Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 11 RÚMLEGA 211.300 einstaklingar eiga rétt á því að kjósa í alþingiskosn- ingunum sem fram fara í dag, skv. kjörskrárstofni Hagstofunnar. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn til Alþingis eru 17.191 eða 8,1% af kjósendatölunni. Fjöldi karla og kvenna á kjörskrá er svo til jafn að þessu sinni. Konur eru 105.889 en karlar 105.400. Við síð- ustu alþingiskosningar árið 1999 voru kjósendur á kjörskrá rúmlega 201 þúsund talsins og hefur þeim fjölgað um 9.846 eða um 4,9% á kjörtíma- bilinu. Kjósendur með lögheimili erlendis eru 8.728 eða 4,1% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 744 frá síð- ustu kosningum eða um 9,3%. Samkvæmt nýju kosningalögunum hefur kjördæmum verið fækkað úr átta í sex. Sex framboð eða flokkar bjóða fram lista í öllum kjördæmum en í Suðurkjördæmi eru framboðs- listarnir sjö. Í framboði eru B-listi Framsóknarflokks, D-listi Sjálfstæð- isflokks, F-listi Frjálslynda flokks, N-listi Nýs afls, S-listi Samfylkingar, U-listi vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og í Suðurkjördæmi er einnig í framboði T-listi Framboðs óháðra. Kosnir verða 63 alþingis- menn í alþingiskosningunum. Flestir kjörstaðir opnaðir kl. 9 eða 10 Kjörstaðir verða opnaðir á flestum þéttbýlisstöðum kl. 9 eða 10 í dag og verður þeim lokað í síðasta lagi kl. 22 í kvöld. Kjörstjórn getur þó ákveðið að kosning hefjist síðar, en þó ekki síðar en 12 á hádegi Talning atkvæða fer fram á einum stað í hverju kjördæmi. Þær upplýs- ingar fengust hjá yfirkjörstjórnum allra kjördæmanna að stefnt er að því að fyrstu tölur úr talningu atkvæða verði birtar strax og kjörfundi lýkur eða fljótlega upp úr kl. 22. Fyrstu tölur úr suðvest- urkjördæmi strax kl. 22 Suðvesturkjördæmi er fjölmenn- asta kjördæmi landsins. Þar eru skráðir 48.857 kjósendur þar af 24.231 karl og 24.626 konur. Kjördæmið nær yfir Hafnarfjarð- arkaupstað, Garðabæ, Kópavogsbæ, Bessastaðahrepp, Seltjarnarnes- kaupstað, Mosfellsbæ og Kjósar- hrepp. Í kjördæminu eru alls 49 kjördeild- ir. Flestir kjörstaðir í kjördæminu opna kl. 9 fyrir hádegi. Talning at- kvæða fer fram í íþróttahúsinu í Kaplakrika, að sögn Bjarna S. Ás- geirssonar, formanns yfirkjörstjórn- ar. „Við tökum á móti atkvæðaköss- um á milli klukkan sex og sjö, lokum svo að okkur klukkan sjö og ætlum að vera komnir með tölur klukkan tíu,“ segir Bjarni er hann er spurður hve- nær talning atkvæða hefjist. Bjarni telur líklegt að þá verði búið að telja um 30% atkvæða í kjördæminu. Að sögn hans er útilokað að segja fyrir um hvenær lokaúrslit gætu legið fyr- ir á kosninganótt. Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi væntanlegar upp úr kl. 22 Í Suðurkjördæmi eru 28.374 kjós- endur, þar af 14.631 karlar og 13.743 konur. 