Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 34
LISTIR
34 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DANS fyrir þig er heiti sýningar
Íslenska dansflokksins sem sett er á
laggirnar í tilefni af 30 ára afmæli
hans. Afmælissýningin samanstend-
ur af brotum úr dansverkum sem
dansflokkurinn hefur flutt síðustu
árin.
Eftir hlé var síðan frumflutt tutt-
ugu mínútna dansverk eftir Láru
Stefánsdóttur. Kvöldið hófst á verki
Ólafar Ingólfsdóttur við tónlist Halls
Ingólfssonar, Maðurinn er alltaf
einn. Dansararnir fikruðu sig inn á
sviðið með hænuskrefum starandi
niður á tær sér í litríkum búningum.
Það var lífsgleði og léttleiki sem
einkenndi hreyfingarnar við dillandi
tónlistina. Tveir þættir úr La Cabina
eftir Jochen Ulrich voru næstir á
dagskrá. Fyrst taktfastur og stíl-
hreinn danskafli þar sem dansararn-
ir eru klæddir svörtum klæðalitlum
búningum sem óneitanlega minna á
leðurbúninga sadómasókista og
dæmi nú hver fyrir sig. Síðan tilfinn-
ingaþrunginn erótískur dans þriggja
kvendansara og eins karldansara í
blóðrauðri lýsingu við angurværan
söng La Fura dels Baus.
Feikivel saminn og og eftirminni-
legur þáttur úr La Cabina. Af mönn-
um eftir Hlíf Svavarsdóttur fylgdi í
kjölfarið. Að öðrum dönsurum ólöst-
uðum þá var sólódans Katrínar Á.
Johnson eftirminnilegur. Hún dans-
aði af innlifun og öryggi við tónlist
Þorkels Sigurbjörssonar. Dans
hennar einkenndist einnig af ein-
lægni sem er kærkomin. Dansgerðin
stenst svo sannarlega tímans tönn.
Brot úr verki Itzik Galili, Through
Nana’s eyes við tónlist Tom Waits
tók við. Þar fara Katrín Ingvadóttir,
Peter Anderson og Guðmundur
Helgason á kostum. Þau hnoðast
hvort á öðru í skærgulum sófa og
mynda bráðfyndna uppátroðandi
hreyfifléttu. Afstand eftir Ed Wubbe
við tónlist Samira Ben Said og
hljómsveitar kom úr annarri átt. Þar
dönsuðu fjórir kvendansarar tján-
ingarríkan dans að hætti kvenna við
botn Miðjarðarhafs. Ágætlega vel
dansað þó dansgerðin sé ekkert sér-
staklega áhugaverð. Brot úr NPK
eftir Katrínu Hall við tónlist Skárren
ekkert var næst á dagskrá. Dans-
ararnir röðuðu sér upp á sviðinu og
göntuðust frammi fyrir áhorfendum
sem óneitanlega minnti á brot úr
verkum Pinu Bausch. Guðmundur
Helgason fór með skondinn texta
eftir Árna Ibsen þar sem minnst var
liðinna afreka og fyrrverandi liðs-
manna Íslenska dansflokksins. Lest-
ina rak verk Jochens Ulrich, Ég
dansa við þig. Það hófst á ljúfum
söng þeirra Jóhönnu Linnet og Egils
Ólafssonar undir stjörnubjörtum
himni Borgarleikhússins. Áferðar-
fallegur dúett Steve Lorenz og Katr-
ínar Ingvadóttur leið um sviðið þar
til við tók hressileg tarantella sem
allur dansflokkurinn tók þátt í.
