að rjúfa þá kyrrstöðu og
töldum eðlilegt að setja það markmið að
fjölga störfum um 12 þúsund á kjör-
tímabilinu sem framundan var. Það
tókst að rjúfa vítahring stöðnunar og
hagvöxtur hefur verið að meðaltali 3,4%
á árunum 1995 til 2002. Með þessu hef-
ur tekist að styrkja undirstöður efna-
hags- og atvinnulífs, stórminnka at-
vinnuleysi og sinna velferðamálum að
fullum krafti.
Góður grunnur lagður
Við undirbúning fjárlaga 1996 fyrst
eftir að við komum í ríkisstjórn hringdu
margar aðvörunarbjöllur, stofanir eins
og OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn vöruðu við þróun í íslensku efna-
hagslífi og bentu á mörg hættumerki. Í
aðdraganda kosninga nú hafa erlendar
stofnanir lofað íslenskt efnahagslíf og
telja að útlit sé mjög gott. Eins og jafn-
an áður verður að líta til næstu ára af
raunsæi og ábyrgð og gæta þess að gefa
ekki of miklar vonir. Við höfum lagt
góðan grunn með margvíslegum breyt-
ingum og nýjungum og það má segja að
hagvöxtur blasi við á næstu fjórum ár-
um Þetta hefur meðal annars gerst
vegna umbyltingar á fjármálamarkaði
og lækkunar tekjuskatts fyrirtæka sem
hefur aukið framleiðslu og verðmæta-
sköpun. Miklar framkvæmdir á sviði
virkjana og stóriðjumála skipta sköp-
um. Framundan er að byggja upp áliðn-
að á Austurlandi og auka álframleiðsl-
una í Hvalfirði. Með þessu hefur verið
lagður grunnur að kjarabótum almenn-
ings, en við skulum vera minnug þess að
allt er hægt að eyðileggja með verð-
bólgu og óráðsíu og háir vextir geta tek-
ið hugsanlegar kjarabætur til baka í
einu vetfangi. Skattar eru því ekki það
eina sem ræður kjörum fóks. Mest er
um vert að viðhalda stöðugleika og auka
verðmætasköpunina þannig að grund-
völlur skapist fyrir því sem gera þarf.
Lækkun skatta
Framsóknarflokkurinn telur að gott
svigrúm sé á næsta kjörtímabili til veru-
legra skattalækkana. Við viljum lækka
skattaprósentuna í 35,2 og stórhækka
ótekjutengdar barnabætur þannig að
þær verði 36.500 fyrir öll börn en helm-
ingi hærri fyrir börn að 7 ára aldri. Með
þessu er kaupmáttur fjölskyldufólks
aukinn mest og þá sérstaklega þeirra
sem eru með yngstu börnin. Að okkar
mati er afar mikilvægt að auka ráðstöf-
unartekjur þeirra sem minnst hafa.
Líklegasta leiðin til að gera það sé að
lækka skattprósentuna yfir línuna,
draga úr jaðaráhrifum í skattkerfinu og
leggja mesta áherslu á hækkun lægstu
launa í komandi kjarasamningum líkt
og gert var á árinu 1997.
Friður á vinnumarkaði
Við teljum að með þessum hætti megi
skapa aðstæður fyrir samstöðu á vinnu-
markaði og hægt sé að gera kjarasamn-
inga þar sem kaupmáttaraukning verði
studd með skattalækkunum. Í því sam-
bandi skipta kjarabætur til milli-
tekjufólks mjög miklu máli. Unga fókið
er með svokallaðar millitekjur. Það er
að stofna heimili, greiða af náms- og
húsnæðislánum og borga fyrir börnin
sín í leikskóla. Það þarf að vinna langan
vinnudag og leggja mikið á sig. Með því
að lækka skattprósentuna minnka jað-
aráhrif vegna skerðingar vaxta- og
barnabóta. Lægri skattprósenta hvetur
jafnframt til meiri atvinnuþátttöku og
dregur úr skattsvikum. Skattsvik eru
eitt alvarlegasta mein samfélagsins og
því er nauðsynlegt að líta til þeirra þeg-
ar ákvarðanir eru teknar.
