Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 31
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 31
ELDRI borgarar í Rangárþingi
héldu nýlega veglega sýningu á
munum sem þeir hafa unnið í vetur.
Það er félagsstarf aldraðra í sýslunni
sem stendur fyrir handverkskennslu
í Njálsbúð í hverri viku en þar hafa
eldri borgarar nú fengið rúmgott
húsnæði undir félagsstarf sitt. Rósa-
lind Ragnarsdóttir hefur verið
óþreytandi við að kenna eldri borg-
urunum ýmislegt handverk en einn-
ig hafa fleiri kennarar komið að til
dæmis til að kenna útskurð. Á sýn-
ingunni í Hvolnum gat að líta mjög
fjölbreytt handverk, s.s. silkimálun,
útskurð, þrívíddarmyndir, freskur,
hefðbundna handavinnu og margt
fleira. Um það bil 30 manns áttu verk
á sýningunni sem stóð í tvo daga og
var fjölsótt.
Handverkssýning eldri
borgara í Hvolnum
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Hér má sá hluta af munum á sýningunni, m.a. rennda og útskorna trémuni.
Rangárþing eystra
ÞAÐ mætti ætla að jólin væru að
nálgast í Stykkishólmi samkvæmt
þessum myndum. Svo er ekki, þær
eru teknar í sumarbyrjun á fallegu
vorkvöldi.
Í Stykkishólmi var staddur hópur
myndatökufólks í þeim tilgangi að
taka upp auglýsingar fyrir erlent
fyrirtæki þar sem verið er að aug-
lýsa vodkategund fyrir grískan
markað. Teknar eru tvær tökur á
hverjum stað sem sýna vetur og
sumar. Þar leikur mjólkurpóstur að-
alhlutverkið og kemur með mjólk-
urflöskur til íbúanna og fer síðan
með tómar flöskur í staðinn.
Hér um að ræða fjörutíu manna
hóp sem dvaldií Stykkishólmi í
nokkra daga til myndatöku. Það er
Saga-Film sem skipuleggur verk-
efnið og eru flestir starfsmennirnir
íslenskir. Það vekur athygli hve
mörg handtök þarf við að taka upp
eina auglýsingu, sem tekur síðan
örfáar mínútur í sýningu í sjónvarpi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Kúldshús í Stykkishólmi. Á myndinni er verið að undirbúa upptöku fyrir gerð auglýsingar fyrir grískan markað.
Mynduðu vodka fyrir grískan markað
Stykkishólmur
HRÖNN Pétursdóttir, sem stýrir
undirbúningi að stofnun Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga, var með
kynningarfundi meðal íbúa Snæ-
fellsness síðustu daga aprílmánað-
ar. Auk þess hitti Hrönn grunn-
skólanema til að kynna þeim hvað
þeir ættu í vændum. Í máli Hrann-
ar kom fram að skólinn sem taka á
til starfa í Grundarfirði haustið
2004 yrði mótaður út frá nýjustu
hugmyndum og tækni í kennslu á
framhaldsskólastigi. Þá yrði allt
nám skólans miðað við hæfni og
getu hvers nemanda með það að
markmiði að hver og einn næði há-
marksárangri. Fjölbrautaskóli
Snæfellinga er samstarfsverkefni
sveitarfélaga á Snæfellsnesi og hef-
ur verið skipuð bygginganefnd sem
unnið hefur að því að ráða arkitekt
til að hanna skólahúsnæði sem
þjóni þeim mark-
miðum sem und-
irbúningsnefndin
hefur sett um
starfsemi skól-
ans. Haustið
2004 verða teknir
inn tveir fyrstu
árgangarnir en
fullskipaður
verður skólinn
haustið 2006 og er gert ráð fyrir
150–180 nemendum. Á heimasíð-
unni menntagatt.is er að finna upp-
lýsingar um hinn nýja skóla og þar
er einnig merki skólans sem hann-
að var af Ástþóri Jóhannssyni,
grafískum hönnuði sem búsettur er
í Dal í Miklaholtshreppi, en merkið
er táknmynd hinnar nýju sýnar
sem horft er til við stofnun Fjöl-
brautaskólans að sögn Bjargar
Ágústsdóttur, bæjarstjóra í Grund-
arfirði.
Ný sýn í fram-
haldsskólamálum
á Snæfellsnesi
Grundarfjörður
Hrönn Pétursdóttir
SÝNDUR var í Bragganum á
Hólmavík söngleikurinn Litli for-
vitni fíllinn. Það voru nemendur í 5.
og 6. bekk Grunnskólans í samstarfi
við Leikfélag Hólmavíkur sem settu
söngleikinn upp á tíu dögum undir
leikstjórn Þórhildar Örvarsdóttur
söngkonu.
Í þessu skemmtilega verki, sem
byggt er á sögu Rudyard Kipling,
segir frá því hvernig fíllinn fékk ran-
ann. Sagan er gædd lífi með falleg-
um sönglögum sem krakkarnir
höfðu náð góðum tökum á. Í sýning-
unni eru einnig upplestur og leikin
atriði sem allt hljómaði vel enda er
hljómburður sérlega góður í Bragg-
anum. Skemmtileg lýsing, sviðs-
mynd og andlitsförðum, sem voru í
höndum 8. og 9. bekkja Grunnskól-
ans gæddu einnig sýninguna
skemmtilegu yfirbragði. Um 150
gestir voru á sýningunni og
skemmtu sér allir konunglega.