Eftir hlé var frumflutt nýtt verk
eftir Láru Stefánsdóttur sem ber
heitið Frosti. Það er að einhverju
leyti unnið út frá ljóði Steinunnar
Sigurðardóttur, Svanavatninu (loka-
kafla). Ljóðið fjallar um fólk sem
gleymir sér í dansi. Það vill gleyma
því sem aldrei varð, vera í núinu og
deyja glatt í dansi. Tónlistin er af
ýmsum toga. Eftir Björk Guð-
mundsdóttur, Pan Sonic, David
Hykes og P. Tsjajkovskí. Karlmaður
klæddur síðu tjullpilsi situr hugsi við
snyrtiborð. Ballerína tiplar á tánum,
dansari á línuskautum með þyril í
hendi skautar um sviðið og fjórði
dansari verksins birtist. Í blárri lýs-
ingu og leikhúsreyk hristir Guð-
mundur pils sitt og hossar öðrum
kvendansaranum á hné sér. Guð-
mundur Elías Knudsen færir hreyf-
ingar svana í stílinn og dansar dúett
við hinn kvendansarann. Í Frosta
voru sniðugir og myndrænt fallegir
kaflar. Engu að síður hafði verkið yf-
ir sér flausturslegt yfirbragð. Dans-
gerðin eða kóreógrafían var sundur-
laus og minnti á köflum á verk eftir
Jorma Uotinen. Ólík tónlistin virkaði
eins og fljótvalinn samtíningur og
ýtti enn frekar undir stefnuleysið í
verkinu. Dans- og leikgleði dansar-
anna var svo sannarlega fyrir hendi.
Þó dugðu bjána-, kjána- og skopleg-
heit þeirra ekki til að gera verkið
áhugavert. Umgjörð afmælissýning-
arinnar í heild var hressileg með
skemmtilegum uppákomum að
ógleymdri tónlist Skárren ekkert.
Dansararnir stóðu sig afspyrnu vel í
sýningunni en það mæddi mikið á
þessum átta dönsurum.
Mikið vatn er runnið til sjávar frá
því Íslenski dansflokkurinn var
stofnaður fyrir 30 árum. Á þessum
tíma hafa margir einstaklingar lagt
hönd á plóginn og átt sinn þátt í því
að gera dansflokkinn að því sem
hann er í dag. Framgöngu núverandi
listdansstjóra, Katrínar Hall, ber að
lofa en með hennar framgöngu og
listrænni stjórnun er flokkurinn á
góðri leið með að festa sig í sessi á al-
þjóðavettvangi. Sé miðað við sam-
bærilega dansflokka í Evrópu þá er
það engin launung að Íslenski dans-
flokkurinn stendur mjög framar-
lega. Þetta var ánægjulegt afmæl-
isboð og óhætt að segja að gleðin
hafi ráðið ríkjum. Ég set X við Ís-
lenska dansflokkinn. Til hamingju
með afmælið!
X við Íslenska
dansflokkinn
Morgunblaðið/Sverrir
„Sé miðað við sambærilega dansflokka í Evrópu þá er það engin launung að ÍD stendur mjög framarlega.“
LISTDANS
Borgarleikhúsið
30 ára afmælissýning Íslenska dans-
flokksins. FROSTI – Svanavatnið (loka-
kafli) eftir Láru Stefánsdóttur og brot úr
verkum Íslenska dansflokksins sl. 30 ár.
Fimmtudagur 8. maí 2003.
DANS FYRIR ÞIG
Lilja Ívarsdóttir
FIMMTA alþingiskosningasýning
Kristjáns Guðmundssonar verður í
Slunkaríki á Ísafirði dagana 10.–25.
maí. Opnun fer fram kl. 16 í dag.
„Stöðugleiki, áræði og staðfesta
einkenna áætlanagerðir stjórnar
Slunkaríkis og myndlistarmannsins
Kristjáns Guðmundssonar,“ segir í
kynningu. „Að þessu sinni er Krist-
ján með grafíkmyndir í farteski sínu.
Eiríkur hinn óþekkti
feikna geymir visku.
Mold og myrkur klýfur hann
og rambar milli fjalla.
Þessa skrýtlu Sólons Guðmunds-
sonar í Slunkaríki um Eirík nokkurn
er hægt að heimfæra upp á Kristján
að öllu öðru leyti en því að listamað-
urinn er nokkuð frægur, hann á að
baki fjölda sýninga hér heima og í út-
löndum. Eins og áður segir leggur
stjórn Slunkaríkis ríka áherslu á
stöðugleika og jafnvægi í málefnum
sínum og landsmanna allra og eru al-
þingiskosningasýningar Kristjáns
tillegg beggja aðila til að það mark-
mið megi nást landi og lýð til heilla.“
Slunkaríki er opið fimmtudaga til
sunnudags kl. 16–18.