39 kjördeildir eru í kjördæm- inu og kjörstaðir 34, samkvæmt upp- lýsingum Karls Gauta Hjaltasonar sýslumanns og formanns yfirkjör- stjórnar. Kjörstaðir á flestum stöðum í kjördæminu opna strax kl. 9 eða 10. Talning atkvæða fer fram á Hótel Selfossi. Flokkun atkvæða hefst um kl. 19 og talningarmenn verða þá lok- aðir af. Gerir Karl Gauti ráð fyrir að fyrstu tölur ættu að geta legið fyrir fljótlega upp úr kl. 22 eða í það minnsta fyrir kl. 22:30. Flogið verður með atkvæði frá Vestmannaeyjum og er Karl Gauti bjartsýnn á að veður muni ekki valda töfum á flutningi kjörgagna. „Ef allt gengur vel og ekkert sérstakt kemur upp á, þá reikna ég með að við verð- um búin kl. þrjú eða hálffjögur,“ segir hann. Flogið með atkvæði frá Egilsstöðum til Akureyrar Í Norðausturkjördæmi, sem nær allt frá Siglufirði austur í Djúpavogs- hrepp, eru 27.316 kjósendur, þar af 13.911 karlar og 13.405 konur. Misjafnt er hversu snemma kjör- staðir opna en að sögn Jóns Kr. Sól- nes, formanns yfirkjörstjórnar, opna allir stærstu kjörstaðirnir kl. 9. Alls eru 48 kjördeildir í kjördæminu. Talning fer fram í KA-húsinu á Ak- ureyri. Gert er ráð fyrir að byrjað verði að flokka utankjörfundarat- kvæði síðdegis og að talning hefjist um kl. 18. Flytja þarf kjörkassa með atkvæðum langan veg en Jón gerir ráð fyrir að atkvæði hafi borist frá flestum kjörstöðum áður en kjör- fundi lýkur kl. 22 og fljótlega upp úr því verði fyrstu tölur úr kjördæminu birtar. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að sækja atkvæði með flugi á Þórs- höfn og Egilsstaði þar sem flugvél mun bíða eftir síðustu atkvæðaköss- um úr kjördeildum á Austfjörðum. Jón segist reikna með því að öll at- kvæði verði komin á talningarstað á Akureyri nálægt miðnætti. Atkvæði af Vestfjörðum vænt- anleg á talningarstað um kl. 1 Í Norðvesturkjördæmi er 21.221 kjósandi, þar af 11.056 karlar og 10.165 konur. Í kjördæminu eru 63 kjördeildir. Stærri kjörstaðir opna kl. 9 en á fámennari stöðum opna kjör- staðir nokkru síðar eða í síðasta lagi kl. 12. Talning fer fram í Borgarnesi. Fyrstu tölur eiga að liggja fyrir fljót- lega upp úr kl. 22 að sögn Gísla Kjart- anssonar, formanns yfirkjörstjórnar. Ljóst er að vegna stærðar kjör- dæmisins verða atkvæði frá stórum hluta Vestfjarða ekki með þegar fyrstu tölur úr kjördæminu verða birtar. Ákveðið hefur verið að flugvél verði til reiðu á Ísafjarðarflugvelli kl. 23, sem mun flytja kjörgögn af Vest- fjörðum, með viðkomu í Bíldudal. Þaðan verður flogið með kjörkassana til Reykjavíkur og ekið með þá þaðan upp í Borgarnes til talningar. Ef allt gengur að óskum ættu atkvæðin að vera komin á talningarstað um kl. 1 eftir miðnætti, að sögn Gísla. Atkvæði í Reykjavík norður talin í Ráðhúsinu Í Reykjavíkurkjördæmi norður eru 42.787 kjósendur, þar af 20.832 karlar og 21.955 konur. Í kjördæminu eru sex kjörstaðir sem opna allir kl. 9 og verða opnir til kl. 22 þegar kjör- fundi lýkur. Talning atkvæða fer fram í Ráð- húsinu. Lögregla mun byrja að safna saman kjörkössum á sjötta tímanum og gert er ráð fyrir að talningarmenn verða lokaðir inni skömmu fyrir kl. 19 þegar flokkun atkvæðaseðla og taln- ing hefst, skv. upplýsingum Þórunn- ar Guðmundsdóttur formanns yfir- kjörstjórnar. Kl. 22 verður innsigli rofið á taln- ingarsalnum og verða fyrstu tölur