Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 67
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 67
SKÖMMU fyrir andlát sitt gaf
Sveinn Björnsson listmálari
Krýsuvíkurkirkju altaristöflu, sem
hann hafði sérstaklega málað
handa kirkjunni. Altaristaflan var
hengd upp yfir altari kirkjunnar á
útfarardegi Sveins. Yfir sum-
artímann hefur altaristaflan hang-
ið í Krýsuvíkurkirkju, en að vetr-
inum í Hafnarfjarðarkirkju þar eð
kirkjan í Krýsuvík er óeinangruð
og óupphituð.
Síðustu árin hafa messur farið
fram í Krýsuvíkurkirkju vor og
haust og dregið marga að. Þær
stuðla að því að vekja athygli á
Krýsuvík og sérstæðri fegurð
hennar. Altaristöflunni verður
komið fyrir á sínum stað yfir alt-
ari Krýsuvíkurkirkju eftir vetr-
ardvöl í Hafnarfjarðarkirkju við
messu þann 11. maí nk. kl. 14:00,
sem er þriðji sunnudagur eftir
páska.
Í messunni á sunnudaginn verða
sungnir sálmar með textum eftir
þá Matthías Johannessen, Sig-
urbjörn Einarsson og Hallgrím
Pétursson. Ekkert hljóðfæri er í
Krýsuvíkurkirkju, en einleikari á
saxófón verður Laszló Hevesi,
Antónía Hevesi verður forsöngv-
ari, en hún er organisti við Hafn-
arfjarðarkirkju. Meðhjálpari í
messunni verður Jóhanna Björns-
dóttir og prestur sr. Þórhildur
Ólafs.
Sætaferðir verða frá Hafn-
arfjarðarkirkju kl.13:00 og messu-
kaffi í Sveinshúsi eftir messu í
umsjá Sveinsbræðra.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Helgidans við
poppguðsþjónustu í
Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN, 11. maí, fer fram
poppguðsþjónusta í Hafnarfjarð-
arkirkju og hefst hún kl.11.00.
Þangað er sérstaklega boðið öllum
fermingarbörnum vetrarins 2003–
2004 en allir eru að sjálfsögðu vel-
komnir.
Það er hljómsveitin „Gospel In-
vasion Group“ sem leikur og syng-
ur. Hana skipa 11 söngvarar og
hljóðfæraleikarar. Með hljómsveit-
inni kemur fram dansari sem mun
sýna helgidans.
Prestar í guðsþjónustunni eru
sr. Þórhallur Heimisson og sr.
Þórhildur Ólafs. Eftir guðsþjón-
ustuna gefst fermingarbörnum
kostur á að skrá sig á ferming-
ardaga komandi árs. Mætum öll
hress og kát eftir kosningarnar í
Hafnarfjarðarkirkju og verum kát
í Kristi og glöð í Drottni hvar sem
við stöndum í stjórnmálunum.
Fjölskylduhátíð
Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
HIN árlega fjölskylduhátíð Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði verður
haldin á morgun sunnudaginn 11.
maí í Kaldárseli og hefst dag-
skráin kl. 11:00.
Þau sem ekki koma á eigin bíl-
um er bent á rútuferð frá kirkj-
unni kl. 10:30.Að venju verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá
fyrir alla aldurshópa. Hinum eldri
verður boðið til gönguferðar und-
ir leiðsögn um nágrenni sum-
arbúðanna en börnin taka þátt í
leikjum og skemmtidagskrá sem
Örn Arnarsson og hljómsveit
leiða. Að lokinni helgistund og
fjöldasöng verður börnunum boðið
til grillveislu en hinir fullorðnu
setjast að veisluborði í húsnæði
sumarbúðanna.
Ef veður verður óhægstætt mun
dagskrá fara fram í íþróttahúsi
sumarbúðanna þar sem aðstaðan
er mjög góð. Þetta er þréttánda
vorið sem Fríkirkjusöfnuðurinn í
Hafnarfirði stendur fyrir slíkri
fjölskylduhátíð í Kaldárseli og
hefur þátttakan ætíð verið mjög
glæsileg. Starfsfólk Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði væntir þess að sjá
sem flesta taka þátt í þessari fjöl-
breyttu fjölskylduhátíð í Kald-
árseli á morgun í sumarbyrjun.
