Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 49
MÁLEFNI Ríkisútvarpsins eru
því miður alltof sjaldan til umræðu
á jákvæðum nótum í fjölmiðlum og
meðal almennings.
Þess í stað er horft
á kostnað við rekst-
urinn og tuðað um
nauðsyn einkavæð-
ingar eða umbreyt-
ingu stofnunarinnar
í hlutafélag. Ekki
er þó ljóst til hvers sú breyting
ætti að vera nema til þess að auð-
velda einkavæðingu síðar meir eða
fylla útvarpsráð af flokksgæð-
ingum Sjálfstæðisflokksins.
Stuttbuxnadeild Sjálfstæðis-
flokksins hefur lengi klifað á því
að ríkisfyrirtæki séu staðnaðir
sementskassar fullir af blýanta-
nögurum. Þar hafa ungliðar Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks
veitt öflugt liðsinni, til að virka nú
örugglega nógu nútímalegir og
miðsæknir. Þessir ungliðar fagna
sölu ríkisbanka, þótt sú ráðstöfun
hafi aldrei notið stuðnings meðal
almennings. Enda tókst ekki betur
til en svo að Frjálslyndi flokkurinn
boðar nú stofnun nýs ríkisbanka til
að efla atvinnulíf á landsbyggðinni.
Markaðslögmálin reynast bara svo
fjári óhagstæð venjulegu launa-
fólki.
Með söngnum um gagnsleysi
ríkisstarfsmanna er gert lítið úr
vinnu fjölda fólks, sem hefur gert
sitt besta til að efla þessar stofn-
anir, oft af miklum metnaði. Ein
þeirra stofnana sem ráðist hefur
verið til atlögu gegn er Ríkis-
útvarpið. Segja má að sala Ríkis-
útvarpsins sé stóri vinningurinn í
happdrætti ungra sjálfstæðis-
manna, veiti kjósendur þeim áfram
brautargengi til að koma glóru-
lausum stefnumálum sínum í fram-
kvæmd.
Hvers vegna verður að koma í
veg fyrir þessi áform? Fyrir því
liggja margvísleg rök en meðal
þess sem skiptir máli er menning-
arlegt gildi RÚV. Það er eini fjöl-
miðillinn sem mótað hefur stefnu
til að efla tunguna. Það er eini fjöl-
miðillinn sem greiðir rithöfundum
fyrir að flytja efni sitt. Báðar rásir
útvarpsins hafa sinnt því af kost-
gæfni að kynna tónlist utan meg-
instraumsins, í stað þess að ein-
blína á vinsældalista.
Áhrif fjölmiðla á líf fólks eru
mikil. Að sama skapi hlýtur
ábyrgð þeirra að vera mikil og full
ástæða til að ítreka mikilvægi þess
að fjölmiðlar sýni aðhald og gagn-
rýni við efnisval. Þar skiptir Rík-
isútvarpið miklu máli, vegna þess
að það ber ábyrgð gagnvart öllum
landsmönnum, ekki aðeins fámenn-
um hópi eigenda og fjárfesta.
Við þurfum að efla Ríkisútvarpið
til að sinna metnaðarfullri dag-
skrárgerð. Það þarf að halda úti
svæðisstöðvum um land allt og
auka þannig fjölbreytni í dag-
skrárgerð. Síðast en ekki síst þarf
Ríkisútvarpið að reka óháðar
fréttastofur og halda uppi mál-
efnalegri umræðu.
Besta útvarpið!
Eftir Katrínu Jakobsdóttur
Höfundur er formaður UVG
og skipar 5. sætið á lista
VG í Reykjavík suður.
ÉG skora á kjósendur í Reykjvík að
fjölmenna á kjörstað í dag og tryggja að
Halldór Ásgrímsson og Jónína Bjartmarz
hljóti örugga kosningu
sem þingmenn Reykvík-
inga.
Við framsóknarmenn í
Reykjavík höfum fundið
að sjónarmið okkar eiga
mikinn meðbyr meðal
kjósenda en samt er það
svo að enn getur brugðið til beggja vona
með kjör Halldórs og Jónínu. Gerum það
sem í okkar valdi stendur til að koma í
veg fyrir pólitískt stórslys. Fjölmennum
á kjörstað í dag. xB.
