Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 45
einkaframkvæmd. . Ég er hins vegar and- gu innan velferð- Það er mikið rétt. En i að það hefur sýnt sig mdin er dýrari en bein g sveitarfélaga. Ef til orgarinn borgi brús- er þá ekki að leita hag- fyrir hann? Það þykir Sjálfstæðisflokknum gsun, eða hefur verið hvort einkarekstur ans – háskólasjúkra- n hinn reksturinn? Eft- veit hefur það ekki ætla að Sjálfstæð- ekki heyra niðurstöð- markaðsvæðing- Verslunarráðsins og í u. Á meðan hyglað er u eykst álagið á aðra engt er að annarri þarf að snúa við. Það ngunum 10. maí. rípa ekki í taumana æðisflokknum munum a mjög erfiða varn- u fjórum árum. Fyrir subrest að stríða, fyrir rigðisþjónustunnar og ann er hér mikið al- nustan á Íslandi hefur kisreknum sjúkra- eknum stofum sérfræð- kvæm blanda sem hef- amansett að hún hefur r litið farið vel ofan í dur til að raska þessu alla heilbrigðisþjón- aðstorginu. Viljum við m- kn- gmaður VG. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 45 ríms J. r um vel- ljóst varð, öðuflokk- rænir, að i- Krist- hugasamir yndinni Gísladóttir ni af spurn- nlegri um ritdeil- a og við ast við að ur að frum- arinnar og oði, hvort mfylking- na en gera fnalegum miðum er aflokka né ka. andi al- rlegri og hátt í nýju tu menn sig græna m ein- sínum. g breyta g eðlilegt x x x Af hálfu andstæðinga Sjálfstæðisflokksins, ekki síst í Samfylkingunni, er sagt fullum fetum, að sjálfstæð- ismenn megi ekki sitja í ríkisstjórn að kosningum lokn- um. Á hinn bóginn hopar þetta sama samfylkingarfólk, þegar bent er á þann ríkisstjórnarkost, sem við blasir, fái Sjálfstæðisflokkurinn ekki nægilegt fylgi í kosning- unum. Þá hefst gjarnan af-því-bara-tal um breytingu, breytingarinnar vegna. Ef í breytingu felst tækifæri til að gera eitthvað betur er til lítils að mæla gegn henni. Að minnsta kosti er al- mennt ekki auðvelt að gera það með sterkum og sann- færandi rökum. Ef aðeins er rætt um breytingar breyt- inganna vegna kemur hinn holi hljómur fljótt fram. Samfylkingin talar um nauðsyn breytinga, án þess að hún geti rökstutt, að breytingin sé til nokkurra bóta, þegar litið er til þjóðarhags. Þess vegna er gagnrýni á hinn innantóma málflutning svarað með hrópinu: hræðsluáróður, hræðsluáróður! Rökin fyrir því, hvað gerist, ef Sjálfstæðisflokkurinn kemur ekki sterkur frá kosningunum, eru skýr, þegar litið er til sögunnar. Hvorki Steingrímur J. né Ingibjörg Sólrún breyta sögunni, þótt þau leitist við að umskrifa hana á þann hátt, að víst hafi vinstri stjórnir einhvern tíma náð einhverjum árangri. x x x Í ljósi þess, að andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa um nokkurt árabil farið með stjórn Reykjavíkurborgar, er merkilegt til þess að líta, að í kosningabaráttunni hafa þeir ekki nefnt árangur við fjármálastjórn þar sem fyr- irmynd í landstjórninni. Í Morgunblaðsgrein laugardaginn 3. maí nefndi Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, stjórnir jafnaðarmanna í Svíþjóð og Bretlandi til sög- unnar auk Bills Clintons, þegar hún vildi sanna, að vinstri menn gætu varðveitt efnahagslegan stöðugleika! Hún gleymdi að vísu Þýskalandi, eimreiðinni í efnahags- kerfi Evrópusambandsins, sem höktir um þessar mund- ir undir stjórn jafnaðarmanna. Þegar fólk er ráðið í vinnu er spurt hvað það hafi áður gert og hvernig það hafi staðið sig í starfi – en Ingibjörg