Fylkismessa í
Árbæjarkirkju
ÁRLEG Fylkismessa verður hald-
in í Árbæjarkirkju á sunnudag kl.
11.
Það verður sannkölluð fjöl-
skyldustemning. Guðsþjónusta
með miklum söng, sögum og leik
verður í umsjá presta og sunnu-
dagaskólakennara. Guðsþjónustan
markar einnig lok sunnudagaskól-
ans þetta starfsárið. Stúlkur úr
fimleikadeild Fylkis leika listir
sínar. Hinn frábæri leikhópur
Perlan mun sýna „Kærleikurinn
er sterkasta aflið“ undir leikstjórn
Sigríðar Eyþórsdóttur.
Að guðsþjónustu lokinni verður
grillveisla fyrir framan safn-
aðarheimilið þar sem pylsa og gos
verður selt á kr. 200 eða pylsa og
svali á kr. 150. Þá munu nokkrir
fótboltakappar úr meistaradeild-
inni gefa eiginhandaráritun.
Þessi fjölskylduhátíð undir-
strikar gott samstarf kirkjunnar
og íþróttafélagsins í hverfinu og
vonumst við til að Árbæingar fjöl-
menni í kirkjuna á sunnudaginn.
Neskirkja – messa
á úrslitamorgni
HEFÐBUNDIN messa verður kl.
11. Textar dagsins gefa tilefni til
umræðu um trú og lífsgildi, trú og
pólitík. Við höfum verið að gant-
ast með það í kirkjunni á liðnum
dögum að þennan sunnudag verði
haldin sérstök „gleði- og sorg-
armessa“ í Neskirkju til að mæta
bæði þeim sem telja sig til sig-
urvegara kosninganna og hinna
sem álíta sig hafa borið skarðan
hlut frá borði. Öllu gamni fylgir
nokkur alvara. Augljóst er að úr-
slit kosninga geta aldrei uppfyllt
óskir og vonir allra. Við lifum í
lýðræðislegu samfélagi og mik-
ilvægt er að geta unað ákvörðun
meirihlutans og treyst náung-
anum. Allt það góða fólk sem boð-
ið hefur fram kraftra sína á liðn-
um vikum og lýst sig reiðubúið að
gegna forystu í þjóðfélaginu á
þakkir skildar. Miklu varðar að
heilt og gott fólk veljist til forystu
í hinum tímanlega heimi.
En kirkjan boðar hins vegar
mikilvægt erindi eða stefnuskrá af
öðrum heimi um að hið veraldlega
og sýnilega tjái ekki allan veru-
leikann heldur skipti hið eilífa og
ósýnilega miklu meira máli. Hug-
um að því sem mestu varðar. Kór
Neskirkju leiðir söng undir stjórn
organistans, Steingríms Þórhalls-
sonar. Séra Örn Bárður Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari.
Á veggspjaldi sem hannað var
fyrir söfnuðinn fyrir nokkru
stendur: „Í gleði og sorg stendur
kirkjan með þér. Hittumst heil í
Neskirkju.“
Kaffisala í
Grensáskirkju
ÁRLEG kaffisala Kvenfélags
Grensáskirkju verður í safn-
aðarheimili kirkjunnar á morgun,
11. maí. Ekki þarf að hafa mörg
orð um gildi þess að velunnarar
kvenfélagsins og kirkjunnar komi
á kaffisöluna og styrki gott mál-
efni.
Kaffisalan byrjar að lokinni
guðsþjónustu sem hefst kl. 14. Í
þeirri guðsþjónustu verður tekinn
í notkun bjartur og fagur ljósa-
stjaki undir bænakerti eins og
tíðkast víða í kirkjum. Ingibjörg
Hjartardóttir glerlistakona hefur
hannað listaverkið ásamt Sigurði
Ólafssyni en það er gjöf til kirkj-
unnar frá fjölskyldu frú Kristínar
Halldórsdóttur. Af þessu tilefni
prédikar systurdóttir hennar, sr.
Kristín Þórunn Tómasdóttir, við
guðsþjónustuna.
Frú Kristin Halldórsdóttir lést
sl. haust en hún var um áratuga
skeið í forystusveit Grensássafn-
aðar, varaformaður sókn-
arnefndar og formaður Kven-
félagsins. Það er því vel við hæfi
að minning hennar sé heiðruð sér-
staklega á kaffisöludegi Kven-
félagsins.
