Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 20
ERLENT 20 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BETSY Mueller lætur sjaldan í sér heyra í heimspekitímum í Salis- buryháskóla. En einn er sá staður þar sem hún lifnar við – umkringd dæmdum glæpamönnum í ríkis- fangelsinu í Maryland í Bandaríkj- unum. „Fyrir utan hef ég ekkert að segja. Ég er búin að átta mig á því að með því að halda uppi samræðum við fangana kemur í ljós að mér ligg- ur ýmislegt á hjarta,“ sagði hún fyr- ir skemmstu er hún heimsótti East- ern-fangelsið. „Þetta var meiri- háttar uppgötvun fyrir mig.“ Mueller tilheyrir hópi 20 stúdenta frá Salisburyháskólanum sem eru í fremur óvenjulegum leshring – og taka þátt í einhverri metnaðarfyllstu tilraun sem nokkur háskóli hefur ráðist í. Einu sinni í viku fara stúd- entarnir í fangelsið og ræða af miklu kappi um háalvarlegar bókmenntir við fangana. Þeir velta fyrir sér sið- ferðisspurningum, lífinu og dauð- anum og frelsi viljans með mönnum sem hafa tekist á við þessar spurn- ingar með áþreifanlegum hætti. Meðal lesefnis hafa verið bækur eftir Friedrich Nietzsche, Albert Camus og Frederick Douglass. Sam- ræðurnar standa í allt að tvo tíma og stúdentarnir segja þær oft mun líf- legri og meira upplýsandi en heim- spekitíma í háskólanum. „Mér finnst þetta langbesta sam- ræðuaðferðin,“ sagði Michael Han- son við fangana að umræðum lokn- um. „Það er veggur á milli okkar, en þeir sem eru sitthvorum megin við hann ná saman á þennan stórkost- lega hátt.“ Fyrir fangana, sem mæta til um- ræðnanna sjálfviljugir, er þetta fá- gætt tækifæri til vitsmunalegrar hvatningar og skipulagðrar sam- komu með öðrum föngum. (Fundir eru að öllu jöfnu bannaðir í fangels- inu, þar sem um 3.200 fangar sitja, á þeim forsendum að fundir gætu orð- ið kveikjan að uppreisn.) „Það eru nú tiltölulega takmark- aðar, vitsmunalegar samræður í fangaklefunum,“ sagði Byron Bowie, 41 árs fangi sem dæmdur var fyrir fíkniefnamisnotkun. „Þetta er flóttaleið. Tveggja tíma frelsi.“ Þessar samkomur hófust 2001 eft- ir að prófessor við Loyola-háskóla í Chicago kom til Salisbury og talaði um umræður sem hann hefði átt með föngum. Frásögn hans varð fjórum heimspekinemum við Salis- bury hvatning til að leita leyfis – sem þeir fengu – hjá Eastern-ríkis- fangelsinu til að hitta fanga þar. Nú taka um 20 stúdentar þátt í þessu og skipta sér niður í fimm hópa sem hver um sig hittir sex fanga. Kennarar við Salisbury segja að þessar umræður í fangelsinu séu í samræmi við heimspekideildina í skólanum, sem sé að ýmsu öðru leyti óvenjuleg. Kennarar við deildina eru einungis fimm, en 44 nemendur hafa heimspeki sem aðalfag og tugir til viðbótar sækja tíma, og flest nám- skeiðin eru yfirfull. Allt að 20 nemendur sækja viku- lega fundi Heimspekiklúbbsins og allt að 200 mæta á árlegt heimspeki- málþing. Þetta er ekki lítið afrek nú á tímum, þegar margar heimspeki- deildir fá litla aðsókn, og vegna þess að Salisbury er ríkisrekinn háskóli þar sem flestir nemendurnir eru í starfstengdum fögum og ekki sér- lega gefnir fyrir íhugun. Heimspekikennararnir við skól- ann reyna eftir mætti að tengja námið daglegu lífi nemendanna, fremur en gleyma sér við óhlut- bundna hugarleikfimi. Í einu nám- skeiðanna, sem boðið er upp á, er fjallað um siðferðislegar spurningar varðandi réttindi dýra og í öðru er leitað svara við heimspekilegum spurningum um ofbeldi og vægð. „Við lítum svo á að við séum að fá nemendurna til að velta fyrir sér spurningum sem skipta máli í lífi þeirra,“ sagði Frank Kane, sem hef- ur kennt lengi við deildina. „Heim- spekin rataði í ógöngur þegar hún hætti að fást við slíkar grundvall- arspurningar.