Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 32
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
32 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÝI tölvu- og viðskiptaskólinn á Suð-
urlandi hefur starfað á Selfossi frá
árinu 1997 og óhætt er að segja að
starfsemin hafi blómstrað.
„Þetta var þannig að þegar ég var
að berjast kvöld eftir kvöld yfir ólýsta
Hellisheiðina í myrkri og skafrenn-
ingi til að sækja tölvu- og enskunám
til Reykjavíkur að ég hugsaði með
mér, aftur og aftur, að ég gæti ekki
verið sá eini sem vildi læra þetta. Síð-
an dreif ég í því að kaupa 10 tölvur og
auglýsti námskeið og núna eru tölv-
urnar yfir 100 talsins hjá okkur og
við kennum í sérhönnuðu húsnæði.
Það var rétt fyrst að fólk var tor-
tryggið þegar ég fór út í þetta enda
ekki með neinar menntagráður á mér
en ég man eftir að fólkið sagði að ég
segði því þetta allt á mannamáli og
sterkasta auglýsingin hefur frá
fyrsta degi verið nemendurnir sem
hafa sótt námið,“ segir Valtýr Páls-
son sem rekur Nýja tölvu- og við-
skiptaskólann á Suðurlandi ásamt
Enskuskólanum
Viðurkenndur einkaskóli
Valtýr byrjaði 1997 að bjóða upp á
bókhalds- og tölvunám og varð strax
var við mikinn áhuga fólks. Síðan óx
starfsemin hratt því þörfin var
greinilega mikil. „Það kom í ljós að
það vildu allir komast inn í tölvu-
heiminn og nemendur hrúguðust að
okkur. Síðan gerðist það að við
gengum í samstarf við NTV-skólann
á höfuðborgarsvæðinu og úr því
varð keðja þriggja skóla sem bjóða
upp á alls konar tölvu- og við-
skiptanám ásamt grafísku námi. Það
má segja að flaggskipið hjá okkur sé
forritunar- og kerfisfræðinámið en
um síðastliðin áramót útskrifuðum
við 14 forritunar- og kerfisfræðinga
sem luku námi hjá okkur.
Við urðum síðan handhafar við-
urkenningar menntamálaráðuneyt-
isins sem einkaskóli á framhalds-
skólastigi sem þýðir að allt okkar
nám gefur einingar til stúdents-
prófs. Í gegnum tíðina hefur þetta
þróast og breyst þannig að nú tökum
við einnig upp hvers konar nám-
skeiðahald fyrir störf og tóm-
stundir,“ segir Valtýr.
Sumarskóli að byrja
„Svo erum við núna að fara af stað
með sumarskóla sem er mennta-
skólanám með 75 áfanga í boði.
Þetta gerum við í samstarfi við Sum-
arskólann ehf. sem notar húsnæðið
hjá okkur. Þetta nám býðst öllum,
jafnt unglingum sem fullorðnum, og
er kjörið fyrir menntaskóla- eða fjöl-
brautaskólanema sem þurfa að bæta
við sig og nota sumarið til þess.
Þetta byrjar 26. maí og stendur til
20. júní, við prófum 23–25. júní og
einkunnaafhending verður 27. júní,“
segir Valtýr.
„Fyrir rúmu ári opnuðum við nýja
deild sem er Enskuskólinn á Suður-
landi og kennum talmálsensku á 8
kennslustigum og notum eingöngu
enska, sérmenntaða kennara í
kennslu talmáls fyrir útlendinga. Á
síðustu önnum hefur nemendafjöld-
inn tvöfaldast og nú komast færri að
en vilja. Við höfum svo tekið upp
spænskunám og verðum með fram-
haldshópa í haust ásamt því að bjóða
upp á ítölsku og þýsku.
Svo erum við einnig með sérstæða
tónlistarkennslu, byrjuðum til
reynslu að bjóða upp á gítar- og
bassaleik. Við kennum fólkinu að
spila eftir eyranu sem er mjög vin-
sælt en ríflega 50 manns voru í þessu
námi í vetur. Síðastliðið haust bætt-
um við inn píanókennslu og trommu-
leik og næsta haust verðum við auk
þess með söng og raddbeitingu,“
segir Valtýr Pálsson.
Hann leggur áherslu á að veiga-
mesta atriðið í allri þessari náms-
uppbyggingu sem og uppbyggingu á
háskólastigi sé aðgengi fólks að
náminu – því meira sem í boði er því
auðveldara sé fyrir fólk að nálgast
það sem því hentar.
