Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 88

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI Munið Íslandsbylgjuna! S A M F Y L K I N G A R F Ó L K : – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 ÞAÐ var glatt á hjalla í Ráðhúsinu í gær þegar yfirkjörstjórnin í Reykja- vík norður var að leggja lokahönd á undirbúning kosninganna. Í bláu pokunum eru gögn fyrir kjördeildir. Um 17.200 einstaklingar geta kosið fyrsta sinn í dag. Alls eru rúmlega 211.300 á kjörskrá og er fjöldi karla og kvenna nokkuð jafn. Morgunblaðið/Kristinn 211 þúsund á kjörskrá STÓRFELLT tap varð af rekstri dótturfélags Baugs USA á síðast- liðnu rekstrarári, að því er fram kemur í uppgjöri Baugs Group fyrir rekstrarárið 2002 til 2003. Jón Ás- geir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir starfsemi Baugs í Bandaríkj- unum hafa verið dýrt námskeið og ekki standi til að setja aukið hlutafé í þann rekstur. Tap Baugs USA nam 1.591 milljón króna á árinu og í tilkynningu segir að árið 2002 hafi verið afar þungt í rekstri félagsins sem á 65% eignar- hlut í Bonus Stores Inc. Félagið hafi haldið áfram að loka óarðbærum verslunum og enn sé unnið að því að lækka rekstrarkostnað og færa hann til samræmis við kostnað samkeppn- isaðila. Þá er verið að færa verslanir Bonus Stores nær íslensku fyrir- myndinni Bónus m.a. með því að fækka vörutegundum og leggja aukna áherslu á matvörur. Jón Ásgeir sagði á fundi í gær þar sem uppgjör samstæðunnar var kynnt að forsvarsmenn fyrirtækisins myndu a.m.k. ekki fara þá leið aftur að kaupa fyrirtæki sem hefði tvisvar verið tekið til gjaldþrotameðferðar, eða það sem kallast Chapter 11 í Bandaríkjunum. Hann sagði að ekki stæði til að leggja meira fé til rekst- urs Bonus Stores og aðspurður sagði hann að frekar yrði fyrirtækið látið fara aftur til gjaldþrotameðferðar, án þess þó að það sé í spilunum. Áhættu Baugs af þessari fjárfest- ingu sagði hann nema 2 milljörðum króna. Velta Baugs USA nam 16,8 millj- örðum á árinu og var rúmlega 1,4 milljarða króna tap af rekstrinum fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Tap fyrir skatta var tæpir 1,9 milljarðar. Þá nam kostnaður vegna aflagðrar starfsemi Bonus Dollar Stores 534 milljónum króna en hlutdeild minni- hluta nam 835 milljónum króna. Á fundi Baugs kom fram að sl. ár hefði verið erfitt á þessum markaði í Bandaríkjunum og horfurnar gefi ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni. Ekki er reiknað með að hagnaður verði af rekstri Bonus Stores í ár. Hins vegar er gert ráð fyrir að öll önnur hlutdeildarfélög Baugs Group muni skila hagnaði. Bandaríkin voru Baugi „dýrt námskeið“ Tap Baugs USA nam 1,6 millj- örðum króna  Framlegð/13 FÆREYSKUM menntaskólanem- um þykja Íslendingar vingjarnlegir en íslensk börn illa upp alin, þeim finnst verslunareigendur hér hugsa mikið um peninga eins og Íslending- ar almennt, landið sé dýrt og ís- lenska krónan sé ómerkilegur gjald- miðill, úrvalið sé hins vegar gott í Kringlunni, allt sé samkvæmt nýj- ustu tísku, fötin séu bandarísk og bandarískáhrif almennt mikil í sam- félaginu, næturlífið segja þau hið besta í Evrópu og tónlistina telja þau góða, þeim þykir íslensk náttúra fal- leg og vildu heimsækja landið þótt heita vatnið lyktaði illa og gengi á með jarðskjálftum og eldgosum. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar á viðhorfum ungs fólks í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi hvert til annars sem er hluti af sýn- ingunni Inn og út um gluggann sem opnuð verður á Akureyri í dag. Stelpurnar sætar Viðhorf grænlenskra ungmenna til Íslands og Íslendinga voru svipuð. Þeim þótti náttúra Íslands falleg og töldu efnahagsástand gott, jafnvel mjög gott og sumir töldu Íslendinga meðal ríkustu þjóða heims, hér væri hins vegar dýrt að versla en gott, til dæmis í Kringlunni, tungumálið væri sniðugt, fólkið vingjarnlegt, stelpurnar væru sætar og strákarnir líka eftir atvikum. Meginniðurstaðan er sú að ung- menni frá þessum löndum vita heil- mikið hvert um annað, bæði af eigin raun og af frásögnum foreldra, vina, fjölmiðla og úr skólabókum. Færeyskir nemar um Íslendinga Vingjarn- legir en börnin illa upp alin  Staccato/Lesbók HLJÓMSVEITIRNAR Singapore Sling, Orgelkvartettinn Apparat og Trabant leika á tónleikum í Central Park laugardaginn 28. júní. Verður Steindór Andersen jafnframt með rímnasmiðju í garðinum en Bandaríkjamenn hafa áhuga á að kynnast íslenskri rímnahefð. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Summer Stage, sem nú er haldin í átjánda sinn, og hafa margir þekktir tónlist- armenn komið fram á hátíðinni. Jafnframt kemur Iceland Naturally-verkefnið að tónleikunum, sem og fleiri viðburðum í New York í júní. Rímnasmiðja í Central Park Steindór Andersen.  Ísland/82 ÓSKAÐ hefur verið eftir úttekt á leiksvæði leikskólans Sólgarðs við Eggertsgötu eftir atvik sem varð sl. mánudag þegar eins árs gömlu barni lá við köfnun í sandkassa á leik- svæði skólans. Ekki er ljóst hver tildrög óhappsins voru, en barnið mun annaðhvort hafa dottið í sandkassanum eða annað barn mokað sandi yfir það. Vit barnsins fylltust af sandi og átti það erfitt með andardrátt. Sjúkrabíll flutti barnið á Landspítalann þar sem það var haft til eftirlits yfir nótt. Leikskólinn er einkarekinn og starfrækt- ur á vegum Félagsstofnunar stúdenta og segir Guðrún Björnsdóttir, framkvæmda- stjóri hjá FS, að málið sé litið mjög alvar- legum augum og hafi FS tekið frumkvæði að því að endurskoða starfsemina til að fyr- irbyggja óhöpp af þessu tagi. 51 barn er á leikskólanum, sem skipt er í þrjár deildir. 17 börn eru á yngstu deildinni og fjögur börn á hvern leikskólakennara. Atvikið varð þegar verið var að klæða börnin í útiföt og fóru nokkrir leikskóla- kennarar út á leiksvæðið til að taka móti börnunum, að sögn Guðrúnar. Talið er að tveir leikskólakennarar hafi verið úti við þegar óhappið varð, en fyrstur til að sjá hvað gerst hafði var hins vegar faðir sem var að sækja barn sitt á leikskólann. „Við lítum þetta mjög alvarlegum augum og það verður farið yfir það hvort eitthvað hafi farið úr- skeiðis við að koma börnunum út og hvort leiksvæðið þarfnist yfirferðar,“ segir Guð- rún. Herdís Storgaard öryggisfulltrúi hjá Árverkni mun fara í leikskólann og ráð- leggja starfsfólki um öryggismál. Eins árs barni lá við köfnun í sandkassa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.