birtar strax upp úr kl. 22 hafi allt gengið að óskum, að sögn hennar. Standa vonir til að henni verði lokið fyrir kl. 2. Í Reykjavíkurkjördæmi suður eru 42.734 kjósendur, þar af 20.739 karlar og 21.995 konur. Talning atkvæða fer fram í Hagaskóla. Í kjördæminu eru sex kjörstaðir, sem opna allir kl. 9. Um 60 manns annast talningu og verða þeir lokaðir inni frá kl. 19 þegar talning atkvæða hefst. Sveinn Sveinsson, formaður yf- irkjörstjórnar, gerir ráð fyrir að fyrstu tölur verði birtar strax upp úr kl. 22. Óvíst er hvenær takast mun að ljúka talningu og úrskurða um gildi atkvæða en Sveinn gerir sér vonir um að það verði ekki síðar en kl. 2–3, jafnvel fyrr um nóttina. Upplýsingar um hvar á að kjósa Auglýsingar eru birtar í fjölmiðl- um í dag með upplýsingum um í hvaða kjördeildum kjósendur eiga að kjósa. Í Reykjavík geta kjósendur, sem hafa aðgang að Netinu, einnig flett upp á kjörskránni á vef Reykja- víkurborgar, www.reykjavik.is. Með því að slá inn kennitölu eða nafn og heimilisfang fást upplýsingar um þann kjörstað sem kjósa skal á og í hvaða kjördeild. Rúmlega 211 þúsund kjósendur eru á kjörskrá í alþingiskosningunum 2003 Um 17.200 eru að kjósa í fyrsta sinn Morgunblaðið/Kristinn Kjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður undirbjó kosningarnar í Ráðhúsinu í gærdag. Rúmlega 211 þúsund kjósendur eru á kjör- skrá í alþingiskosningunum sem fram fara í dag. Fyrstu atkvæðatalna í öllum kjördæm- unum sex er að vænta strax eftir að kjör- stöðum verður lokað upp úr kl. 22. SKÚLI Magnússon, húsasmiður og fashana- bóndi á Tókastöðum á Austur-Héraði og for- maður Félags hrein- dýraleiðsögumanna, lést á Landspítalanum við Hringbraut að kvöldi 8. maí, á 59. aldursári, eftir skamma sjúkdóms- legu. Banamein hans var krabbamein. Skúli fæddist 5. októ- ber árið 1944 í Reykja- vík, kjörsonur Magnús- ar Sæmundssonar málarameistara og Jó- dísar Sigurðardóttur húsfreyju. Magnús lést árið 1947 og fósturfaðir Skúla var Eyjólfur Stefánsson frá Bjarneyjum á Breiðafirði. Skúli lærði húsasmíðar í Reykjavík hjá Ingimari Haraldssyni byggingar- meistara og lauk þar meistaraprófi. Fluttist til Akureyrar og lærði tré- skipasmíði hjá Slippstöðinni. Á Akur- eyri kvæntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni, Önnu Einarsdóttur, árið 1971. Þar bjuggu þau í fjögur ár, að þau fluttu til Reykjavíkur þar sem Skúli stundaði húsasmíðar. Árið 1976 var hann ráðinn yfir- verkstjóri á Gunnars- holti á Rangárvöllum og þar bjó fjölskyldan í rúm sex ár. Árið 1983 fluttu þau til Egilsstaða þegar Skúli var ráðinn fyrsti umdæmisstjóri Vinnueftirlits ríkisins á Austfjörðum. Því starfi gegndi hann í tólf ár. Skúli var mikill áhugamaður um útivist og veiðimennsku. Um árabil starfaði hann sem leiðsögumaður hreindýraveiðimanna og átti frumkvæði að því sl. vetur að stofnað var Félag hreindýraleiðsögu- manna. Var hann kjörinn fyrsti for- maður félagsins í febrúar sl. Skúli og Anna keyptu Tókastaði á A-Héraði fyrir fimm árum og urðu fyrstu bændur hér á landi til að stunda fashanarækt. Skúli