Stöðugleikinn skiptir mestu
Við viljum nota svigrúm til að bæta
kjör fólks án þess að setja stöðugleik-
ann í hættu. Við viljum í reynd viðhalda
stöðugleikanum með þessum hætti. Við
vitum það af gamalli reynslu að óraun-
hæfar launahækkanir leiða til verð-
bólgu og vaxtahækkana. Við höfum
metið skattalækkanir á rúma 16 millj-
arða króna en samkvæmt upplýsingum
fjármálaráðuneytisins kostar hvert pró-
sentustig í tekjuskatti 4,2 milljarða og
hækkun persónuafsláttar um 1.000
krónur um 2,2 milljarða. Það sýnir best
hvað millitekjurnar skipta miklu máli í
skattkerfinu að hvert prósent í há-
tekjuskatti gefur aðeins 300 milljónir
króna í ríkissjóð. Út frá því geta menn
séð hvað mikið þarf að hækka skatta á
hæstu tekjum til að ná verulegri lækk-
un á þá lægstu. Ef áform Sjálfstæð-
isflokksins um skattalækkanir væru
reiknuð með sambærilegum hætti kem-
ur í ljós að þær munu kosta ríkissjóð
ekki langt frá 30 milljörðum og skatta-
lækkanir Samfylkingarinnar milli 17 og
18 milljarða. Framsóknarmenn settu
sína útreikninga fyrst fram og við höf-
um ekki breytt um skoðun þrátt fyrir
hærri boð hinna flokkanna. Við vitum að
óvarkárni í ríkisfjármálum stefnir stöð-
ugleikanum í hættu og þar viljum við
ekki taka neina áhættu.
Velferðarkerfið þarf sitt
Það er einnig ljóst að velferðarkerfið
þarf á sínu að halda og því þarf að vera
svigrúm til að sinna fleirum því að með-
alaldur þjóðarinnar fer vaxandi og fyrir
vikið fjölgar þeim sem þurfa bætur og
margvíslega aðhlynningu. Fleiri og
fleiri stunda nám – ekki aðeins þeir sem
ungir eru, heldur hefur símenntun og
fjarnám aukist til muna. Allt kallar
þetta á aukin umsvif. Það er jafnframt
ljóst að til þess að varðveita stöðugleik-
ann þarf að gæta mikils aðhalds í rík-
isfjármálum eins og meðal annars kem-
ur fram í nýrri skýrslu OECD. Þegar
Framsóknarflokkurinn kom fram með
stefnu sína í skattamálum vorum við
sakaðir um yfirboð. Framsóknarflokk-
urinn hefur verið leiðandi í þeim málum
sem mestu hafa skipt um nýja tíma í
efnahags- og atvinnumálum. Við viljum
halda áfram á sömu braut. Við viljum
skapa tækifæri til verðmætasköpunar.
Við viljum að sérhver hönd geti tekið
þátt í atvinnulífinu, við viljum skapa
ungu vel menntuðu fólki framtíð-
armöguleika. Það gerist ekki í kyrr-
stöðu eins og fyrir 1995. Það gerist að-
eins með verðmætaaukningu og
stöðugleika. Vinna, vöxtur, velferð segir
það sem segja þarf.
Kjarabætur byggjast á stöð-
ugleika og verðmætasköpun
Eftir Halldór
Ásgrímsson
„Við vitum að óvarkárni í
ríkisfjármálum stefnir stöð-
ugleikanum í hættu og þar
viljum við ekki taka neina
áhættu.“
Höfundur er utanríkisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins.
AÐ undanförnu hefur verið nokkur um-
ræða um aukinn flutningskostnað á
landsbyggðinni. Þingmenn Samfylking-
arinnar hafa haldið því fram að aukn-
inguna megi rekja til breytinga sem
gerðar hafa verið á skattkerfinu. Þessi
fullyrðing Samfylkingarþingmanna er
einfaldlega röng. Rökstuðning fyrir því
má sjá í „skýrslu nefndar um flutnings-
kostnað“ sem finna má á vef samgöngu-
ráðuneytisins og einnig í ágætri grein
eftir Einar K. Guðfinnsson, þingmann
Sjálfstæðisflokksinns, á vefsíðunni ek-
g.is. Þá hefur því verið haldið fram að
flutningskostnaður skýri mismunandi
vöruverð, en í skýrslu samgöngu-
ráðherra er greint frá því að flutnings-
kostnaður er innan við 1% af heildarsölu
stóru matvörufyrirtækjanna á Eyja-
fjarðarsvæðinu, sem sýnir að þetta
stenst að minnsta kosti ekki í tilviki stóru
keðjanna.