“ Heimsóknirnar í fangelsið eru dæmi um þessa grundvallarhug- mynd kennaranna, segja þeir. Mueller, Hansen og tveir aðrir bekkjarfélagar þeirra óku til fang- elsisins, um 20 km leið, mánudags- morgun einn í apríl. Eftir að leitað hafði verið á þeim var þeim vísað í gegnum fjölmargar rammgerðar dyr, í gegnum fangelsisgarðinn og inn á bóksafn fangelsisins, þar sem fangar biðu. Hópurinn fór síðan að ræða bók- ina „The Souls of Black Folk“ (Sálir svertingja), eftir W.E.B. DuBois, og stóðu umræðurnar þindarlaust í tvo tíma. Fangarnir og nemendurnir rökræddu um það hvort DuBois ætti eitthvað með það að fjalla um menn- ingu svertingja í dreifbýlinu, þar sem hann væri menntamaður frá norðausturhluta Bandaríkjanna, fjarri bændabýlum Suðurríkjanna. „Gallinn er sá að hann talar máli svertingja, en hann er í rauninni ekki fulltrúi þeirra,“ sagði Kevin Lockhart, 50 ára fangi frá Balti- more, sem situr inni fyrir þjófnað. Rökræðurnar fóru að snúast um stærri spurningu, það er, hvort mað- ur geti í raun og veru skilið áþján einhvers án þess að hafa sömu reynslu og hann. Hver eru takmörk meðlíðunar? Gætu námsmennirnir raunverulega skilið hvernig það er að vera í fangelsi? Umræðurnar hafa ekki alltaf gengið snurðulaust fyrir sig. Náms- mennirnir hafa ítrekað þurft að út- skýra að þeir fái engar námsein- ingar fyrir þessa fundi í fangelsinu, en því eiga fangarnir bágt með að trúa. En yfirleitt er andrúmsloftið merkilega afslappað á þessum fund- um. Fyrir skömmu barst talið nokkr- um sinnum að kynþáttamálum, sem gætu orðið viðkvæm þar sem allir nemendurnir eru hvítir og allir fangarnir svartir. En eftir að hafa hist reglulega í hálfan annan mánuð virðast nemendurnir og fangarnir vera farnir að treysta hver öðrum nægilega til að geta talað tæpi- tungulaust. „Ég kann nú yfirleitt ekki sérlega vel við ykkur hvítingjana, en mér finnst gaman að spjalla við ykkur,“ sagði Arthur Ross, 51 árs fangi frá Washington, sem er í ævilöngu fang- elsi fyrir morð. „Við fáum að hitta fólk sem er utan fangelsisins og það tækifæri gefst ekki oft.“ Þar sem þetta var síðasti fundur hópsins lauk honum með umræðum um hvaða þýðingu fundir þeirra hafi haft. Anthony Roundtree, 38 ára fangi frá Baltimore sem situr inni fyrir rán, þjófnað og líkamsárás, sagði fundina hafa gefið sér annað og meira en það sem fengist út úr fundum með fyrrverandi eitur- lyfjafíklum. „Ég er ykkur þakklátur. Ég veit að þið gætuð varið tíma ykk- ar í annað. Þetta gefur mér mikið.“ Pamela Correa, sem er á síðasta ári í Salisburyháskóla, viðurkennir að hún hafi verið efins um að taka þátt í umræðunum í fangelsinu. „Mér tókst ekki aðeins að horfast í augu við ótta minn, heldur líka að sigrast á honum. Þið eruð alveg frá- bærir,“ sagði hún. „Þetta eru bestu heimspekiumræður sem ég hef tekið þátt í.“ Þegar fangavörður gaf merki um að tíminn væri á þrotum kvöddust nemendurnir og fangarnir. Nokkr- um klukkustundum síðar var Correa komin aftur í skólann og sólin skein á hana inn um gluggann þar sem hún sat í tíma hjá Kane um Hönnu Arendt. Nemendur sátu í ruggu- stólum sem raðað var umhverfis ar- in. Correa var enn að hugsa um fangana sem hún hafði hitt í síðasta sinn þá um morguninn. „Það er svo sannarlega dapurlegt að sjá svona skarpa menn á bak við lás og slá,“ sagði hún. „Þá gerir maður sér grein fyrir því hvað mað- ur er heppinn.“ Ræða heim- speki á bak við lás og slá Westover í Maryland. The Baltimore Sun. Kevin Lockhart (t.v.) slær á létta strengi með þeim Michael Hansen og Ron Cirillo. The Baltimore Sun/Jed Kirschbaum Fangarnir Arthur Ross (t.v.) og Byron Bowie ræða bókmenntir. ’ Heimspekin rataðií ógöngur þegar hún hætti að fást við grundvallarspurn- ingar. ‘ FYRRVERANDI al- ríkislögreglumaður í Bandaríkjunum, sem hafði umsjón með gagnnjósnum Banda- ríkjamanna í Kína, var í gær ákærður í njósna- máli sem tengist 20 ára ástarsambandi hans við kínversk-bandaríska kaupsýslukonu er njósnaði fyrir