starfaði þar til í vetur einnig hjá Minjasafninu á Egilsstöðum en hann var mikill handverksmaður á tré og járn. Þau Anna eignuðust þrjú börn, sem öll eru uppkomin, og barnabörnin eru orðin sjö talsins. Andlát SKÚLI MAGNÚSSON ENDANLEG afstaða Búnaðarbank- ans til nauðasamninga Móa mun ekki liggja fyrir fyrr en 2. júní þegar kröfuhafar greiða atkvæði um nauða- samninga segir Sólon Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans. Afstaða Búnaðarbankans mun þó ekki ráða úrslitum um samþykkt eða synjun nauðasamninganna þar sem Búnaðarbankinn á, eftir því sem næst verður komist, aðeins um 13% af þeim skuldum sem falla undir ákvæði nauðasamninga en aðrar skuldir Móa við bankann, sem eru mjög verulegar, munu vera tryggðar með veðum. Alls nema skuldir Móa sem falla undir nauðasamninga um 637 milljónum króna en eins og fram hefur komið eru stjórnendur Móa reiðubúnir til þess að greiða 30% upp í kröfur eða rúmlega 190 milljónir króna. Tveir þriðju hlutar kröfuhafa og handhafar 70% allra krafna á hendur fyrirtækinu, sem falla undir nauða- samninga, þurfa að samþykkja samn- ingana svo þeir gangi í gegn þannig að afstaða Búnaðarbankans ræður ekki úrslitum. Mjólkurfélag Reykja- víkurvíkur (MR) er stærsti einstaki kröfuhafinn með um fimmtung af heildarkröfunum. Kristinn Gylfi Jónsson, stjórnarformaður Móa, seg- ir að stjórn MR hafi samþykkt að mæla með að gengið verði að nauða- samningum við Móa enda telji stjórn- in það þjóna best hagsmunum félags- ins. Hörður Harðarson, stjórnarfor- maður MR, segir afstöðu félagsins til nauðasamninga aftur á móti ekki liggja fyrir, verið sé að kynna fé- lagsmönnum málið á deildarfundum þessa dagana. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin enn. Aðalfundur MR verður haldinn 17. maí og ég geri ráð fyrir að afstaða okkar muni liggja fyrir þá.“ Búnaðarbankinn gerir kröfu um nýtt hlutafé Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um Morgunblaðsins mun Búnaðar- bankinn, sem er viðskiptabanki Móa, hafa gert það að skilyrði í fjárhags- legri endurskipulagningu Móa að eig- endur fyrirtækisins eða nýjir aðilar leggi fram umtalsverðar upphæðir í nýju hlutafé og þar af verulegan hluta í peningum. Ekki er enn ljóst hvort eigendum Móa muni takast það en framtíð fyrirtækisins veltur á því. Kristinn Gylfi Jónsson, stjórnar- formaður kjúklingabúsins Móa, segir fyrirtækið hafa átt góðar viðræður við Búnaðarbankann um málefni Móa og haldið vel áætlun varðandi fjárhags- lega endurskipulagningu félagsins. „Við teljum enga endanlega afstöðu til nauðasamninga komna fram af hálfu Búnaðarbankans enda hefur Búnaðarbankinn ekki enn lýst kröf- um undir nauðasamning. Þá er rétt að að minna á að Búnaðarbankinn á inn- an við 15% krafna sem falla undir samninginn. Ég er hins vegar bjart- sýnn að vel muni takast um þá samn- inga sem eru í gangi við Búnaðar- banka Íslands,“ segir Kristinn Gylfi. Bankastjóri Búnaðarbanka um nauðasamninga við Móa Endanleg afstaða bank- ans liggur ekki fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.