Komum í veg fyrir
pólitískt stórslys
Eftir Friðjón Guðröðarson
Höfundur er fyrrverandi sýslumaður.
ÁRIÐ 1995 voru mislæg gatna-
mót Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar tekin út úr aðal-
skipulagi Reykja-
víkur. Borgar-
fulltrúar R-listans
sögðu að þetta væri
gert til að minnka
umferð í Reykjavík.
R-listinn kom sér
ekki saman um
hvernig skipuleggja ætti og í upp-
lausn málsins tók borgarstjórinn
þáverandi, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, málið út af dagskrá. Í allri
umræðunni um þessi umferðar-
mestu gatnamót Reykjavíkur (80
þúsund bílar á dag) lætur svo R-
listafólk að því liggja að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
ásamt samgönguráðherra, vinni
gegn bættri skipan umferðarmála í
borginni.
Samgöngumál setið á
hakanum nálægt Reykjavík
Í útvarpsviðtali nýráðins borgar-
stjóra mæltist Þórólfi Árnasyni svo:
„Og það skelfir að sjá að slys, alvar-
leg slys í umferð, eru ekki lengur í
Reykjavík heldur eru þau í ná-
grenni Reykjavíkur. Það er vegna
þess að samgöngumál hafa setið á
hakanum nálægt Reykjavík.
Ég held hins vegar að þingmenn
þessa svæðis hafi goldið þess að
vera ekki fyrirgreiðsluaðilar eða
potarar. Og það er nú bara það
sem menn því miður stundum
tengja stjórnmálaþátttöku, það er
að þar ætli menn að skara eld að
sinni köku og fara að atast í ein-
hverjum málum sem þeim eða
þeirra nánustu skjólstæðingum
hugnast best.“ Að óathuguðu máli
er horft yfir vandann sem hefur
blasað við. Vandræðagangur í
skipulagsmálum umferðar-
mannvirkja Kringlumýrarbrautar
og Miklubrautar talar sínu máli um
R-listann, með borgarstjórann,
sem ekki ætlaði að hætta, í broddi
fylkingar. Það eru dapurlegar
staðreyndir að á þessum gatna-
mótum hafi á árunum 1995 til og
með árinu 2000 orðið 723 umferð-
aróhöpp, 323 slys á fólki, með áætl-
uðu tjónamati upp á um 1,5 millj-
arða króna.
Sundabraut
Í mörg ár hefur skipulag Sunda-
brautar verið í deiglunni. Yfir því
máli hefur verið mikil yfirlega og
vomur. Enn er R-listinn tvístíg-
andi, vill þó nú fara leið hábrúar yf-
ir sundin, í stað svokallaðrar land-
mótunarleiðar. R-listaleiðin er 3
milljörðum dýrari, en hann telur
þessa leið hinn vænsta kost og gef-
ur ekkert fyrir það þótt hún kosti
meira. En á sama tíma tekur R-
listinn, með Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, fyrrverandi borg-
arstjóra, í fararbroddi, ákvörðun
um að loka barnaheimilum í
Reykjavík í einn mánuð í sumar til
að spara 12 milljónir.
Er þessi hópur trúverðugur?
Slysagildran
á Kringlu-
mýrarbraut
Eftir Guðmund Hallvarðsson
Höfundur er alþingismaður.
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
N
M
0
9
4
4
1
/ sia
.is
mms -fljónustaner eingönguí bo›i hjásímanumgsm
me› mms-s
íma
getur›u se
nt
myndir og
hljó›
í annan sím
a
Tilbo›in gilda í verslunum Símans Laugavegi, Kringlunni, Smáralind
og Akureyri um helgina e›a á me›an birg›ir endast.
MMS
28.980 stgr.kr.
sony ericsson t68i
MMS ,WAP, GPRS, LITASKJÁR o.fl.
tilbo›sver›:
kjósturétt
WAP, GPRS o.fl.
sony ericsson t200
tilbo›sver›:
nokia 3310
me› handfrjálsum búna›i
í bíl a› ver›mæti 4.980 kr.
tilbo›sver›:
9.980 stgr.kr.
11.980 stgr.kr.