Banda- ríkin og einnig kínversk stjórnvöld. Rannsóknarkvið- dómur í Los Angeles komst að þeirri niður- stöðu að ákæra bæri James J. Smith, 59 ára fyrrverandi alríkislögreglumann, fyrir þátt hans í málinu. Er hann sakaður um að hafa leynt sambandi sínu við konuna, Katrinu Leung, látið hjá líða að veita alríkislögreglunni, FBI, réttar upp- lýsingar um hana og fengið aðra FBI-menn til að leyna neikvæðum upplýsingum um hana. Ennfremur er hann sakaður um vítaverða vanrækslu sem hafi gert Leung kleift að komast yfir leynilegar upplýsingar um njósn- ir Bandaríkjanna. Verði Smith fundinn sekur á hann allt að 40 ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Hann var handtekinn 9. apríl og leystur úr haldi gegn tryggingu. Smith er sagður hafa fengið Leung til að afla leynilegra upplýsinga um Kína árið 1982 og hafið kynferð- islegt samband við hana sama ár. Saksóknarar segja að Leung hafi hnuplað leynilegum skjölum úr tösku hans þegar hann heimsótti hana og afhent þau kínverskum leyniþjónustumönnum. Smith hafi verið sagt árið 1991 að kínverskir leyniþjónustumenn hafi komist að því að Leung væri á mála hjá FBI en hann hafi látið hjá líða að skýra alrík- islögreglunni frá því. Var í miklum metum hjá FBI Leung, sem er 49 ára, var einnig handtekin 9. apríl. Hún var álitin mjög gagnlegur njósnari og FBI greiddi henni alls 1,7 milljónir doll- ara, andvirði 125 milljóna króna, fyr- ir upplýsingarnar. Hún segist hafa verið í sambandi við um 2.100 kín- verska embættismenn og er sögð hafa haft aðgang að æðstu leiðtogum Kína, m.a. Jiang Zemin, fyrrverandi forseta, og Zhu Rongji, fyrrv. for- sætisráðherra. Bandarísk yfirvöld segja að Leung hafi látið Kínverjum í té upp- lýsingar um kínverska flóttamenn, símanúmer FBI-manna sem rann- sökuðu njósnamál, lista yfir FBI- menn sem störfuðu erlendis og fleiri leynilegar upplýsingar um njósnir Bandaríkjamanna. Fyrrverandi FBI-maður ákærður í njósnamáli Los Angeles. AP. Katrina Leung GUNNAR Schön, aðstoðarfor- stjóri stofnunar almennings- samgangna á Stokkhólmssvæð- inu, SL, hefur sagt af sér. Hann hefur viðurkennt að hafa á kostnað stofnunarinnar tekið eiginkonuna með sér í ferð á vegum embættisins til Íslands. Ferðin var farin til að taka þátt í fundi sem stóð í einn dag, mánudag, en Schön og föru- neyti lagði af stað á föstudegi. Að sögn Sydsvenska Dag- bladet kostaði ferðin, sem farin var í apríl í fyrra, alls um 40.000 sænskar krónur; 370.000 ísl. kr. Schön reyndi að fela kostnað- inn í bókhaldinu undir liðnum „ferðakostnaður“ og kom nafn eiginkonunnar ekki fram. Tveir aðrir embættismenn fóru með. Schön er fullur iðrunar: „Ég hef gerst sekur um hræðileg mistök og get ekki gefið neina góða skýringu á þessu.“ Svíþjóð Sagði af sér vegna Ís- landsferðar FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins hefur gefið út áskorun til frönsku ríkisstjórnarinn- ar um að grípa tafarlaust til ráðstaf- ana til að koma böndum á fjárlaga- halla franska ríkissjóðsins. Ella eigi Frakkland yfir höfði háar fjársektir, í samræmi við ákvæði svokallaðs stöðugleikasáttmála evrópska Efna- hags- og myntbandalagsins, EMU. Í bréfi til Frakklandsstjórnar seg- ir, að hún hafi frest til 3. október til að grípa til sannfærandi ráðstafana til að koma fjárlagahallanum undir 3% af vergri landsframleiðslu, en það eru þau mörk sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmálanum. Franski fjármálaráðherrann Francis Mer sagði að brugðizt yrði við áskorun framkvæmdastjórnar- innar fyrir tilskilinn frest, og það yrði gert „með ábyrgum hætti“. „Markmið okkar er að komast niður fyrir þrjú prósentin,“ sagði Mer. Þjóðverjar og Portúgalir hafa þegar fengið sambærilega áminn- ingu frá framkvæmdastjórn ESB. Frakkar ávíttir fyrir fjárlagahalla Brussel. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.