Þrátt fyrir þetta telja sjálfstæðismenn
að mikilvægt sé að ná niður flutnings-
kostnaði til að efla byggðirnar í landinu.
Skilvirkasta leiðin til minnkunar flutn-
ingskostnaðar er að bæta samgöngur og
ríkisstjórnin stendur nú fyrir gríðarlegu
átaki í vegagerð víðsvegar um landið,
sem miðar að því að bæta vegakerfið og
stytta flutningsleiðir þar sem því verður
við komið. Með styttri flutningsleiðum
minnkar flutningskostnaður og með
fjölgun ferða flutningabíla minnkar
kostnaður við birgðahald á landsbyggð-
inni því verslanir þurfa ekki að liggja
með jafnmiklar birgðir þegar ferðum
fjölgar.
Jarðgöngin milli Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar eru þungt lóð á þá vogarskál að
beinn innflutningur hefjist aftur til Ak-
ureyrar. Þetta er geysilega mikilvægt at-
riði. Ekki einasta mun þetta hafa var-
anleg áhrif til minnkunar
flutningskostnaðar á neysluvörum til al-
mennings á Norðurlandi, heldur mun út-
flutningskostnaður norðlenskra fyr-
irtækja einnig minnka stórlega. Þá munu
jarðgöngin hafa ýmsa aðra kosti í för
með sér sem ekki verða reiknaðir til fjár,
en með greiðari samgöngum milli Ólafs-
fjarðar og Siglufjarðar munu samvinna
og samskipti á ýmsum sviðum vaxa, sem
verður til þess að efla þessar byggðir.
Minnkun flutningskostnaðar er mikið
hagsmunamál landsbyggðarinnar. Sjálf-
stæðismenn hafa haft um það forystu að
leita leiða sem mega verða til þess að ár-
angur náist í þessu þýðingarmikla máli
og munu áfram vinna ötullega að fram-
förum á þessu sviði.
Minni flutningskostnaður
Eftir Sigríði
Ingvarsdóttur
„Skilvirkasta leiðin
til minnkunar
flutningskostnaðar
er að bæta
samgöngur …“
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
ku fjölskyldu. Samfylkingin
bent á það, að ekki gangi að
borgi langhæsta verð fyrir
vrópu. Samfylkingin heldur
ínu striki – hvort sem stutt er
osningar.
mfylkingin trú langvarandi
i fyrir bættum hag barnafjöl-
á landi. Áform Samfylking-
45 þúsund króna greiðslu fyr-
til 18 ára aldurs, óháð
dra, er í góðum samhljómi við
ning. Til viðbótar verða
vegna tekjutengdra barna-
ð umtalsvert. Vegna þessara
eknir frá fjármunir að upp-
rðar króna.
Nú koma þeir
rtektarvert að báðir rík-
kkarnir hafa nú loksins tekið
n málflutning jafnaðarmanna
og lofa m.a. að lækka matarverðið og
hækka bætur til barna. Hins vegar hafa
þeir ítrekað og aftur sýnt tillögum og
málfutningi okkar jafnaðarmanna full-
komið fálæti, þegar þingmenn Samfylk-
ingarinnar hafa viljað ræða þessi mál á
Alþingi Íslendinga. Sagt þau mál vera í
prýðulegu standi. Það er því vissulega
fagnaðarefni, að augu þeirra opnist nú
fyrir þeirri staðreynd að íslenskar fjöl-
skyldur hafa ekki verið í forgangi á liðn-
um kjörtímabilum, eins og Samfylkingin
hefur bent á og stóraukin skuldasöfnun
heimilanna ber órækt vitni um. En kú-
vending er það hjá stjórnarflokkunum.
Nú koma þeir loksins.
Ég hvet kjósendur til að kynna sér ná-
kvæmlega kosningastefnuskrá flokkanna
fyrir þessar kosningar. Og ekki síður rifja
það upp hverju lofað var fyrir fjórum ár-
um og hvað var efnt hjá þeim flokkum
sem hafa farið með stjórn landsmála síð-
an.