Valtýr Pálsson fékk hugmynd að skóla í skafrenningi og myrkri á Hellisheiði
„Það gat ekki verið
að ég væri sá eini
sem vildi læra“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Valtýr Pálsson, skólastjóri og aðaleigandi Nýja tölvu- og viðskiptaskólans
á Suðurlandi, fyrir utan aðalstöðvar skólans á Selfossi.
Selfoss
LANGT er komið að skrifa sögu
Barnaskólans á Eyrarbakka og
Stokkseyri og í ráði er að hún verði
gefin út í sumar. Árni Daníel Júl-
íusson, sagnfræðingur hjá Reykja-
víkurakademíunni, hefur skráð
sögu skólanna og tengt hana við at-
vinnuhætti og mannlíf á þeirri einu
og hálfu öld sem saga skólans nær
til, bæði á landsvísu og í þorpunum
tveimur á suðurströndinni.
Bókin verður fjörlega uppsett
með litskreyttum síðum og nokkr-
um hundruðum mynda, segir í
fréttatilkynningu. Leitað er að
styrktaraðilum við útgáfuna og
geta þeir sem gerast áskrifendur
fengið nafn sitt skráð í bókina und-
ir yfirskriftinni: „Við sendum
Barnaskólanum á Eyrarbakka og
Stokkseyri árnaðaróskir á hundrað
og fimmtíu ára afmælinu.“ Gert er
ráð fyrir að bókin kosti 3.900 krón-
ur til áskrifenda. Reiknað er með
því að greiða megi áskriftina með
allt að þremur raðgreiðslum með
korti. Þeir sem gerast áskrifendur
fyrir 20. maí fá nafn sitt á þennan
lista.
Fólk er beðið að hafa samband
við Óskar Magnússon á Eyrar-
bakka eða Theodór Guðjónsson,
Árlundi, Gaulverjabæjarheppi.
Einnig er hægt að skrá áskrift í
Barnaskólanum á Eyrarbakka og
Stokkseyri.
150 ára saga
barnaskóla
gefin út
Eyrarbakki
Á DEGI umhverfisins veitti Um-
hverfisnefnd Ölfuss þeim Svani
Kristjánssyni og Árna V. Þor-
steinssyni viðurkenningar fyrir
að huga vel að umhverfi sínu
meðal annars með því að nota
ekki bíl heldur ganga og hjóla til
vinnu á hverjum degi.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra hélt hátíðarræðu
og afhenti viðurkenningarnar.
Brynjólfur Jónsson, formaður
Skógræktarfélags Íslands, og
Ólafur Áki Ragnarsson, bæj-
arstjóri Ölfuss, undirrituðu vilja-
yfirlýsingu milli Skógrækt-
sem er opinn öllum, og ráðstafa
fé úr honum til plöntukaupa.
Stefnt er að því að fyrstu
plöntur, sem fjármagnaðar eru úr
sjóðnum, verði gróðursettar á
Jónsmessunni 24. júní á Hafn-
arsandi fyrir ofan Þorlákshöfn.
Viður-
kenning-
ar á degi
umhverfis
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Svanur Kristjánsson og Árni V. Þorsteinsson fengu viðurkenningar. Einn-
ig eru á myndinni Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Ólafur Áki
Ragnarsson bæjarstjóri og Davíð Halldórsson garðyrkjustjóri.
Þorlákshöfn
arfélags Íslands og
Sveitarfélagsins Ölfuss um að
sveitarfélagið láti af hendi land
undir skógrækt sem fjármagnað
er af sjóði sem tónlistarmenn
hafa stofnað. Skógræktarfélag Ís-
lands mun halda utan um sjóðinn,
NEMENDUM Grunnskólans í
Hveragerði var fyrir skömmu boðið
að inn í Gufudal, þar sem félagar úr
Skógræktarfélagi Hveragerðis voru
mættir. Krakkarnir fengu skóflur,
skít og plöntur og plöntuðu skógar-
trjám.
Allir bekkir skólans nema 10.
bekkingar, sem voru látnir vera í
skólanum til að undirbúa sig fyrir
lokaprófin sín, voru mættir og það
var gaman að sjá Hamarinn og Gufu-
dalinn iða af lífi. Alls voru þetta um
350 krakkar auk margra fullorðinna.
Þegar plöntun var lokið var farið í
ratleik í Hamrinum. Leikurinn gekk
út á það að finna ákveðnar stöðvar,
sem voru víðsvegar um Hamarinn og
fá þar stimpil á blaðið sitt. Það var
gaman að fylgjast með krökkunum
þegar þau skiluðu af sér blöðunum,
rjóð og sælleg af hlaupum og úti-
veru.