Sólrún bendir í staðinn á það, hvernig einhverjir aðrir menn í útlöndum hafi staðið sig. Skýringin er einföld: skuldir og skattar Reykjavíkurborgar hafa hækkað und- anfarin ár á sama tíma og ríkisstjórn undir forystu Sjálf- stæðisflokksins hefur lækkað skuldir og lækkað skatta. x x x Sumardaginn fyrsta ritaði Atli Harðarson, heimspek- ingur og aðstoðarskólameistari á Akranesi, grein í Morgunblaðið, þar sem sagði meðal annars: „Þegar rík- isstjórn stendur sig vel virðist fólki að þjóðarskútan sé á lygnum sjó og það sé lítill vandi að stýra henni. Und- anfarin ár hefur leiðin þó oft verið þröng milli brims og boða … Í tólf ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið for- ystuflokkur í ríkisstjórn. Þessi ár eru framfaraskeið og framfarirnar má að miklu leyti þakka farsælli stjórn. Höldum áfram á réttri braut.“ Reynsla síðustu ára hefur sýnt og sannað, að Ísland er land tækifæranna. Hagsæld og framfarir hafa almennt orðið meiri hér á landi en í ríkjum Evrópusambandsins. Nýir stjórnarhættir hafa aukið rétt borgaranna inn á við og opnað þeim leiðir til að láta að sér kveða á al- þjóðavettangi, hvort sem um er að ræða listir eða íþrótt- ir, vísindi eða viðskipti. Nýjar atvinnugreinar hafa skotið rótum og þróast við hlið þeirra, sem fyrir voru. Mennta- rkefið hefur tekið stakkaskiptum og bylting orðið á sviði rannsókna og vísinda. Atkvæðinu skulum við beita með hliðsjón af því, sem vel hefur verið gert, og án þess að stofna góðum árangri í hættu. Í dag getum við nýtt tækifærið og lagt grunn að enn betri framtíð. Brautin hefur verið mörkuð! Betri framtíð! bjorn@centrum.is ÁGÆTU kjósendur. Í dag göngum við Íslend- ingar að kjörborðinu og veljum hvaða flokkur það er sem við viljum að hafi forystu í mál- efnum þjóðarinnar á næsta kjörtímabili. Atkvæði allra skipta máli. Það skiptir máli að sem flestir nýti sinn lýðræð- islega rétt og greiði atkvæði í dag. Við lok þessarar kosninga- baráttu er mér efst í huga þakklæti til þess fjölda fólks sem ég hef kynnst og átt ánægjuleg samskipti við und- anfarnar vikur. Ég hef hitt mikinn fjölda fólks að máli víða um land, hlustað eftir sjón- armiðum kjósenda og kynnt mín stefnumál og okkar fram- sóknarmanna. Ég hef, eins og aðrir frambjóðendur Fram- sóknarflokksins, hvarvetna fengið góðar undirtektir og mætt velvilja almennings. Um leið og ég þakka ánægjuleg kynni fyrir hönd okkar allra, frambjóðenda og starfsmanna Framsókn- arflokksins, vil ég nota þetta tækifæri til þess að árétta hvað það er sem mér er efst í huga við lok kosningabaráttunnar – hvað það er sem ég tel að kosn- ingarnar snúist um í raun og veru: Kosningarnar snúast um framtíðina Okkur Íslendingum hefur gengið vel undanfarin ár og út- litið er bjart. Ég vil að allir landsmenn njóti ávaxtanna af því sem byggt hefur verið upp. Horfurnar eru góðar en við megum ekki tefla stöðugleik- anum í tvísýnu. Þess vegna skipta kosningarnar í dag miklu máli – þær snúast um framtíðina. Ef þið – eins og ég – viljið að við höldum áfram að bæta kjörin, og styrkja velferð- arkerfið, þá erum við sammála um grundvallaratriðin. Kosn- ingarnar snúast um stöð- ugleika í efnahagslífinu og vel- ferð fólksins í landinu. Ég bið um ykkar stuðning. Hann skiptir miklu máli. Atkvæði allra skipta máli Eftir Halldór Ásgrímsson „Ég vil að allir landsmenn njóti ávaxtanna af því sem byggt hefur verið upp. Horfurnar eru góðar en við megum ekki tefla stöðugleikanum í tvísýnu.