Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 85
SMÁRALIND • S. 555 7878
Hattar
frá 1.900 kr.
Netabolir
frá 2.990 kr.
STUTTMYNDAHÁTÍÐ grunn-
skóla í Reykjavík var haldin í Aust-
urbæjarskóla 30. apríl sl. og þá í 22.
skipti. ÍTR veitti verðlaun í tveimur
aldursflokkum, 10–12 ára og 13–16
ára.
Marteinn Sigurgeirsson er um-
sjónarmaður hátíðarinnar og mynd-
vers grunnskóla í Reykjavík sem
um fjörutíu skólar hafa aðgang að.
Hann segir mörg af stærstu nöfn-
unum í kvikmyndagerð í dag hafa
byrjað í þessari keppni, svo framtíð
þátttakendanna ætti að vera björt.
Hreyfimyndir í fyrsta sinn
Dómnefndina skipuðu kennarar
með kvikmyndamenntun og ljós-
myndarar. Samkvæmt henni voru
myndirnar margar hverjar mjög
góðar og valið því nokkuð erfitt.
„Hugmyndaauðgi, leikgleði og
metnaður eru einkennandi og
greinilegt að hér eru á ferðinni
efnilegir kvikmyndagerðarmenn
framtíðar,“ stóð í áliti dómnefndar.
Innsendar myndir í ár voru 24,
sem er sami fjöldi og á menningar-
árinu 2000, þegar sérstök áhersla
var lögð á við nemendur að senda
inn myndir. Marteinn er meira en
ánægður með það, sérstaklega í
ljósi þess að í fyrra voru innsendar
myndir 12 að tölu. Segir hann
ástæðuna vera þá að í vetur hafi
hreyfimyndasérfræðingurinn Er-
ling Eriksson komið til landsins og
kennt 18 kennurum einfalda og
góða tækni við gerð hreyfimynda,
sem síðan hafi skilað sér ríkulega
til nemenda. Marteinn er einmitt
staddur í Fredrikstad í Noregi á
stuttmyndahátíð þar sem nemendur
áttu að senda inn hreyfimyndir, og
segir stoltur að íslenskir nemendur
hafi verið þeir einu sem sendu inn
myndir.
Klapptré handa
vinningshöfum
Fyrir bestu myndirnar og sér-
staka hæfileika voru veitt klapptré
með nöfnum vinningshafa á. En úr-
slitin voru á þessa leið: Besta
hreyfimyndin var Draumaprinsinn
eftir Hallfríði, Heiðdísi, Sigrúnu og
Þorgerði í 7. bekk Hvassaleitis-
skóla. Þjófurinn var besta stutt-
myndin í yngri flokki, en hana átti
6. ÞDJ í Selásskóla. Í eldri flokki
var Bóndahlaupið 2 besta stutt-
myndin, en hana áttu Hólabrekku-
skólapiltarnir: Jón Alfreð Hassing
Olgeirsson, Arnar M. Ólafsson, Óm-
ar Ómarsson, Karl Ó. Pétursson og
Sindri Þrastarson. En besti karl-
leikarinn var einmitt Karl Ólafur
Pétursson úr þeirri mynd. Besti
kvenleikarinn var Ylfa Helgadóttir
sem lék í myndinni The world
behind – Sophelie Anne Sunnen-
bourgher – The singing cock og var
framlag Réttarholtsskóla.
Bestu klippingu og tæknibrellur
framkvæmdi Maran í Einholts-
skóla. Og besta heimildamyndin
kom úr Breiðholtsskóla, hét Lítið
og mjúkt og var eftir Sigurð H.
Magnússon, Birgi F. Jónsson, Vigni
M. Lýðsson og Rúnar Ö. Marinós-
son.
Hólabrekkuskólapiltar unnu tvenn verðlaun fyrir stuttmyndina Bónda-
hlaupið 2 sem var valin besta stuttmyndin í eldri flokki.
„Leikkona af Guðs náð,“ sagði dóm-
nefndin um Ylfu Helgadóttur.
Hugmyndaauðgi og metn-
aður hjá grunnskólanemum
HEIMILDA- og stuttmyndahátíð í
Reykjavík (Reykjavik Shorts &
Docs) hefur verið framlengd.
Vegna fjölmargra fyrirspurna og
áskorana hefur verið ákveðið að
sýna nokkrar af myndum hátíð-
arinnar áfram í Háskólabíói. Ís-
lensku myndirnar verða sýndar
sem hér segir:
Ég er Arabi og Gamla brýnið á
laugardag 10. maí kl. 18:00 og
sunnudag 11. maí kl. 20:15. Athugið
að myndirnar eru sýndar saman og
eru um 50 mínútur hvor. Fyrsta
ferðin og Við byggjum hús verða
sýndar á laugardag kl. 20:00 og
sunnudag 11. maí
kl. 16:00. Sama fyrirkomulag er á
sýningu þessara tveggja og um hin-
ar tvær.
Erlendar myndir sem sýndar
verða áfram eru:
Biggie og Tupac (laugardag 10.
maí kl. 22:00 og sunnudag 11. maí
kl. 22:00), Stevie (laugardag 10. maí
kl. 22:00 og sunnudag 11. maí kl.
17:45) og Ruthie og Connie (laug-
ardag 10. maí kl. 16:00 og sunnu-
dag 11. maí kl. 17:00).
Stephen Fielding er viðfangsefni
myndarinnar Stevie.
Heimilda- og
stuttmyndahá-
tíð í Reykjavík
heldur áfram
alltaf á föstudögum
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem
engin má missa af!
X-97,7
Kvikmyndir.is
kl. 6 og 10.10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
ÁLFABAKKI / KRINGLANÁLFABAKKIKEFLAVÍK
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.30. B.i. 14.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2 og 4. ísl. tal / Sýnd kl. 4. ísl. tal
SG DV
Kvikmyndir.com Svona
snilldarverk
eru ekki á
hverju strái.”
Þ.B. Fréttablaðið
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
HK DV
SV MBL
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
kl. 5.50, 8 og 10.10. / kl. 5.50, 8 og 10.10. / kl. 10. Bi. 14.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4, 5.30, 8, 9.15 og 10.30. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 2, 5.30, 8 OG 10.30. B.I. 16.
Frábær rómantísk
gamanmynd sem
hefur alls staðar
slegið í gegn.
ÓHT Rás 2