Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 13 HAGNAÐUR Kaupþings banka eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs nam 813 milljónum króna en var 321 milljón á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir skatta var 1.103 milljónir en 399 milljónir árið áður. Hreiðar Már Sigurðsson, for- stjóri Kaupþings banka, segir að rekstur bankans hafi gengið mjög vel á fyrstu þremur mánuðum árs- ins. Áframhaldandi vöxtur og góð arðsemi einkenni uppgjörið. Arð- semi eigin fjár hafi verið 19,0% og sé það í góðu samræmi við markmið bankans. Þá sé verkefnastaðan ágæt og tekjumyndun byggist á fleiri og styrkari stoðum en nokkru sinni fyrr. „Framundan eru spennandi tímar,“ segir Hreiðar Már í tilkynn- ingunni. „Mikil sóknarfæri felast í væntum samruna við Búnaðarbank- ann. Sameinaður banki getur náð auknu hagræði í rekstri, fengið hag- kvæmari fjármögnun og nýtt sér hagkvæmni stærðarinnar á marg- víslegan annan máta hluthöfum og viðskiptavinum til hagsbóta. Með aukinni stærð og auknu afli verður sameinuðum banka kleift að taka þátt í stærri verkefnum en fyrr, einkum utan Íslands. Þar felast miklir möguleikar.“ Að sögn Hreiðars Más verður nafni sænska bankans JP Nordiska, sem Kaupþing keypti stærstan hluta í á síðasta ári og stefnir að því að eignast heildarhlutafé í, breytt í Kaupthing Bank Sverige í næstu viku. Heildareignir 228 milljarðar Hreinar rekstrartekjur Kaup- þings banka fyrstu þrjá mánuði þessa árs voru 3.781 milljón króna og jukust um tæp 97% frá sama tímabili á síðasta ári. Tekjudreifing bankans á fyrsta ársfjórðungi 2003 var þannig að gengishagnaður var 42% teknanna, þóknunartekjur 35%, vaxtatekjur 21% og aðrar tekjur 2%. Hreiðar Már segir að rúmlega helmingur teknanna hafi komið frá Íslandi, u.þ.b. fjórðungur frá JP Nordiska og tæplega fjórð- ungur frá öðrum starfsstöðvum. Hreinn rekstrarkostnaður Kaup- þings banka var 2.556 milljónir á fyrstu þremur mánuðum þessa árs, sem er um 83% aukning frá fyrra ári. Heildareignir bankans námu 228 milljörðum króna í lok mars 2003 og höfðu aukist um rúmt 21% frá ára- mótum og um rúm 76% frá lokum marsmánaðar í fyrra. Eigið fé nam um 18,1 milljarði króna í lok mars í ár en um 9,4 milljörðum árið áður. Eiginfjárhlutfall á CAD-grunni var 13,4% hinn 31. mars 2003, saman- borið við 10,4% á sama tíma í fyrra og 11,5% á síðastu áramótum. Hagnaður á hlut 3,9 krónur Hagnaður Kaupþings banka á hlut var 3,9 krónur á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en 2,0 krónur á fyrsta ársfjórðungi 2002. Arðsemi eigin fjár var 19,0% samanborið við 14,7% í fyrra. Innlán bankans námu 74,1 millj- arði króna í lok ársfjórðungsins og hækkuðu um 2,3 milljarða frá ára- mótum. Útlán bankans jukust á tímabilinu um 1,6 milljarða og námu 84,1 milljarði króna í lok tímabils- ins. Hagnaður Kaupþings 813 milljónir á fyrsta ársfjórðungi NORÐMENN hafa enn ekkert hval- kjöt selt til Japans, hrefnuveiðar hafa þeir stundað í tvö og hálft ár. Stjórnvöld í Noregi segja ástæðuna þá að Japanir setji stöðugt ný og ný skilyrði um gæði og merkingar á hvalkjötinu. Fyrir vikið hlaðast upp birgðir af hvalkjöti í Noregi. Frá þessu er greint á netútgáfu norska útvarpsins P4. Þar segir Jóhan Williams að staðan sé orðin mjög erfið. Það hjálpi lítið þótt smá- vegis hafi verið flutt út til Íslands og Færeyja, þar sem aðalmarkaðurinn sé í Japan. Hann segir að stjórnvöld muni á næstunni hafa samband við japönsk stjórnvöld til að skipuleggja útflutninginn. Málið verði tekið upp á pólitískum vettvangi fljótlega í von um lausn, en hann þorir ekki að spá neinu um það hvenær útfutningur- inn geti hafizt. Jan Odin Olavsen, hvalveiðimaður í Lófóten, hefði gjarnan viljað vera búinn að senda hvern farminn á fæt- ur öðrum til Japans, en nú verður hann að vera þolinmóður. „Ég veit að það er spurn eftir hvalkjöti í Japan, en samt bíðum við og bíðum og það eru mikil vonbrigði,“ segir hann. Ekkert hvalkjöt til Japans FRAMLEGÐ Baugs Íslands af vörusölu lækkaði um 0,3% á milli ára og er lækkunin m.a. rakin til aukinnar samkeppni