Alþingiskosninga-
sýning í Slunkaríki
ÞAÐ mun hafa verið fyrir rúmum
tíu árum að Margrét Pálmadóttir
söngkona stofnaði Kvennakór
Reykjavíkur og með dugnaði gerði
hún kvennakórinn að mikilvirkri
söngstofnun. Nú er hún fjarri góðu
gamni og hennar því hvergi getið í
efnisskrá tónleikanna og því hér tí-
undað, að vert er að geta þess sem vel
er gert.
Tónleikarnir hófust á söng, sem
Margrét hafði með sér úr kistu Öldu-
túnskórsins, en Kabalevskí færði
kórnum í Rússlandsferð hans lagið
sem hér heima heitir Senn kemur vor.
Þetta fallega lag var sérlega vel sung-
ið. Söng sígaunakvennanna úr La
travíata eftir Verdi var spillt með
klappi en þó sunginn af þokka og
sama má segja um Búðarvísurnar eft-
ir Emil Thoroddsen og Vorvindana
eftir Sigvalda Kaldalóns. Konur eftir
Þorkel Sigurbjörnsson er leikrænt og
skemmtilegt tónverk, við ljóð eftir
Jón úr Vör, og þótt gera hefði mátt
meira úr hinu leikræna var verkið vel
flutt með sérlega skýrum framburði.
Salve Regina eftir Hjálmar H.
Ragnarsson er einstaklega fallegt
verk og var mjög vel sungið. Ef þig
langar að syngja er þokkafullt dæg-
urlag og síðasta verkið fyrir hlé var
frumflutningur á fimm þátta tón-
verki, Ég hlusta á þær glóa, eftir Mist
Þorkelsdóttur, við texta eftir Hannes
Pétursson. Textinn er um sumar og
haust, kvöldstemmningar og Jóns-
messunótt. Mist leikur sér frjálslega
með textann og víxlar honum
skemmtilega á milli radda og var sér-
lega falleg stemmningin í tveimur síð-
ustu lögunum, um maínóttina og
leiðslustund á Jónsmessnótt. Þetta
hljómfallega verk var vel flutt undir
öruggri stjórn Sigrúnar Þorgeirs-
dóttur.
Þrír þjóðdansar í keðju, snilldarút-
setning Árna Harðarsonar á Tíminn
líður, enskur ástarsöngur og vísur
Vatnsenda-Rósu voru öll mjög vel
flutt og fyrir utan eitt sænskt lag voru
fimm síðustu viðfangsefnin íslensk,
fyrst Barnagælan hennar Vilborgar
Dagbjartsdóttur, sem tónsett var af
Ólafi Axelssyni á gamansaman máta,
þá Sápukúlur, mjög vel unnið verk
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Da
pacem, falleg friðarbæn eftir Báru
Grímsdóttur, Jónasarlögin góðu eftir
Atla Heimi Sveinsson og lokalagið,
sem var Spinna minni, smellið lag, allt
að því í stíl við kvæðalag, eftir Mist
Þorkelsdóttur, við texta eftir Þórarin
Eldjárn, þar sem leikið er með spuna-
galdurinn, spegillinn og seiðinn,
stemmningar sem voru skemmtilega
mótaðar í tóngerð Mistar.
Kvennakór Reykjavíkur er í góðu
formi. Það var gott jafnvægi á milli
radda og framburður texta til fyrir-
myndar. Auðheyrt er að Sigrún er
snjall söngstjóri og naut hún vel með-
fylgjandi undirleiks Þóru Fríðu Sæ-
mundsdóttur. Það stóra á þessum
tónleikum, bæði er varðar flutning og
gerð verksins, var frumflutningurinn
á kórverki Mistar, Ég hlusta á þær
glóa.
Ég hlusta á þær glóa
TÓNLIST
Langholtskirkja
Kvennakór Reykjavíkur hélt upp á 10 ára
söngafmæli með tónleikum í Langholts-
kirkju undir stjórn Sigrúnar Þorgeirs-
dóttur við samleik Þóru Fríðu Sæmunds-
dóttur.
Fimmtudagurinn 8. maí.
KÓRSÖNGUR
Jón Ásgeirsson
Myndlistarklúbburinn Málun
og teiknun heldur málverka-
sýningu í Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi í dag og á morgun
frá kl. 14 til 19 báða dagana.
