Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 76
DAGBÓK 76 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Hafnarfjarðarhöfn: Emma kemur í dag, Sarfaq Ittuk fór í gær. Mannamót Félagsheimilin Gjá- bakki, Fannborg 8 og Gullsmári, Gullsmára 13. Vorsýning verður á handverki eldri borg- ara í Kópavogi laugar- daginn 10. maí og sunnudaginn 11. maí frá kl. 14–18. Smiðjur verða í gangi báða dag- ana frá kl. 15–16. Vöfflukaffi verður báða dagana frá kl. 14–17. Boðið verður upp á af- mælis- og fjölskyldu- kaffi í tilefni 10 ára af- mælis Gjábakka á sunnudag. Í Gullsmára er myndlistarsýning frá börnum í leikskól- anum Arnarsmára, opin daglega frá kl. 9– 17 en þessa helgi frá kl. 14–18. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Morg- ungangan kl. 10, pútt- æfingar á Hrafnistu- velli verða í sumar á þriðjudögum og föstu- dögum kl. 14–16. Fé- lagsheimilið er opið alla virka daga frá kl. 13–17. Kaffi á könn- unni kl. 15 til 16.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Vestfirðir 10.–15. júní, þátttak- endur þurfa að greiða staðfestingargjald fyr- ir 15. maí, eigum nokk- ur sæti laus. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Gerðuberg, félags- starf. Sund- og leik- fimiæfingar í Breið- holtslaug á mánu- dögum og föstudögum kl. 9.30. Allar upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Hvassaleiti 56–58. Handverkssýning fé- lagsstarfsins verður sunnudaginn 11. og mánudaginn 12. maí milli kl. 13–17. Góðar kaffiveitingar. Vesturgata 7. Hand- verkssýning og skoð- unarferð um Grafar- holt. Mánudaginn 12. maí kl. 13 verður farið á handverkssýningu í Félags- og þjónustu- miðstöðina í Hvassa- leiti. Kaffiveitingar, leiðsögumaður Guð- laugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, upp- lýsingar og skráning í síma 562 7077 allir vel- komnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁÁ Síðumúla 3–5 og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis. Fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. OA-samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Styrkur verður með opið hús að Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 13. maí kl. 20. Kynnt verður þjónusta endurhæfing- ardeildar Landspítal- ans í Kópavogi fyrir krabbameinssjúklinga. Allir velunnarar fé- lagsins velkomnir. Minningarkort Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsamlegast hringi í síma 552 4994 eða síma 553 6697, minningar- kortin fást líka í Há- teigskirkju við Há- teigsveg. Minningarkort Kven- félags Langholts- sóknar fást í Lang- holtskirkju, s. 520 1300 og í blómabúðinni Holtablóminu, Lang- holtsvegi 126. Gíró- þjónusta er í kirkjunni. Í dag er laugardagur 10. maí, 130. dagur ársins 2003, Eldaskil- dagur. Orð dagsins: Beinum sjón- um vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar. Vegna gleði þeirrar, er beið hans, leið hann þolinmóðlega á krossi, mat smán einskis og hefur nú sest til hægri handar hásæti Guðs. (Hebr. 12, 2.)     Það sér fyrir endann áspennandi kosninga- baráttu. Á kjósendum hafa dunið auglýsingar og áróður af ýmsu tagi, en það er svo sem ekk- ert nýtt. Á sýningu í Borgarskjalasafninu gefur að líta kosninga- áróður úr liðnum þing- kosningum. Og ljóst að oft hefur verið látið sverfa til stáls.     