við Baugs- verslanir á innlendum markaði. Þrátt fyrir það batnaði afkoma Baugs Íslands frá fyrra ári, sem rekja má til eldri fyrirtækja innan félagsins, s.s. Bónuss og Hagkaups. Afkoma nýrri sérvöruverslana er undir væntingum bæði hér á landi og í Svíþjóð. Þetta kom fram á fundi sem Baugur Group hélt í gær vegna birtingar á ársuppgjöri sam- stæðunnar. Baugur Group skilaði 7.440 millj- arða króna hagnaði af síðasta fjár- hagsári, sem lauk 28. febrúar sl. en til samanburðar nam hagnaður árs- ins á undan 944 milljónum króna. Þetta er mesti hagnaður sem ís- lenskt fyrirtæki hefur skilað á einu ári. Stærstan hluta hagnaðarins má rekja til dótturfélagsins Baugs ID sem skilaði 8.979 milljóna króna hagnaði á árinu og er hann að mestu til kominn vegna sölu á hlut félagsins í Arcadia Group en sölu- hagnaður eignarhluta í félögum Baugs ID nam 7.594 milljónum króna. Þá skilaði Baugur Ísland nú hagnaði en stórfellt tap varð hins vegar af rekstri Baugs USA í Bandaríkjunum, eins og sagt er frá á baksíðu blaðsins. Mikill gengishagnaður hjá Baugi Íslandi Baugur Ísland skilaði 52 milljóna króna hagnaði á árinu en félagið var rekið með tapi árið á undan. Batnandi afkomu má að nokkru leyti rekja til gengishagnaðar fé- lagsins sem nam 726 milljónum króna og er nær eingöngu vegna styrkingar krónunnar gagnvart breska pundinu en stór hluti lána Baugs Íslands á rekstrarárinu var í pundum. Velta fjárhagsársins nam 35 milljörðum króna sem er 5,4% aukning frá fyrra ári en þar munu áhrif af verslunum Baugs í Smára- lind vera að skila sér. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam tæpum 1,2 milljörð- um króna. Uppbyggingin skilar sér hægt Á kynningarfundinum í gær kom fram að Baugur Group telur af- komu Baugs Íslands óviðunandi. Slakur árangur Baugs Íslands var þar í meginatriðum rakinn til þriggja þátta. Í fyrsta lagi væri uppbygging nýrra vörumerkja á Ís- landi og Svíþjóð að skila sér hægar en gert var ráð fyrir. Í öðru lagi hefði uppbygging og opnun versl- ana Baugs í Svíþjóð verið dýrari en reiknað var með og sé því ekki stefnt á frekari uppbyggingu þar í ár. Loks hafi framlegð lækkað á milli ára vegna harðnandi sam- keppni á heimamarkaði. Þar kom enn fremur fram að endurskipulagning innan Baugs Ís- lands væri farin að skila sér, þ.á m. hefði gagnger endurfjármögnun og lækkun birgða þrátt fyrir fjölgun verslana skilað góðum árangri. Endurfjármögnun félagsins er sagt lokið. Aukin sala og aðhald í kostnaði Í tilkynningu segir að kostnaðar- aðhald og aukin hagræðing hafi skilað sér í bættri rekstrarafkomu Baugs Íslands. Síðasta rekstrarár hafi verið viðburðaríkt fyrir félagið. Samdráttur í einkaneyslu, aukið vöruframboð og meiri samkeppni hafi einkennt íslenskan markað. Afkoma stærri og rótgrónari ein- inga innan Baugs Íslands, þ.e. Bón- uss, Hagkaups, 10–11 og Lyfju, er sögð batna verulega á milli ára þrátt fyrir að álagning minnki hlut- fallslega á milli ára. Hins vegar skili aukin sala og kostnaðaraðhald fyr- irtækjunum verulegum rekstrar- bata en bæði laun og annar kostn- aður lækkar milli ára umfram lækkun álagningar. Tekjur félagsins af nýrri starf- semi á Íslandi er hins vegar sögð hafa verið undir væntingum. Á sama tíma og vöruframboð jókst með auknum fjölda verslana, hafi einkaneysla dregist saman og gert fyrirtækjum erfiðara um vik við uppbyggingu. Afkoma þessarar ein- ingar sé því verri en áætlanir hafi gert ráð fyrir. Tæplega 9 milljarða króna hagn- aður varð af rekstri Baugs ID og er sem fyrr segir að mestu vegna sölu á hlut Baugs í Arcadia. Velta fé- lagsins nam 182 milljónum króna og 1.186 milljóna króna tap varð af rekstrinum fyrir afskriftir og fjár- magnsliði. Áhrif hlutdeildarfélaga námu 2 milljörðum króna. Þá nam óinnleystur gengismunur rúmum einum milljarði króna. Markmið Baugs ID er að að fjár- festa í fyrirtækjum í smásölu, heild- sölu og tengdum rekstri en megináhersla næstu ára verður lögð á fjárfestingar í Bretlandi. Fé- lagið skiptir erlendum fjárfesting- um sínum í tvo flokka. Annars veg- ar eru fjárfestingar í félögum