Þórhildur var afar ánægð með ár-
angur krakkanna sem unnu nokk-
urra vikna verk á mettíma, af ein-
stakri jákvæðni og dugnaði,
„algjörar hetjur“ eins og hún orðaði
það.
Töfruðu fram söngleik á tíu dögum
Hólmavík
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Nemendur ásamt Þórhildi Örvarsdóttur söngkonu sem leikstýrði verkinu.
FYRSTU úthlutanir úr Styrktar- og
menningarsjóði Sparisjóðs Bolungar-
víkur fóru fram fyrir stuttu. Úthlutað
var 2.100.000 krónum til þrettán aðila
og félagasamtaka.
Styrktar- og menningarsjóður
Sparisjóðs Bolungarvíkur var stofn-
aður árið 2001 og verða styrkveiting-
ar úr sjóðnum árlegur viðburður hér
eftir.
Þeir sem hlutu styrki úr sjóðnum
að þessu sinni voru:
Ungmennafélag Bolungarvíkur,
Golfklúbbur Bolungarvíkur, Hesta-
mannafélagið Gnýr í Bolungarvík,
Kvennakór Bolungarvíkur, Vest-
firska kvikmyndafélagið Í einni sæng,
Danshópur Bolungarvíkur, Átaks-
verkefnið Heilsubærinn Bolungarvík
á nýrri öld, Leikfélagið Hallvarður
Súgandi á Suðureyri, Kvenfélagið Ár-
sól á Suðureyri, Handverkshópurinn
Á milli fjalla á Suðureyri, Björgunar-
sveitin Björg á Suðureyri, og
Mannsavinir á á Suðureyri.
Aðalfundur Sparisjóðs Bolungar-
víkur var haldinn 4. apríl sl. Hagn-
aður af rekstri Sparisjóðsins árið
2002 var rúmar 10 milljónir króna að
teknu tilliti til skatta.
Rekstrartekjur sjóðsins námu
505,4 milljónum kr. og rekstrargjöld
495,2 milljónum að meðtöldum af-
skriftum.
Bókfært eigið fé var í árslok 746,3
milljónir kr. og hafði aukist um 4,2%.
Innlán minnkuðu um 3,3% á árinu
og útlán minnkuðu
um 10,7%.
Langstærsti út-
lánaflokkurinn er til
sjávarútvegs eða rúm
58%, hlutur einstak-
linga og íbúðalána var
rúm 28% og lán til
þjónustu og annarrar
atvinnustarfsemi 6%.
Sparisjóður Bol-
ungarvíkur er alhliða
fjármálafyrirtæki
sem hefur starfað í 95
ár, en hann var stofn-
aður 15. apríl 1908.
Stofnfjáreigendur í
Sparisjóði Bolungar-
víkur eru 202 og
stofnfé alls 92 millj kr.
Hjá Sparisjóðnum störfuðu 15
manns á sl. ári. Sparisjóðsstjóri er Ás-
geir Sólbergsson.
Stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur
skipa Gestur Kristinsson, Finnbogi
Jakobsson, Ólafur Þ. Benediktsson,
Örn Jóhannsson og Runólfur Péturs-
son sem kom nýr inn í stjórnina.
Nýkjörinn stjórnarformaður er
Gestur Kristinsson.
Sparisjóður Bolungar-
víkur úthlutar styrkjum
Fulltrúar styrkhafa ásamt Benedikt Bjarnasyni, frá-
farandi formanni, Ásgeiri Sólbergssyni sparisjóðs-
stjóra og Gesti Kristinssyni, nýkjörnum formanni,
sem fremst sitja, en þeir voru í úthlutunarnefnd
styrktar- og menningarsjóðsins á sl. ári.
Bolungarvík
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
BÖRN úr sunnudagaskólanum í
Breiðabólstaðarprestakalli, for-
eldrar og umsjónarmenn fóru í ár-
lega óvissuferð í lok skólaárs. Að
þessu sinni lögðu upp frá Hvols-
velli 50 börn og 12 fullorðnir sem
fengu að fljóta með og var ferðinni
heitið á Þingvöll sem reyndar fáir
vissu. Þegar þangað var komið var
Flosagjá (Peningagjá) skoðuð og
síðan haldið til kirkju. Eitthvað
hafði skolast til um komutíma
hópsins til Þingvalla þannig að
ekki var búið að opna kirkjuna
þegar hópinn bar að garði. Meðan
þess var beðið var brugðið á leik
enda veitti ekki af að hreyfa sig því
frostið var talsvert að viðbættum
vindbelgingi. Þegar inn í kirkjuna
var komið var síðasti sunnudaga-
skóli skólaársins haldinn með til-
heyrandi sögum, söng og bænum.
Að honum loknum var haldið til
þjónustumiðstöðvarinnar á Þing-
völlum og grillað. Síðan var haldið
áleiðis heim með viðkomu í sundi á
Selfossi, rétt til að skola burt
ferðarykið.
Sunnudagaskólabörn
frá Hvolsvelli á ferð
Fljótshlíð
Morgunblaðið/Önundur Björnsson
Við Flosagjá (Peningagjá). Menn áttu í hinu mesta basli með að finna í fór-
um sínum smápeninga því allflestir notast orðið við greiðslukort.