Á meðal þess sem þargefur að líta er bréf um fölsunaráróður B- listans; Jónas frá Hriflu er sakaður um að hafa dreift ósannindum með flugmiðum. Ósannindin sem hann er sakaður um að hafa dreift eru þau að vinstri menn hafi dreift ósannindum um Framsóknarflokkinn. Og engu líkara en að menn séu að metast um hvorir séu meiri ósann- indamenn.     Á sýningunni eru einn-ig rit sjálfstæðis- manna um orð og van- efndir vinstri manna, en þeir virðast hafa dundað sér við slíka útgáfu í stjórnarandstöðu í gegn- um tíðina.     Alþýðubandalagið létsér ekki nægja að gefa út „Grænu bókina“ eins og Gaddafi Líb- ýuleiðtogi, heldur gaf það einnig út G-vítamín með bráðnauðsynlegu bætiefni, sem „takist inn fyrir kosningar“. Og innihaldið var „bar- áttugleði, bjartsýni og kjarkur.“ Ekki hefði veitt af því í kosninga- baráttunni, sem nú er að líða.     Regnboginn skríðurinn um bréfalúguna í formi kosningapésa stjórnmálaflokkanna á morgnana. Eflaust geta sumir orðið þreyttir á því, en í raun eigum við að vera þakklát fyrir að búa í lýðræðisríki þar sem flokkarnir hafa frelsi til að kynna stefnu sína og eru að ómaka sig við það yfirhöfuð.     Við búum í samfélagiþar sem enginn er yfir gagnrýni hafinn, einkum ef hann tekur þátt í þjóðfélagsumræð- unni. Ekki forsætisráð- herra, borgarstjóri, biskupinn, forsetinn, listamenn, stofnanir, fyrirtæki eða fjölmiðlar.     Með því að taka þátt ígagnrýninni um- ræðu, sem er fylgifiskur lýðræðisins, gefum við færi á gagnrýni á okkur. Gagnrýni er öllum holl. Og almenningur er full- fær um að dæma hvort hún er málefnaleg.     Í kosningunum í dagkjósum við valdhafa. Okkar verkefni er að veita þeim aðhald og muna fyrir hvað þeir standa. Þeir standa og falla með því. STAKSTEINAR Þjóðin veit vel hvað er málefnaleg barátta Víkverji skrifar... VÍKVERJA hefur borist eftirfar-andi bréf frá Gunnari Kristjáns- syni, kartöflubónda úr Elliðaárdal: „Hvað er skemmtilegra en að hafa dálítinn léttleika og húmor í lífinu? Allavega að hafa það sem pínulítið krydd í tilveruna. Eitthvað vantaði upp á húmorinn hjá Víkverja þriðju- daginn 29. apríl. Í byrjun greinar sinnar dásamar hann Stöð 2 og Sýn fyrir frábærar knattspyrnulýsingar sem ég er sannarlega sammála hon- um um. Hann sá þó einn leiðinlegan blett á lýsingunum og hann var sá að einn aðstoðarmanna þeirra ágætu íþróttafréttamanna væri sífellt með fimmaura brandara. Sá ágæti maður heitir Logi Ólafsson. Ágæti Víkverji, ef þú tekur fótboltann þinn það al- varlega að þú þolir ekki að heyra smellin tilsvör þá þyrftir þú að finna þér önnur áhugamál, t.d. frímerkja- söfnun, það truflar þig enginn þar. Það sem ég skynjaði gegnum þín skrif var það að þitt lið var í sókn og það var dæmd rangstaða, línuvörð- urinn lyftir upp flaggi. Þú hefur sjálfsagt hoppað upp í bræði þinni (ég hef gert það oft), þá heyrir þú Loga segja „hann flaggar, er kominn 17 júní?