sem Baugur vill taka þátt í að móta, ein- falda og auka arðsemi,en þau eru: Big Food Group (22,1%), Somer- field (2,97%) og LXB Group (11%). Hins vegar eru fjárfestingar í fé- lögum sem hafa gott sjóðstreymi, traustan efnahag eða hvort tveggja og þau eru House of Fraser, Sel- fridges, Mothercare og JJB. Áætla að öll hlutdeildarfélög nema Bonus Stores hagnist Velta Baugs Group nam 52,2 milljörðum króna og jókst um fjóra milljarða frá fyrra ári. Rekstrar- gjöld voru heldur hærri eða 53,6 milljarðar og er því tap af rekstr- inum fyrir afskriftir og fjármagns- liði. Þegar tekið hefur verið tillit til þeirra þátta auk söluhagnaðar eign- arhluta í erlendum félögum og áhrifa frá hlutdeildarfélögum nem- ur hagnaður fyrir skatta 6,4 millj- örðum króna. Hagnaður ársins er sem fyrr segir 7,4 milljarðar króna. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, segist í fréttatilkynn- ingu ánægður með árangur Baugs Group og árið hafi að mörgu leyti verið sérstakt. Baugur ID hafi náð framúrskarandi árangri í starfsemi sinni sem sé að mestu leyti í Bret- landi. Þá sé ánægjulegt að sjá Baug Ísland skila hagnaði þótt enn sé nokkuð í land með að afkoma á inn- lendum rekstri geti talist viðunandi. Ennfremur hafi afkoma hlutdeild- arfélaga verið með ágætum. Horfur í rekstri félagsins eru sagðar ágætar en þróun á erlendri hlutabréfaeign félagsins hafi mikil áhrif á heildarhagnað þess en hækkun á óinnleystum hagnaði af eignarhlutum í skráðum félögum á fyrstu tveimur mánuðum nýs rekstrarárs er um 2,5 milljarðar. Áætlað er að öll hlutdeildarfélög Baugs skili hagnaði á yfirstandandi rekstrarári nema Bonus Stores í Bandaríkjunum. Framlegð lækkaði á Íslandi vegna aukinnar samkeppni Afkoma Baugs Íslands óviðunandi                                                 ! "  # "       $%%&' $()*+ ,&*(+ ,&%$$  -$+* %''.  ,%.( ,$(* -(' )(%+ &&&&       /       %..+( &-'++  0     /          &1$ (-2 )-2  !      "#$%$!         &'(  HAGNAÐUR Vátryggingafélags Ís- lands, VÍS, nam 656 milljónum króna eftir skatta fyrstu 3 mánuði ársins. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður- inn 257 milljónum króna. Hagnaður VÍS fyrir tekju- og eignarskatt nam 799 milljónum króna. Hagnaður af vátryggingarekstri nam 202 milljónum króna og hagn- aður af fjármálarekstri 604 milljónum króna. Heildareignir félagsins námu 26.411 milljónum króna í lok mars og bókfært eigið fé var 5.237 milljónir króna. Það sem einkennir reksturinn í fyrsta ársfjórðungi er annars vegar mun betri afkoma tryggingareksturs en á sama tíma í fyrra og hins vegar mikill hagnaður af eignasölu, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Ís- lands. „Vátryggingareksturinn er að skila mun betri afkomu en á sama tíma í fyrra þar sem tjón á tímabilinu voru færri og meðaltjónið lægra í krónum talið. Þá varð mikill hagnaður af sölu hlutabréfa sem skapaðist eink- um af sölu á eignarhlut VÍS í Keri hf.,“ að því er segir í tilkynningu. Bókfærð iðgjöld VÍS hækkuðu um 8,4% frá árinu 2002 og námu 3.477 milljónum króna, en eigin iðgjöld hækkuðu um 6,9% og námu samtals 1.624 milljónum. Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri námu 428 millj- ónum en voru 378 milljónir króna fyrstu 3 mánuði ársins 2002. Eigin tjón VÍS lækkuðu um 10,3% frá sama tíma 2002 og námu 1.468 milljónum króna. „Afkoma einstakra trygginga- greina er afar mismunandi en þó skila þær nú allar hagnaði að undanskild- um öðrum ökutækjatryggingum en þeim lögboðnu. Gott tíðarfar í vetur hefur haft mikið að segja um lækk- andi tjónakostnað,“ að því er fram kemur í tilkynningu. Horfur í rekstri þessa árs eru góðar en sem fyrr mun afkoma ársins ráðast að miklu leyti af tjónaþróun ársins og sveiflum í henni sem geta verið miklar á milli tímabila eins og dæmin sanna. Í gangi er vinna að nýrri stefnu fyrir VÍS ásamt breyt- ingum á skipulagi. Niðurstöður þess- arar vinnu verða kynntar innan skamms, samkvæmt upplýsingum frá VÍS. VÍS með 656 millj- ónir í hagnað Mikill hagnaður af eignasölu ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.