Um hádegisbil þegar allir voru
búnir að ljúka við verkefni dagsins
bauð Hveragerðisbær krökkunum
upp á léttar veitingar, sem voru djús
og súkkulaði.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Geir Höskuldsson (t.v.) og Ragnar
Natanaelsson tóku til hendinni og
gróðursettu tré í skólalundinum.
Vel heppn-
aður
útidagur
Hveragerði
Ratleikur og
gróðursetning
HÁSKÓLINN á Akureyri kynnti ný-
lega á Selfossi fjarnám við skólann
sem boðið verður upp á næsta haust.
Á kynninguna mættu 35 manns og
mestur áhugi var fyrir leikskólakenn-
ara- og kennaranámi en auk þess kom
nokkur hópur fólks til að kynna sér
fjarnám í rekstrarfræði og auðlinda-
fræði. Nokkuð ljóst er talið að í haust
fari af stað þrír nýir námshópar sem
bætast við það nám sem nú þegar er í
gangi og er gert ráð fyrir að nem-
endafjöldi í háskólanámi á vegum
Fræðslunets Suðurlands og Háskól-
ans á Akureyri nálgist 100 manns.
Fræðslunet Suðurlands hefur um-
sjón með náminu á Suðurlandi í sam-
vinnu við Háskólann á Akureyri.
Nemendur sækja kennslustundir í
fjarkennslubúnaði Fræðslunetsins á
Selfossi. Einnig er leikskólakennara-
nám á Hvolsvelli og fer fram í gegn-
um fjarfundarbúnað Héraðsnefndar
Rangæinga í umsjón Gunnhildar
Kristjánsdóttur.
Fræðslunetið sér um öll próf sem
tekin eru en á þessari vorönn eru tek-
in 25 háskólapróf auk sjúkra- og upp-
tökuprófa. „Háskólanámið er vaxandi
enda ákaflega mikilvægt að auka það
sem mest þar sem það er einn mik-
ilvægasti þátturinn í jákvæðri
byggðaþróun á Suðurlandi,“ sagði
Jón Hjartarson, forstöðumaður
Fræðslunets Suðurlands.
Mikil fjölg-
un í há-
skólanámi
Selfoss
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Mikill áhugi var fyrir kynningu á fjarnámi Háskólans á Akureyri.
HINN 2. maí síðastliðinn samþykkti
bæjarráð Hveragerðis að heimila
Orra Hlöðverssyni bæjarstjóra að
ganga til samninga við SS verktaka.
Bærinn mun þá taka á leigu allt að
800 fermetra skrifstofuhúsnæði í fyr-
irhugaðri byggingu á lóðinni Sunnu-
mörk 2.
Ef þau áform sem uppi eru um
byggingu verslunar- og þjónustumið-
stöðvar við Sunnumörk verða að
veruleika mun Hveragerðisbær flytja
starfsemi bæjarskrifstofanna og
bókasafns bæjarins í húsið á næsta
ári. Samningsgerðin er háð því að við-
unandi samningar við byggingaraðila
náist.
Í frumdrögum að hönnun hússins
er gert ráð fyrir verslunarrými á
jarðhæð og skrifstofuhúsnæði í sér-
stakri turnbyggingu á annarri og
þriðju hæð, en þangað er gert ráð fyr-
ir að bærinn flytji starfsemi sína.
Samþykkt bæjarráðs er háð því að
aðrir lykilaðilar fáist inn í húsið, en nú
er unnið af fullum krafti að markaðs-
setningu hússins til valinna rekstrar-
aðila. Ljóst er að ákvörðun Hvera-
gerðisbæjar um beina aðkomu að
Sunnumörk 2 hefur jákvæð áhrif á
framgang þessa mikilvæga verkefnis
og eykur áhuga annarra rekstrar-
aðila á verkefninu.
Að sögn bæjarstjórans búa bæjar-
skrifstofur og bókasafn Hveragerðis-
bæjar við fremur þröngan húsakost í
dag og framtíðarafnot þessara stofn-
ana af núverandi húsnæði geta ekki
talist örugg. Bæjarskrifstofur eru í
húsi sem er um 300 fermetrar að
stærð. Bókasafnið er í húsnæði sem
er um 200 fermetrar og rennur leigu-
samningur safnsins út í lok ársins
2004. Möguleikinn á að flytja starf-
semina í Sunnumörk kemur því á
heppilegum tíma fyrir Hvera-
gerðisbæ og tryggir umræddum
stofnunum gott húsnæði til framtíðar.
Framgangur samningaviðræðna
við aðra rekstraraðila mun á allra
næstu vikum leiða í ljós hvenær fram-
kvæmdir geta hafist við Sunnumörk
2.
Í nýtt
húsnæði
að ári?
Hveragerði
♦ ♦ ♦