Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 9
Glæsilegur
sumarfatnaður
Stærðir 36-52
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Hvítar buxnadragtir
Síð pils í ljósum og dökkum litum
Blússur, peysur og bolir 15% afsláttur
Stuttkápur og jakkar
Mikið úrval af buxum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Laugavegi 63, sími 551 4422
BASIC
Útskriftardragtir
Sparidragtir
4 snið af jökkum
3 snið af pilsum
3 snið af buxum
4 litir
Stærðir 36-48
Persónuleg
þjónusta
25%
afsláttur
af allri leirvöru í dag
kosningadag
Gólfker
Blómapottar
Vasar
Veggpottar
Kertastjakar
Leirskálar
Laugavegi 63
sími 5512040
Opið kl. 11-16.
STRÆTISVAGNASTJÓRI var í
Hæstarétti sakfelldur fyrir hegn-
ingar- og umferðarlagabrot með því
að aka strætisvagni gegn rauðu
ljósi en á gatnamótunum lenti hann
í hörðum árekstri við fólksbíl.
Farþegi í fólksbílnum slasaðist
alvarlega og ökumaðurinn hlaut
einnig áverka. Báðir ökumennirnir
sögðust hafa ekið yfir gatnamótin á
móti gulu ljósi. Strætisvagnsstjór-
inn hélt því fram að hann hafi átt
eftir um 10 metra að umferðarljós-
unum þegar gult ljós kviknaði og
hann hafi ekið yfir gatnamótin á
45–50 km hraða. Strætisvagnastjóri
sem varð vitni að árekstrinum sagði
að rautt ljós hafi logað á aksturs-
stefnu bifreiðarinnar en grænt og
gult hjá strætisvagninum. Þrjú
vitni báru á hinn bóginn að rautt
ljós hafi logað þegar strætisvagn-
inum var ekið út á gatnamótin.
Engin tilraun hafi verið gerð til að
stöðva vagninn en honum hafi verið
ekið á mikilli ferð.
Dómnum þótti framburður þre-
menninganna trúverðugur í alla
staði og taldi að áreksturinn yrði að
mestu rakinn til gáleysislegrar
háttsemi strætisvagnastjórans.
Hann var því dæmdur til að greiða
80.000 krónur í sekt en var ekki
sviptur ökuréttindum eins og rík-
issaksóknari krafðist. Hæstaréttar-
dómararnir Garðar Gíslason, Árni
Kolbeinsson og Gunnlaugur Claes-
sen kváðu upp dóminn. Sigríður J.
Friðjónsdóttir saksóknari sótti mál-
ið en Guðni Á. Haraldsson hrl. var
til varnar.
Strætis-
vagnastjóri
olli árekstri
með gáleysi
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
ríkið og þrjá lögreglumennn af
skaðabótakröfu manns sem hand-
leggsbrotnaði í átökum inni í lög-
reglubíl í október 1998. Þar með
sneri Hæstiréttur við dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur sem hafði
dæmt manninum um 5,7 milljónir í
bætur.
Eftir að maðurinn var handtek-
inn og færður inn í lögreglubíl
báðu lögreglumennirnir hann um
að sýna innihald vasa sinna af ör-
yggisátæðum en maðurinn var í
annarlegu ástandi af völdum am-
fetamínneyslu. Samkvæmt fram-
burði lögreglumannanna brást
hann ókvæða við þessari bón, bjóst
til að rísa á fætur og hrópaði að
þeim að þeir yrðu að handjárna
hann ef þeir ætluðu sér að leita á
honum. Í dómnum segir að þeim
hafi verið rétt og skylt að taka
manninn föstum tökum. Ekki yrði
séð að þeir hafi beitt ógætni eða
gengið harðar fram en nauðsyn-
legt var þó svo illa hafi til tekist að
hann slasaðist í átökunum. Hann
hlaut slæmt handleggsbrot og er
örorka hans metin 35%. Málið
dæmdu hæstaréttardómararnir
Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur
Henrysson, Hrafn Bragason, Ingi-
björg Benediktsdóttir og Pétur
Kr. Hafstein. Einar Karl Hall-
varðsson hrl. varði málstað rík-
isins og Gylfi Thorlacius hrl. var
til varnar fyrir lögreglumennina.
Ólafur Sigurgeirsson hrl. var lög-
maður mannsins.
Gengu ekki
of hart
fram við
handtöku
♦ ♦ ♦
VEÐUR
mbl.is
REKTOR Háskólans á Akureyri,
Þorsteinn Gunnarsson, tekur já-
kvætt í hugmyndir um að stofna
aðra læknadeild og slík deild geti
vel starfað í skólanum í samstarfi
við fleiri aðila. En áður en slík
vinna fari af stað af alvöru þurfi að
liggja fyrir skýr vilji stjórnvalda
til að leggja fjármagn í aðra
læknadeild.
Þorsteinn segir að sú hugmynd
hafi verið rædd að Háskólinn á
Akureyri, HA, og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, FSA, yrðu
með ákveðið framhaldsnám fyrir
heimilislækningar sem miðaði við
heimilislækna sem störfuðu á
landsbyggðinni. Skýrsla liggi fyrir
um slík áform en ekkert hafi meira
verið gert með hana.
„Persónulega tel ég að við
vinnum aldrei bug á læknaskorti á
landsbyggðinni nema að vera með
læknanám, til dæmis við Háskól-
ann á Akureyri. Ég byggi það á
reynslu okkar í annarri sérfræði-
menntun. Hitt er svo annað mál
hvað menn eru tilbúnir að setja af
fjármagni í uppbyggingu lækna-
náms hér á Akureyri. Tæknilega
og faglega séð er ekkert því til
fyrirstöðu að mínu mati en þetta
er fyrst og fremst spurning um
fjármagn og vilja stjórnvalda,“
segir Þorsteinn.
Háskólinn á Akureyri er með
nám í heilbrigðisvísindum, þ.e.
hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun, og
að sögn Þorsteins hefur það geng-
ið mjög vel, m.a. í samstarfi við
FSA og fleiri stofnanir. Hann telur
það einnig mögulegt að læknadeild
á Akureyri geti verið rekin í sam-
starfi við Háskóla Íslands. Fyrir
því sé að minnsta kosti vilji innan
Háskólans á Akureyri.
Rektor HA tekur jákvætt í hugmyndir um aðra læknadeild
Vilji stjórnvalda
þarf að liggja
skýr fyrir
SJÖ MIG-29 orrustuþotur af rússneskum upp-
runa lentu á Keflavíkurflugvelli í vikunni. All-
nokkrir varnarliðsmenn hringdu í flugturninn
og spurðu hvernig á því stæði að þar rigndi
niður rússneskum herflugvélum. Engin hætta
var þó á ferð þar sem vélarnar hafa tilheyrt
þýska flughernum árum saman. Þær verða
fljótlega afhentar pólska flughernum en áður
munu þær fljúga til æfinga í Norður-Ameríku
undir þýskum fána. Þoturnar, sem eru ekki út-
búnar til að taka eldsneyti á flugi, fóru héðan
áleiðis til Narsarsuaq í Grænlandi. Munu þær
svo ferðast í stuttum áföngum til Eglin-
herstöðvarinnar í Flórída þangað sem ferðinni
er heitið.
Ljósmynd/Baldur Svansson
Rússneskar orrustuþotur í Keflavík