Gospelguðsþjónusta
í Vetrargarðinum
Á MORGUN, sunnudag, verður
gospelguðsþjónusta kl. 14 í Vetr-
argarðinum, Smáralind á vegum
safnaða þjóðkirkjunnar í Kópa-
vogi. Prestar úr söfnuðunum í
Kópavogi þjóna.
Þorvaldur Halldórsson leikur
undir söng. Gospelkór Reykjavík-
ur syngur undir stjórn Óskars
Einarssonar. Fermingarbörn úr
Lindasókn leika örleikritið: Mis-
kunnsami Samverjinn í nýju ljósi.
Trúður skemmtir börnunum. Allir
hjartanlega velkomnir.
Hestamannaguðs-
þjónusta í Seljakirkju
Í SELJAKIRKJU hefur hestafólk
komið ríðandi til guðsþjónust-
unnar einn sunnudag í maímánuði.
Sú guðsþjónusta verður nú sunnu-
daginn 11. maí og hefst kl. 14.
Lagt verður af stað frá hest-
húsahverfunum kl. 13. Í Víð-
dalnum verður safnast saman við
skiltið, á Andvaravöllum við fé-
lagsheimilið og í Gusti efst í hverf-
inu. Hjá vegamótum að Heims-
enda hittast hóparnir og ríða að
Seljakirkju. Þar verður sett upp
rétt og gæsla höfð meðan á guðs-
þjónustu stendur. Sr. Valgeir Ást-
ráðsson prédikar.
Að lokinni guðsþjónustunni
verður komið saman í kirkjukaffi
og veitingar að fornum sið. Hesta-
fólk er hvatt til þátttöku í guðs-
þjónustunni og góðum reiðtúr.
Kammerkór Hjalla-
kirkju með tónleika
MIÐVIKUDAGINN 14. maí kl.
20.30 heldur kammerkór Hjalla-
kirkju, Vox Gaudiae, tónleika í
kirkjunni. Kórinn mun flytja kant-
ötu nr. 106 eftir J.S. Bach, Actus
tragicus, ásamt kammersveitinni
Aldavinir en sveitin notast við bar-
okkhljóðfæri, s.s. blokkflautur og
gömbur. Lenka Mátéova leikur
undir á orgelpositiv í barokktón-
stillingu. Einsöngvarar með kórn-
um eru Laufey Helga Geirsdóttir,
Oddný Sigurðardóttir, Guðlaugur
Viktorsson og Benedikt Ingólfs-
son. Laufey Helga syngur einnig
sólókantötuna Singet dem Herrn
eftir Buxtehude og verður þá leik-
ið með á litla orgel kirkjunnar,
fiðlu og selló.
Stóra orgelið verður síðan not-
að í mótettum eftir Fauré og Moz-
art og með einsöng Kristjáns
Helgasonar sem syngur Faðir vor
eftir Sigurð Skagfield.
Einnig verða fluttar nokkrar
mótettur án undirleiks, m.a. Pater
noster eftir József Karai, sem ekki
er vitað til að hafi verið flutt áður
hér á landi.
Söngstjóri kórsins er Jón Ólafur
Sigurðsson. Miðaverð er kr. 1000,
500 fyrir aldraða. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Gúllasguðsþjónusta
í Óháða söfnuðinum
AÐ lokinni kosninganótt kl. 11 11.
maí verður gúllasguðsþjónusta í
Óháða söfnuðinum þar sem ung-
verski organistinn okkar, Peter
Mate, verður búinn að brytja hana
Búkollu niður samkvæmt ung-
verskum hætti og hún borðuð að
lokinni messu.
Munu þau Peter og Guðrún
Birgisdóttir, flautuleikari, leika
saman ungversk þjóðlög í mess-
unni og Gísli Helgason leika á
flautu þunnudagstónlistarlagið
sitt „The day after the night be-
fore“, sem hann samdi grúttim-
braður daginn eftir að hafa verið
á balli með Bakkusi nóttina áður.
Er kærkomið tækifæri til þess
að halda upp á lok kosninganæt-
urinnar og geta menn mætt í
hvaða ástandi sem er í messuna,
timbraðir, ósofnir, sigurglaðir eða
tapsárir – enda á kirkjan að vera
sjúkrahús fyrir syndara en ekki
minningarstöð fyrir dýrlinga.