Samfylkingin er flokkur sem vill að orð
standi. Loforð eru loforð. Jafnaðarmenn
hrökklast ekki úr einu víginu í annað,
heldur halda sínu striki, þar sem raun-
verulegt frelsi fólks er virt, traust og
ábyrgð eru í öndvegi og sóknarhugur og
jákvæð framtíðarsýn ráða för.
nu striki
Höfundur er alþingismaður og oddviti
Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
mstundastarfi og auka þar
eirra við það samfélag sem
sem veldur vandræðum við
nnslu og aðlögun erlendra
að málefni innflytjenda eða ný-
á einni hendi heldur koma
yti að málinu, þ.e. ráðuneyti fé-
a og heilbrigðismála. Því er
refni að Framsóknarflokk-
áherslu á að stefnumótun og
ýn í málum nýbúa verði færð í
áðuneytið.
r hingað til lands af ýmsum
að má þó gróflega skipta
þrjá flokka. Um er að ræða
fólk sem kemur hingað í leit að
tlendinga sem koma hingað
sfólk eða makar Íslendinga.
úr starfi er sú að þeim sem
og tengjast hér fjöl-
um vegnar langbest. Þeir ná
m við samfélagið og tökum á
fólk sem hingað kemur í at-
verst sett. Það tengist oft á tíð-
hátt innlendum fjölskyldum,
litla menntun, ná litlum tökum
nu og þar með verður virk þátt-
aginu lítil. Flóttamenn fá sér-
stakan stuðning, þeir upplifa sig vel-
komna til landsins og fleiri en færri eru
tilbúnir að aðstoða þá fyrstu árin.
Komum í veg fyrir að
fordómar festi rætur
Ef við tökum á móti nýjum íbúum verð-
um við að veita þeim þá aðstoð sem til þarf
því ef við gerum það ekki sitjum við uppi
með vandamál sem erfitt getur orðið að
leysa. Framsóknarflokkurinn telur nauð-
synlegt að stjórnvöld standi fyrir upp-
lýstri umræðu um málefni nýrra íbúa á Ís-
landi og reyni þannig að koma í veg fyrir
að fordómar festi hér rætur. Framsókn-
arflokkurinn leggur á það áherslu að
stjórnvöld standi að fræðslu fyrir nýbúa
um réttindi þeirra og skyldur. Einnig
leggur Framsóknarflokkur áherslu á að
það sé skylda stjórnvalda að fræða nýja
íbúa um íslenskt þjóðfélag og sérstaka
kennslu í íslensku fyrir útlendinga.
Reynslan sýnir okkur að hluti af þeim
sem hingað koma festir hér rætur og ósk-
ar þess að fá hér búsetuleyfi eða rík-
isborgararétt. Þorri þeirra útlendinga
sem hingað koma er duglegt fólk sem vill
búa sér og sínum betri og tryggari fram-
tíð.
Að setjast að í nýju landi, læra nýtt
tungumál, siði og venjur er erfitt og ögr-
andi. Það sýnir styrk hvers þjóðfélags að
taka vel á móti nýjum íbúum. Framsókn-
arflokkurinn vill með heildstæðri og
markvissri stefnu í málefnum nýbúa auð-
velda bæði börnum og fullorðnum aðlög-
un að íslensku samfélagi.
m íbúum
æra
ur er
styrk
l á
Höfundur skipar 5. sæti
Framsóknarflokksins í Reykjavík norður.
ir njóti nálægðar sinnar við
ið og grunnslóðaveiðar fái
þess að vaxa. Hver þekkir
frá Ísafirði og Sandgerði?
ur burt og byggðunum
er brýnt að tryggja rétt
yggðanna til að nýta miðin
ðun fiskveiðikerfisins. Ekk-
það að einn maður með
geti kippt tilverugrunni
byggðarlagi einsog margoft
hefur gerst. Eyðibyggðastefnu kvótakerf-
isins verður að linna og byggðirnar að fá
aftur réttinn til að nýta miðin.
Jafnræði við nýtingu
Fyrningarleiðin tryggir ekki aðeins að
allir standi jafnfætis gagnvart réttinum
til að nýta miðin, heldur líka að þeir sem
fá að nýta auðlindina greiða fyrir það
sanngjarnt gjald. Frá því að frjálst fram-
sal veiðiheimilda var leyft undir lok ní-
unda áratugarins hefur mjög há inn-
byrðis gjaldtaka átt sér stað innan
greinarinnar. Fokdýrt hefur verið að
kaupa sig inn í greinina eða leigja heim-
ildir af „eigendum þeirra“. Mikið eðli-
legra er að hóflegt leigugjald sé greitt til
réttra eigenda auðlindarinnar heldur en
það sem nú tíðkast.
Höfundur er frambjóðandi
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.