“. Þessi hnyttnu tilsvör og orðaleikir hans Loga eru eitt af því skemmtilegasta í lýsingum þeirra Sýnarmanna. Það eru ekki margir sem eru „nat- ural húmoristar“, geta gripið augna- blikið og séð glettnina í því, Logi Ólafsson er einn af þeim. Hvað er þá betra en að hafa mann sem þekkir fótboltann út í gegn og er að auki vel máli farinn og gífurlega skemmti- legur? Ég ætla að lokum að segja frá öðr- um „natural húmorista“ sem heitir Jón H. Karlsson, frækinn hand- knattleiksmaður á árum áður. Við vorum við þriðja mann að spila golf fyrir nokkrum dögum. Við sláum af teig og félagi okkar Karl Harrý slær fallegt högg eftir miðri braut en ég slæ því miður út í tjörn. Þá dettur upp úr Jóni: „Kalli, þú ert hrokkinn en þú Gunnar minn ert sokkinn.“ Upp með húmorinn Víkverji.“ x x x VÍKVERJI þakkar Gunnari bréf-ið. Hann er samt sem áður þeirr- ar skoðunar að knattspyrnan, hinn listræni leikur, sé nógu skemmtileg ein og sér að ekki þurfi að „lyfta“ henni upp með stöðugu sprelli og spéyrðum. Alla vega ekki í beinum útsendingum frá spennandi og þungvægum leikjum. Hitt er annað mál að ágætlega fer á því að slá á létta strengi í spjall- þáttum eins og 4-4-2 á Sýn á föstu- dagskvöldum. Þar gengur mönnum, undir forystu Þorsteins Joð og Snorra Más Skúlasonar, ágætlega að kryfja sparkið á léttari nótum. Kannski Logi Ólafsson geti fengið að hjálpa til við þann þátt? Hann gæti til dæmis verið með „uppi- stand“, eins og það er kallað og rifj- að upp spaugileg atvik úr leikjum vikunnar. Það væri Víkverja að meinalausu. Reuters Zidane og Henry. Þarf að lyfta þeim upp með hnyttnum tilsvörum? Ég ætla ekki að kjósa ÉG ER miðaldra öryrki, bý í einu herbergi í verk- smiðjuhúsnæði í verk- smiðjuhverfi. Ég er með um 70.000 kr. á mánuði. Ég fæ ekki húsaleigubætur þar sem ég hef ekki efni á að leigja íbúð, ég fæ ekki heim- ilisuppbót þar sem ég nota sömu eldavél og aðrir leigj- endur, en það er talið sam- eiginlegt eldhús. Ég reyki ekki, drekk ekki, er ekki áskrifandi að dagblaði, ég horfi á sjón- varpið (að vísu ólöglega þar sem ég borga ekki af því), ég á ekki bíl, ég fer ekki í sumarleyfisferðir, ég hef ekki farið til tannlæknis eða í klippingu á stofu í mörg ár. Ég er að vísu með síma þar sem það er nauðsynlegt fyrir mig vegna veikinda minna. Ég borga 35.000 á mán- uði fyrir herbergið, annað fer í mat, lyfja- og læknis- kostnað og einnig er ég með eitt lán sem ég er að borga af. Þar með er peningurinn farinn. Það eru í hverjum mánuði dregnar 10.000 krónur í skatt af bótunum sem ég fæ frá Trygginga- stofnun. Undanfarin ár hef ég ver- ið að rembast við að kjósa þá sem lofa öllu fögru, en er nú búin að gefast upp á því, þar sem loforðin eru fljót að gleymast eftir kosningar. T.d. skil ég ekki af hverju fólk sem leigir eitt herbergi (þar sem það hefur ekki efni á að leigja íbúð) fær ekki húsaleigubætur, það býr enginn í einu herbergi af því hann vill það. En þetta fólk með sín fögru loforð, sem býr í sín- um fínu einbýlishúsum – og er þá nokkuð sama hvaða flokki það tilheyrir – ætti að prufa að búa við þessar að- stæður og finna hvað von- leysið og þunglyndið er fljótt að koma þegar fólk er fast í „fátæktargildrum ör- orkunnar“. Með kveðju, Anna. Um skoðanakannanir MIG langar að koma að einu atriði í sambandi við skoðanakannanir. Hvernig væri að Gallup kannaði