“ Höfundur er formaður Fram- sóknarflokksins og skipar 1. sætið á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. SÍÐASTI áratugur hefur skilað okkur ágætu búi. Rík- isstjórn Davíðs Oddssonar hefur margt gert vel. En heimurinn er að breytast. Þeim, sem sitja of lengi, hættir til að staðna. Tólf ár eru langur tími. Það er engri þjóð hollt, að sami flokkur sitji við stjórnvöl enn lengur, eða fjögur kjörtímabil. Í dag eigum við Íslendingar að slá upp dyrum Stjórnarráðsins og hleypa inn nýju og fersku andrúmslofti. Við þurfum í senn öryggi og breyt- ingar. Tækifærið er núna. Við eigum, góðir Íslendingar, ekki að hika í dag. Ísland síðustu aldar var að mörgu leyti Ísland hinna hörðu gilda. Í næstum hundrað ár höf- um við séð óslitna röð karla streyma inn í Stjórnarráðið og setjast í stól forsætisráðherra. Í dag eigum við kost á að breyta til. Ekki bara til að sópa út hinu gamla heldur til að tryggja nú- tímaleg vinnubrögð, öryggi og framfarir. Ingibjörg Sólrún sýndi sem borgarstjóri að hún var kraftmikill og réttlátur stjórn- andi. Undir hennar stjórn blómstraði höfuðborgin. Hún lagði sérstaka rækt við að efla grósku í atvinnulífinu. Við þurf- um, Íslendingar, á þannig leið- toga að halda. Undir stjórn Ingi- bjargar Sólrúnar myndi leiðin inn í nýja öld verða trygg og örugg. Stundum finnst manni að eitt- hvað liggi í loftinu. Aldrei fyrr hef ég skynjað jafn sterkt og nú, að það vantar aðeins herslumun- inn upp á pólitískt ævintýri. Hluti af því hefur þegar gerst. Draum- urinn, sem við áttum svo mörg, um eina öfluga hreyfingu, sem yrði kraftmikið mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn, hefur ræst í þessum kosningum. Samfylkingin er orðin að sterku og trúverðugu stjórnmálaafli, sem berst fyrir sanngirni og réttlæti. En í dag getum við unnið enn meiri og stærri sigra. Ungur rithöfundur, Halldór Laxness, sagði hér í Morg- unblaðinu 21. maí, 1925: „Lagið sem á undan var leikið má hafa verið hið fegursta, en það er á enda og nýtt lag hafið í nýrri tón- tegund. Seinasti áratugurinn hef- ur skapað slík straumhvörf og umbyltingar í hinum andlega heimi að jafngildir heilum öldum. Heimurinn hugsar í öðrum mynd- um, talar í öðru formi.“ Fáir hafa orðað þörfina fyrir breytingar jafnvel. Heimurinn hugsar öðru vísi en fyrir áratug. Við þurfum nýtt lag. Engum er betur treystandi til að vera for- söngvari en Ingibjörgu Sólrúnu. Ekki af því hún er kona, heldur af því hún er einstök kona. „Undir stjórn Ingi- bjargar Sólrúnar myndi leiðin inn í nýja öld verða trygg og örugg.“ Eftir Össur Skarphéðinsson Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. Það gerist í dag! Í VOR er tækifæri til sögulegra breytinga. Í fyrsta sinn í sjö áratugi á annað stjórnmálaafl en Sjálfstæðisflokkurinn möguleika á því að fá yfir 30% atkvæða. Það er að verða til ný kjölfesta í stjórnmál- unum, grundvölluð á réttlæti og sanngirni í stað sérhagsmunabar- áttu kvótaflokkanna sem fara með landsstjórnina. Kjósendur hafa það í hendi sér hvort tækifærið verði að veruleika. Samfylkingin er breiður og frjálslyndur flokkur grundvallaður á jafnræði, sann- girni og réttlæti. Flokkur al- mannahagsmuna og flokkur fólks- ins. Réttlæti stjórnarflokkanna Það verður kosið um það í vor hvort kvótaflokkarnir stjórna áfram eða hvort Samfylkingin fær brautargengi til að breyta. Klaka- böndin gætu verið að bresta og sögulegt vor í vændum. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hafa farið illa með valdið. Besta dæmið; um leið og lífeyrisþegar borga millj- arð á ári í skatt er lofað að lækka skatta um 30 milljarða. Merkilegt réttlæti það. Dáðleysi og menningarsalur Samfylkingin í Suðurkjördæmi býður fram kraftmikinn framboðs- lista með skýra stefnu. Við viljum láta verkin tala. Það er t.d. póli- tískur ræfildómur að láta menn- ingarsalinn í Hótel Selfossi standa ókláraðan í aldarfjórðung! Fyrir því eru engar afsakanir af hálfu stjórnarþingmanna og ráðherra kjördæmisins. Dáðleysið talar fyr- ir sig sjálft. Þá þarf ekki að minn- ast á afstöðuna gagnvart Írak. Framsókn komin hægra megin við Henry gamla Kissinger og her- málaráðherrann kominn í framboð til Reykjavíkur. Nei, það er kom- inn tími á réttlæti í stjórnmálin og að láta verkin tala. Tækifærið er núna Við bjuggum Samfylkinguna til svo hægt væri að skapa betri kjör fyrir aldraða, barnafólk, fjölskyld- urnar í landinu, millitekjuhópana sem lenda í jaðarsköttunum, fá- tæka, námsmenn, húsnæðislausa, láglaunafólk og alla þá sem þurfa á skjóli að halda. Við bjuggum Samfylkinguna til svo að leik- reglur frjálsrar samkeppni ríktu á markaði en ekki leikreglur geð- þóttans og gæðinganna. Okkar er að gæða Samfylkinguna inntaki og gera að kraftmiklum valkosti til að verða leiðandi afl í samfélaginu. Tækifærið er núna. Eftir Björgvin G. Sigurðsson Höfundur skipar 3. sæti á lista Sam- fylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Tækifærið er núna! „Klakaböndin gætu verið að bresta og sögulegt vor í vændum.“ Í DAG gengur þjóðin að kjör- borði og vonandi verða sem flestir til þess að nýta atkvæð- isrétt sinn. Ég vil nú að lokinni kosningabaráttunni færa öllum sem lagt hafa hönd á plóg í þágu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og okkar málstaðar þakkir fyrir einarða baráttu. Það hefur verið í senn krefjandi og gjöfult að taka þátt í barátt- unni og eiga þess kost að fylgj- ast með starfinu um allt land á undanförnum vikum. Við engan vildi ég skipta nema sjálfan mig hvað þetta hlutskipti varðar. Barátta Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur verið uppbyggileg og málefnaleg og einkennst af lífsgleði og kæti. Það hafa verið forréttindi að taka þátt í þessari kosningabar- áttu um allt land. Sérstakar þakkir vil ég færa unga fólkinu okkar, ungum Vinstri-grænum, fyrir mikið starf, upplífgandi baráttuanda og frumkvæði sem oft hefur komið á óvart. „Það er engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín,“ segir í textanum og sama má segja um baráttu unga fólksins okkar. Fari heimur versnandi er það a.m.k. ekki þeim að kenna sem eru að öðlast reynslu þessa dag- ana til þess að taka við keflinu, heldur okkur hinum sem eitt- hvað hefur mistekist á leiðinni inn í skiptireitinn. Þakkir til allra sem tekið hafa þátt í baráttunni. Gleðilegan kjördag og ánægjulega kosn- inganótt! Að síðustu: Sólríkt og gleði- legt sumar – undir velferð- arstjórn! Eftir Steingrím J. Sigfússon „Barátta Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs hefur verið uppbyggileg og málefnaleg og einkennst af lífsgleði og kæti.“ Höfundur er formaður Vinstri hreyfingarinnar – Græns framboðs. Verklok – vel unnið dagsverk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.