Er í þessari messu jafnframt
síðasti dagur barnastarfsins og
eru allir velkomnir.
Stór dagur
í Dómkirkjunni
AÐ afloknum kosningum er upp-
lagt að styrkja andann og koma til
kirkju.
Í Dómkirkjunni verða tvær
guðsþjónustur á sunnudaginn og
báðar tengdar sérstökum til-
efnum.
Um morguninn kl. 11 er barna-
guðsþjónusta til þess að marka lok
vetrardagskrárinnar. Þar syngur
yngri hópur Barnakórs Dómkirkj-
unnar, Barbara trúður kemur í
heimsókn, 9–10 ára börn hafa
söngatriði, Jónas Margeir Ingólfs-
son og krakkarnir af kirkjuloftinu
syngja, Hans Guðberg Alfreðsson,
æskulýðsfulltrúi og dóm-
kirkjuprestarnir sr. Hjálmar Jóns-
son og sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson leggja sitt lið. Pylsupartí á
eftir messu!
Guðsþjónusta í tilefni árlegrar
kaffisölu Kirkjunefndar kvenna
verður svo kl. 14. Þar prédikar
Þráinn Bertelsson, rithöfundur og
kvikmyndaleikstjóri, Eivør Páls-
dóttir syngur, eldri hópur barna-
kórsins syngur undir stjórn Krist-
ínar Valsdóttur og
dómkirkjuprestarnir þjóna fyrir
altari.
Á eftir verður svo kaffisala í
Safnaðarheimilinu með tilstyrk
foreldrafélags barnakórsins enda
fer allur ágóði til styrktar barna-
kórnum sem er senn á förum til
Kaupmannahafnar í söngferðalag
þar sem hann mun syngja m.a. í
Íslendingamessu á hvítasunnunni.
Mæðradagurinn
í Breiðholtskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 11. maí,
sem er mæðradagurinn, verður
fjölskylduguðsþjónusta í Breið-
holtskirkju í Mjódd kl. 11 sem að
öllu leyti verður í umsjá kvenna.
Prestur er sr. Lilja Kristín Þor-
steinsdóttir, Senjórítur Kvenna-
kórs Reykjavíkur syngja undir
stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur og
Sigrún Þorsteinsdóttir leikur á
orgelið. Meðhjálpari er Pálína
Helga Imsland og mæður sem
taka þátt í foreldramorgnum í
Breiðholtskirkju lesa ritning-
arlestra og fleira.
Að guðsþjónustu lokinni verða
veitingar í safnaðarheimilinu.
Á liðnum vetri var minnst tíu
ára afmælis foreldramorgna í
Breiðholtskirkju, en þeir hafa frá
upphafi verið mikilvægur þáttur í
safnaðarstarfinu. Væri ánægjulegt
að sjá sem flesta taka þátt í þess-
ari fjölskylduguðsþjónustu, bæði
unga sem aldna.
Sr. Gísli Jónasson.
Messa og tónleikar
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 11. maí verður
messa og barnastarf í Hallgríms-
kirkju kl. 11.00 árdegis. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Krist-
jáni V. Ingólfssyni. Organisti verð-
ur Hörður Áskelsson og hópur úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syng-
ur. Barnastarfi stýrir Magnea
Sverrisdóttir.
Kl. 16.00 verða tónleikar í kirkj-
unni, en þar mun Schola cantor-
um, kammerkór Hallgrímskirkju
flytja undir stjórn Harðar Áskels-
sonar sálma Lilju Sólveigar Krist-
jánsdóttur. Þá mun sr. Sigurður
Pálsson tala um skáldið. Tónleik-
arnir eru öllum opnir.
Námskeið hjá
Veginum
NÁMSKEIÐ með Johnny Fogl-
ander frá kl. 10 til 16 fyrir ógifta
á aldrinum 13 til 113. Þar verður
leitast við að svara spurningum s.s
á hvaða leið ert þú, hver er vilji
Guðs með líf þitt, hver er sjálfs-
mynd þín, hefur þú hug á að gifta
þig nú eða í framtíðinni. Nám-
skeiðið kostar kr. 1.000.
Messuferð í
Krýsuvíkur-
kirkju
Morgunblaðið/RAX
Í hógværum helgidómi. Málverk Sveins Björnssonar listmálara er höfuðprýði Krýsuvíkurkirkju.