hverjir það eru sem lenda í úrtaki? Ég er oft að furða mig á því hvernig þetta er unnið, ég vinn á fjölmenn- um vinnustað, umgengst mikið af fólki og ekki veit ég hvað kannanirnar eru orðn- ar margar, en þekki einn mann sem hefur verið hringt í. Kristín. Er það bara ég … ÉG er ekki komin með ald- ur til að kjósa en hef þó fylgst örlítið með þessari baráttu hjá stjórnmála- flokkunum. Það sem hefur vakið athygli mína er að á sama tíma og stjórnmála- flokkarnir eyða mörgum milljónum króna í auglýs- ingar bæði í sjónvarpi, dag- blöðum og fleira rífast þeir um hverjum það er að kenna að fátæktin í landinu hefur aukist svona mikið. Er það bara ég sem sé kaldhæðnina í þessu? Marta Sigurðardóttir. Þakkir 1. MAÍ sl. var okkur hjón- um boðið í sérlega flotta kaffiveislu hjá Barðstrend- ingakonum og viljum við þakka mikið fyrir okkur. Kæru kvennadeildarkon- ur að vestan, þetta var dásamlegur dagur, allt var svo flott og gaman að sjá öll kunnuglegu andlitin, heyra söng og sögur. Við óskum öllum í Barðstrendinga- félaginu góðs gengis. Hjón að vestan. Pæja eða ópæja? ELDRI borgari skrifaði í Velvakanda miðvikudaginn 7. maí þar sem fyrirsögnin var „Siðferðislega óverj- andi“. Þar skrifar hann að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, forsætisráðherraefni Samfylkingar, sé ópæja. Ég varð afar hneykslaður og felmtri sleginn er ég las þessa grein, þennan róg- burð. Það liggur afar ljóst fyrir að Ingibjörg Sólrún er ein mesta pæja Íslandssögunn- ar, og er pæjum þessa lands til mikils sóma. Davíð er hins vegar algjör ópæja, og það sér hver maður. Finnst mér þetta ekki til sóma frá eldri borgara. Eldri borgari. Hver þekkir textann? ER einhver sem getur út- vegað mér textann úr ljóð- inu „Mikið lifandi skelfing er skemmtana rýr/ í skammdegi höfuðborgin“, en þessi texti er líklega úr leikritinu Spánskar nætur. Þeir sem gætu liðsinnt mér vinsamlega hafi samband við Sigrúnu í síma 567 5287. Tapað/fundið Armband týndist GULLARMBAND, tvílitt, með stórum kringlóttum lás týndist líklega við Byko í Kópavogi, Bónus á Smiðju- vegi, Tekk-húsið eða Habit- at sl. þriðjudag. Skilvís finnandi hafi samband í síma 822 0222. Fundarlaun. Rauðgult hjól týndist TRECK 820 karlmanns- hjól, rauðgult, týndist í Fossvogi við Víkina síðdeg- is sl. fimmtudag 8. maí. Þeir sem hafa séð hjólið hafi samband í síma 564 1080 eða 898 1085. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 væna um, 4 él, 7 svipað, 8 trylltur, 9 skolla, 11 áflog, 13 konur, 14 ofsa- kæti, 15 urgur, 17 yfir- læti, 20 hryggur, 22 smá- strákur, 23 sætta sig við, 24 skrika til, 25 stækja. LÓÐRÉTT 1 ófullkomið, 2 frum- eindar, 3 temur, 4 hrör- legt hús, 5 á jakka, 6 dræsur, 10 unna, 12 hug- fólginn, 13 lipur, 15 málmur, 16 dauðyflið, 18 eldstæðum, 19 fugl, 20 uppmjó fata, 21 hestur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 keldusvín, 8 folar, 9 larfa, 10 gól, 11 tíðka, 13 akkur, 15 hress, 18 strák, 21 vit, 22 reisa, 22 andar, 24 flatmagar. Lóðrétt: 2 eplið, 3 durga, 4 sylla, 5 ísrek, 6 eflt, 7 barr, 12 kös, 14 kút, 15 horf, 16 erill, 17 svart, 18 staka, 19 rudda, 20 kúra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.