Klúbburinn hefur haft að-
setur í skólanum í tvö ár og
fer þar fram kennsla á hverj-
um þriðjudegi yfir vetrarmán-
uðina. Átján meðlimir eru í
klúbbnum. Formaður er Sig-
urður Konráðsson og leið-
beinandi Sveinbjörn Einars-
son.
Málverk
í Valhúsa-
skóla
HILDIGUNNUR Rúnarsdótt-
ir heldur burtfararprófstón-
leika í söng frá Tónlistarskól-
anum í Hafnarfirði á morgun,
sunnudag, kl. 16.
Tónleikarnir verða haldnir í
Hásölum. Á þeim mun Hildi-
gunnur syngja fjölbreytta efn-
isskrá. Verkin eru blanda af
lögum sem flestir kannast við
og sjaldheyrðari perlum. Höf-
undarnir eru F. Schubert, B.
Britten, G. Bizet og V. Herbert.
Loks má nefna að Hildigunnur
syngur lög eftir Tryggva Bald-
vinsson við ljóð Þórarins Eld-
járns.
Meðleikari Hildigunnar á
tónleikum er Sigurður Mar-
teinsson, píanóleikari.
Aðgangur er ókeypis.
Lokaprófstónleikar Önnu
Jónsdóttur sópran frá fram-
haldsdeild Nýja tónlistarskól-
ans verða haldnir í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði í dag kl.
16:00. Richard Simm leikur
með á píanó. Flutt verða söng-
lög og aríur eftir Chopin, Ha-
ydn, Wagner, Poulenc, Cilea,
Giordano, Hjálmar H. Ragn-
arsson, Jón Ásgeirsson og Oliv-
er Kentish. Anna Jónsdóttir
lauk áttunda stigs prófi í söng
frá Nýja tónlistarskólanum
vorið 2001, og hefur síðan lagt
stund á framhaldsnám við skól-
ann. Aðalkennari hennar er Al-
ina Dubik.
Inngangseyrir er enginn.
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
Anna
Jónsdóttir
Burtfarar-
tónleikar
Mál og menning
hefur gefið út
Kantaraborg-
arsögur eftir
Geoffrey Chau-
cer í íslenskri
þýðingu Erlings
E. Halldórssonar.
Kantaraborg-
arsögur eru eitt
af höfuðritum heimsbókmenntanna
og langfrægasta verk Chaucers,
þjóðskálds Englendinga.
Hópur fólks úr öllum stigum
ensks þjóðfélags er á leið í píla-
grímsferð að gröf dýrlingsins Tóm-
asar frá Beckett í Kantaraborg. Þau
gera með sér samkomulag um að
keppa í því hver getur sagt bestu
söguna og á hver ferðalangur að
segja tvær sögur, eina á leiðinni til
áfangastaðarins og eina á leiðinni
til baka. Chaucer lauk aldrei við að
semja allar sögurnar en það sem til
er af verkinu er fyrir löngu orðið sí-
gilt og hefur skemmt lesendum og
glatt þá í gegnum aldirnar.
„Í Kantaraborgarsögum birtist
heillandi heimur síðmiðalda þar
sem ægir saman dyggðum og klúr-
heitum, hetjuskap og lágum hvöt-
um. Jarðbundið raunsæi og óbrengl-
uð sýn á gangvirki mannfólksins er
aðal þessara bráðfyndnu sagna, en
á móti leggur höfundur á vogarskál-
arnar lærdóm sinn og lýsingar á
riddaralegri hugprýði,“ segir í kynn-
ingu.
Geoffrey Chaucer er talinn hafa
látist aldamótaárið 1400. Hann er
iðulega nefndur faðir enskra þjóð-
arbókmennta.
Erlingur E. Halldórsson þýddi
Kantaraborgarsögur, en hann hefur
m.a. þýtt klassísk verk eftir Franç-
ois Rabelais, Petróníus og Bocc-
accio.
Erlingur ritar einnig athugasemdir
og eftirmála um þjóðskáldið Geoffr-
ey Chaucer.
Bókin Kantaraborgarsögur er 395
bls. og prentuð í Prentsmiðjunni
Odda.
Kápu hannaði Jeffrey C. Ramsey
og leiðbeinandi verð bókarinnar er
kr. 4.990,-
Heimsbókmenntir